Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mál Jón Baldvins sent aftur heim í hérað Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að taka aftur fyrir frávísunarkröfu Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi utanríkisráðerra í dómsmáli er varðar meinta kynferðislega áreitni hans á hendur Carmen Jóhannsdóttur. Þetta er niðurstaða Landsréttar. 22.1.2021 16:01
Þóra áfrýjar málinu gegn Íslensku óperunni Þóra Einarsdóttir óperusöngkona hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. janúar, þar sem Íslenska óperan var sýknuð af kröfu Þóru um vangoldin laun vegna þátttöku hennar í uppsetningu óperunnar á Brúðkaupi Fígarós árið 2019. 22.1.2021 15:12
Börnin nutu vafans og skólabílstjóri fær engar bætur Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað Dalabyggð af kröfu manns um miska- og skaðabætur fyrir að hafa neitað honum um starf sem skólabílstjóri. Sveitarfélagið sendi verktakafyrirtæki sem annaðist aksturinn bréf þar sem tilkynnt var um þá ákvörðun að hafna því að maðurinn myndi sinna slíkum akstri. 22.1.2021 15:09
Sex mánaða dómur fyrir að keyra á nágranna sinn Landsréttur staðfesti í dag sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir Ragnari Val Björgvinssyni fyrir að hafa ekið á nágranna sinn Hreggvið Hermannsson í desember 2017. Dómur var kveðinn upp klukkan 14 og staðfesti Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari niðurstöðuna í samtali við fréttastofu. 22.1.2021 14:33
Tomasz og fjölskylda þakka þeim sem komu að slysinu Lögregla hefur komið á framfæri kæru þakklæti frá Tomasz Majewski og fjölskyldu hans til vegfarenda sem voru fyrstir á vettvang í Skötufirði á laugardag og til allra viðbragðsaðila auk starfsfólks Landspítalans. 22.1.2021 14:26
Sex vilja gegna embætti forstjóra Hafró Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson. 22.1.2021 13:35
Endurtekið skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka Svo virðist sem endurtekið sé skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka hér á landi. Starfsmenn á skrifstofu Samfylkingarinnar sáu göt á rúðum skrifstofu flokksins í Sóltúni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fundust litlar byssukúlur á vettvangi. 22.1.2021 12:26
Guðmundur Felix þakkar þjóðinni og sýnir nýju handleggina „Komið þið sæl, kæru Íslendingar. Það er loksins komið að þessu,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson „handhafi“ í kveðju til landsmanna. 22.1.2021 12:12
„Það er ekki hægt að ætla neinu nútímasamfélagi að lifa við þetta“ Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir Siglfirðinga orðna langþreytta á lokunum með tilheyrandi raski á atvinnustarfsemi. Það sé allt of algengt að íbúar verði innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Eina lausnin séu jarðgöng. 22.1.2021 12:11
Rósa Björk vill leiða lista Samfylkingarinnar í Kraganum Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur sóst eftir að leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum. 22.1.2021 11:59
Handtekinn vegna gruns um íkveikju í húsi á Ólafsfirði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur nú til rannsóknar eldsvoða á Kirkjuvegi 7 á Ólafsfirði sem kom upp aðfararnótt mánudagsins 18. janúar. 22.1.2021 11:50
Teitur Björn ætlar aftur á þing Teitur Björn Einarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir þingsæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi í kosningunum í haust. Frá þessu greinir hann í færslu á Facebook og segist töluvert hafa verið spurður út í framboðsmál að undanförnu. 22.1.2021 11:47
Telja að skotið hafi verið á skrifstofur Samfylkingarinnar Starfsfólk skrifstofu Samfylkingarinnar gerði lögregu viðvart í morgun þegar það mætti til vinnu og sá göt á gluggarúðum húsnæðisins við Sóltún 26, sem virðast vera eftir byssukúlur. Tæknideild lögreglu rannsakar nú málið. 22.1.2021 11:45
