Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samgöngufélagið hvetur til þverunar Vatnsfjarðar Átök gætu verið í uppsiglingu um þverun Vatnsfjarðar í Barðastrandarsýslu. Könnun sem áhugafélag um samgöngur lét gera sýnir verulegan stuðning við þverun. Undirstofnanir umhverfisráðuneytis, sem og sveitarfélagið Vesturbyggð, leggjast hins vegar gegn hugmyndinni. 21.7.2021 22:22
Óléttar og óbólusettar taka aftur upp grímuna og halda sig heima Barnshafandi konur sem ekki hafa getað fengið bólusetningu upplifa sig nokkuð berskjaldaðar fyrir kórónuveirunni, nú þegar smituðum fjölgar. Þær hafa haldið sig til hlés undanfarna daga og stefna á meiri einangrun síðustu vikur meðgöngunnar. 21.7.2021 20:00
Smituðum gæti fjölgað töluvert eftir daginn í dag Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, býst jafn vel við töluverðri fjölgun á smituðum einstaklingum eftir daginn í dag. Hann segir að ef ákveðið verði að grípa til hertra aðgerða innanlands til að stemma í stigu við þeirri bylgju sem nú er farin af stað sé betra að gera það sem fyrst. 21.7.2021 19:42
Vinir Tomma Tomm léttir í lundu í nýjum lundi Samstarfsfélagar og vinir Tomma Tomm fyrrverandi bassaleikara Stuðmanna, Þursaflokksins og fleiri hljómsveita minntust hans í dag með vígslu Tómasarlundar í Húsdýragarðinum. Lundurinn á að boða gleði eins og lund Tomma hafi alla tíð gert. 21.7.2021 19:41
Banaslys í Fljótsdal Kona sem var í fjallgöngu í suðurdal Fljótsdals á Austurlandi í dag slasaðist og lést hún af völdum áverka sem hún varð fyrir. 21.7.2021 18:47
Fullbólusettir, lítið útsettir en smita allt að sex manns Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar á Landspítala segir það koma sér mjög á óvart hversu margir smitist nú af kórónuveirunni. Hann telur að herða þurfi innanlandsaðgerðir fljótt. Varúðarráðstafanir voru hertar enn frekar á Landspítala í dag og starfsmenn beðnir að halda sér innan svokallaðrar sumarkúlu. 21.7.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá ákalli æ fleiri sérfræðinga í heilbrigðismálum um að gripið verði til aðgerða til að hefta vaxandi útbreiðslu kórónuveirunnar innanlands. Smituðum fjölgar í veldisvexti og eru lang flestir þeirra full bólusettir og ungir að árum. 21.7.2021 18:01
Hvetur starfsfólk Landspítalans til að búa til sumarkúlu Farsóttarnefnd Landspítalans beinir þeim tilmælum til starfsfólks að það gæti sín vel í samfélaginu nú þegar kórónuveirusmitum fer fjölgandi. Þannig er það hvatt til þess að búa til eins konar sumarkúlu með sínum nánustu. 21.7.2021 17:36
„Væri voða sárt að þurfa að aflýsa gleðigöngunni tvö ár í röð“ Formaður Hinsegin daga segir óþægilegt að vera kominn í sömu stöðu og í fyrra vegna faraldurs kórónuveirunnar. Óvíst er hvort gripið verði til aðgerða innanlands til að stemma stigu við faraldurinn 21.7.2021 16:01
Hraunyfirborðið hefur hækkað um sex metra á síðustu þremur vikum Hraunyfirborðið í Meradölum hefur hækkað um sex metra á síðustu þremur vikum. Þannig hafa um sex milljón rúmmetrar bæst við hraunið sem fyrir var í dölunum. 21.7.2021 15:59
Hvetur stjórnvöld til að taka bara slaginn við veiruna Guðfinnur Karlsson, einn allra umsvifamesti veitingamaður í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að finna leið til þess að lifa með veirunni í þeirri bylgju Covid-19 sem nú virðist vera að taka sig upp. 21.7.2021 15:29
