Fleiri fréttir Hafa fengið öfgafull, rasísk og mjög ljót skilaboð Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að upplýsingar hafi borist um að börn og fullorðnir sem tengjast hópsmitum hafi lent í því að fá öfgafull, rasísk og ljót skilaboð frá öðrum. Þá hafa þau einnig nánast orðið fyrir einelti úti á götu fyrir það eitt að koma frá tilteknu landi. 29.4.2021 11:27 Tíu greindust innanlands og þrír utan sóttkvíar Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. 29.4.2021 10:54 Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna. 29.4.2021 10:24 Lögregla sviðsetur morðið í Rauðagerði Töluverður fjöldi lögreglumanna er við störf í Rauðagerði í tengslum við morðið sem þar var framið í febrúar. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir að um sé að ræða vettvangsvinnu í tengslum við rannsókn málsins. 29.4.2021 10:17 Svona var 178. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnir og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar í dag klukkan 11:03. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun þar fara yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavörnum. 29.4.2021 10:15 110 nemendur FSu í sóttkví eftir að nemandi greindist Alls eru 110 nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi komnir í sóttkví eftir að nemandi við skólann greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi. Auk þeirra eru fimm kennarar við skólann einnig komnir í sóttkví. 29.4.2021 08:12 Björguðu unglingsstúlku úr tré í Hellisgerði Starfsmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru í gær kallaðir út til að bjarga unglingsstúlku niður úr tré í Hellisgerði í Hafnarfirði. 29.4.2021 07:29 Sextíu prósent Íslendinga eru fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta Sextíu prósent landsmanna eru nú fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna, ef marka má nýja könnun Félagsvísindastofnunar. 29.4.2021 06:41 Hlutfall sjálfsafgreiðslu um 70 til 80 prósent hjá Krónunni og Högum Hlutfall sjálfsafgreiðslu er orðið allt að 80 prósent í verslunum Haga og um 70 prósent að meðaltali í verslunum Krónunnar. Finnur Oddson, forstjóri Haga, segir verslunarferðir hafa „einfaldast“ og þá heyri raðir nánast sögunni til. 29.4.2021 06:30 Að minnsta kosti einn í viðbót með staðfest smit í Þorlákshöfn Fyrstu niðurstöður úr skimuninni sem fram fór í Þorlákshöfn í dag benda til þess að minnst einn þeirra sem skimaðir voru í dag hafi greinst með staðfest smit covid-19. Um tvö hundruð voru skimaðir í grunnskólanum í Þorlákshöfn í tengslum við hópsmit sem þar kom upp. 28.4.2021 23:55 Ótrúlegt myndband af „eld-skýstrokk“ í miðri hrauntjörninni 28.4.2021 23:35 „
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa fengið öfgafull, rasísk og mjög ljót skilaboð Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að upplýsingar hafi borist um að börn og fullorðnir sem tengjast hópsmitum hafi lent í því að fá öfgafull, rasísk og ljót skilaboð frá öðrum. Þá hafa þau einnig nánast orðið fyrir einelti úti á götu fyrir það eitt að koma frá tilteknu landi. 29.4.2021 11:27
Tíu greindust innanlands og þrír utan sóttkvíar Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír ekki. 29.4.2021 10:54
Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna. 29.4.2021 10:24
Lögregla sviðsetur morðið í Rauðagerði Töluverður fjöldi lögreglumanna er við störf í Rauðagerði í tengslum við morðið sem þar var framið í febrúar. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segir að um sé að ræða vettvangsvinnu í tengslum við rannsókn málsins. 29.4.2021 10:17
Svona var 178. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnir og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar í dag klukkan 11:03. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun þar fara yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavörnum. 29.4.2021 10:15
