Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sérsveitin þvingaði bíl út af vegi undir Esju Lögreglan veitti mönnum eftirför allt frá Norðlingaholti og upp í Kjalarnes síðdegis í dag. Tveir voru handteknir vegna málsins. 23.7.2021 14:17
Tuttugu og átta börn í eftirliti á Covid-göngudeild Þrír eru inniliggjandi á Landspítalanum og 369 í eftirliti á Covid-göngudeild spítalans, þar af 28 börn. Sjö starfsmenn eru í einangrun, fjórtán í sóttkví A og 229 í vinnusóttkví. 23.7.2021 14:11
Bein útsending: Ríkisstjórnin fundar um minnisblað Þórólfs á Egilsstöðum Boðað hefur verið til ríkisstjórnarfundar á Egilsstöðum klukkan 16 í dag. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er reiknað með að fundurinn standi til um klukkan 18 og að ráðherrar kynni ákvörðun um aðgerðir að honum loknum. 23.7.2021 14:05
Hefði þurft áfallahjálp fyrir starfsfólkið þegar skellt var í lás Eigandi Laugaáss segist verða fyrir miklu tjóni eins og aðrir veitingamenn verði samkomutakmarkanir hertar. Hann styðji aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að sporna við útbreiðslu faraldursins en þær muni koma illa við marga. 23.7.2021 14:00
Ríkisstjórnin hangir á galla kosningakerfisins Píratar og Samfylking missa þingmann vegna ójöfnuðar kosningakerfisins. Framsóknar og Sjálfstæðisflokkur hagnast á kjördæmakerfinu sem því nemur. 23.7.2021 13:54
Mánaðarlaun þingmanna komin upp í tæplega 1,3 milljón króna Laun þingmanna hækka enn og hafa hækkað um 16,7 prósent frá árinu 2016 en þá höfðu þau verið hækkuð til mikilla muna eða um 44,3 prósent í einni svipan. 23.7.2021 13:18
Endurvekja bakvarðasveitina í ljósi fjölgunar smita Ákveðið hefur verið endurvekja bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar vegna fjölgunar greindra smita af Covid-19 undanfarna daga. 23.7.2021 12:16
„Við erum bara svolítið að fara í gamla farið aftur“ Starfsmenn Landspítalans undirbúa sig fyrir fjölgun sjúklinga. Þrír hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna Covid-19 og um 370 eru á göngudeild. Sex eru á svokölluðu gulu stigi og einn á rauða. 23.7.2021 12:13
Búist við miklum hasar á fundi ríkisstjórnar Verulegur þrýstingur er á ráðherra frá stjórnarþingmönnum um að gefa ekki eftir þau sjónarmið sem flokkarnir vilja standa fyrir. Komandi kosningabarátta skerpir þær línur. 23.7.2021 11:52
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður aðal áherslan lögð á stöðuna í kórónuveirufaraldrinum. Sjötíu og sex greindust í gær innanlands og er von á því að ríkisstjórnin kynni nýjar sóttvarnaaðgerðir að loknum ríkisstjórnarfundi síðdegis. 23.7.2021 11:30
Foreldrar í uppnámi eftir að ógnandi hópur kastaði eggjum í þátttakendur ReyCup Mikil ókyrrð ríkir meðal keppenda og foreldra á fótboltamótinu ReyCup eftir að hópur ungmenna kastaði eggjum í keppendur á aldrinum 13 til 16 ára. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu. 23.7.2021 11:18
Boða til ríkisstjórnarfundar vegna minnisblaðs Þórólfs klukkan 16 Boðað hefur verið til ríkisstjórnarfundar á Egilsstöðum klukkan 16 í dag. Á fundinum verður rætt um minnisblað sóttvarnalæknis sem hann sendi heilbrigðisráðherra í gær. 23.7.2021 10:56
76 greindust smitaðir innanlands Í gær greindust 76 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 54 fullbólusettir og 22 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar við greiningu. Þrír eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins. 23.7.2021 10:49
Liðsmenn Everton sagðir vilja að Gylfi verði nafngreindur Liðsmenn knattspyrnufélagsins Everton hafa kallað eftir því að liðsfélagi þeirra, sem handtekinn var fyrir viku grunaður um kynferðisbrot gegn barni og heimildir Vísis staðfesta að sé Gylfi Þór Sigurðsson, verði nefndur á nafn. 23.7.2021 09:35
Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranótt þriðjudags Hvalfjarðargöngum verður lokað næstkomandi mánudagskvöld vegna malbikunarframkvæmda í göngunum. Þeim verður lokað klukkan 22 á mánudagskvöld og opna aftur klukkan 7 á þriðjudagsmorgun. 23.7.2021 09:08
Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs Ráðherranefnd ríkisstjórnar Íslands mun funda í dag og ræða minnisblað sóttvarnalæknis um tillögur hans að sóttvarnaaðgerðum innanlands. 23.7.2021 08:30
