Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maður vistaður í fangageymslu fyrir að hafa dvalið of lengi á Íslandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær mann í miðborginni en samkvæmt tilkynningu lögreglu er hann grunaður um að hafa dvalið of lengi á Íslandi, nánar tiltekið innan Schengen-svæðisins. Var hann vistaður í fangageymslu og er málið í rannsókn en nánari upplýsingar er ekki að finna í tilkynningu. 17.11.2021 06:30
Lygileg nákvæmni í byltingarkenndum ókeypis búnaði Máltækni hefur fleygt áfram á síðustu árum og landsmenn hafa nú ókeypis aðgang að forriti sem breytir töluðu máli í ritað á svipstundu. Þetta auðveldar líf margra til muna og er næstum því fullkomið, en alls ekki alveg. 16.11.2021 23:16
Rafmagnslaust á höfuðborgarsvæðinu Rafmagnslaust er í minnst tveimur hverfum Reykjavíkurborgar. Fréttastofu hafa borist ábendingar um rafmagnsleysi í hverfum 105 og 108. 16.11.2021 22:55
Risadagur fyrir Strætó sem hoppar inn í framtíðina Strætó bs. innleiddi nýtt greiðslukerfi fyrir alla vagna á höfuðborgarsvæðinu í dag, þar sem snjallkort og snjallsímar eru meginstoðirnar. 16.11.2021 22:41
Helgi segist iðrast og biðst afsökunar Lögfræðingurinn Helgi Jóhannesson segir að sér sé ljóst að framkoma hans, orðfæri og hegðun hafi sært, móðgað og látið samferðafólki hans líða illa í návist hans. Hann biðst afsökunar á hegðun sinni og segist reiðubúinn til þess að hitta hvern þann sem hann hafi misgert við, til þess að ræða málin og ítreka afsökunarbeiðni augliti til auglitis. 16.11.2021 22:23
Nýr vegarkafli að opnast á leiðinni ofan Flókalundar Stefnt er að því að nýr kafli Vestfjarðavegar á leiðinni upp á Dynjandisheiði ofan Flókalundar verði opnaður umferð í næstu viku. Þar með leggst af einn varasamasti hluti vesturleiðarinnar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur; einbreiða brúin yfir Þverdalsá og beygjurnar við brúna. 16.11.2021 22:22
Tillögu um neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur vísað til velferðarráðs Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag að vísa tillögu Sjálfstæðisflokksins um neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur til velferðarráðs. Tillagan felur í sér að koma á fót nýju neyðarathvarfi fyrir heimilislausar konur í formi herbergjagistingar og yrði starfrækt með skaðaminnkandi nálgun. 16.11.2021 22:07
Enn glímir Jóhann við tónlistarrisana í dómsal Munnlegur málflutningur í máli Jóhanns Helgasonar gegn tónlistarrisunum Warner og Universal hófst í Los Angeles í dag. Jóhann er vongóður um að í þetta skiptið hafi hann betur. 16.11.2021 21:36
Aron, Freyja og Andrea vinsælustu nöfnin í fyrra Aron var vinsælasta nafn barna sem fæddust á síðasta ári, 2020. 48 drengir voru nefndir Aron. Meðal stúlkna Freyja og Andrea vinsælustu nöfnin en 28 stúlkur voru nefndar Freyja og 28 Andrea. 16.11.2021 21:12
Telur ekkert hafa komið fram sem sýni að önnur talning í NV-kjördæmi eigi ekki að gilda Inga Sæland telur að ekkert hafi komið fram í rannsókn undirbúningskjörbréfanefndar á talningu atkvæða í Alþingskosningunum í Norðvesturkjördæmi sem sýni að endurtalningin sem þar var framkvæmd eigi ekki að gilda. 16.11.2021 20:02
Kapellan þyrfti að víkja fyrir Covid-sjúklingum Ekkert bólar enn á nýrri deild innan Landspítala sem átti að koma í stað fyrir Covid-göngudeildina. Um þrír mánuðir eru síðan spítalinn sendi heilbrigðisráðuneytinu drög að útfærslu rýmisins þar sem er meðal annars lagt til að kapella spítalans verði nýtt undir Covid-sjúklinga. 16.11.2021 20:01