Skipuleggjendur kalla eftir tilmælum: „Takið bara ákvörðun þó hún verði sársaukafull“ Ákveðið hefur verið að aflýsa hátíðinni Flúðir um Versló sem fram átti að fara um verslunarmannahelgina í ljósi fjölgunar smita síðustu daga. Ákvörðunin var tekin eftir að greint var frá því að 56 hafi greinst innanlands með Covid-19 í gær. 21.7.2021 14:24
Grímuskylda og eins metra fjarlægðarregla í Læknasetrinu Grímuskylda og eins metra regla gildir nú í Læknasetrinu í Mjódd vegna stöðu faraldurs kórónuveirunnar hér á landi. Þetta var ákveðið í gær þegar ljóst var að kórónuveirusmit væru í veldisvexti innanlands. 21.7.2021 13:05
Allir félagslegir leigusalar geti fengið sömu fjármögnun og Bjarg Aðstoðarframkvæmdastjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að allir félagslegir leigusalar geti fengið sömu fjármögnun og Bjarg leigufélag, sem í gær ákvað að lækka leigu hjá öllum leigutökum sínum. Eina skilyrði fjármögnunar er að leigutakar njóti góðra kjara. 21.7.2021 13:00
Flestir smitaðra tengjast Bankastræti club og EM-ferð til London Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af stöðu kórónuveirufaraldursins. Hann íhugar innanlandsaðgerðir en bindur vonir við að þær myndu standa stutt yfir. Flestir smituðu undanfarna daga tengjast skemmtistaðnum Bankastræti club og utanlandsferð til London. 21.7.2021 12:07
Með ónotatilfinningu fyrir aðgerðum sem gætu sett Þjóðhátíð úr skorðum Formaður Þjóðhátíðarnefndar segist hafa ónotatilfinningu fyrir því að gripið verði til aðgerða til að bregðast við fjölgun kórónuveirusmita í samfélaginu, sem gætu haft áhrif á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Öllum tilmælum yfirvalda verði þó fylgt. 21.7.2021 12:00
Fullbólusettur lagður inn á Landspítala með lungnabólgu Manneskja á sjötugsaldri hefur verið lögð inn á Landspítala vegna Covid-19 sjúkdómsins. Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við fréttastofu. 21.7.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni en fimmtíu og sex greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 21.7.2021 11:35
Starfsmaður á bráðamóttöku smitaður af Covid-19 Starfsmaður á bráðamóttöku Landspítala greindist í gær með Covid-19. Tugir samstarfsmanna á sömu vakt eru nú komnir í vinnusóttkví og verða sendir í skimun. 21.7.2021 11:26
Fimm hross týnd á fjöllum í rúma viku Fimm hross sem fældust og hlupu á fjöll hafa verið týnd í rúma viku. Hrossin týndust skammt frá Gatfelli á Uxahryggjaleið, suðvestur af Skjaldbreið, á þriðjudagsmorgun í síðustu viku. 21.7.2021 11:19
56 greindust innanlands í gær Í gær greindust 56 einstaklingar innanlands með Covid-19. Er það mesti fjöldi á einum degi það sem af er þessu ári. Af þeim voru 43 fullbólusettir og tveir hálfbólusettir. 38 voru utan sóttkvíar við greiningu. 21.7.2021 10:56
Gylfi sagður neita sök Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton í ensku deildinni og landsliðsmaður, er sagður harðneita þeim ásökunum sem bornar eru á hann. Hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni og var handtekinn á föstudaginn í Manchester í Englandi. 21.7.2021 10:50
„Að sjálfsögðu kláraði ég bjórinn“ Fréttaljósmynd ársins er lýsing sem hefur verið höfð um myndina hér að ofan, þar sem Jón Stefánsson, sjálfur meira að segja fyrrverandi ljósmyndari, situr hinn rólegasti og klárar sinn Gull af krana fyrir utan Bláu könnuna á Akureyri á meðan hamfaraástand ríkir í kringum hann. 21.7.2021 10:37
