Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líst hvorki á bólusetningaskyldu né -passa Það er löngu komin „sóttþreyta“ í þjóðina og misjafnar skoðanir uppi á ágæti sóttvarnaaðgerða. Það er hins vegar mikilvægt að halda upplýstri umræðu áfram og hvetja fólk til að þiggja bólusetningu, þar sem vonir eru bundnar við að svokallaður örvunarskammtur muni veita aukna vörn til lengri tíma. 2.12.2021 06:21
Omíkron-smitið staðfest og sá smitaði á Landspítala Búið er að staðfesta að sjúklingur á Landspítalanum er smitaður af Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar. Ekki er vitað hvar viðkomandi smitaðist en hann hafði ekki verið í útlöndum. 1.12.2021 22:20
Grímsvatnahlaupið brestur undan jaðri Skeiðarárjökuls Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir síðdegis yfir óvissustigi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en hvorki brúin né önnur mannvirki eru talin í hættu. Spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. 1.12.2021 22:11
Kröfum landeigenda á Látrum um að byggingar verði fjarlægðar hafnað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum eins af eigendum eyðijarðarinnar Látra í Aðalvík í friðlandinu á Hornströndum þess efnis að ákvörðun Ísafjarðarbæjar um að fjarlægja ekki fimm smáhýsi og viðbyggingu við Sjávarhúsið svokallaða verði ógilt. Deilurnar hafa staðið yfir lengi. 1.12.2021 22:01
Dæmdur fyrir árás og hótanir með sveðju Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið mann í þriggja mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir minniháttar líkamsárás, hótanir og vopnalagabrot fyrir að ráðast á og ógna manni með sveðju. 1.12.2021 21:58
Ingibjörgu Sólrúnu blandað í ævintýralegt samsæri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er lykilmaður í samsæri Sameinuðu þjóðanna um að stela kosningunum í Írak, ef marka má urmul samsæriskenninga á netinu. Hún hendir gaman að og segist dást að sköpunargleði höfundanna. 1.12.2021 21:00
Veit ekki neitt og bíður spenntur eins og aðrir Jólabókaflóðið er í fullum gangi nú þegar rétt rúmar þrjár vikur eru til aðfangadags. Aldrei hafa fleiri konur verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en þar eru 17 konur á móti fimm körlum. 1.12.2021 21:00
Umdeildur Íslandsþáttur Top Gear endaði á æsilegum kappakstri að barmi Rauðuskálar Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar. 1.12.2021 20:06
Stefni í ópíóðafaraldur með þessu áframhaldi Notkun á ópíóðum hér á landi stefnir hraðbyri í að verða að faraldri líkt og í löndunum í kringum okkur, að sögn yfirlæknis á Vogi. Hátt í 250 manns hafa farið í meðferð við ópíóðafíkn á þessu ári. . 1.12.2021 20:00
Stór verkefni fyrir höndum og mörg ófyrirséð Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir nýja ríkisstjórn hennar ganga fulla að bjartsýni til verka. Mörg verkefni þurfi að fara í á kjörtímabilinu, bæði stór og smá, og mörg þeirra sagði Katrín vera ófyrirséð. 1.12.2021 19:52
Skipað í nefndir og ruglast á sætanúmerum á Alþingi Birgir Ármannsson var í dag kjörinn forseti Alþingis. Sjálfstæðisflokkurinn fer með formennsku í þremur fastanefndum þingsins, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn í tveimur hvor um sig og stjórnarandstaðan í einni. 1.12.2021 19:21
Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra og umræður Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram í kvöld klukkan 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Hver þingflokkur hefur 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. 1.12.2021 19:01
Telur að Landspítalinn haldi hlífiskildi yfir Skúla lækni „Mér finnst allt benda til þess að það sé haldið hlífiskildi yfir Skúla lækni,” segir Guðbjörn Dan Gunnarsson, sonur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á dauðsfalli hennar með því að setja hana í lífslokameðferð að tilefnislausu. 1.12.2021 18:41
Meiri aðsókn í örvunarbólusetningu í þessari viku Þriðja vika örvunarbólusetningarátaksins fór vel af stað í vikunni en um 20 þúsund manns fengu örvunarskammt í vikunni. Framkvæmdasjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðinu segir mætinguna hafa verið vonum framar og bíður spennt eftir næstu viku. 1.12.2021 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grímsvatnahlaupið er byrjað að bresta fram undan jaðri Skeiðarárjökuls og lýstu Almannavarnir nú síðdegis yfir óvissuástandi. Vatnshæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra í dag en brúin er ekki talin í hættu. Mikil spenna ríkir um hvort eldgos fylgi hlaupinu en engin merki um gosóróa hafa enn sést. 1.12.2021 18:00
Svona er staðan í Grímsvötnum séð úr flugvélinni hjá RAX Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um tæpa tíu metra og gert er ráð fyrir að hlaup hefjist nú um helgina. Búist er við að hlaupið verði minna en spár gerðu upphaflega ráð fyrir en áfram eru taldar líkur á að gos fylgi í kjölfarið. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Grímsvötn í dag. 1.12.2021 16:31
Segja barnavernd hafa lokið málinu án frekari athugasemda Úttekt Reykjavíkurborgar á sjálfstætt starfandi leikskólanum Sælukoti stendur enn yfir. Forsvarsmenn leikskólans segja skólann hafa starfað við góðan orðstír undir eftirliti frá árinu 1984. Sælukot hefur tryggt sér þjónustu lögmanns til að gæta hagsmuna leikskólans. 1.12.2021 16:02