Sigurður Ingi vill skoða aðgangsstýringu með bólusetningarvottorðum Samgönguráðherra vill skoða hvort taka ætti upp aðgangsstýringu að opinberum stöðum með bólusetningarvottorðum líkt og gert hefur verið í ýmsum öðrum löndum. Sóttvarnalæknir telur það koma til greina eftir að búið verður að gefa meirihluta þjóðarinnar örvunarskammt til varnar covid-19. 16.11.2021 19:20
Faldi marijúana í verkfæraskáp: Gekk í gildru lögreglu sem var skrefi á undan Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af eru fimmtán mánuður skilorðsbundnir, fyrir að hafa reynt að smygla þrettán kílóum af marijúana til landsins í verkfæraskáp. 16.11.2021 19:04
„Þetta er mál sem hefur hvílt þungt á mér í tuttugu ár“ Kona sem sagði sögu látinnar vinkonu sinnar varðandi kynferðislega áreitni af hálfu lögmanns um aldamótin krefst réttlætis. Málið hafi hvílt þungt á henni í tuttugu ár. Fyrrverandi vinnuveitandi lögmannsins segir óvíst hvort rétt hafi verið brugðist við málinu á sínum tíma og ætlar að skoða hvort fleiri sambærileg mál hafi komið upp. 16.11.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem sagði sögu látinnar vinkonu sinnar varðandi kynferðislega áreitni af hálfu lögmanns um aldamótin krefst réttlætis. Málið hafi hvílt þungt á henni í tuttugu ár. Fyrrverandi vinnuveitandi lögmannsins segir óvíst hvort rétt hafi verið brugðist við málinu á sínum tíma og ætlar að skoða hvort fleiri sambærileg mál hafi komið upp. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.11.2021 18:00
Ekki endilega þolandinn sjálfur sem keyri umræðuna „út á enda veraldar“ „Ef við horfum á þetta út frá þolendum ofbeldis þá leiðir þetta til þess, og ég vísa í reynslu mína sem lögmaður, að þegar umræðan verður svona ofboðslega hatrömm í garð gerenda þá myndast meiri hætta á að þolendur veigri sér við að segja frá ofbeldinu, sérstaklega þegar um er að ræða einhvern nákominn, af ótta við skrímslavæðinguna,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. 16.11.2021 17:46
Arnaldur hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut í dag Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunin eru veitt árlega, á degi íslenskrar tungu. Vera Illugadóttur hlaut sérstaka viðurkenningu íslenskrar tungu. 16.11.2021 17:29
Dæmdur íslenskur kynferðisbrotamaður grunaður um nauðgun í Hollandi Íslenskur karlmaður er grunaður um frelsissviptingu og nauðgun gegn íslenskri konu í Hollandi. Brotið er sagt hafa átt sér stað í síðustu viku. 16.11.2021 16:15
Dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brenna Byrgi á Akureyri Kristófer Örn Sigurðarson hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í nóvember 2019 kveikt í húsinu Byrgi í Sandgerðisbót á Akureyri. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðustu viku. 16.11.2021 14:48
Katrín vill „svartan fössara“ Íslendingar lesa töluvert mikið, staðhæfir formaður Rithöfundasambandsins á degi íslenskrar tungu. Forsætisráðherra vill að næsti hátíðisdagur í verslun verði kallaður svartur fössari. 16.11.2021 14:35
Alþingi jafnvel kallað saman fyrir lok vikunnar Forsætisráðherra segir formenn stjórnarflokkanna langt komna með texta að nýjum stjórnarsáttmála en ekki sé farið að ræða verkaskiptingu. Kynnig á sáttmálanum muni bíða þar til endanleg niðurstaða liggi fyrir í Norðvesturkjördæmi. 16.11.2021 13:17
Bein útsending: Helga Vala og Sigurbjörg ræða kynferðisofbeldi í Pallborðinu Hávært ákall hefur verið um gagngerar breytingar í réttarkerfinu í tengslum við kynferðisofbeldi. 16.11.2021 13:11
