Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vonast til að fara langt með að klára undirliggjandi sjúkdóma og forgangshópa í næstu viku Búist er við að bólusetningum fólks með undirliggjandi sjúkdóma verði lokið hér á landi í næstu viku. 13.5.2021 18:00
Töluvert tjón eftir að eldur kom upp við Haðarstíg Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í heimahúsi við Haðarstíg í miðbæ Reykjavíkur. 13.5.2021 17:59
Gömul og ný tré urðu eldinum í Heiðmörk að bráð Birki og stafafura sem hafði verið gróðursett voru á stórum hluta þess lands sem brann í gróðureldinum í Heiðmörk í síðustu viku. Gamall birkiskógur varð eldinum, sem er talinn hafa raskað smádýra- og fuglalífi, einnig að bráð. 13.5.2021 16:34
Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. 13.5.2021 16:00
Færðu Hörpu nýjan flygil og listaverk í tilefni afmælisins Íslenska ríkið og Reykjavíkurborg færðu tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu nýjan konsertflygil og útilistaverkið Vindhörpu í tilefni af tíu ára afmæli hússins í dag. Samanlagður kostnaður við gjafirnar er metinn 55 milljónir króna. 13.5.2021 15:25
„Villandi“ heilsíðuauglýsing í Mogga ekki á vegum Lyfjastofnunar Nafnlaus heilsíðuauglýsing sem birtist fyrir mistök í Morgunblaðinu í morgun þar sem óskað var eftir tilkynningum um aukaverkanir vegna bólusetningar gegn kórónuveirunni er ekki á vegum Lyfjastofnunar. Forstjóri stofnunarinnar segir auglýsinguna villandi. Auglýsandinn segist ekki hafa haft samráð við Lyfjastofnun og vill ekki svara hvernig hann fjármagnaði kaupin. 13.5.2021 14:33
Áætla að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika Áætlað er að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika á Íslandi. Vísbendingar eru um að fólk líti tryggingasvik ekki eins alvarlegum augum og önnur fjármunabrot, samkvæmt nýlegri könnun samtaka fjármálafyrirtækja. 13.5.2021 13:28
Þrjú greindust með veiruna á Sauðárkróki Þrjú greindust með kórónuveirusmit á Sauðárkróki í gær og eru nú þrettán í einangrun í bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra. 13.5.2021 13:22
Fá boltavelli í stað gamals og ónýts húss Framkvæmdir eru hafnar á lóð Vesturbæjarskóla, þar sem leggja á fótbolta- og körfuboltavöll í sumar. 13.5.2021 13:01
Bókuðu á víxl um stjórnarskrárverk í bæjarstjórn Hafnarfjarðar Fulltrúar meiri- og minnihlutans í borgarstjórn Hafnarfjarðarbæjar skiptust á bókunum í gær um umdeilt listaverk sem tengist kröfu um nýja stjórnarskrá sem var fjarlægt af vegg menningarhússins Hafnarborgar á dögunum. Minnihlutinn vildi biðja listamenn afsökunar en bæjarstjóri telur að skerpa þurfi verklagsreglur. 13.5.2021 12:45
Indverska afbrigðið lúti sömu lögmálum og önnur afbrigði veirunnar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er vongóður um að Íslendingum muni takast vel við að hemja indverska afbrigði kórónuveirunnar. Máli sínu til stuðnings bendir hann á árangur Íslendinga við að hemja breska afbrigði veirunnar sem hefur greinst víða hér á landi. 13.5.2021 12:06
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á kórónuveirufarladrinum og ræðum við Kára Stefánnsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Hann segir Íslendinga mun betur í stakk búna til að takast á við indverska afbrigði kórónuveirunnar en Indverjar. 13.5.2021 11:46
Birgir stefnir á efstu sætin í Reykjavík Birgir Ármannsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, býður sig fram í annað til þriðja sæti í prófkjöri flokksins fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö. Hann hefur setið á Alþingi fyrir flokkinn í tæp tuttugu ár. 13.5.2021 11:21
Ferðaþjónustan leggur línurnar fyrir kosningarnar Samtök ferðaþjónustunnar hafa sett fram aðgerðir til að hraða viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Er það innlegg samtakanna fyrir komandi kosningabaráttu en framkvæmdastjórinn segir að fylgst verði með því hvernig flokkarnir taki tillögurnar. 13.5.2021 11:15
Fimm smitaðir en allir í sóttkví Allir þeir fimm einstaklingar sem greindust smitaðir af nýju afbrigði kórónuveirunna í gær voru í sóttkví. Einhver smitanna tengjast hópsýkingu í Skagafirði en öll tengjast þau fyrri smitum samkvæmt upplýsingum almannavarna. 13.5.2021 10:53
