Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vistaskipti Birgis óvenjuleg en trufla Katrínu ekki Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir óvenjulegt að þingmaður yfirgefi flokk sinn jafn skömmu eftir kosningar og raun ber vitni hjá Birgi Þórarinssyni, fyrrverandi Miðflokksmanni og nú þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Formennirnir leita fyrirmynda á Norðurlöndunum varðandi röðun málaflokka í sín ráðuneyti. 11.10.2021 11:51
Áskoranir í viðræðum sem taki tíma Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir áskoranir í stjórnarmyndunarviðræðum hans, Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna og Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Viðræðurnar muni taka minnst einhverja daga til viðbótar. 11.10.2021 11:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um fund í undirbúningskjörbréfanefnd sem fram fór í morgun. 11.10.2021 11:30
Telur mögulegt að mæðgurnar hafi sett leikþátt á svið Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, neitar sök í máli héraðssaksóknara gegn sér þar sem hann er sakaður um að hafa strokið rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili hans á Spáni í júní 2018. Hann telur að Carmen og Laufey Ósk, móðir hennar, hafi mögulega komið í heimsókn til sín gagngert til að setja atvikið á svið og saka hann um kynferðisofbeldi. 11.10.2021 11:20
27 greindust innanlands í gær 27 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 67 prósent. Níu voru utan sóttkvíar, eða 33 prósent. 11.10.2021 10:51
Áfram í gæsluvarðhaldi og rannsókn langt komin Rannsókn á meintum brotum karlmanns sem lögreglumenn skutu á Egilsstöðum í ágúst er langt á veg komin. Maðurinn var úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald í síðustu viku. 11.10.2021 10:09
Bein útsending: Fyrsti opni fundur undirbúningskjörbréfanefndar Fyrsti opni fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa verður haldinn í dag og hefst hann klukkan 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og verður gestur fundarins Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. 11.10.2021 10:01
Kallað út vegna reyks í íbúð: Heimiliskötturinn liggur undir grun Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna mikils reyks í íbúð í austurborg Reykjavíkur í nótt. Kviknað hafði í einhverju sem hafði verið lagt á eldavél sem heimiliskötturinn er grunaður um að hafa kveikt á. 11.10.2021 08:47
Bryndís og Jón Baldvin flugu til Íslands frá Spáni til að gefa skýrslu Aðalmeðferð í máli héraðssaksóknara gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni, fyrrverandi ráðherra og þingmanni, fyrir kynferðisbrot á heimili hans á Spáni hefst klukkan 9:15 í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón Baldvin var ákærður árið 2019 en síðan hefur málinu endurtekið verið vísað frá í héraði og sent aftur heim í hérað úr Landsrétti. 11.10.2021 08:40
Minnisvarði um Guðmund Kamban fjarlægður eftir heitar deilur Minningarskjöldur um íslenska rithöfundinn, leikskáldið og leikstjórann Guðmund Kamban hefur verið fjarlægður af húsi við Uppsalagötu 20 í Kaupmannahöfn eftir deilur um tilvist skjaldarins. 11.10.2021 07:55
Undirbúningskjörnefnd kemur saman á opnum fundi í dag Undirbúningskjörnefnd kemur saman á fundi í dag til að fara yfir kærur sem borist hafa vegna framkvæmdar þingkosninganna í Norðvesturkjördæmi. 11.10.2021 06:38
Handtekinn fyrir að áreita börn og brot á vopnalögum Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann sem grunaður er um að áreita börn og brot á vopnalögum. Maðurinn bar því við að börnin hafi verið að gera dyraat við heimili hans. 11.10.2021 06:08
Skjálfti af stærðinni 3,2 við Keili Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð um tvo kílómetra suðsuðvestur af Keili nú á tíunda tímanum. Um er að ræða átjánda skjálftann sem er yfir 3 að stærð í yfirstandandi hrinu. 10.10.2021 21:46
Festust á inniskónum á Vaðlaheiði: „Neyðarlínan sagði að við þyrftum að redda okkur sjálf“ Fjórir krakkar sem voru á leið frá Akureyri að Menntaskólanum á Laugum á föstudag lentu í miklum hrakförum þegar þau festu jeppann sinn úti í vegkanti á Vaðlaheiði. Þau hringdu strax í neyðarlínuna, enda illa búin og óreynd, en fengu þau skilaboð að þau þyrftu að leysa úr flækjunni sjálf. Björgunarsveitir myndu ekki koma þeim til aðstoðar. 10.10.2021 21:13
