Fleiri
Ískirkja fyrir utan Hraunhafnartanga „Þvílíkt útsýni í dag: Ískirkjan“ 6.10.2021 13:37 Vona að skýr skilaboð smitrakningarteymisins skili eðlilegu skólastarfi eftir helgi Skólastjórnendur á Akureyri vonast til þess að skólastarf geti farið að vera með eðlilegum hætti undir lok vikunnar eða í byrjun næstu viku eftir Covid-19 hópsýkingu sem blossað hefur upp í bænum. Skýr skilaboð frá smitrakningarteyminu skýri þann mikla fjölda sem er í sóttkví á svæðinu. 6.10.2021 13:30 Íslendingurinn fannst látinn í Svíþjóð Íslendingurinn sem leitað hefur verið í Svíþjóð síðan 25. september fannst látinn í sjónum í Köpingsvik á Öland nú rétt fyrir hádegi. 6.10.2021 13:24 Kynna tillögur að nýju 970 íbúða hverfi Nýtt hverfi á Akureyri þar sem ráðgert er að 970 íbúðir verði byggðar er í bígerð. Markmiðið er að hverfið verði bæði grænt og vistvænt. 6.10.2021 13:14 „Er misskilningur lygi?“ Formaður nýsköpunarráðs Reykjavíkurborgar vísar ásökunum Samtaka iðnaðarins um lygar á bug og segir ummæli sín hafa verið byggð á misskilningi. Þá sé gagnrýni minnihluta borgarstjórnar á verkefnið Stafræn umbreyting lituð rangfærslum - borgin standi með heilbrigðum markaði. 6.10.2021 12:40 Gera ekki ráð fyrir frekari rýmingum Hættustig almannavarna er enn í gildi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum. Lítil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu tvo sólarhringa þannig að dregið hefur úr hækkun á vatnshæð í borholum. 6.10.2021 12:20 Barnið alvarlega slasað en ekki í lífshættu Barnið sem ekið var á í suðurbæ Hafnarfjarðar í gær er mikið slasað en ekki talið vera í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 6.10.2021 12:00 Reikna með töluverðum áhrifum á ferðaþjónustuna Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar því að Ísland sé ekki lengur á rauðum lista Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna og reiknar með því að breytingarnar muni hafa töluverð áhrif í för með sér. Um sé að ræða stærsta og einn mikilvægasta hóp ferðamanna hér á landi. 6.10.2021 12:00 Þensla á húsnæðismarkaði knýr verðbólguna áfram Þensla á íbúðamarkaði knýr verðbólguna áfram og er ástæða þess að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína um 0,25 prósentustig í dag. Seðlabankastjóri segir bankann halda áfram að lækka vexti ef á þurfi að halda til að koma verðbólgu niður í tveggja komma fimm prósenta markmið hans. 6.10.2021 11:50 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í morgun. 6.10.2021 11:35 „Við skjótum allar þessar fokking löggur“ Embætti héraðssaksóknara hefur ákært mann fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt að lögreglumanni og ítrekað hótað lögreglumönnum lífláti og ofbeldi í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. 6.10.2021 11:13 44 greindust með Covid-19 innanlands í gær 44 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 363 eru í einangrun og 2.074 í sóttkví. 6.10.2021 10:52 Sjá næstu 50 fréttir
Erfitt að finna hugmyndum um aukin útgjöld stað á fjárlögum Fjármálaráðherra segir stjórnarflokkana alveg eftir að ræða hvernig hugmyndum um aukin útgjöld samkvæmt kosningastefnuskrám flokkanna verði komið fyrir á sama tíma og vinna þurfi niður mikinn halla sem orðið hafi til á fjárlögum í kórónuveirufaraldrinum. Ný ríkisstjórn geti ekki aukið útgjöldin mikið strax á næsta ári. 7.10.2021 13:54
Þurfa aftur í sjö daga sóttkví eftir einn dag í skólanum Átta nemendur í fjórða bekk Brekkuskóla á Akureyri þurfa aftur í sjö daga sóttkví eftir að hafa náð einum degi í skólanum í gær, að lokinni sjö daga sóttkví. 7.10.2021 13:39
Kvika gæti verið að finna sér nýja leið til yfirborðs Dregið hefur úr stærð skjálftanna við Keili undanfarna daga en virknin er þó enn mikil. Um 8800 skjálftar hafa mælst á svæðinu frá því að hrinan hófst þann 27. september síðastliðinn. Ekki er hægt að útiloka að kvika sé á hreyfingu á miklu dýpi. 7.10.2021 12:25