Vilja heyra frá þeim sem voru hjá Hjalteyrarhjónunum í Garðabæ Garðarbær óskar eftir því að fá að heyra frá foreldrum eða börnum sem voru í leikskóla eða daggæslu hjá Einari og Beverly Gíslason í Garðabæ í þágu úttektar á störfum þeirra í Garðabæ. 1.12.2021 15:41
Tafir á umferð víða um höfuðborgarsvæðið eftir hádegið Töluverðar umferðartafir hafa orðið á umferð í höfuðborginni eftir hádegi vegna umferðarslysa. Engir sjúkraflutningar eru þó skráðir hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 1.12.2021 14:38
Þurfti að draga þrisvar í sæti vegna klúðurs Birgir Ármannsson, sem kjörinn var forseti Alþingis í dag, klúðraði hlutun þingmanna í sæti á Alþingi tvisvar í dag. Hann þurfti því að vísa þingmönnum tvisvar úr salnum og gera nokkrar tilraunir til að ná röðuninni réttri. 1.12.2021 14:24
Birgir Ármannsson kjörinn forseti Alþingis með 48 atkvæðum Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið kjörinn forseti Alþingis. Hann tekur við embættinu af Steingrími J. Sigfússyni, sem sinnti hlutverkinu á síðasta kjörtímabili. 1.12.2021 13:18
Omíkron greinst í tólf löndum EES Nýtt afbrigði kórónuveirunnar, omíkron, hefur greinst í tólf löndum Evrópska Efnahagssvæðisins. Fimmtíu og sjö einstaklingar hafa greinst smitaðir af veirunni en allir eru þeir með væg einkenni Covid-19. 1.12.2021 12:55
Deila vegna stórbrunans í Skeifunni kemur til kasta Hæstaréttar Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni tryggingafélagsins VÍS í deilu félagsins og Pennans sem rekja má til stórbrunans í skeifunni þar sem húsnæði sem hýsti verslunina Griffils, í eigu Pennans, brann til kaldra kola. 1.12.2021 12:50
Hreinn ráðinn aðstoðarmaður Jóns Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra. Hann var aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn. 1.12.2021 12:41
Telja ekki að sprengjan tengist sendiherrabústað Bandaríkjanna Ekkert hefur komið fram sem bendir til að sprengja sem fannst í ruslagámi við Mánatún í gær tengist sendiráði erlends ríkis, að sögn lögreglu. Sendiherrabústaður Bandaríkjanna er í næsta húsi við gáminn. 1.12.2021 11:56
Minnir þingmeirihlutann á hverfulleika lífsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur fyrstu stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi í kvöld þegar hundrað og þrjú ár eru liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki. Kosið verður í forsætisnefnd, aðrar fastanefndir og alþjóðanefndir þingsins eftir hádegi. 1.12.2021 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á yfirvofandi hlaupi í Grímsvötnum en nú er vatn tekið að hækka í Gígjukvísl. 1.12.2021 11:36
Gunnlaugur Bragi tekur aftur við formennsku Hinsegin daga Gunnlaugur Bragi Björnsson var kjörinn formaður Hinsegin daga í Reykjavík til næstu tveggja ára á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Þá var ný stjórn kosin. 1.12.2021 10:54
Vatnshæð í Gígjukvísl hækkað um einn metra Vatnhæðin í Gígjukvísl hefur hækkað um einn metra frá í síðustu viku og þá hefur íshellan í Grímsvötnum lækkað um heila tíu metra. Sérfræðingar Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskólans gera nú ráð yfir að Grímavatnahlaup nái hámarki um helgina. 1.12.2021 10:47
140 greindust innanlands 140 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 72 af þeim 140 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 51 prósent. 68 voru utan sóttkvíar, eða 49 prósent. 1.12.2021 10:30
Bólusetningabíllinn rúllar en aukin umræða skilar líka fleirum í Höllina „Við verðum að keyra bílinn á fimmtudögum og föstudögum þegar það er rólegra í Höllinni. Fyrirtækin hafa sýnt þessu mikinn áhuga og það er búið að bóka alveg helling. Vonandi skilar þetta okkur einhverjum óbólusettum.“ 1.12.2021 10:16
Fannst heil á húfi eftir heila nótt úti í kuldanum Umfangsmikil leit að konu á áttræðisaldri sem farið hafði að heiman frá sér á Akureyri í nótt bar árangur. Konan, sem er Alzheimer-sjúklingur, hafði þá verið úti í kuldanum í um sjö tíma. 1.12.2021 10:09
Fær engar bætur eftir að fimm lítrar af ólífuolíu skemmdu flugfarangurinn Samgöngustofa hefur hafnað kröfum manns um skaðabætur úr hendi flugfélagsins Wizz Air vegna tjóns sem varð á innrituðum farangri hans í flugi eftir að ílát, sem geymdi fimm lítra af ólífuolíu, sprakk og olli tjóni á fatnaði, raftækjum og fleiru í töskunni. 1.12.2021 07:57
Svona var djammið á öðru ári veirunnar Desember er genginn í garð og fréttastofan hefur að rifja upp árið með nýju sniði. Við byrjum á máli málanna: Raunum (aðallega) unga fólksins við að halda í djammvonina á tímum þar sem allt virtist blása á móti. 1.12.2021 07:22
Segja Vinnumálastofnun tvívegis hafa deilt netföngum skjólstæðinga í fjölpóstum Vinnumálastofnun virðist tvívegis á þessu ári hafa deilt tölvupóstföngum skjólstæðinga sinna í fjölpóstum. Fyrra atvikið átti sér stað í júní en þá var um að ræða póst sem varðaði endurupptöku umsókna um greiðslur í sóttkví. 1.12.2021 06:54
Vísuðu óvelkomnum manni út af heimili í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi til að vísa óvelkomnum manni út af heimili í póstnúmerinu 104 og nokkru síðar var maður handtekinn í sama hverfi vegna líkamsárásar. 1.12.2021 06:26