Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íbúar á Reyðarfirði beðnir að loka gluggum vegna bruna Töluverður eldur logar á athafnasvæði Hringrásar á Hjallaleiru á Reyðarfirði. Slökkvistarf stendur yfir að því er fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Fjarðabyggðar. Nokkurn reyk mun leggja frá svæðinu og yfir byggð á Reyðarfirði. 21.2.2021 13:34
Yfirheyra sakborninga og einum sleppt Lögregla hyggst ekki fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni sem var handtekinn í gær í tengslum við morðið í Rauðagerði. Tveir voru handteknir vegna málsins í gær og var annar þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald. Báðir koma frá Albaníu og eru í kringum þrítugt og fertugt. 21.2.2021 12:22
Slökkviliðsmenn féllust í faðma á vaktaskiptum eftir marga mánuði í sundur Tímamót urðu hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar útkallslið slökkviliðsins varð að einum sóttvarnahóp á nýjan leik. Í marga mánuði hafa vaktaskipti hjá slökkviliðinu farið fram með óhefðbundnum hætti sökum kórónuveirufaraldursins þar sem gætt var að því að vaktir hittust ekki. 21.2.2021 12:20
Von á tilslökunum á næstu dögum Heilbrigðisráðherra býst við að fá drög að næstu sóttvarnaraðgerðum frá sóttvarnarlækni í dag. Hún gerir ráð fyrir talsverðum tilslökunum. Ekki er búið að ákveða hvort íslenskir ríkisborgarar sem koma til landsins án neikvæðs PCR-prófs verði sektaðir. 21.2.2021 11:58
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sóttvarnalæknir mun skila tillögum að næstu sóttvarnaaðgerðum í dag. Heilbrigðisráðherra gerir ráð fyrir talsverðum tilslökunum í framhaldinu. 21.2.2021 11:40
Einn greindist smitaður í sóttkví Einn greindist smitaður af Covid-19 innanlands í gær en viðkomandi var í sóttkví. Ekkert smit greindist á landamærunum. 21.2.2021 11:29
Bólusetningar, bankar, veiðigjöld og atvinnuleysi í Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf á sunnudögum. 21.2.2021 09:31
Töluvert af stútum á ferðinni Lögregluþjónar stöðvuðu fjölda ökumanna í gærkvöldi og í nótt, sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, samkvæmt dagbók lögreglunnar. 21.2.2021 07:20
Guðmundur Felix fer yfir stöðuna: „Ég verð betri með degi hverjum“ Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handaágræðslu í Frakklandi í síðasta mánuði, hefur birt nýtt myndband þar sem hann fer yfir stöðu mála eftir aðgerðina. Hann segist verða betri með degi hverjum og stefnt er að því að hann hefji endurhæfingu um mánaðamót. 20.2.2021 22:12
Tveir með fyrsta vinning Tveir fengu fyrsta vinning í Lottó í kvöld og hlýtur hvor 10.823.520 krónur. Annar vinningsmiðinn var keyptur í Snælandi í Núpalind en hinn í Lottó-appinu. 20.2.2021 21:17
Mikilvægt að auka jafnræði milli innlendra og erlendra fjölmiðla Formaður nýskipaðs starfshóps stjórnarþingmanna um Ríkisútvarpið segir að áhrif erlendra efnisveitna verði sérstaklega könnuð í vinnunni framundan. Mikilvægt sé að auka jafnræði milli innlendra og erlendra fjölmiðla. 20.2.2021 21:01
Listaháskólinn mun sjá um kvikmyndanám á háskólastigi Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ákveðið að Listaháskóli Íslands muni annast kvikmyndanám á háskólastigi. Bæði Listaháskólinn og Kvikmyndaskólinn lýstu yfir áhuga á því að kenna námið á háskólastigi. 20.2.2021 20:30
Talsverður gangur í sölu á flugi til Tenerife Flugsæti eru að seljast upp í ferðir til Tenerife nú um páskana. Harðar aðgerðir á borð við skimanir, sóttkví og neikvætt próf gegn Covid19 virðist lítil áhrif hafa haft á bókanir, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Vita. 20.2.2021 20:01
Ætla að auka verðmætasköpun og hagsæld með nýrri stefnu Nýsköpunarráðherra kynnir skýrslu á Alþingi í næstu viku sem felur í sér aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í atvinnulífinu. Fjölmargir hafa komið að mótun stefnunnar segir verkefnastýra. Stefnan geti skapað ný og spennandi tækifæri fyrir atvinnulífið í landinu. 20.2.2021 19:32
Vilja ekki lögþvingaða sameiningu sveitarfélaga Um tuttugu sveitarfélög víðs vegar um landið hafa tekið sig saman og mótmælt lögþvinguðum sameiningum sveitarfélaga. Sveitarfélögin vilja að íbúarnir ráði sjálfir hvort sameinað verði eða ekki. 20.2.2021 19:20
Taldir tengjast meintum byssumanni Tveir albanskir karlmenn voru í dag handteknir í tengslum við morðið í Rauðagerði um síðustu helgi. Tíu eru nú í haldi lögreglu vegna málsins. 20.2.2021 18:44
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við áfram um morðið í Rauðagerði. Tíu eru nú í haldi lögreglu vegna málsins. 20.2.2021 18:22