Aðstæður erfiðar á vettvangi rútuslyssins og búið að loka veginum Átta farþegar smárútu sem fór út af vegi og valt við Dyrhólaey á Suðurlandi eru komnir í skjól á Volcano Hotel skammt frá vettvangi. Þrír eru taldir slasaðir en ekkert er um alvarleg meiðsli. Búið er að loka fyrir umferð um Suðurlandsveg milli Seljalandsfoss og Víkur vegna slæms veðurs. 7.10.2021 12:09
Launakostnaður sveitarfélaga gæti valdið stórslysi Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í setningarræðu sinni á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun að aukin launakostnaður gæti valdið stórslysi fyrir fjármál sveitarfélaganna. 7.10.2021 12:05
Varðskipið Þór losar Strandamenn við grindhvalahræin Varðskipið Þór mun sigla að Árneshreppi á Ströndum á þriðjudaginn og losa heimamenn við rúmlega fimmtíu grindhvalahræ sem liggja í fjörunum við Melavík. RÚV greindi fyrst frá. 7.10.2021 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um slys sem varð á Suðurlandi nú fyrir hádegi en betur fór en á horfðist þegar smárúta valt á Suðurlandsvegi í Mýrdal í morgun. 7.10.2021 11:38
Fá hærri bætur vegna þaks sem fauk af í miklu óveðri Tryggingafélagið TM þarf að greiða dánarbúi hjóna hærri bætur en það hafði þegar greitt út vegna þaks sem fauk af hluta íbúðarhúss í miklu óveðri sem gekk yfir landið í desember árið 2015. 7.10.2021 11:02
55 greindust með Covid-19 innanlands 55 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 386 eru í einangrun og 1.987 í sóttkví. 7.10.2021 11:00
Minnst þrír slasaðir eftir að rúta fór út af vegi í Mýrdal Smárúta valt út af Suðurlandsvegi í Mýrdal og eru viðbragðsaðilar á Suðurlandi komnir á vettvang. Þrír farþegar eru eitthvað slasaðir en enginn að því er virðist alvarlega. Aðstæður á vettvangi eru erfiðar vegna hvassviðris. 7.10.2021 10:54
Enn hreyfing á flekanum við Búðará Enn mælist hreyfing á flekanum sem liggur hægra megin við Búðará Við Seyðisfjörð, sunnan megin í skriðusárinu frá desember 2020. Rýmingar eru enn í gildi fram yfir helgi. 7.10.2021 10:25
Höggva sér leið í gegnum einn merkasta skóg landsins Landslið skógarhöggsmanna er nú að störfum í Vaðlaskógi gegnt Akureyri, einum merkasta skógi landsins. Þar er skógurinn grisjaður til að rýma fyrir göngustíg og vatnslögnum. Framkvæmdastjóri skógræktarfélagsins segist sjá eftir trjánum sem fara, en margt gott komi í staðinn. 7.10.2021 09:00
Ákærður fyrir að ryðjast inn á heimili konu og nauðga Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgað henni. 7.10.2021 07:47
Virðist sem ró hafi færst yfir skjálftasvæðið Svo virðist sem ró hafi færst yfir skjálftasvæðið í grennd við Keili síðustu sólarhringana. 7.10.2021 07:34
Með ólíkindum að Icelandair ætli í stríð við verkalýðshreyfinguna „Mér finnst alveg með ólíkindum að fyrirtæki sem er í þeirri stöðu sem [Icelandair] er ætli sér að fara í stríð við verkalýðshreyfinguna,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um ákvörðun fyrirtækisins um að standa við uppsögn Ólafar Helgu Adolfsdóttur. 7.10.2021 07:31
Segja Ísland munu verða útundan með strangar aðgerðir á landamærunum „Ef löndin í kringum okkur verða með mun léttari aðgerðir getum við ekki ætlast til þess að ná sama árangri. Við höfum alveg séð það skýrt að harðar aðgerðir á landamærum hafa áhrif á ferðavilja og á orðspor Íslands sem áfangastaðar.“ 7.10.2021 06:47
Veittist að leigubílstjóra með úðavopni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til um klukkan 2.30 í nótt vegna einstaklings sem veittist að bílstjóra leigubifreiðar með úðavopni. Gerandinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. 7.10.2021 06:25