Tvítugur Íslendingur ákærður fyrir hrottalegt morð í Kaliforníu Íslenskur karlmaður um tvítugt er grunaður um að hafa myrt og limlest unga konu í bænum Ridgecrest í Kaliforníu í maímánuði. Hann hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og er sagður hafa játað morðið. 21.7.2021 10:25
Tveir smitaðir á Seyðisfirði þar sem hátíðin LungA fór fram um helgina Tveir hafa greinst smitaðir á Seyðisfirði síðustu daga en listahátíðin LungA fór fram í bænum um helgina. 21.7.2021 10:24
Guðlaugur hættir við framboð vegna ákæru en lýsir yfir sakleysi Guðlaugur Hermannsson verður ekki oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í Suðurkjördæmi líkt og stóð til. Hann er einn þeirra átta sem ákærðir voru á dögunum fyrir alvarleg fjársvik. Hann sendi frá sér yfirlýsingu um málið í morgun. 21.7.2021 10:17
Öll sýni neikvæð á Grund Öll sýni sem tekin voru hjá íbúum og starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Grund eftir að smit greindist hjá starfsmanni reyndust neikvæð. 21.7.2021 10:09
Mannréttindadómstóllinn tekur mál Nöru fyrir Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka mál Nöru Walker gegn Íslenska ríkinu til efnismeðferðar. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. 21.7.2021 08:26
Vopnað rán og hópárás í miðbænum Upp úr klukkan sjö í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um vopnað rán í verslun í miðbæ Reykjavíkur. Maður hafði ógnað starfsmanni með brotinni glerflösku og rænt peningum. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að en fannst seinna um kvöldið. 21.7.2021 06:32
Sex handteknir eftir slagsmál í göngugötunni Sex voru handteknir eftir að slagsmál brutust út í göngugötunni í miðbæ Akureyrar í kvöld. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahús. 20.7.2021 21:56
Ferðamenn streyma í Skálholt sem aldrei fyrr Starfsfólk í Skálholti hefur varla haft undan í sumar að taka á móti ferðamönnum, sem koma og skoða staðinn, þó aðallega útlendingar. Framkvæmdastjóri staðarins finnst sérstakt að aðeins brot af íslensku þjóðinni hefur heimsótt Skálholt. 20.7.2021 21:16
Bólusettir muni líklega veikjast alvarlega hér eins og annars staðar Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að grípa eigi strax til aðgerða innanlands svo stemma megi stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Reikna megi með að bólusettir veikist alvarlega hér á landi eins og dæmi séu um í öðrum Evrópulöndum. 20.7.2021 20:30
Yfir 27 stiga hiti á Norðausturhorninu Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við landsmenn á Norðausturhorni landsins í dag. Hiti mældist víða yfir 27 gráðum. 20.7.2021 20:17
„Löngunin til að vera á Íslandi sterkari en svo að ég láti enn eitt prófið hindra það“ Undirbúningur að hertum aðgerðum á landamærunum sem taka gildi á mánudaginn stendur nú yfir á Keflavíkurflugvelli. Ferðamenn sem komu hingað til lands í dag telja ólíklegt að krafan um neikvætt próf við Covid-19 hefði komið í veg fyrir ferðalag þeirra hingað, hefðu hinar nýju reglur verið í gildi í dag. 20.7.2021 19:23
Leigjendur fá stórfellda lækkun hjá Bjargi: Setur þrýsting á önnur leigufélög Íbúðafélagið Bjarg hyggst lækka leigu hjá öllum leigutökum sínum um tíu til fimmtán prósent. Framkvæmdastjóri félagsins segir það hægt vegna nýrra hagkvæmari lána. Félagsmálaráðherra telur þetta setja þrýsting á önnur félög að lækka leigu. 20.7.2021 19:00