Svalt í veðri en áfram hætta á gróðureldum Ekki er von á miklum veðurbreytingum næstu daga þar sem öflug hæð yfir Grænlandi teygir sig til suðausturs yfir Ísland. Spáð er hægum austlægum vindum eða hafgolu næstu daga og skúrir eða él víða um land. 13.5.2021 07:27
Grunaður um akstur undir áhrifum og laug til um nafn Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi hafði lögregla afskipti af ökumanni í miðbæ Reykjavíkur vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Eftir að ökumaðurinn hafði verið stöðvaður reyndi hann að villa um fyrir lögreglumönnum og segja rangt til nafns. 13.5.2021 07:18
Fisvélar sveimuðu yfir höfuðborgarsvæðinu Fjöldi fisvéla sveif yfir höfuðborgarsvæðinu í þyrpingu á ellefta tímanum í kvöld en um var ræða hópflug á vegum Fisfélags Reykjavíkur. 12.5.2021 23:37
Prestur efndi til herferðar þegar yfirvöld beygðu sig fyrir herskáum kattaeigendum „Þegar kettirnir eru komnir í búrin sem ég er að ná fuglunum í til að merkja og sleppa þá er eiginlega komið nóg. Þá er mælirinn fullur.“ 12.5.2021 23:14
Lýsa ofbeldi og lyfjaþvingunum á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítala Embætti landlæknis hefur nú til skoðunar alvarlegar ábendingar um slæman aðbúnað á öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans. Ábendingarnar koma frá núverandi og fyrrverandi starfsmönnum og lýsa meðal annars ofbeldi, lyfjaþvingunum, ógnarstjórnun og miklum samskiptavanda. 12.5.2021 21:24
„Hryllilegt“ að sjá það sem skrifað er á netinu Áreitni og drusluskömm grassera meðal unglinga í skjóli nafnleyndar á samfélagsmiðlum, að sögn nemenda í 10. bekk. Þeir kalla eftir frekari fræðslu í ljósi MeToo-bylgju síðustu daga. 12.5.2021 20:40
Sterkur sjávarútvegur geti aukið verðmætasköpun um hundruð milljarða Íslenskur sjávarútvegur hefur þróast mikið á undanförnum árum og stendur sterkt og getur aukið verðmætasköpun sína um hátt í þrjú hundruð milljarða á næstu tíu árum. Þetta er niðurstaða viðamikillar skýrslu sérfræðihóps til sjávarútvegsráðherra sem kynnt var í dag. 12.5.2021 20:30
Aðgerðum ef til vill breytt á landamærunum Mögulega verður dregið úr sóttvarnaaðgerðum á landamærum á næstunni gagnvart þeim sem eru annað hvort bólusettir eða hafa jafnað sig á covid 19 sjúkdómnum. Sóttvarnalæknir telur núgildandi aðgerðir duga gegn útbreiðslu indverska afbrigðis covid 19 hér á landi. 12.5.2021 19:15
Fólki aftur heimilt að fara að gossvæðinu þar sem kvikuflæði færist nú í vöxt Nýjustu mælingar og gögn gefa til kynna að kvikuflæðið í Geldingadölum hafi vaxið á síðustu dögum og sé nú nærri þrettán rúmmetrum á sekúndu. Samhliða því hefur verið mikil kvikustrókavirkni í eldgosinu og kvikustrókar þeytast 100 til 300 metra upp úr gígnum. 12.5.2021 19:12
Bein útsending: Eldgosið í Geldingadölum Lesendur Vísis geta nú fylgst með eldgosinu í Geldingadölum í beinni útsendingu. Ný vefmyndavél horfir yfir gígaröðina og verður sýnt frá gosinu allan sólarhringinn. Myndavélin er háþróuð og verður hægt að snúa linsunni og færa áhorfendur nær einstaka gígum ef tilefni gefst til. 12.5.2021 18:54
Óvissustig nú á Norðurlandi vestra Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum á Norðurlandi vestra. Ákvörðunin er tekin í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á svæðinu. 12.5.2021 18:47
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í dag var lokað á gosstöðvunum til að hægt væri að laga göngustíga og koma þannig í veg fyrir hættu sem hefur skapast á svæðinu síðustu vikur. Fréttamaður okkar, Kristján Már Unnarsson, hefur þó verið á svæðinu í dag og fylgst með framkvæmdunum. 12.5.2021 18:01
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands funda í fyrsta sinn í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, munu hittast á tvíhliða fundi í Reykjavík þann 20. maí næstkomandi. 12.5.2021 17:34
Gerir ekki kröfu um að Kolbeinn segi af sér eða fari í leyfi Formaður Vinstri grænna telur að Kolbeinn Óttarsson Proppé hafi tekið rétta ákvörðun með því að draga til baka framboð sitt í prófkjöri flokksins eftir að kvartað var undan hegðun hans til fagráðs flokksins. Hún telur þó ekki ástæðu til þess að hann fari í leyfi eða segi af sér þingmennsku. 12.5.2021 17:01
Geymslur þurfa ekki að greiða skaðabætur Héraðsdómur fyrst, svo Landsréttur og nú Hæstiréttur eru sammála um að fyrirtækið Geymslur sé ekki skaðabótaskylt vegna stórbrunans í Garðabæ í apríl 2018. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti dóm á neðri dómstigum. 12.5.2021 16:30