Aurskriðurnar í Útkinn: „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar“ „Það er 3-0 fyrir náttúruna alls staðar hérna,“ segir Bragi Kárason, bóndi á Nípá í Útkinn í Þingeyjarsveit, sem staddur var uppi í fjalli til að kanna aðstæður á rafstöð bæjarins þegar fréttastofa náði tali af honum. 6.10.2021 22:29
Sjómanni dæmdar 42 milljónir í bætur vegna vinnuslyss á landi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi tryggingafélagið VÍS til að greiða sjómanni rúmar 42 milljónir króna í bætur í síðustu viku. 6.10.2021 21:06
Áfengi og hlaupahjól fari ekki saman: „Og enn síður að vera fimmtugur að prufa þetta í fyrsta skipti fullur“ Áfengi á allt of stóran þátt í slysum á rafhlaupahjólum að sögn yfirlæknis á bráðamóttöku Landspítala, en slíkum slysum fjölgar á milli ára. Hann telur að taka ætti upp næturstrætó að nýju svo fólk komist heim af djamminu með öruggum hætti. 6.10.2021 20:31
Blómasalar ákærðir fyrir tollsvik Tveir stjórnendur innflutningsfyrirtækis eru ákærðir fyrir að hafa blekkt tollayfirvöld í því skyni að greiða minni toll af innfluttum blómum frá Hollandi. 6.10.2021 20:26
Miklu meira talað um faraldurinn hér en í Danmörku Lítið fer fyrir umræðu um kórónuveiruna í Danmörku eftir að samkomutakmörkunum hefur verið aflétt þar í landi, að sögn Íslendings í Kaupmannahöfn, sem segir fólki létt. Gera má ráð fyrir að íslensk stjórnvöld muni horfa líta til Norðurlandanna þegar ákvarðanir um næstu skref í sóttvarnaaðgerðir hér á landi verða teknar. 6.10.2021 20:00
Undirbúningskjörbréfanefnd þarf góðan tíma til að meta kosningaúrslitin Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis telur nefndina þurfa nokkrar vikur til að ljúka vinnu sinni vegna kæra sem borist hafa í tengslum við meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. 6.10.2021 19:31
„Held það geri sér enginn grein fyrir því hversu mikill hávaðinn er“ Íbúar í Kollafirði segja það sæta furðu hve hart borgaryfirvöld gangi fram við að halda starfsemi skotsvæðisins í Álfsnesi gangandi. Hljóðmengunin þar sé grafalvarleg og engum bjóðandi. Íbúar ætla að koma saman vegna málsins í dag. 6.10.2021 19:31
Engin skýr merki um kviku við Keili Nýjustu gervihnattagögn sýna engin skýr merki um að kvika brjóti sér leið til yfirborðs í kringum Keili á Reykjanesi. Ekki er þó talið útilokað að kvika sé á hreyfingu á það miklu dýpi að gervihnettir greini hana ekki. 6.10.2021 18:42
Olli slysi þegar hann ók á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut Karlmaður á sjötugsaldri er í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að hann olli árekstri þar sem hann ók á öfugum vegarhelmingi á Reykjanesbraut nú síðdegis. Ökumaður bílsins sem hann ók á slasaðist lítillega, að sögn lögreglu. 6.10.2021 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Seðlabankinn hefur gripið til aðgerða til að sporna gegn þenslu og verðbólgu, en á þeirri frétt eru margar hliðar sem Heimir Már Pétursson mun skoða í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 6.10.2021 18:05
Ákærður fyrir að svipta konu frelsi í þrjá tíma og nauðga Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir að hafa í íbúð sinni haldið konu fanginni í þrjá tíma og á þeim tíma nauðgað og beitt hana ofbeldi. 6.10.2021 17:59
Bætist í hóp kærenda Alþingiskosninganna Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, kærði í dag endurtalningu í Norðvesturkjördæmi. Hún hefði náð sæti sem jöfnunarþingmaður hefði niðurstaða upphaflegrar talningar staðið. 6.10.2021 17:42
Aðeins fjórir þurft að leggjast inn eftir milljón ferðir Fjórir hafa þurft að leggjast inn á Landspítala eftir slys á rafhlaupahjóli en almennt eru slys á slíkum fararskjótum ekki alvarleg. Yfirlæknir bráðamóttöku bendir á að fá slys verði á rafhlaupahjólum miðað við hversu margar ferðir eru farnar á þeim. 6.10.2021 15:24