Aðdragandi flokkaskiptanna „afskræming á lýðræðinu“ Páll Magnússon, nýhættur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðdraganda að inngöngu Birgis Þórarinssonar, fyrrverandi þingmanns Miðflokksins, vera „afskræmingu á lýðræðinu.“ 10.10.2021 20:24
Úndína rannsakar magasár í íslenskum hestum Íslenskur dýralæknanemi er í fyrsta skipti að gera skipulagða rannsókn á tíðni magasára í íslenskum hrossum, en margt hefur verið á huldu um sjúkdóminn. Kannað er sérstaklega hvaða áhrif ýmsir umhverfisþættir hafa á kvillan. 10.10.2021 20:06
Ummæli Birgis Ármannssonar óheppileg Fráfarandi þingmaður segir að hringekja hafi breyst í rússíbana þegar endurtalning breytti jöfnunarsætum með þeim afleiðingum að hún datt út af þingi. Hún gagnrýnir formann kjörbréfanefndar fyrir að lýsa yfir sinni persónulegri skoðun áður en nefndin hefur komist að niðurstöðu um Norðvesturkjördæmi. 10.10.2021 19:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rósa Björk Brynjólfsdóttir, fráfarandi þingmaður, óttast að stjórnarþingmenn láti pólitíska hagsmuni ráða endanlegri niðurstöðu í Norðvesturkjördæmi. Rætt verður við Rósu Björk í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30. 10.10.2021 18:01
„Snillingar í Sjálfstæðisflokknum“ hafi staðið að misheppnuðu ráðabruggi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hrósar sigri að hafa getað myndað tveggja manna þingflokk með Bergþóri Ólasyni þrátt fyrir að tilraun hafi verið gerð til að koma í veg fyrir það, eins og hann heldur fram. 10.10.2021 17:43
Handtekinn þegar hann sneri aftur á vettvang glæpsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í dag tilkynningu um þjófnað og eignaspjöll á hóteli í Reykjavík. Fram kemur í dagbók lögreglu að legið hafi fyrir hver var þar að verki, en viðkomandi hafi verið farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. 10.10.2021 17:38
Bíður enn eftir rétta kaupandanum Enn hefur ekki tekist að selja Gamla bakaríið á Ísafirði, sem sett var á sölu fyrir rúmu ári. Bakaranum hefur þrátt fyrir það ekki tekist að slíta sig frá starfi sínu. 10.10.2021 16:25
Tólf ára stúlkan fundin Tólf ára gömul stúlka sem Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir á Facebook fyrir stuttu er fundin og komin heim til sín. 10.10.2021 16:14
Leiðtogar ítalsks öfgaflokks handteknir á Covid-mótmælum Tólf voru handteknir af ítölsku lögreglunni, þar á meðal leiðtogar hægri öfgaflokksins Forza Nuova, eftir að til átaka kom á mótmælum í Róm vegna hins svokallað græna Covid-passa. 10.10.2021 16:03
Náðu að knýja fram upphitaðan körfuboltavöll Upphitaður körfuboltavöllur, frisbígolf og slökunarherbergi er á meðal þess sem krakkar í lýðræðisþingi í Stykkishólmi hafa beitt sér fyrir, kosið um og komið í gegn á undanförnum misserum. Krakkarnir segja mikilvægt að þeirra rödd fái líka að heyrast í samfélaginu en eru ekkert endilega vissir um að þá langi á þing. 10.10.2021 14:31
Bjórostur kynntur í Hveragerði á bjórhátíð Unnendur íslensk bjórs geta farið að láta sér hlakka til því nú er í undirbúningi risa bjórhátíð í Hveragerði í gróðurhúsi þar sem nýr bjórostur verður meðal annars kynntur. Í dag eru tuttugu og fimm brugghús á Íslandi, sem veita um 300 manns atvinnu. 10.10.2021 13:15
Líkir Birgi við Júdas Þorsteinn Sæmundsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, er harðorður í garð Birgis Þórarinssonar fyrrverandi samflokksmanns hans, sem tilkynnti óvænt í gær að hann væri genginn til liðs við Sjálfstæðisflokkinn aðeins tveimur vikum eftir kosningar, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. 10.10.2021 13:07
Ástandið sagt stigmagnast í miðbænum Því lengur sem opið er inn í nóttina því verra verður ástandið, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn. Fimm líkamsárásarmál eru til rannsóknar hjá lögreglunni eftir afar erilsama nótt. 10.10.2021 13:00
Tekur fyrir að Miðflokkurinn sé í krísu og biður kjósendur flokksins afsökunar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins hefur beðið kjósendur Miðflokksins í Suðurkjördæmi afsökunar vegna brotthvarfs Birgis Þórarinssonar, nú þingmanns Sjálfstæðisflokksins, úr flokknum. Hann tekur fyrir það að krísuástand ríki innan Miðflokksins. 10.10.2021 11:55
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, biður kjósendur afsökunar á brotthvarfi Birgis Þórarinssonar úr flokknum. Hann tekur fyrir það að krísuástand ríki innan Miðflokksins. Rætt verður við Sigmund Davíð í hádegisfréttum Bylgjunnar. 10.10.2021 11:31