Segir aðkomu HÍ að rekstri spilakassa á ábyrgð stjórnvalda og skólans Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kallað eftir því að Háskóli Íslands hætti rekstri spilakassa. Forseti Stúdentaráðs segir vandann aðallega felast í því að Háskólinn sé ekki nógu vel fjármagnaður af stjórnvöldum og gagnrýnir að skólinn þurfi að fjármagna starfsemi sína með rekstri slíkra kassa. 12.5.2021 16:12
Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar fjarlægð Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar hafa verið fjarlægð af hlaðvarpsveitum og YouTube-rás hlaðvarpsstjórnandans, eftir að beiðni þess efnis barst stafrænu auglýsingastofunni KIWI. 12.5.2021 16:11
Efna til hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að finna nýrri sameiginlegri sundlaug bæjarfélaganna stað um miðbik Fossvogsdals í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla. 12.5.2021 15:59
Störf Sögu Ýrar „mjög óvanaleg hagsmunagæsla“ Lögmannafélag Íslands mun óska eftir upplýsingum um störf Sögu Ýrar Jónsdóttur lögmanns fyrir Sölva Tryggvason fjölmiðlamann. Félagið hefur eftirlitsskyldu og formaður þess telur framferði Sögu óvanalegt. 12.5.2021 15:54
Húsnæði starfsmannaleigunnar „alger bráðabirgðalausn“ Eigandi starfsmannaleigu sem er ákærður fyrir að stefna lífi og heilsu starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í iðnaðarhúsnæði án tilskilinna leyfa gaf óljós svör við aðalmeðferð málsins í dag. Tók hann ekki beina afstöðu til sakarefnisins og sagði að búseturýmin í húsnæðinu hafi verið alger bráðabirgðalausn. 12.5.2021 15:36
Tilkynntu mál Kolbeins ekki til lögreglu Mál sem tilkynnt var til fagráðs Vinstri grænna vegna hegðunar Kolbeins Óttarssonar Proppé þingmanns var ekki tilkynnt til lögreglu. Fagráðið mat það svo að málið væri ekki þess eðlis. 12.5.2021 14:57
Kristján Þór biðst afsökunar á brogaðri upplýsingagjöf ráðuneytisins Kristján Þór Júlíusson ráðherra vonast til að draga megi lærdóm af þeim mistökum sem voru gerð af hálfu ráðuneytisins; að mismuna í upplýsingagjöf aðgengi að skýrslu sem nú er til umfjöllunar. 12.5.2021 14:54
Bein útsending: Staða og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefur boðað til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Fundurinn hefst klukkan 14. 12.5.2021 13:59
„Eitt ljótasta mál sem ég hef séð á 30 ára ferli“ Sviðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir sakamál gegn eiganda starfsmannaleigunnar 2findjob eitt það ljótasta sem hann hefur séð á sínum 30 ára ferli. Mikil íkveikjuhætta var í húsnæðinu og ljóst að þar hefði getað orðið stórslys. Verkamenn bjuggu í litlum svefnkössum sem var staflað upp. 12.5.2021 13:31
Almannavarnastig vegna Covid-19 fært niður á hættustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnarlækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna COVID-19 frá neyðarstigi niður á hættustig. 12.5.2021 13:24
Fylgi Sjálfstæðisflokks fer úr 28,7 prósentum í 25,6 milli kannanna hjá MMR Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 25,6 prósent í nýrri könnun MMR, en var 28,7 prósent í þeirri síðustu. 12.5.2021 12:52
Bein útsending: Ísland ljóstengt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptastjóður standa fyrir kynningarfundi í dag um árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið er sagt hafa bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins. 12.5.2021 12:32
Fimmtungur barna stundar ekki tómstundir Ójöfnuður meðal barna hér á landi birtist helst í því að nærri fimmtungur þeirra fær ekki tækifæri til að stunda tómstundir og fleiri börn búa við þröngan kost en áður. 12.5.2021 12:08
Samfylkingin vill tvöfaldan persónuafslátt eftir atvinnuleysi og styrkja viðburði listafólks Samfylkingin mun í vikunni leggja fram þingsályktunartillögu með úrræðum gegn atvinnuleysi. Formaður flokksins segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar kjarklausar. 12.5.2021 12:07
Landlæknir hvetur alla til að uppfæra rakningarappið Á upplýsingafundi rétt í þessu kynnti Alma Möller landlæknir til sögunnar uppfærslu á smitrakningarappinu, sem felur í sér að nú geta símar „átt samskipti“ við aðra síma í nágrenninu með Bluetooth. 12.5.2021 11:41