Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gríðarleg hugarfarsbreyting til hjólreiða á fáum árum Sviðsstjóri almennningsíþróttasviðs ÍSÍ segir gríðarlegan viðsnúning hafa orðið í hugarfari almennings til hjólreiða. Nú teljist enginn maður með mönnum nema eiga tvö hjól til skiptanna, áður fyrr hafi fólk ekki sagt frá því að það hjólaði í vinnuna. 5.5.2021 13:30
Safnaráð vill safnagjöf til landsmanna Formaður safnaráðs óskar þess að nefndir Alþingis hafi frumkvæði að svokallaðri safnagjöf sem væri sambærileg ferðagjöf stjórnvalda. 5.5.2021 12:47
Misstu stjórn á hjólunum á gölluðu og hálu malbikinu Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur nú birt skýrslu sína um banaslysið sem varð á Vesturlandsvegi í júní síðastliðinn þar sem 54 ára karlmaður og 53 ára kona létust. Þar kemur fram að ökumaður bifhjólsins hafi misst stjórn á hjólinu á hálu vegyfirborðinu svo bifhjólið féll á hliðina og rann yfir á öfugan vegarhelming í veg fyrir húsbifreið. 5.5.2021 12:30
Krafa um ævilangt fangelsi eða vistun á öryggisgeðdeild Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari fer fram á að Marek Moszczynski verði dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að verða valdur að dauða þriggja í eldsvoða við Bræðraborgarstíg í júní í fyrra. 5.5.2021 12:10
Kostnaður ríkisins við uppbyggingu kringum Fagradalsfjall um 40 milljónir Búist er við að framkvæmdir við eldgosið í Fagradalsfjalli hefjist í vikunni að sögn ferðamálastjóra. Ríkið leggi nú þegar til 40 milljónir króna til verkefna þar og landeigendur greiði fyrir framkvæmdir á bílastæðum og salernisaðstöðu. Gert er ráð fyrir að gjald verði tekið fyrir bílastæði á svæðinu. 5.5.2021 12:04
Telja ekki að eldur af þessari stærð ógni vatnsbóli borgarinnar Gripið var til aðgerða til þess að fyrirbyggja að gróðureldur sem kviknaði í Heiðmörk í gærkvöldi kæmist í mannvirki og búnað vatnsbóla höfuðborgarinnar þar og fyrirbyggja mengunarslys. Ekki er talið að gróðureldar á yfirborði af þessari stærðargráðu og á þessum stað hafi mælanleg áhrif á vatnsgæði. 5.5.2021 11:57
Kostirnir við Schengen fleiri en gallarnir eins og er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir kostina við Schengen-samstarfið fleiri en gallana. Alltaf þarf að vega og meta kosti og galla slíks samstarfs. Þetta sagði Áslaug Arna í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Til umræðu var meðal annars geta lögreglu til að vísa brotamönnum úr landi. 5.5.2021 11:48
Fyrirspurnum um Janssen rignir inn til heilsugæslunnar Fimm greindust með kórónuveiruna í gær og þar af var einn utan sóttkvíar. Kennarar og jaðarhópar eru meðal þeirra sex þúsund sem verða fullbólusettir með Janssen í dag. Fyrirspurnum um bóluefnið rignir inn til heilsugæslunnar. 5.5.2021 11:31
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður fjallað um gróðureldana í Heiðmörk í gær þar sem mikið lið vann fram á nótt við slökkvistörf. 5.5.2021 11:31
Adolf Ingi endurráðinn og farinn á flakk með ferðamenn á ný Adolf Ingi Erlingsson ökuleiðsögumaður fór sinn fyrsta leiðangur með ferðamenn í gær. Hann segir að eldgosið sé og eigi eftir að reynast gríðarlegt aðdráttarafl. 5.5.2021 11:24
Vita hvorki hvar eldurinn kviknaði né hvers vegna Upptök sinubrunans í Heiðmörk í gær liggja enn á huldu, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Erfitt var fyrir slökkvilið að komast að eldinum þar sem hann barst og varð töluvert svæði eldinum að bráð. 5.5.2021 11:21
Fimm greindust með Covid-19 í gær og einn var utan sóttkvíar Fimm greindust með Covid-19 í gær og var einn utan sóttkvíar. 173 eru nú í einangrun og fimm liggja inni á sjúkrahúsi. 5.5.2021 11:01
Stofna skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar Veðurstofu Íslands hefur verið falið að veita nýjum samstarfsvettvangi fagstofnana um loftsagsbreytingar og aðlögun að þeim forystu. Skrifstofa loftslagsþjónustu og aðlögunar á að styðja stefnu stjórnvalda um aðlögun að loftslagsbreytingum og miðla gögnum, rannsóknum og þekkingu til að takast á við loftslagsbreytingar. 5.5.2021 10:31
Bein útsending: Drífa yfirheyrir Loga Einarsson Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna. 5.5.2021 09:54
Bein útsending: Ræktum Ísland Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til blaðamannafundar um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. 5.5.2021 09:12
