Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Mun gervigreindin breyta öllu? Ólafur Andri Ragnarsson, Yngvi Björnsson, Hannes Högni Vilhjálmsson og Kristinn R. Þórisson, munu ræða um gervigreind, hvað þeir eru að vinna við og hvernig þeir spá fyrir um þróunina næstu árin á fyrirlestri Háskólans í Reykjavík. 9.4.2021 11:30
Þrír greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra sem greindust voru í sóttkví en einn utan sóttkvíar. 9.4.2021 10:43
Svona var upplýsingafundurinn um eldgosið Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar klukkan 11 þar sem farið verður yfir stöðu mála varðandi eldgosið á Reykjanesskaga. 9.4.2021 10:14
Fleiri börn en fæðingartíðnin lækkar Fleiri börn fæddust á Íslandi á síðasta ári en á árinu á undan. Fæðingartíðni íslenskra kvenna lækkar hins vegar milli ára og er nú 1,72 börn á hverja konu. 9.4.2021 09:59
Karen Kjartansdóttir hættir hjá Samfylkingunni Karen Kjartansdóttirhefur gengt starfi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar undanfarin tvö og hálft ár en hefur nú sagt sig frá því. Hún segir hugmyndir sínar og formanns framkvæmdastjórnar of ólíkar til að geta starfað áfram fyrir flokkinn. Innan við sex mánuðir eru í kosningar til Alþingis. 9.4.2021 09:06
Meta árlegan kostnað við leghálsýnarannsóknir 99 milljónir króna Landspítalinn metur árlegan kostnað við rannsóknir á leghálssýnum um 99 milljónir króna. Þetta kemur fram í kostnaðargreiningu sem spítalinn skilaði heilbrigðisráðuneytinu 15. mars síðastliðinn. 9.4.2021 08:12
„Hvaða „alla“ þú ert að tala um veit ég ekki“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis, segir Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar vaða í villu og svíma í tali sínu um sóttvarnarlög. Þá skammar hún Kára fyrir að tala dómsstóla niður. 9.4.2021 07:15
Hreindýrahjarðir á ferli við vegi á Austurlandi Vegagerðin varar ökumenn við því að hreindýrahjarðir hafi sést víða við vegi á Austurlandi. Ábendingar hafa borist um að þær hafi sést í Fagradal, við álverið á Reyðarfirði, Við Djúpavog og í Lóni. Þá hafa þær einnig sést á Breiðamerkursandi. Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að sýna aðgát. Vegagerðin vekur athygli á að vetrarfærð sé í öllum landshlutum. 9.4.2021 06:51
Grímulaus og í annarlegu ástandi Lögregla var kölluð til rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi vegna manns í annarlegu ástandi í verslun í miðborginni. Var tekið fram að maðurinn væri grímulaus og lögregla beðin um að vísa honum út þegar á staðinn var komið. 9.4.2021 06:10
Kafaði niður í loðnutorfu í Faxaflóa og kvikmyndaði Íslenskur kafari kvikmyndaði loðnutorfu í síðasta mánuði með því að kafa sjálfur niður í torfuna. Ekki er vitað til þess að slíkt hafi áður verið gert í heiminum. Kafarinn lýsir þessu sem ævintýri. 8.4.2021 23:40
Göngumennirnir komnir í leitirnar Göngumennirnir tveir sem týndust við gosstöðvarnar í Geldingadal fyrr í kvöld eru komnir í leitirnar. Mennirnir komust af sjálfsdáðum niður af fjallinu og mættu þar björgunarsveitarfólki sem hafði verið að leita að þeim. 8.4.2021 23:35
„Veirufrítt samfélag“ bratt, óraunhæft og kostnaðarsamt „Ég er bara eins og aðrir, að lesa um þetta í fréttum af þessum fundi í morgun, þar sem Þórólfur lýsir þessu sem sinni skoðun,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það markmið sóttvarnalæknis að stefna að veirufríu samfélagi. 8.4.2021 23:33
Telja prófahald stangast á við sóttvarnareglur: „HA hefur verið að draga lappirnar“ Nemendur í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri fengu í dag tölvupóst frá viðskiptadeildinni þar sem þeim var greint frá því að lokapróf deildarinnar muni fara fram í húsnæði skólans. Mikil óánægja ríkir meðal nemenda vegna þessa, enda aðeins tvær vikur í fyrstu lokapróf, og hafa nemendur tekið sig til og safnað undirskriftalista til þess að skora á yfirvöld skólans að halda fjarpróf. 8.4.2021 23:30
„Brynjar Trump Níelsson“ hafi hundsað hagsmuni samfélagsins með Spánarferð Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er allt annað en sáttur með kveðju Brynjars Níelssonar þingmanns frá Spáni. Hann segir Brynjar reka fingur framan í sóttvarnayfirvöld með hegðun sinni og tekur undir ummæli sóttvarnalæknis að slíkt sé ekki æskilegt. 8.4.2021 23:00