Þau eru tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna í tilefni af Alþjóðlega kennaradeginum í gær. 6.10.2021 14:53
Frændi Íslendings sem fannst látinn í Svíþjóð: Mikill léttir en líka sorg „Þetta er mikill léttir eftir að hafa verið í óvissu núna í rúma viku, en á sama tíma mikil sorg.“ Þetta segir Víðir Víðisson í samtali við Vísi, en frændi hans, Rósinkrans Már Konráðsson, fannst látinn í sjónum við Öland í Svíþjóð í morgun eftir að hafa verið leitað síðan 25. september. 6.10.2021 14:02
Segja að ekki eigi að nota rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis 245 einstaklingar leituðu á bráðamóttöku Landspítala vegna rafhlaupahjólaslysa í júní, júlí og ágúst. Sama tímabil í fyrra var fjöldinn 149. Meðalfjöldi þeirra sem þurfti að leita á bráðamóttöku vegna rafhlaupahjóla fór úr 1,6 sumarið 2020 í 2,7 nú í sumar. 6.10.2021 13:37
Vona að skýr skilaboð smitrakningarteymisins skili eðlilegu skólastarfi eftir helgi Skólastjórnendur á Akureyri vonast til þess að skólastarf geti farið að vera með eðlilegum hætti undir lok vikunnar eða í byrjun næstu viku eftir Covid-19 hópsýkingu sem blossað hefur upp í bænum. Skýr skilaboð frá smitrakningarteyminu skýri þann mikla fjölda sem er í sóttkví á svæðinu. 6.10.2021 13:30
Íslendingurinn fannst látinn í Svíþjóð Íslendingurinn sem leitað hefur verið í Svíþjóð síðan 25. september fannst látinn í sjónum í Köpingsvik á Öland nú rétt fyrir hádegi. 6.10.2021 13:24
Kynna tillögur að nýju 970 íbúða hverfi Nýtt hverfi á Akureyri þar sem ráðgert er að 970 íbúðir verði byggðar er í bígerð. Markmiðið er að hverfið verði bæði grænt og vistvænt. 6.10.2021 13:14
„Er misskilningur lygi?“ Formaður nýsköpunarráðs Reykjavíkurborgar vísar ásökunum Samtaka iðnaðarins um lygar á bug og segir ummæli sín hafa verið byggð á misskilningi. Þá sé gagnrýni minnihluta borgarstjórnar á verkefnið Stafræn umbreyting lituð rangfærslum - borgin standi með heilbrigðum markaði. 6.10.2021 12:40
Gera ekki ráð fyrir frekari rýmingum Hættustig almannavarna er enn í gildi á Seyðisfirði vegna hættu á skriðuföllum. Lítil úrkoma hefur verið á svæðinu síðustu tvo sólarhringa þannig að dregið hefur úr hækkun á vatnshæð í borholum. 6.10.2021 12:20
Barnið alvarlega slasað en ekki í lífshættu Barnið sem ekið var á í suðurbæ Hafnarfjarðar í gær er mikið slasað en ekki talið vera í lífshættu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 6.10.2021 12:00
Reikna með töluverðum áhrifum á ferðaþjónustuna Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar því að Ísland sé ekki lengur á rauðum lista Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna og reiknar með því að breytingarnar muni hafa töluverð áhrif í för með sér. Um sé að ræða stærsta og einn mikilvægasta hóp ferðamanna hér á landi. 6.10.2021 12:00
Þensla á húsnæðismarkaði knýr verðbólguna áfram Þensla á íbúðamarkaði knýr verðbólguna áfram og er ástæða þess að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína um 0,25 prósentustig í dag. Seðlabankastjóri segir bankann halda áfram að lækka vexti ef á þurfi að halda til að koma verðbólgu niður í tveggja komma fimm prósenta markmið hans. 6.10.2021 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í morgun. 6.10.2021 11:35
„Við skjótum allar þessar fokking löggur“ Embætti héraðssaksóknara hefur ákært mann fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hrækt að lögreglumanni og ítrekað hótað lögreglumönnum lífláti og ofbeldi í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. 6.10.2021 11:13
44 greindust með Covid-19 innanlands í gær 44 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 363 eru í einangrun og 2.074 í sóttkví. 6.10.2021 10:52