Afreksvæðingin geti leitt til kvíða og sálrænna vandamála Fræðimenn í íþrótta- og félagsfræðum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu í kjölfar mikillar umræðu um heimildarmyndina Hækkum rána, sem segir frá umdeildri vegferð stúlknaliðs ÍR undir stjórn þjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Umræðan hefur verið fyrirferðarmikil undanfarna daga en myndin var frumsýnd fyrir rúmlega viku síðan og hafa fræðimenn lýst yfir efasemdum um ágæti hennar. 20.2.2021 18:13
Níundi maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna manndráps við Rauðagerði Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til föstudagsins 26. febrúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi við Rauðagerði í Reykjavík um síðustu helgi. 20.2.2021 16:36
Tveir lentu í snjóflóði undir hlíðum Skessuhorns Tveir menn lentu í snjóflóði sem féll í hlíðunum undir Skessuhorni í Borgarfirði í dag. Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur í dag en mönnunum tókst að koma sér út úr flóðinu af sjálfsdáðum og hringdu á eftir aðstoð. 20.2.2021 16:27
„Afsakið en hvaða grín er þetta?“ Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, lýsir undrun sinni yfir því að mennta- og menningarmálaráðherra hafi falið þremur þingmönnum stjórnarflokkanna að leita leiða til að sætta sjónarmið og rýna í lög vegna Ríkisútvarpsins. „Afsakið en hvaða grín er þetta?“ spyr Hanna Katrín sem furðar sig á því hvers vegna þingmönnum stjórnarandstöðunnar sé ekki boðið að vera með. 20.2.2021 15:55
Mest traust til Landhelgisgæslunnar en minnst til borgarstjórnar Landhelgisgæslan er sú stofnun sem flestir landsmenn bera mest traust til samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup eða 86 prósent. Fæstir segjast aftur á móti bera mest traust til borgarstjórnar Reykjavíkur eða 22 prósent. Í langflestum tilvikum hefur traust landsmanna til ýmissa stofnanna aukist milli ára samkvæmt könnuninni. 20.2.2021 14:34
Skipsheitið Kap er gælunafn stúlku Skip Vinnslustöðvarinnar, Kap VE 4, sem landaði fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár, og kom þannig loðnuvertíðinni af stað í Vestmannaeyjum þetta árið, ber forvitnilegt heiti. Sem skipsnafn í Eyjum á það sér nærri eitthundrað ára sögu en nafnið Kap er stytting á kvenmannsnafninu Kapítóla. 20.2.2021 13:48
Vélsleðaslys við Tjaldafell: Fór fram af hengju Kona slasaðist þegar vélsleði hennar fór fram af hengju við Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar í dag. Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út upp úr klukkan tólf í dag vegna slyssins en konan finnur til verkja en hún var á ferðalagi ásamt hópi fólks sem kom henni í skjól í nærliggjandi skála. 20.2.2021 13:32
Hótuðu starfsfólki lífláti og heimtuðu pening Þrír menn vopnaðir hnífum reyndu að fremja rán í verslun í miðbænum í morgun. Gengu þeir þar inn, hótuðu starfsfólki lífláti og heimtuðu peninga. 20.2.2021 12:30
Einn fluttur á slysadeild eftir umferðarslys á Kjalarnesi Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Kjalarnes á milli tveggja bifreiða um hádegisbil í dag. Lögreglan hefur lokað vegi við Esjuskála og Klébergsskóla og hefur umferðinni verið beint í gegnum Grundarhverfið á Kjalarnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 20.2.2021 12:30
Loksins, loksins fá Sunnlendingar menningarsal Sunnlendingar eru nú að fara að eignast sinn eigin menningarsal, sem hefur þó staðið fokheldur í 35 ár. Salurinn er í Hótel Selfossi og mun rúma um þrjú hundruð manns í sæti. Nú þegar er búið að tryggja tæplega 500 milljónir króna til að ljúka verkefninu. 20.2.2021 12:29
Vilhjálmur vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér til að leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Vilhjálmur hefur verið þingmaður kjördæmisins síðastliðin átta ár. 20.2.2021 12:17
Tveir handteknir til viðbótar vegna morðsins við Rauðagerði Albanskur karlmaður á fertugsaldri er grunaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana fyrir utan heimili hans við Rauðagerði í Reykjavík um síðustu helgi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Hann var handtekinn á miðvikudag og húsleit gerð á heimili hans, þar sem ummerki eftir skotvopn fundust. 20.2.2021 11:56
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Albanskur karlmaður á fertugsaldri er grunaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana fyrir utan heimili hans við Rauðagerði í Reykjavík um síðustu helgi. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar sem hefjast klukkan tólf. 20.2.2021 11:47