Þórólfur bjartsýnn og útilokar ekki að slaka fyrr á aðgerðum Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ef fram haldi sem horfir í fjölda innanlandssmita hér á landi muni hann taka frekari afléttingar til skoðunar. Hann leggur þó enn áherslu á að grunnreglan sé að flýta sér hægt. Erlendir miðlar sýna stöðunni á Íslandi áhuga enda ástandið í mörgum nágrannalöndunum afar erfitt. 22.1.2021 11:37
Reyna að koma rafmagni aftur á í dag Hreinsunarstarf og uppbygging heldur áfram í Háskóla Íslands í dag eftir vatnsleka í húsnæði skólans í fyrrinótt. Á meðal verkefna dagsins er að gera við lyftur og koma rafmagni aftur á. Þá var unnt að opna Hámu og Bóksölu stúdenta á ný í morgun - en bið verður á opnun Stúdentakjallarans. 22.1.2021 11:32
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar heyrum við í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni en þau ánægjulegu tíðindi bárust í morgun að engin smit greindust innanlands í gær. 22.1.2021 11:30
Snjóflóð féll fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð Í morgun féll lítið snjóflóð á varnarþil fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð sem liggur á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. 22.1.2021 11:26
Sækist eftir að leiða lista Pírata í Suðurkjördæmi Álfheiður Eymarsdóttir, varaþingmaður Pírata í Suðurkjördæmi, hefur gefið kost á sér til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum sem fram fara í september. 22.1.2021 10:53
Oddvitinn gefur kost á sér í 2.-3. sæti Helgi Héðinsson, oddviti Skútustaðahrepps, hefur ákveðið að vandlega athuguðu máli í samráði við fjölskyldu og vinni að bjóða sig fram á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi og sækist þar eftir 2. til 3. sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga. 22.1.2021 10:45
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fimm greindust á landamærum. Alls eru 89 manns nú í einangrun vegna Covid-19. 22.1.2021 10:37
Rannsókn lokið: Ásmundarsalarmálið sent ákærusviði Lögregla hefur lokið rannsókn á mögulegum sóttvarnabrotum í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns verður málið sent ákærusviði lögreglunnar í dag, ef það er ekki þegar komið þangað. 22.1.2021 10:22
Rústabjörgunarmaður vill annað sætið á lista Pírata í Kraganum Gísli Rafn Ólafsson hefur ákveðið að kost á sér í prófkjöri Pírata í Suðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta haust. Hann sækjast eftir öðru sæti á lista flokksins í því kjördæmi, sæti sem hann segir að verði án efa baráttusæti. 22.1.2021 10:01
RÚV eykur enn hlutdeild sína á auglýsingamarkaði Tekjusamdráttur fjölmiðla er sem nemur sjö prósentum árið 2019 á föstu verðlagi. Fjórar af hverju tíu krónum fara til erlendra aðila. 22.1.2021 09:45
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar vill á þing Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar sem fram fara næsta haust. 22.1.2021 09:01
Guðmundur Felix fer líklega af gjörgæslu í dag Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handleggjaágræðslu í Lyon í Frakklandi í síðustu viku, verður líklegast útskrifaður af gjörgæslu í dag. 22.1.2021 08:38
Að minnsta kosti 54 af 63 þingmönnum hyggjast þiggja bólusetningu gegn Covid-19 Yfirgnæfandi meirihluti þingmanna hyggst þiggja bólusetningu gegn Covid-19, samkvæmt svörum við fyrirspurn Vísis. 54 segja annað hvort já eða hefðu sagt já ef þeir hefðu ekki þegar fengið sjúkdóminn. 22.1.2021 08:27
Gular viðvaranir vegna norðanhríðar: Skafrenningur, lítið skyggni og snjóflóðahætta Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðanhríðar á norður- og austurhluta landsins. Viðvaranirnar taka gildi klukkan níu nú fyrir hádegi og gilda til miðnættis annað kvöld. Þær gilda í eftirfarandi landshlutum: 22.1.2021 07:15
Segir Grænland vera að hrökkva í gírinn sem tilvonandi sjálfstætt ríki Stefnt er að því að stórefla samstarf Íslendinga og Grænlendinga og var fyrsta skrefið kynnt í dag þegar Össur Skarphéðinsson, formaður Grænlandsnefndar utanríkisráðherra, afhenti Guðlaugi Þór Þórðarsyni yfirgripsmikla skýrslu um hvernig best væri að fara að. 21.1.2021 22:00