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. 5.5.2021 09:01
EES-ríkin ekki lengur á „bannlista“ Evrópusambandsins Ísland er ekki lengur á lista Evrópusambandsins yfir þau ríki sem hefta á flutning bóluefnis gegn covid-19 til. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu í gær. 5.5.2021 08:52
Ræða aðlögun að loftslagsbreytingum á ársfundi Veðurstofunnar Aðlögun að loftslagsbreytingum af völdum manna verður efst á baugi á ársfundi Veðurstofu Íslands sem fer fram nú í morgun. Til stendur að kynna fyrstu skrefin að því að styrkja brú á milli vísinda og samfélags í gegnum nýjan samstarfsvettvang stofnana og hagaðila undir forystu Veðurstofunnar. 5.5.2021 08:43
Þungaðar konur geta þegið bólusetningu en ekki á fyrsta þriðjungi meðgöngu Konur sem tilheyra forgangshópum sem hafa verið bólusettir vegna Covid-19 hafa getað þegið bólusetningu þrátt fyrir að vera þungaðar en mælt er með því að bólusetja á öðrum eða þriðja þriðjungi meðgöngu. 5.5.2021 08:34
TF-GNA komin til landsins TF-GNA, nýjasta björgunarþyrla þjóðarinnar, lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Vélin var ferjuð í nokkrum áföngum frá Stafangri í Noregi með viðkomu á Hjaltlandseyjum, Færeyjum og Egilsstöðum áður en Gná komst loks í heimahöfn í Reykjavík. 5.5.2021 07:52
Tveir af þrjátíu ferkílómetrum Heiðmerkur brunnir Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum gróðureldana í Heiðmörk í nótt og er störfum á vettvangi lokið. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru síðustu menn farnir af svæðinu um fjögurleytið. 5.5.2021 06:35
Lögregla kölluð til vegna ilmvatnsfiktara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til snemma í gærkvöldi vegna manns sem var að skemma ilmvatnsumbúðir í verslun í póstnúmerinu 103. Talið var að maðurinn hefði ætlað að stela ilmvatninu en hann var kærður fyrir eignaspjöll. 5.5.2021 06:24
Helgi Hrafn einn á móti Miðflokksmönnum í málþófi um innflytjendur Miðflokksmenn hafa frá því klukkan þrjú í dag haldið uppi umræðum á Alþingi um frumvarp ríkisstjórnarinnar um málefni innflytjenda. Það er að sögn þingmanns Vinstri grænna komið út í málþóf. 4.5.2021 23:12
Skoða þann kost að leggja akveg upp á Fagradalsfjall Til skoðunar er að leggja akveg upp á Fagradalsfjall til að auðvelda ferðamönnum að sjá eldgosið en jafnframt að bæta núverandi gönguleið svo hún nýtist sem neyðarleið fyrir ökutæki. Bæjarráð Grindavíkur samþykkti nú síðdegis að nýja hraunið fengi nafnið Fagradalshraun. 4.5.2021 23:04
Slökkvistarf enn í fullum gangi þótt ástandið sé „aðeins betra“ Enn geisa sinueldar á skógræktarsvæðinu í Heiðmörk, sem kviknuðu á fimmta tímanum síðdegis í dag. 4.5.2021 21:53
Einkaflugvél hlekktist á við lendingu á Blönduósi Engan sakaði þegar lítil flugvél hlekktist á við lendingu nærri flugvellinum á Blönduósi. Tveir voru um borð í flugvélinni. 4.5.2021 20:58
Óaðfinnanlegur flutningur leikskólabarna á Con te Partiró Börnin á leikskólanum Laufásborg hafa að undanförnu vakið athygli fyrir óaðfinnanlegan flutning á ítalska laginu Con te Partiró eftir Andrea Bocelli. Við hittum krakkana í dag. 4.5.2021 20:31
Ungar konur þurfa ekki að þiggja seinni skammtinn af AstraZeneca Konur yngri en fimmtíu og fimm ára sem boðaðar eru í seinni bólusetningu með AstraZeneca á fimmtudag þurfa ekki að mæta frekar en þær vilja og fá þá boðun síðar með öðru bóluefni. Stefnt er að því að bólusetja tæplega fjörutíu þúsund manns á landinu í þessari stærstu bólusetningarviku frá upphafi covid 19 faraldursins. 4.5.2021 20:31
Þórólfur segir aðgerðir á landamærum skila árangri Heilbrigðisráðherra býst við að hægt verði að slaka töluvert á sóttvarnaaðgerðum undir lok næstu viku en ákvað í dag að framlengja gildandi sóttvarnareglur um viku. Sóttvarnalæknir segir nýjustu aðgerðir á landamærunum hafa skilað árangri. 4.5.2021 20:31
Eldurinn geisar á „óþægilega stóru svæði“ Sinubruninn í Heiðmörk ríður yfir á versta árstímanum fyrir slíkar hamfarir, að sögn Vernharðs Guðnasonar, deildarstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Fuglarnir eru í varpi og skordýrin eru viðkvæm. 4.5.2021 19:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni frá Heiðmörk þar sem er mikill og illviðráðanlegur sinubruni. Tökumaður okkar hefur verið á svæðinu frá því á fimmta tímanum og við fáum að sjá alveg nýjar myndir frá svæðinu auk þess sem Heimir Már, fréttamaður okkar, verður á staðnum að lýsa aðstæðum. 4.5.2021 18:27