Skoða hvort börn hafi sætt illri meðferð á Laugalandi og Varpholti Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu félags- og barnamálaráðherra um að það verði kannað hvort og þá í hvaða mæli börn sem voru vistuð á meðferðarheimilinu Varpholti og Laugalandi hafi sætt illri meðferð. 20.2.2021 11:28
Enginn greindist innanlands og einn á landamærunum Enginn greindist smitaður af Covid-19 hér innanlands í gær og einn greindist á landamærunum. 20.2.2021 11:10
Eva Björk sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, sækist eftir 2.-3. sætti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Eva Björk greinir frá þessu á Facebook í gær en Eva rekur ásamt fjölskyldu sinni Hótel Laka í Efri-Vík hjá Kirkjubæjarklaustri. 20.2.2021 10:17
Felur þremur stjórnarþingmönnum að „sætta ólík sjónarmið“ um Rúv Lilja Alfreðdsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur falið þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna að gera tillögur að breytingum á lögum um Ríkisútvarpið í þeirri von að „sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins.“ 20.2.2021 09:53
Grímudólgur réðst á starfsmann verslunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir lögregluþjóna hafa haft í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að mikið var um útköll og þar af var ellefu útköllum vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum sinnt. 20.2.2021 07:27
Fjölga leikskólaplássum um fimmtíu Leikskólinn Laugasól mun geta tekið á móti fimmtíu börnum til viðbótar eftir að endurbætur verða gerðar á núverandi kjallara leikskólans, en borgarráð hefur samþykkt að heimila formlegan undirbúning að stækkun og endurbótum á leikskólanum. 19.2.2021 23:43
„Ómögulegt fyrir okkur sem þjóð að sitja uppi með óupplýst morðmál af þessu tagi“ Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir morðið í Rauðagerði óhugnanlegt mál sem veki skiljanlega upp margar spurningar. Það að maður sé myrtur fyrir utan heimili sitt sé eitthvað sem þekkist ekki hér á landi. 19.2.2021 23:28
Sigurbjörn Árni ætlar sér að sigrast á krabbameininu Skólameistarinn og íþróttalýsandinn Sigurbjörn Árni Arngrímsson greindist með fjórða stigs sortuæxli á miðvikudaginn og hefur hafið lyfjameðferð. Hann segist stefna á að komast í hóp þeirra sem losna við meinið og segir óþarfi að fólk drífi sig í heimsókn þar sem hann telji ólíklegt að hann deyi á næstunni. 19.2.2021 23:00
Minntust Johns Snorra, Ali og Juan Pablo í Skardu Minningarathöfn fór fram í borginni Skardu í Pakistan þar sem íbúar minntust þeirra John Snorra Sigurjónssonar, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr, en þeirra hefur verið saknað frá 5. febrúar þegar þeir reyndu að klífa K2. Pakistönsk yfirvöld tilkynntu í gær að þeir væru formlega taldir af. 19.2.2021 21:48
„Ef þörf er á bráðri þjónustu geðlækna þá er sú þjónusta kölluð til“ Geðhjálp segir brotalamir í bráðaþjónustu við sjúklinga sem glíma við andleg veikindi. Yfirlæknir á bráðamóttöku segir þennan sjúklingahóp fá sömu þjónustu og aðra sem þangað leiti. Fólk sé ekki sent heim nema eftir fullnægjandi mat. 19.2.2021 21:01
Þriðjungur gripið til aðgerða til að verja heimili sín fyrir afbrotum Um þriðjungur landsmanna hefur gripið til einhverra aðgerða til að verja heimili sitt fyrir afbrotum, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Afbrotafræðingur telur að morðið í Rauðagerði muni hafa áhrif á fólk og jafnvel vekja sérstakan ótta hjá sumum. 19.2.2021 20:00
Bráðvantaði rafstöðvarnar í flóðinu Þrettán björgunarsveitir fengu í dag afhentar færanlegar rafstöðvar sem eiga að efla fjarskiptaöryggi þegar gerir óveður eða náttúruhamfarir verða. Björgunarsveitarmaður segir að slíkar stöðvar hefðu komið að miklum notum þegar aurskriður féllu á Seyðisfirði fyrir jól. 19.2.2021 19:37
Segir lendingu jeppans mikið afrek Þrautseigja, nýjasti jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, lenti á Mars í gær. Rektor Háskólans í Reykjavík segir lendinguna stórmerkilegan áfanga. 19.2.2021 19:31
Sektirnar verði alltaf hærri en kostnaður við að útvega sér vottorð Frá og með deginum í dag þurfa farþegar sem koma hingað til lands að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi við komuna ásamt því að fara í tvöfalda skimun. Sigurgeir Sigmundsson, yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, segir vinnuna tímafreka en dagurinn í dag hafi gengið vel. 19.2.2021 19:23
Elsti hópurinn boðaður í seinni bólusetningu Allir þeir sem eru níutíu ára og eldri eru boðaðir til seinni bólusetningar gegn kórónuveirunni á þriðjudag. Þeir sem misstu af fyrri bólusetningunni geta einnig mætt til að fá hana. 19.2.2021 19:21