Biðlar til Íslendinga að fara í sýnatöku sem fyrst eftir komu til landsins Sóttvarnalæknir beinir þeim tilmælum til þeirra sem eru bólusettir eða eru með sögu um fyrri COVID-19 sýkingu og eru búsettir á Íslandi, eða hafa hér tengslanet, að fara í sýnatöku vegna COVID-19 við komuna hingað til lands þrátt fyrir neikvætt PCR- eða antigen próf, sem tekið var fyrir brottför. 20.7.2021 18:55
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar förum við ítarlega yfir aukna útbreiðslu kórónuveirunnar um allt land en sóttvarnalæknir segir nýja bylgju hafna og hún sé í veldisvexti. 20.7.2021 18:00
Nýtt farsóttarhótel opnað þar sem hitt var að fyllast Rauði krossinn hefur opnað nýtt farsóttarhús á Hótel Rauðará í Reykjavík þar sem farsóttarhúsið Lind er orðið svo til fullt. Búist er við að áframhaldandi fjölda sýktra á næstu dögum. 20.7.2021 17:24
Vill sjá skertan opnunartíma skemmtistaða vegna stöðunnar Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans hefði viljað sjá skertan opnunartíma skemmtistaða til að stemma stigu við faraldri kórónuveirunnar hér á landi. Hann hefur áhyggjur af verslunarmannahelginni og býst við háum smittölum næstu daga. 20.7.2021 17:20
Íbúar á Grund sendir í skimun eftir að starfsmaður greindist með Covid-19 Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík greindist með Covid-19 í gær. Sá starfar á deild A2 og var síðast í vinnu á fimmtudag. Búið er að taka sýni úr íbúum á deildinni og starfsfólki á sömu vakt. Vonast er til að niðurstöður fáist úr skimuninni síðar í dag eða í fyrramálið. 20.7.2021 14:50
Hnúfubakur nálægt landi: „Þetta var alveg geggjað“ „Í stuttu máli. Hnúfubakur að gefa allt í botn til að ná hádegismatnum. Rétt við fast land btw ég var á föstu landi þegar ég tók þetta….TRYLLT!! Silgdi svo burt með frænda sínum. Saddur og sæll,“ skrifar framleiðandinn Jóhann Már Kristinsson á Twitter og birtir stórkostlegt myndband af Hnúfubaki í leit að æti nálægt landi. 20.7.2021 14:43
Ísland og Sviss undirrita samstarfsyfirlýsingu á sviði loftslagsmála Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur undirritað viljayfirlýsingu fyrir Íslands hönd um samstarf við svissnesk stjórnvöld á sviði loftslagsmála. 20.7.2021 14:11
Gylfi Þór sá sem var handtekinn Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu er sá leikmaður hjá enska knattspyrnuliðinu Everton sem lögregla í Manchester handtók á föstudag í tengslum við kynferðisbrot gagnvart ólögráða stúlku, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu. Everton greindi frá því í gær að um væri að ræða leikmann liðsins. 20.7.2021 13:52
Innflytjandinn ákveðið að fjarlægja allt markaðsefni með Gylfa Þór Innflytjandi orkudrykkjarins State Energy hefur ákveðið að taka niður allt auglýsingaefni með Gylfa Þór Sigurðssyni, fótboltamanni Everton og landsliðsmanni, sem mátti finna í Hagkaup og fleiri verslunum. 20.7.2021 13:27
Kemur ekki til greina að aflýsa fjölmennu fótboltamóti: Þátttakendur flestir óbólusettir Ekki kemur til greina að aflýsa fótboltamótinu Rey Cup vegna stöðu faraldurs kórónuveirunnar hér á landi. Mótið, sem er það stærsta í sögu Rey Cup, hefst á morgun og taka um tvö þúsund börn þátt, flest óbólusett. 20.7.2021 13:06