110 nemendur FSu í sóttkví eftir að nemandi greindist Alls eru 110 nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi komnir í sóttkví eftir að nemandi við skólann greindist smitaður af kórónuveirunni í gærkvöldi. Auk þeirra eru fimm kennarar við skólann einnig komnir í sóttkví. 29.4.2021 08:12
Björguðu unglingsstúlku úr tré í Hellisgerði Starfsmenn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru í gær kallaðir út til að bjarga unglingsstúlku niður úr tré í Hellisgerði í Hafnarfirði. 29.4.2021 07:29
Sextíu prósent Íslendinga eru fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta Sextíu prósent landsmanna eru nú fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna, ef marka má nýja könnun Félagsvísindastofnunar. 29.4.2021 06:41
Hlutfall sjálfsafgreiðslu um 70 til 80 prósent hjá Krónunni og Högum Hlutfall sjálfsafgreiðslu er orðið allt að 80 prósent í verslunum Haga og um 70 prósent að meðaltali í verslunum Krónunnar. Finnur Oddson, forstjóri Haga, segir verslunarferðir hafa „einfaldast“ og þá heyri raðir nánast sögunni til. 29.4.2021 06:30
Að minnsta kosti einn í viðbót með staðfest smit í Þorlákshöfn Fyrstu niðurstöður úr skimuninni sem fram fór í Þorlákshöfn í dag benda til þess að minnst einn þeirra sem skimaðir voru í dag hafi greinst með staðfest smit covid-19. Um tvö hundruð voru skimaðir í grunnskólanum í Þorlákshöfn í tengslum við hópsmit sem þar kom upp. 28.4.2021 23:55
„Ásættanlegur“ hallarekstur Árborgar nam rúmlega hálfum milljarði Sveitarfélagið Árborg var rekið með 578 samkvæmt samstæðureikningi fyrir árið 2020. Stóran hluta þar af, eða um 460 milljónir, má rekja til heimsfaraldurs covid-19 að því er segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu í kvöld um ársreikning síðasta árs. Sveitarfélagið segir niðurstöðuna ásættanlega í ljósi aðstæðna. 28.4.2021 22:14
„Erum komin með meiraprófið í því að glíma við veiruna“ Um eitt hundrað íbúar Þorlákshafnar eru í sóttkví vegna hópsmits og grunnskóli bæjarins var nýttur fyrir umfangsmikla skimun í dag. 28.4.2021 20:17
Laugardalshöll eins og vel smurð vél í bólusetningunum Það var eins og fólk hefði aldrei gert annað en tekið þátt í skipulegum bólusetningum þegar það streymdi inn í Laugardalshöllina öðrum megin og út úr henni hinum meginn í dag. Sóttvarnalæknir var einn þeirra og var snortinn af móttökunum sem hann fékk. 28.4.2021 19:46
Þórólfur skilar minnisblaði um helgina Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af því að smit berist út fyrir þann hóp sem smitast hefur að undanförnu. Hann reiknar með að leggja fram nýjar tillögur í sóttvarnamálum um helgina. 28.4.2021 19:21
Sjálfstæðismenn skamma Mörtu: „Alltaf gamla nornin sem tapar“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fleiri þekktir Sjálfstæðismenn hafa gert ummæli Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa flokksins, um Gísla Martein Baldursson að umræðuefni á samfélagsmiðlum í dag þar sem orð Mörtu í garð Gísla eru harðlega gagnrýnd. Grein eftir Mörtu sem birtist á Vísi í morgun hefur vakið mikla athygli en þar kallar hún Gísla meðal annars „pjakk“ og „prinsessu“ og sakar hann um að fara með ítrekuð ósannindi. 28.4.2021 18:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grunnskólanum í Þorlákshöfn var breytt í skimunarstöð í morgun enda allir nemendur heima á meðan reynt er að grípa í taumana á hópsýkingu í bæjarfélaginu. Við verðum í beinni útsendingu frá Þorlákshöfn í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við bæjarstjórann og skólastjóra grunnskólans. 28.4.2021 18:00
Ræddu tvíhliða samstarf og fyrirhugaða Íslandsheimsókn Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu tvíhliða samstarf ríkjanna og fyrirhugaða heimsókn Blinken til Íslands á símafundi í dag. Blinken mun leiða sendinefnd Bandaríkjanna sem tekur þátt á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins þann 20. maí næstkomandi. 28.4.2021 17:56