Björgunarsveitir leita að tveimur göngumönnum við gosstöðvarnar Allar björgunarsveitir á suðvesturhorninu og Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna tveggja göngumanna sem eru týndir á gossvæðinu við Geldingadali. Hjálparbeiðni barst frá göngumönnunum sjálfum rétt fyrir klukkan tíu og leit er hafin. 8.4.2021 22:12
Velferðarnefnd komin með gögnin í hendurnar Fulltrúar í velferðarnefnd Alþingis hafa fengið gögn frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi undirbúning reglugerðar, sem varða skyldun komufarþega til dvalar á sóttkvíarhóteli, afhent. 8.4.2021 21:48
Rauði krossinn ekki upplýstur um nýja reglugerð Rauði krossinn, sem hefur haft umsjón með farsóttar- og sóttvarnahúsum fyrir hönd stjórnvalda, var ekki upplýstur um nýja reglugerð er varðar komu fólks frá útlöndum og tekur gildi á miðnætti. Að mati Rauða krossins setur ný reglugerð sóttvarnir í uppnám. 8.4.2021 21:22
Möguleiki á að sprunga opnist á gönguleiðinni Möguleiki er á því að nýjar sprungur opnist vegna eldgossins í Fagradalsfjalli og gætu nýjar sprungur opnast bæði suður- og norður af þeim sprungum sem þegar hafa opnast. Eldfjallafræðingur segir fólk þurfa að vara sig við gosstöðvarnar en þar sé nú aukin hætta á gasmengun. 8.4.2021 21:03
Verktakinn byrjar þverun Þorskafjarðar í næstu viku Verksamningur milli Vegagerðarinnar og Suðurverks um þverun Þorskafjarðar var undirritaður í dag. Vegamálastjóri segir þetta lið í gríðarlegum samgöngubótum á Vestfjörðum sem stytti leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fimmtíu kílómetra. 8.4.2021 19:52
Svandís segir mögulegt að breyta þurfi sóttvarnalögum Heilbrigðisráðherra setti nýja reglugerð í dag um sóttkví farþega til landsins þar sem skilyrði eru sett um aðstæður í heimasóttkví og ef þau eru ekki uppfyllt skuli fólk fara á sóttvarnahótel því að kostnaðarlausu. Sóttvarnalæknir segir það enga stefnubreytingu að stefnt sé að veirulausu Íslandi. 8.4.2021 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ítarlega verður fjallað um nýja reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir á landamærunum en þar er að finna talsverðar breytingar á reglum um sóttkví sem munu gilda fyrir alla komufarþega. Við ræðum við heilbrigðisráðherra og sóttvarnalækni um málið. 8.4.2021 18:14
„Það er ekki hægt að íslensk móðir sýni dóttur sinni ekki eldgos“ Stríður straumur fólks hefur verið að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag og eru margir að berja eldgos augum í fyrsta sinn á æfinni. Veðrið í dag hefur líklega ekki skemmt fyrir enda sólríkt þó kuldinn sé mikill og rok á svæðinu. 8.4.2021 17:49
Árásarmaðurinn á Sushi Social laus úr haldi Karlmaður um þrítugt sem grunaður er um að hafa veitt öðrum manni fjölmarga stunguáverka á veitingastaðnum Sushi Social um síðastliðna helgi er laus úr haldi. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar. 8.4.2021 17:34
Ískalt á gosstöðvunum og ekki í sóttkví Þau Leyla og Usama frá Marokkó voru mætt í gallabuxum og úlpu á Suðurstrandarveg í dag á leiðinni í fjallgöngu. Þau komu til landsins í gær en töldu sig ekki þurfa að vera í sóttkví sökum þess að þau hefðu farið í próf og sýnt vottorð við komuna til landsins. 8.4.2021 17:31
Svandís útilokar ekki breytingu á lögum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur kynnt nýja reglugerð um sóttvarnaráðstafanir á landamærum sem tekur gildi á miðnætti. Nú er ekki skylda að fara á sóttkvíarhótel ef maður getur uppfyllt nauðsynleg skilyrði heimasóttkvíar, svo sem um að enginn annar sé til dvalar í sama húsnæði. 8.4.2021 16:54
Sjaldgæfur hvalreki í Eyjafirði vakti athygli Norðsnjáldri af ætt svínhvala fannst rekinn dauður í síðustu viku skammt sunnan við Grenivík í Eyjafirði. Dánarorsök er ókunn en hvalrekinn er sagður teljast til tíðinda þar sem aðeins er vitað um átta önnur tilvik hér við land frá því að skráningu hófst með skipulögðum hætti. 8.4.2021 16:39
Nýjar reglur á landamærum taka gildi á miðnætti Skýrari kröfur verða gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina og fólki tryggð útivera. Ekki er gerður greinarmunur á því frá hvaða löndum fólk kemur. 8.4.2021 16:36
Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. 8.4.2021 16:07
Ekkert við ferð Brynjars að gera Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir sárt að sjá að fólk fari ekki eftir tilmælum um að sleppa ónauðsynlegum ferðum til útlanda. Brynjar Níelsson þingmaður hefur verið í fríi á Spáni, sem hann sagði í viðtali við Vísi að væri „ekki lífsnauðsynlegt eða mjög nauðsynlegt.“ 8.4.2021 15:47