Kórónupassi gæti komið til skoðunar eftir örvunarskammta Það ætti að liggja fyrir í lok vikunnar hvort grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða til þess að ná tökum á faraldrinum að mati Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Metfjöldi greindist með kórónuveiruna í gær. 16.11.2021 12:56
Símtöl með ásökunum um stolið rafmagn ekki frá Orkuveitunni Óprúttnir aðilar virðast nú stunda það að hringja í fólk í nafni fyrirtækja Orkuveitu Reykjavíkur og saka það um að stela rafmagni. Orkuveitan segir símtölin ekki á vegum hennar eða dótturfyrirtækja. 16.11.2021 12:16
Breytt verklag á göngudeild Covid og símtölum fækkað Metfjöldi greindist með kórónuveiruna í gær og segir yfirlæknir á Landspítalanum það mikil vonbrigði. Fækki smituðum ekki á næstu sólarhringum þurfi að endurskoða aðgerðir. Spítalinn hefur breytt verklagi á göngudeild Covid og fækkað símtölum til fólks í einangrun. 16.11.2021 11:59
Tunglmyrkvi sjáanlegur á föstudag ef veður leyfir Íslendingar geta barið deildarmyrkva á tungli augum á föstudagsmorgun ef veðurguðirnir verða samvinnuþýðir. Eins og sakir standa benda verðurspár til þess að þeir verði með mótþróa. 16.11.2021 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um yfirstandandi bylgju kórónuveirufaraldursins en í gær féll enn eitt metið þegar kemur að fjölda smitaðra. 16.11.2021 11:34
Krafa um bólusetningarvottorð siðferðileg og pólitísk spurning Ísland stendur gríðarlega framarlega þegar horft er til fjölda bólusettra og fjölda látinna í kórónuveirufaraldrinum. Stefna stjórnvalda hefur miðað að því að veita miklar upplýsingar og leyfa fólki sjálfu að velja hvað það gerir, sem hefur eflt samstöðu þjóðarinnar. 16.11.2021 11:24
206 greindust innanlands 206 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hérlendis á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Fyrra met var tvö hundruð smitaðir á miðvikudaginn í síðustu viku, 10. nóvember. 16.11.2021 09:46
Áttatíu fleiri alvarleg rafhlaupahjólaslys í ár en í fyrra Sjö hafa látið lífið í umferðarslysum á þessu ári. Fjórir fórust í janúar og febrúar í þremur banaslysum en síðan liðu rúmir tvö hundruð dagar þar til næsta banaslys varð í byrjun nóvember. Um er að ræða lengsta tíma frá upphafi skráninga á slysum hér á landi sem liðið hefur á milli banaslysa í umferðinni. Síðan þessi mánuður hófst hafa þrír farist í umferðarslysum. 16.11.2021 08:46
Bein útsending: Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar um hjólastíga Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundinum „Hjólað á eigin vegum“ þar sem fjallað verður um hjólastíga. 16.11.2021 08:30
Dregur úr lestri karla og fjölgar í hópi þeirra sem lesa ekkert Ný lestrarkönnun leiðir í ljós að Íslendingar lesi að meðaltali 2,3 bækur á mánuði og hafa tveir þriðju hlutar þjóðarinnar gefið einhverjum bók á árinu. Tölurnar sýna að landsmenn hafa mikinn áhuga á bóklestri og lestur er almennt mikill. Hins vegar sé umhugsunarefni að sá hópur, sem les lítið sem ekkert, fari stækkandi. 16.11.2021 08:08
Starfsmaður sendi myndir á Snapchat af íbúa sambýlis handleika kynfæri sín Héraðssaksóknari hefur ákært mann sem starfaði á sambýli í Reykjavík fyrir að hafa tekið myndskeið af íbúa þar sem hann lá nakinn í rúmi og handlék kynfæri sín og sent myndskeiðið á samskiptaforritinu Snapchat. 16.11.2021 07:31
Ungmenni ítrekað sýnt ógnandi hegðun við Egilshöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð út til að vísa sofandi konu úr strætisvagni. Þá var tilkynnt um ógnandi ungmenni við Egilshöll en samkvæmt tilkynningu frá lögreglu um verkefni næturinnar var um að ræða „endurtekna hegðun síðastliðna daga“. 16.11.2021 06:09