Enn er 691 skráður í trúfélag Zúista Enn er 691 einstaklingur skráður í trúfélag Zúista, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands um skráningu í trúfélög og lífsskoðunarfélög. 10.10.2021 11:28
Sprengisandur: Sigmundur Davíð, skipulagsmál í Reykavík og talingaklúður í Norðvesturkjördæmi Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. 10.10.2021 09:58
Líst ekkert sérlega vel á að kjósa aftur Fólk er almennt ekki sérlega spennt fyrir uppkosningu þrátt fyrir annmarka á talningu í Norðvesturkjördæmi. Framkvæmdin þar hefur laskað traust almennings á kosningum ef marka má viðmælendur fréttastofu. 10.10.2021 08:45
Sjálfstæðisflokkurinn ekki að ganga í Birgi Þórarinsson Skiptar skoðanir eru á ákvörðun Birgis Þórarinssonar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn svo skömmu eftir kosningar. Bjarni Benediktsson formaður flokksins hefur boðið Birgi velkominn í þingflokkinn, sem er orðinn sá langstærsti á þingi með sautján þingmenn. 10.10.2021 08:32
Stöðvuðu hópslagsmál á veitingastað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að skerast í leikinn á veitingastað í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöldi eftir að tilkynning barst um hópslagsmál. Þar tókust á um átta til tíu manns, en engan sakaði og lögregla leysti málið á vettvangi. 10.10.2021 08:10
Formaður Heimdallar gagnrýnir vistaskipti Birgis Veronika Steinunn Magnúsdóttir, formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að vistaskipti Birgis Þórarinssonar þingmanns úr Miðflokki yfir í Sjálfstæðisflokkinn geri verulega lítið úr prófkjörsbaráttu síðarnefnda flokksins, sem og vilja kjósenda hans. 9.10.2021 21:38
Harpa og Sinfóníuhljómsveit Íslands greiði sviðsmanni bætur vegna vinnuslyss Landsréttur dæmdi Hörpu og Sinfóníuhljósmveit Íslands til að greiða sviðsmanni skaðabætur upp á tæpa sextán og hálfa milljón vegna vinnuslyss nýverið. 9.10.2021 21:02
Krafðist bóta eftir að hafa ekið á götusóp undir áhrifum áfengis og vímuefna Tryggingarfélagið Sjóvá lagði ökumann í dómsmáli þar sem einstaklingur krafðist skaðabóta fyrir líkamstjón sem hann varð fyrir eftir að hafa ekið aftan á götusóp í Reykjavík. 9.10.2021 20:00
Rýmingum ekki aflétt fyrr en búið er að verja svæðið Ekki er útilokað að rýmingar á Seyðisfirði muni standa þar til búið er að tryggja byggðina með fullnægjandi hætti. Þá verði íbúum á svæðum sem ekki er hægt að tryggja ekki heimilað að snúa aftur heim. 9.10.2021 19:15
Segir Klaustursskýringar Birgis ekki halda vatni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir vistaskipti þingmannsins Birgis Þórarinssonar yfir til Sjálfstæðisflokksins vera vonbrigði. Fyrst og fremst telji hann ákvörðun Birgis ranga gagnvart því fólki sem unnið hafi að því að koma Birgi á þing í sínu kjördæmi. Hann telur skýringar Birgis um að vistaskiptin tengist Klaustursmálinu ekki halda vatni. 9.10.2021 18:58
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn sá langstærsti á þingi, með sautján þingmenn, eftir að Birgir Þórarinsson gekk til liðs við hann. Ákvörðunin er umdeild en í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við varaþingmann Sjálfstæðisflokksins sem segir Birgi þurfa að aðlaga sig að málum Sjálfstæðisflokksins. Þá segir þingflokksformaður að ákvörðun Birgis hafi verið hnífstunga í bak kjósenda. 9.10.2021 18:17
Stjórn Miðflokksins: Áfall fyrir hóp „sem borið hefur Birgi á örmum sér“ Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins er „fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi“. 9.10.2021 16:59
Bjarni Ben býður Birgi velkominn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, býður Birgi Þórarinsson velkominn í flokkinn, á Facebooksíðu sinni nú rétt í þessu. 9.10.2021 15:28
Sakar Birgi Þórarinsson um sjálfhverfu Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Sveitarfélaginu Árborg, gagnrýnir Birgi Þórarinsson harðlega fyrir ákvörðun sína um að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. 9.10.2021 13:35
Öflugasti skjálfti við Öskju frá aldamótum Skjálftinn sem reið yfir í Öskju í morgun er sá öflugasti sem mælst hefur á svæðinu frá aldamótum. Talið er að skjálftinn tengist kvikuinnskoti því land heldur þar áfram að rísa. 9.10.2021 13:19
„Það skiptir máli hvaða manneskjur setjast á þing“ Formaður Stjórnarskrárfélagsins hefur lagt fram kæru vegna Alþingiskosninganna og kallar eftir að þjóðin öll gangi að kjörstöðum að nýju. Vistaskipti Birgis Þórarinssonar, þingmanns í Suðurkjördæmi, sýni svart á hvítu hve miklu máli skipti hvaða fólk hafi komist inn á þing. 9.10.2021 13:01