Maðurinn sem lýst var eftir er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti fyrr í kvöld eftir manni á áttræðisaldri sem ekkert hafði til spurst frá sunnudeginum 25.apríl. 28.4.2021 17:21
Næstu skref velti á niðurstöðu skimunar Nemendur og kennarar við Flúðaskóla voru beðnir um að halda sig heima í dag eftir að einstaklingur í Hrunamannahreppi greindist með kórónuveiruna í gær. Sá á barn í grunnskólanum sem bíður nú niðurstöðu skimunar en ákveðið var að aflýsa hefðbundnu skólastarfi í fjórða og fimmta bekk til að gæta ítrustu varúðarráðstafana. 28.4.2021 17:10
Þórður í Skógum er 100 ára í dag Þórður Tómasson í Skógum undir Eyjafjöllum fagnar 100 ára afmæli í dag. Hann er eldhress og segist ekkert spá í hvað hann sé gamall. Þórður sem hefur gefið út mikið af bókum á nú handrit í þrjár nýjar bækur. 28.4.2021 16:43
Sérþjálfa lögreglufólk til að rannsaka stafrænt ofbeldi Viðamiklar aðgerðir gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum og ungmennum voru kynntar í dag á fundi hjá ríkislögreglustjóra. Á meðal þess sem ráðist verður í er að sérþjálfa lögreglufólk til að rannsaka stafræn brot og bæta aðstoð við þolendur stafræns ofbeldis. 28.4.2021 16:34
Fjögurra ára drengur lést af slysförum Fjögurra ára drengur lést á Landspítala í fyrradag eftir að aðskotahlutur festist í hálsi hans á miðvikudag í síðustu viku. 28.4.2021 15:34
Marta segir Gísla Martein fyrrverandi prinsessu flokksins nú prinsessu RÚV Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins birtir pistil á Vísi þar sem hún skammast með miklum tilþrifum í sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni. 28.4.2021 14:36
Bein útsending: Kynningarfundur um aðgerðir gegn stafrænu ofbeldi gegn börnum og ungmennum Ríkislögreglustjóri mun kynna nýjar aðgerðir gegn stafrænu kynferðisofbeldi gegn börnum á fundi sem hefst klukkan 15. Fundinum verður streymt og verður hægt að fylgjast með í spilaranum að neðan. 28.4.2021 14:31
Staðhæfir að nettröll á vegum Vg fari um samfélagsmiðla Gunnar Smári Egilsson, hugmyndafræðingur Sósíalistaflokks Íslands, heldur því fram fullum fetum að Vinstri græn geri út fólk til að spilla pólitísku samtali á samfélagsmiðlum. 28.4.2021 13:43
Aldrei fleiri umsóknir um pláss í sérdeildir fyrir einhverf börn Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur aldrei fengið jafnmargar umsóknir um pláss í sérdeildir fyrir einhverf börn. Þær voru alls 38 þetta vorið. Í ár þurfti því að synja 30 börnum um pláss en viðkomandi hafa andmælarétt til 3. maí. Formaður Landssamtaka Þroskahjálpar segir foreldra þeirra barna sem ekki komast að í ár kvíða komandi tímum. 28.4.2021 13:27
Gjörbreyttur eftir áfallið á spítalanum Marek Moszczynski, pólskur karlmaður sem ákærður er fyrir að hafa orðið þremur að bana með íkveikju að Bræðraborgarstíg 1 í fyrrasumar, taldi sig vera með illkynja krabbamein þegar bruninn varð. Geðlæknar telja líklegt að áfallið við þær fréttir hafi komið andlegum veikindum hans af stað. 28.4.2021 12:26
Þórólfur vonast eftir að fá aukaverkanir Sneisafull Laugardalshöllin tók á móti Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni með dúndrandi lófataki þegar hann gekk í salinn til að fá bólusetningu við covid 19 í morgun. Hann vonast til að finna til einkenna eftir fyrstu sprautuna enda þýði það að ónæmiskerfi líkamans sé að taka við sér. 28.4.2021 12:20
„Eins og að fá á sig mark í uppbótartíma“ Níu greindust með kórónuveiruna í gær og þar af voru tveir utan sóttkvíar. Grunnskólinn í Þorlákshöfn var lagður undir skimun í morgun eftir að smit greindist meðal nemenda. 28.4.2021 12:15
Grunur um myglu á Kvistaborg: „Talað fyrir daufum eyrum,“ segir leikskólastjórinn Tvær deildir á leikskólanum Kvistaborg í Fossvoginum hafa verið fluttar í skátaheimili Garðbúa í Hólmgarði vegna gruns um myglu í húsnæði leikskólans. Síðast var ráðist í framkvæmdir vegna myglu á Kvistaborg árið 2017. 28.4.2021 12:06