Ísland aftur komið í hæsta áhættuflokk í Bandaríkjunum Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur sett Ísland aftur í hæsta áhættuflokk og varar Bandaríkjamenn við ferðalögum til landsins. Ísland var síðast skilgreint rautt í bókum CDC 6. október síðastliðinn. 15.11.2021 22:42
Kortleggja hvernig háskólasamfélagið geti brugðist við Háskóli Íslands kannar nú hvernig bregðast megi við hertum samkomutakmörkunum þar sem það styttist nú óðum í lokapróf haustmisseris. Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir skiljanlegt að staðan sem nú er uppi sé ógnvekjandi fyrir marga en verið er að finna leiðir til að draga úr áhyggjum stúdenta. 15.11.2021 22:30
Gátu ekkert gert nema fylgjast með ferðamanninum fljóta burt Aðstæður í Reynisfjöru í síðustu viku þar sem ung kínversk kona lést af slysförum voru það erfiðar að ekki þótti stætt að leggja björgunarmenn í hættu við að reyna að bjarga konunni. Var lítið annað hægt að gera en að fylgjast með henni fljóta burt. 15.11.2021 22:24
Byltingarkenndar meðalhraðamyndavélar ófullkomnar en dekka stærra svæði Tímamót verða í umferðareftirliti á Íslandi á morgun þegar lögregla byrjar að sekta fyrir of háan meðalhraða bifreiða í fyrsta skipti. Sektakerfið er einfalt þó þar sé örlítil gloppa sem óprútnir aðilar geta nýtt sér. 15.11.2021 22:01
Þegar pilturinn Eiríkur var hálshöggvinn á Eskifirði Ferðamenn sem áhuga hafa á myrkum atburðum Íslandssögunnar gætu bætt Mjóeyri við Eskifjörð á listann. Þar má sjá leiði liðlega tvítugs pilts sem leiddur var á höggstokkinn árið 1786 í hroðalegri aftöku, þeirri síðustu á Austurlandi. 15.11.2021 21:41
Talinn hafa flogið inn Barkárdalinn án nægilegrar aðgæslu Héraðsdómur Reykjavíkur metur það svo að Arngrímur Jóhannsson flugstjóri hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu vegna yfirvofandi hættu á blöndungsísingu, er hann hagaði flugi inn Barkárdal á Tröllaskaga í ágúst 2015, með þeim afleiðingum að kanadíski flugmaðurinn Arthur Grant Wagstaff fórst. 15.11.2021 20:45
Blóm allan sólarhringinn á Selfossi Nýr blómasjálfsali í nýja miðbænum á Selfossi hefur slegið í gegn, ekki síst hjá karlmönnum, sem fara í sjálfsalann á kvöldin og jafnvel á nóttunni um helgar til að kaupa blóm handa elskunni sinni. 15.11.2021 20:15
Fórnarlömb ofsókna fái leynd í Þjóðskrá Reglugerðarbreyting um leynd í Þjóðskrá er komin í samráðsgátt. Reglugerðinni er ætlað að vernda þá sem þurfa að fara huldu höfði vegna utanaðkomandi hættu, til dæmis vegna ofsókna og eltihrella. 15.11.2021 20:08
Búin að bíða í ofvæni eftir þriðju sprautunni Vonast er til að 120 þúsund manns fái örvunarbólusetningu í Laugardalshöll á næstu fjórum vikum en sóttvarnalæknir bindur miklar vonir við bólusetningarátakið. Engan bilbug var að finna á þeim sem fengu þriðja skammtinn í Höllinni í dag. 15.11.2021 20:01
Móðir lýsir alvarlegum atvikum á Sælukoti Starfsmaður á leikskólanum Sælukoti sem hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn fjögurra ára barni, starfaði á leikskólanum þrátt fyrir tilkynningu móður um meint brot. Foreldrar og fyrrverandi starfsmenn leikskólans krefjast þess að honum verði lokað. 15.11.2021 19:08
Reiknar með að þing komi saman í næstu viku Formaður undirbúningskjörbréfanefndar smíðar nú drög að tveimur mögulegum leiðum sem nefndarmenn munu síðan taka afstöðu til. Þingmenn eru bjartsýnir á að fá niðurstöðu í málið á allra næstu dögum og er sitjandi forseti Alþingis þegar farinn að undirbúa þingfund í næstu viku. 15.11.2021 18:32