Lækna-Tómas gefur út göngu- og örnefnakort af Geldingadölum Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir, hefur gefið út sérstakt kort af Geldingadölum sem sýnir gosstöðvarnar og umhverfi þeirra ásamt helstu örnefnum á svæðinu. 23.7.2021 06:50
Eftirlýstur fannst við að brjótast inn í bíla Tvær líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Tilkynnt var um líkamsárás og þjófnað í heimahúsi í miðbæ Reykjavíkur en vitað er hver gerandinn er og er málið nú í rannsókn. Hin líkamsárásin varð einnig í miðbænum en tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar. 23.7.2021 06:39
Minnkandi gosflæði í júlí: Mögulega merki um að farið sé að síga á seinni hlutann Á síðustu þremur vikum hefur hraunrennsli úr eldgosinu í Fagradalsfjalli farið minnkandi. Bendir það til þess að þrýstingur fari minnkandi. Mögulega geta þetta verið merki um að farið sé að síga á seinni hlutann í gosinu. 22.7.2021 22:58
Segir vindmyllur eiga eftir að tæta sundur samfélagið Byggðaráð Norðurþings hefur frestað breytingu aðalskipulags sem hefði greitt götu vindorkuvers á Melrakkasléttu eftir að mótmæli bárust frá íbúum við Öxarfjörð. Andstæðingar segja vindmylluskóg spilla víðerni Sléttunnar. 22.7.2021 22:22
„Ekki búið að afbóka nokkurn einasta mann“ Formaður þjóðhátíðarnefndar segir skipuleggjendur nú bíða eftir því að ríkisstjórnin ákveði hvort, og þá hvernig, innanlandstakmarkanir verði settar á vegna kórónuveirunnar. Orðrómur þess efnis að tækniþjónusta hafi verið afbókuð á hátíðinni sé úr lausu lofti gripinn. 22.7.2021 21:37
Greindist með veiruna eftir leik á ReyCup í dag Keppandi í 4. flokki á knattspyrnumótinu ReyCup, sem nú er haldið í Reykjavík, greindist með kórónuveiruna seint í dag. Tvö lið á mótinu eru komin í sóttkví. 22.7.2021 20:35
Landspítali á hættustig: Tveir liggja inni og tíu í sérstöku eftirliti Farsóttarnefnd og viðbragðsstjórn Landspítalans hafa tekið þá ákvörðun að færa spítalann upp á svokallað hættustig. Tveir liggja inni smitsjúkdómadeild spítalans með Covid-19. 22.7.2021 20:16
Reynir Pétur munnhörpuleikari með meiru Munnharpa og munnhörpulög eiga allan hug Reynis Péturs Ingvarssonar á Sólheimum í Grímsnesi, en hann spilar bæði frumsamin lög og lög eftir aðra. Þá spilar hann stundum fyrir gesti á Sólheimum. 22.7.2021 20:15
Líkir takmörkunum og afléttingum á víxl við „ákveðnar pyntingaraðferðir“ Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum líkir sóttvarnatakmörkunum og afléttingum á víxl við pyntingar á stríðsföngum í aðsendri grein sem birtist á Vísi í dag. Hún hvetur ráðamenn og aðra til „meðalhófs í umræðu og ákvörðunum“, einkum varðandi þjóðhátíð í Eyjum. 22.7.2021 19:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við vandlega yfir tíðindi dagsinis varðandi væntanlega aðgerðir vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar undanfarnar vikur, sem sóttvarnalæknir segir í veldisvexti. 22.7.2021 18:01
Óbólusettur lagður inn á Landspítala Óbólusettur sjúklingur með Covid-19 verður lagður inn á Landspítala í dag. Runólfur Pálsson yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítala staðfestir þetta í samtali við Vísi. 22.7.2021 17:50
„Rétt að anda rólega og líta björtum augum fram á veginn“ Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í lyf- og gigtarlækningum og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítala, telur nokkurs konar „panik“ ástand ríkja eftir fregnir dagsins. Hann telur rétt að þjóðin andi rólega og minni sig á að hér sé þorri þjóðar bólusettur og að við séum vel í stakk búin til að takast á við fjórðu bylgju faraldursins. 22.7.2021 17:10
Lögregla steig inn í rifrildi ferðamanna og starfsmanna flugvallarins Lögregla og öryggisverðir þurftu að skerast í leikinn þegar til rifrildis kom milli tveggja tilvonandi flugfarþega annars vegar og þjónustuaðila á vegum Play á Keflavíkurflugvelli hins vegar. 22.7.2021 16:53
Skólastarf verður í Fossvogi í vetur Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að kennsla fyrir fyrsta til fjórða bekk Fossvogsskóla muni fara fram í Fossvogi næsta skólavetur. Á sama tíma munu börn í fimmta til sjötta bekk stunda nám í Korpuskóla. 22.7.2021 16:35