Stoltur af því að vera hvítur, miðaldra karlmaður Deilt er um frumvarp um samræmda móttöku flóttafólks. Þingmenn Miðflokksins mótmæla því og telja að það muni leiða til holskeflu hælisumsókna og kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. 4.5.2021 18:12
Deilir áhyggjum lögreglu af albönsku mafíunni Dómsmálaráðherra tekur undir áhyggjur lögreglu um að albanska mafían fari að láta til sín taka hér á landi. Það þurfi með öllum mætti að tryggja öryggi borgaranna með því að styrkja lögregluna. 4.5.2021 17:44
Kolbeinn telur netauglýsingar fela í sér óeðlileg afskipti af komandi forvali Vg Félagsskapur sem kallar sig Við, fólkið í landinu, hefur að undanförnu birt auglýsingar þar sem birtar er myndir af þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og sagt að viðkomandi ætli að selja Íslandsbanka. 4.5.2021 16:29
Um fimmtíu manns berjast við meiriháttar sinubruna í Heiðmörk sem teygir sig í austurátt Allt tiltækt lið slökkviliðs, þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitarfólk hefur sinnt illviðráðanlegum sinubruna í Heiðmörk síðan rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt slökkviliðinu er bruninn að færast í aukana og teygir sig í austurátt. 4.5.2021 16:06
Skorar á ríkisstjórnina að opna augun eftir umfjöllun Kompáss Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa brugðist því að verja þjóðina gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta sagði hún eftir að hafa horft á umfjöllun Kompáss um málefnið. 4.5.2021 15:00
Krónan ákveðin blessun í krísunni Sérstök umræða um efnahagsmál fór fram á Alþingi í dag að beiðni Jón Steindórs Valdimarssonar, þingmanns Viðreisnar. Tekist var á um íslensku krónuna. 4.5.2021 14:46
Leggur til aldurstakmark á snjallsímaeign Hjálmar Bogi Hafliðason, þingmaður Framsóknarflokksins, ræddi um snjallsímanotkun barna á Alþingi í dag og spurði hvort takmarka ætti snjallsímaeign barna við fimmtán ára aldur. 4.5.2021 13:38
Sauðfjár- og geitabændur mega nú slátra sjálfir Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir að í dag sé verið að ná ákveðnum áfanga, ganga frá regluverki sem gerir sauðfjár- og geitabændum sem vilja slátra sjálfir og markaðssetja vöru sína, það kleift. 4.5.2021 12:55
Mikilvægt að börn og ungmenni þurfi ekki að bíða eftir ADHD greiningu Talið er að allt að sjö prósent barna og ungmenna séu með athyglisbrest með ofvirkni samkvæmt erlendum rannsóknum. Börn sem alast upp við erfiðar félagslegar aðstæður eru með erfiðari einkenni en þau sem búa við öryggi segir forseti sálfræðideildar HR. Birtingarmyndir séu ólíkar milli kynja og líklegt að stelpur fái síður greiningu. 4.5.2021 12:40
Vill fjölga jöfnunarþingsætum sem Katrín segir til skoðunar Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, birti í morgun Facebook-færslu þar sem hann gagnrýnir að Alþingi ætli ekki að leiðrétta kosningalög og fjölga þar með jöfnunarþingsætum fyrir næstu Alþingiskosningar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að taka þurfi málið til skoðunar. 4.5.2021 12:30
Hættusvæðið í kringum gosið stækkað Allt að fimmtán sentimetra hraunmolar hafa skotist upp úr öflugasta gígnum í Geldingadölum eftir að gosvirknin breyttist. Hættusvæðið verður því stækkað. 4.5.2021 12:05
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar heyrum við í heilbrigðisráðherra sem nú fyrir hádegið tilkynnti að reglur um samkomutakmarkanir innanlands í kórónuveirufaraldrinum verði framlengdar í eina viku, en sex greindust innanlands í dag og voru allir í sóttkví nema einn. 4.5.2021 11:36
Bein útsending: ADHD meðal stelpna Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, deildarforseti sálfræðideildar, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um ADHD meðal stelpna. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12. 4.5.2021 11:15
Framlengir núgildandi takmarkanir um eina viku Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar að framlengja gildistíma núgildandi sóttvarnaráðstafana um eina viku eða út 12. maí. Reglugerðin hefði að óbreyttu runnið út á miðnætti á morgun. Líklega verður fólk boðað í bólusetningu af handahófi eftir að forgangshópar verða kláraðir. 4.5.2021 11:12