109 tilkynningar borist vegna gruns um aukaverkun Alls hafa 109 tilkynningar borist Lyfjastofnun vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Þar af eru 75 vegna bóluefnis Pfizer/BioNTech og 34 vegna Moderna. Níu tilkynningar eru metnar alvarlegar, ein í tengslum við bóluefni Moderna. Búið er að bólusetja 5.725 einstaklinga hér á landi með fyrri skammti. 21.1.2021 20:41
Sjáðu þegar vatnið fór að flæða inn í Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segist vongóður um að tjón vegna mikils vatnsleka í húsakynnum háskólans í vesturbæ Reykjavíkur í nótt verði bætt. Myndband úr öryggismyndavél sýnir upphaf lekans og hvernig vatn flæddi inn í háskólann. 21.1.2021 20:12
Óeining um stjórnarskrárfrumvarp Katrínar á Alþingi Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur um breytingar á stjórnarskránni fékk dræmar undirtektir á Alþingi í dag. Ólíklegt er að það nái fram að ganga í heild sinni. 21.1.2021 19:21
„Hélt við værum örugg undir snjóflóðavarnargarðinum“ Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið. 21.1.2021 19:00
Gunnar Smári segir aumt að bjóða far og halda því þá fram að hann heimti undir sig einkaþotu Gunnar Smári Egilsson blaðamaður hefur ritað mikla grein þar sem hann svarar því sem á hann stendur í óútkominni bók Einars Kárasonar: Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. 21.1.2021 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stórtjón varð þegar vatnslögn við Háskóla Íslands gaf sig í nótt og ríflega tvö þúsund tonn af vatni flæddu um byggingar skólans. Sýnt verður frá vatnsflaumnum sem starfsfólk og slökkvilið hefur barist við í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. 21.1.2021 18:00
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. 21.1.2021 17:46
Pervertinn sagður hár, grannur og úlpuklæddur í kringum þrítugt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú karlmanns sem beraði á sér kynfærin fyrir framan nemendur í Seljaskóla í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn er talinn í kringum þrítugt, hár og grannur. 21.1.2021 16:18
Pilturinn látinn laus í fyrradag Ungi maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna árásar í Borgarholtsskóla í síðustu viku var sleppt úr haldi í fyrradag. Úrskurður héraðsdóms um gæsluvarðhald var kærður til Landsréttar, sem sneri úrskurðinum við. 21.1.2021 15:01
Þurfum að vera búin undir veirustofna sem sleppa undan bóluefni Sóttvarnalæknir segir að fólk þurfi að búa sig undir það að stofnar kórónuveirunnar komi fram, sem bóluefni bíti ekki á. Ekki sé heldur ljóst hversu lengi ónæmi af þeim bóluefnum sem leyfi hafa fengist fyrir vari lengi og ekki útilokað að bólusettir þurfi aftur í bólusetningu. 21.1.2021 14:29
Miklar breytingar á starfi á Háskólatorgi og Gimli Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir að öll kennsla sem fram hafi farið í húsakynnum Háskólatorgs og Gimli verði nú rafræn. Þá verður jarðhæð í Gimli ónothæf næstu mánuði og sama gildi um fyrirlestrarsali á jarðhæð á Háskólatorgi. 21.1.2021 14:29
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. 21.1.2021 14:14
Pervert heldur skólastarfi Seljaskóla í gíslingu Atli Már Gylfason blaðamaður segir gersamlega óþolandi að lögreglan skuli ekki grípa til aðgerða vegna perverts sem gengur laus í Seljahverfinu. 21.1.2021 14:09
Hafa dælt úr skólanum í hálfan sólarhring Slökkviliðsmenn sem eru að störfum í byggingum Háskóla Íslands eru nú farnir að sjá fyrir endann á aðgerðum á staðnum. Þeir vonast til að lokið verði við að dæla vatni af göngum skólans á næstu klukkutímum. 21.1.2021 12:52
Lögðu hald á sjötíu kannabisplöntur í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Hafnarfirði í vikunni. 21.1.2021 12:41
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. 21.1.2021 12:35
Biður fólk að hætta að senda tölvupósta til að komast ofar í forgangsröðun Sóttvarnalæknir biðlar til fólks að hætta að senda embætti landlæknis og sóttvarnalæknis tölvupósta með óskum um að komast framar í forgangsröðun í bólusetningu gegn kórónuveirunni. Slíkt skapi aðeins óþarfa álag á starfsfólk og leiði ekki til neins. 21.1.2021 12:21