Greiddi ungri kærustu miskabætur í fyrra en nú sjálfur bótaþegi Karlmaður sem fyrir ári var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meðal annars að hóta unglingsstúlku að birta af henni nektarmyndir hefur fengið dæmdar 250 þúsund krónur í miskabætur frá íslenska ríkinu. 8.4.2021 15:31
Sprunga númer tvö bjargaði tjaldinu frá bráðum dauða Fyrsta nýja sprungan sem myndaðist á annan í páskum í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn má segja að hafi verið lán í óláni fyrir björgunarsveitir á svæðinu, sem ákváðu vegna hennar að færa tjaldið sem komið hafði verið upp á svæðinu. 8.4.2021 14:27
Fjallaskíðakappi lenti í snjóflóði í Skálafelli Betur fór en á horfðist á öðrum tímanum í dag þegar fjallagönguskíðamaður lenti í snjóflóði í Skálafelli. Sjúkrabíll, lögregla og björgunarsveitir voru send strax á staðinn. 8.4.2021 14:11
Á von á breyttum tilmælum um notkun á AstraZeneca Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga á höfuðborgarsvæðinu, segist eiga von á breyttum tilmælum frá Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, er varðar bólusetningar með bóluefni AstraZeneca. 8.4.2021 13:39
„Jökulkalt þarna upp frá og engar aðstæður til að stoppa“ Opnað var á aðgengi almennings að gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun en leiðindaveður hefur gert það að verkum að fáir hafa lagt í gönguna. 8.4.2021 13:09
Lögregla lýsir eftir Elvis Valca Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir Elvis Valca, 27 ára. 8.4.2021 13:08
Borgin afléttir ekki kvöð um litla grasflöt og berjarunna þrátt fyrir mótmæli Reykjavíkurborg ætlar ekki að aflétta kvöð í skipulagi Vogabyggðar um græn svæði innan einkagarða íbúða. Málið varðar sérafnotareiti íbúa í hinu nýja hverfi en Vísir fjallaði í janúar um óánægju Guðmundar Heiðars Helgasonar sem fékk ekki leyfi til að stækka pallinn fyrir aftan íbúð sína. 8.4.2021 13:06
Veirufrítt samfélag forsenda tilslakana Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að markmiðin með sóttvarnaaðgerðunum hér á landi séu nokkuð ljós, þó að þau kunni að vefjast fyrir mörgum. Stefnt er að nánast veirufríu samfélagi hér á landi, áður en hægt verður að ráðast í tilslakanir. 8.4.2021 11:59
Sýktist aftur af nýrri undirtegund breska afbrigðisins Við erum ennþá að sjá talsverðan fjölda smita greinst innanlands en það er gleðilegt hvað margir eru í sóttkví við greiningu, sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins sem var að ljúka. 8.4.2021 11:50
Sterk tengsl milli sóttkvíarbrota ferðalanga og smita innanlands Fimmtíu og einn greindist og hátt á þriðja þúsund manns fóru í sóttkví í tengslum við þrjár hópsýkingar sem urðu hér á landi nýlega. Allar komu þær til vegna einstaklinga sem komu til landsins og héldu ekki sóttkví. 8.4.2021 11:30
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Halldóru Mogensen þingmann Pírata sem hefur óskað eftir gögnum frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi undirbúning hinnar umdeildu reglugerðar um sóttkvíarhótel. 8.4.2021 11:25
Halldóra vill ekki taka við gögnum um sóttvarnaaðgerðir með trúnaðarskyldu Fulltrúi Pírata í velferðarnefnd segir stjórnvöld hafa gengið of langt með reglugerð sem skyldaði alla til dvalar á sóttvarnahóteli eftir komuna til landsins. Hún hefur óskað eftir gögnum frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi undirbúning reglugerðarinnar en ráðuneytið vill að trúnaður ríki um hluta gagnanna. 8.4.2021 11:19
Hefur skilað tillögum um breyttar aðgerðir en telur þær ekki verða jafn áhrifaríkar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað heilbrigðisráðherra tillögum um breyttar aðgerðir á landamærunum eftir að Landsréttur vísaði niðurstöðu héraðsdóms um ólögmæti sóttvarnahúsaskyldu frá í gær. Mikilvægt sé að auka eftirlit með fólki sem fari í heimasóttkví við komuna til landsins. 8.4.2021 11:18
Brynjar á Spáni á meðan mælt er gegn ferðalögum Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er á heimleið í dag frá Spáni, þar sem hann hefur dvalið í tæpar tvær vikur í heimsókn hjá bróður sínum. Sóttvarnalæknir má hafa sína skoðun á því hvort Íslendingar ferðist að nauðsynjalausu til útlanda, segir Brynjar. 8.4.2021 11:03
Fjórir greindust innanlands og allir í sóttkví Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 8.4.2021 10:58
Svona var 174. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar í dag klukkan 11, fimmtudaginn 8. apríl. Um er að ræða reglulegan upplýsingafund. 8.4.2021 10:15