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum bregðum við okkur í Laugardalshöll þar sem verið er að bólusetja níu þúsund manns í dag. 28.4.2021 11:35
Níu greindust innanlands og tveir utan sóttkvíar Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en tveir voru utan sóttkvíar. 28.4.2021 10:46
Komst út á hnjánum vafinn í sæng og svo haldið sofandi í mánuð Íbúi að Bræðraborgarstíg 1, sem brann til kaldra kola síðdegis 25. júní, var tvo mánuði á sjúkrahúsi og þar af haldið sofandi í mánuð eftir brunann. Hann þurfti að gangast undir húðágræðslu vegna brunasára. Þá lýsti hann því að þegar var byrjað að skíðloga í húsinu þegar hann áttaði sig á því að kviknað væri í. 28.4.2021 10:41
Klappað fyrir Þórólfi í Laugardalshöllinni Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var bólusettur í dag. Bólusetningin fór fram í Laugardalshöll og fékk Þórólfur fyrsta skammt sinn af bóluefni AstraZeneca. 28.4.2021 10:15
Ölvaðir til vandræða í miðborginni Nokkuð annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, ekki síst vegna ökumanna sem grunur lék á að væru undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. 28.4.2021 06:20
Grunnskólanemi í Þorlákshöfn greindist smitaður Viðbúnaðarstig í Þorlákshöfn verður fært upp um stig eftir að grunnskólanemandi í bænum greindist smitaður af Covid-19 í dag, að sögn Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss. Hann segir yfirvöld undir það búin að fleiri greinist smitaðir á næstu dögum. 27.4.2021 19:36
Svandís bjartsýn afléttingu takmarkana samhliða auknum bólusetningum Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að útfæra bólusetningardagatalið þannig að fólk á öllum aldri geti séð nokkurn veginn hvenær það megi reikna með að fá bólusetningu við covid 19. Í dag var birt áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða samhliða fjölgun fólks sem verið hefur bólusett. 27.4.2021 19:21
Geta ekki annað en treyst fólki Búast má við því að gestum á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún fjölgi enn frekar í nótt þegar farþegar úr flugi frá Varsjá í Póllandi skila sér út af Keflavíkurflugvelli. 27.4.2021 19:08
Færa aðstöðuna á vellinum sem er svo gott sem sprungin Yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að vel hafi gengið að taka á móti farþegum sem komu hingað til lands í dag, en nýjar reglur á landamærunum hafa nú tekið gildi. Hann segir aðstöðu til að skima og skoða vottorð komufarþega vera sprungna og unnið sé að lausnum. 27.4.2021 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða var birt í dag samhliða fjölgun fólks sem verið hefur bólusett og er unnið að því að landsmenn geti séð nokkurn veginn hvenær röðin kemur að þeim í bólusetningu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27.4.2021 18:19
Heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti aukagjald Heilbrigðisráðherra segir algerlega óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti sérstakt gjald af þjónustu sinni við sjúklinga sem þeir einir standi undir. Á næstunni verði gefin út reglugerð um að læknum sem innheimti þetta gjald verði ekki endurgreiddur kostnaður sem annars heyri undir hlut sjúkratrygginga í kostnaði sjúklinga. 27.4.2021 16:59
Hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið Marek Moszczynski, sem ákærður er fyrir að hafa banað þremur með íkveikju við Bræðraborgarstíg í fyrrasumar, hélt á kveikjara þegar hann var handtekinn við rússneska sendiráðið skömmu eftir að kveikt var í húsinu þann 25. júní. 27.4.2021 16:41
Bein útsending: Drónar fljúga yfir gosinu í alla nótt Hægt verður að horfa á beina útsendingu á Vísi úr drónum frá gosstöðvum við Fagradalsfjall í allt kvöld og nótt. 27.4.2021 16:35
Þorlákshöfn líklega áfram í hæga gírnum út vikuna Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir útlit fyrir að Þorlákshöfn verði í „hægum gír“ út vikuna. Að starfsemi sveitarfélagsins verði líklegast ekki eðlileg fyrr en í næstu viku. 27.4.2021 15:19