Annar stór dagur í sýnatöku Stór dagur hefur verið í Covid-sýnatöku hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í dag og stefnir í að hann verði sambærilegur gærdeginum þegar tekin voru sýni hjá um þrjú þúsund einstaklingum. Hefur fjöldinn ekki verið meiri frá því um miðjan apríl. 22.7.2021 15:52
Kópavogsbúar hjóla í nýju fjallahjólabrautina sína Yfirvöld í Kópavogi fá það óþvegið á Facebook-síðu sinni en íbúar hafa aldrei fyrr séð eins marflata fjallahjólabraut og þeim er boðið uppá. Þeim ofbýður gersamlega. 22.7.2021 15:33
„Öll alveg ógeðslega fúl og pirruð yfir þessu“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir ekkert annað í stöðunni en að þjóðin taki höndum saman og takist á við nýjar sóttvarnaaðgerðir. 22.7.2021 13:36
„Sumarkúlan“ fórnarkostnaður sem ekki sé metinn til launa Heilbrigðisstarfsmenn hafa verið hvattir til þess að búa til eins konar „sumarkúlu“ vegna fjölgunar smitaðra. Formaður félags hjúkrunarfræðinga segir að um fórnarkostnað sé að ræða sem ekki sé metinn til launa. 22.7.2021 13:30
Minnast hryðjuverkaárásanna í Útey og Osló í Vatnsmýri Tíu ár eru í dag liðin frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Osló þar sem 77 féllu. Í tilefni þess hafa Ungir jafnaðarmenn í samstarfi við Norræna húsið skipulagt minningarathöfn sem fer fram í minningarlundinum í Vatnsmýri klukkan 16:30 í dag. 22.7.2021 13:09
Boðað verður til ríkisstjórnarfundar þegar minnisblaðið berst Boðað verður til sérstaks ríkisstjórnarfundar þar sem ríkisstjórn landsins mun ræða minnisblað sóttvarnalæknis með tillögum að sóttvarnaaðgerðum innanlands. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hyggst skila minnisblaði með tillögum sínum til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag og verður boðað til ríkisstjórnarfundar þegar minnisblaðið berst. 22.7.2021 13:07
Vonar að gripið verði til aðgerða „eins fljótt og hægt er“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist vona að gripið verði til aðgerða innanlands eins fljótt og hægt er. Þórólfur ætlar að skila minnisblaði með tillögum að takmörkunum innanlands til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag. 22.7.2021 12:37
Aðstandendur þrjátíu ára og yngri beðnir um að koma ekki í heimsókn Grímuskylda er hjá starfsfólki og gestum Hrafnistu vegna fjölgunar tilfella innanlands. Þá eru aðstandendur þrjátíu ára og yngri beðnir um að koma ekki í heimsóknir á meðan að smit eru svo tíð hjá þeim aldurshópi. 22.7.2021 12:06
Fólki með Janssen verður boðinn annar skammtur af bóluefni Til stendur að bjóða öllum sem hafa verið bólusett með efni Janssen aukaskammt af öðru bóluefni til að efla vernd þeirra gegn kórónuveirunni. Hið sama á við um fólk sem er með bælt ónæmiskerfi eða hefur sýnt veikt ónæmisvar í kjölfar bólusetningar. 22.7.2021 11:31
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður aðaláhersla að sjálfsögðu lögð á kórónuveirufaraldurinn sem nú er í mikilli uppsveiflu hér á landi. Sjötíu og átta greindust með veiruna í gær og 59 þeirra voru utan sóttkvíar. 22.7.2021 11:21
Leggur til takmarkanir innanlands Þórólfur Guðnason sóttvarnalækir mun senda Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblað með tillögum að auknum takmörkunum hér innanlands í dag. Þetta sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna. 22.7.2021 11:14
Mikil aukning í innbrotum og eignaspjöllum milli mánaða Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað. 22.7.2021 11:04
78 greindust innanlands í gær Í gær greindust 78 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 52 fullbólusettir og fimm hálfbólusettir. 59 voru utan sóttkvíar við greiningu. 22.7.2021 10:41
Svona var 184. upplýsingafundurinn Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar klukkan ellefu í dag, fimmtudaginn 22. júlí. Þar verða þeir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn. 22.7.2021 10:20
Starfsfólk sem sótti LungA beðið um að fara í skimun Farsóttanefnd Landspítalans mælist til þess að starfsfólk spítalans, sem sótti hátíðina LungA á Seyðisfirði, fari í skimun fyrir kórónuveirunni eins fljótt og auðið er. 22.7.2021 09:58