Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsvarsmenn verslunar og ferðaþjónustu kalla eftir bólusetningarvottorðum Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir óþol atvinnulífsins gagnvart sóttvarnaaðgerðum og örum breytingum þar á orðið mikið. 20.1.2022 06:57
Lögregla kölluð út vegna kattar „í góðum gír“ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á miðnætti um vælandi kött í póstnúmerinu 103. Þegar komið var á staðinn reyndist eigandinn ekki heima en kötturinn var „í góðum gír“ að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. 20.1.2022 06:25
Vill jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, tilkynnti í dag að hann vilji aðstoða þolendur kynferðisofbeldis við að losna undan trúnaðarsamningum við gerendur. Hann segist vilja jafna leikinn og hjálpa þolendum að rjúfa þögnina. 19.1.2022 23:49
Sprengingin mældist á jarðskjálftamælum: „Þetta var svaka hvellur“ Íbúar í Hvalfirði urðu varir við einhvers konar sprengingu eða skjálfta skömmu fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Lítill skjálfti mældist á mælum Veðurstofunnar en sprengingin var í raun á vegum byggingafyrirtækisins Borgarvirkis. 19.1.2022 22:33
„Við þurfum ekki að bíða eftir gögnum til að aflétta“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kallar eftir því að sóttvarnatakmarkanir verði endurskoðaðar í ljósi stöðu faraldursins. Ekki þurfi að bíða eftir frekari gögnum til að sjá að þróunin sé á réttri leið og ekki lengur þörf á hörðustu samkomutakmörkunum. 19.1.2022 21:59
Neita sér um að fara til tannlæknis Andlegri líðan launafólks hefur hrakað hratt síðasta árið og um þriðjungur þess er nú talinn búa við slæma andlega heilsu. Fjöldi þeirra hefur þurft að neita sér um einhvers konar heilbrigðisþjónustu vegna fjárhagsstöðu sinnar. 19.1.2022 21:00
Katrín Jakobsdóttir ekki forsætisráðherra Það getur verið flókið að heita Katrín Jakobsdóttir og það þekkir Katrín sjálf best. 19.1.2022 20:04
Hyggjast keyra ferð á Danaleik áfram: „Ég var skíthræddur um að það myndi ekki nást“ Heimsferðir og Úrval Útsýn hyggjast „keyra þetta áfram“ og halda áfram sölu á ferð til Búdapest í fyrramálið á landsleik Íslands og Danmerkur í handbolta sem fer fram á morgun. Ferðin var ákveðin með skömmum fyrirvara en áhugi er mikill. 19.1.2022 20:02
Upplýst snjallgangbraut vekur mikla lukku Nemendur og foreldrar í Melaskóla eru hæstánægðir með nýja, upplýsta snjallgangbraut við skólann. Krakkarnir upplifa sig mun öruggari í skammdeginu en áður og vilja helst að allar gangbrautir borgarinnar verði settar í þennan búning. 19.1.2022 20:00
Sakar ríkisstjórn og lífeyrissjóði um andvaraleysi gagnvart þjóðaröryggi Þingmaður Flokks fólksins gagnrýndi ríkisstjórnina og lífeyrissjóði harðlega á Alþingi í dag fyrir andvaraleysi í tengslum við sölu Símans á Mílu til erlends fjárfestingafyrirtækis sem enginn vissi hverjir ættu. Þeir sem staðið hafi á bakvið söluna væru ekki þekktir fyrir að bera hag almennings fyrir brjósti. 19.1.2022 19:20
Hinn íslenski þriðji vinningur gekk út Einn heppinn miðaeigandi vann 6.098.140 krónur í Vikingalottó í kvöld þegar hann var með fimm af sex tölum réttar og hlaut hinn íslenska þriðja vinning. Miðinn var keyptur í Lottó-appinu. 19.1.2022 19:10
Köstuðu flugeldum inn í skólastofur Nokkrir óþekktir einstaklingar köstuðu flugeldum inn í skólastofur Verzlunarskóla Íslands fyrr í dag. Enginn slasaðist en nokkrar skemmdir urðu á gólfdúk. Skólastjóri segir að málið sé til skoðunar og telur ólíklegt að um nemendur skólans hafi verið að ræða. 19.1.2022 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir telur enga ástæðu til að breyta samkomutakmörkunum að svo stöddu og á von á að þær gildi fram yfir mánaðarmótin. Reglurnar fyrir þá sem lenda í einangrun og smitgát verða hins vegar rýmkaðar frá og með morgundeginum. 19.1.2022 18:02
Vill hjálpa fólki að losna undan þöggunarsamningum Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, hyggst aðstoða fólk sem hefur skrifað undir „þöggunarsamninga“ í tengslum við kynferðisbrot. 19.1.2022 17:49
Leggja til sérstakan saksóknara kynferðisbrota og að bætur verði dregnar frá launum Aktívistahópurinn Öfgar leggur til að komið verði á fót embætti sérstaks saksóknara í kynferðisbrotamálum hér á landi. Gagnger endurskoðun þurfi að fara fram á dómskerfinu, rífa það upp með rótum og byggja það upp að nýju. 19.1.2022 16:39
Útlendingar upplifi Covid-flutninga sem niðurlægingu Sigtryggur Arnar Magnússon leigubílstjóri hjá City Taxi segist hafa komist að því, í samtölum við farþega sína, að þeir telja sig smánaða með því að vera fluttir í einangrun með kyrfilega merktum covid-bílum. 19.1.2022 16:23
Reglurnar rýmkaðar: Fólk með veiruna má fara í göngutúr og engin sýnataka í smitgát Þeir sem þurfa að fara í smitgát, í framhaldi af smitrakningu, þurfa ekki lengur að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgundeginum. Þeir þurfa þó að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram. Þá getur fólk sem fær kórónuveiruna nú farið út í göngutúr ólíkt því sem áður var. 19.1.2022 15:45
186 miðar í boði á Danaleikinn en tíminn að renna út Heimsferðir og Úrval Útsýn hafa sett í sölu ferð til Búdapest í fyrramálið á landsleik Íslands og Danmerkur í handbolta á morgun. Um er að ræða fyrsta leik þjóðanna í milliriðli Evrópumótsins í handbolta og er eftirvæntingin mikil. 19.1.2022 15:14
Telja að eldurinn hafi kviknað út frá framkvæmdum Eldur kviknaði í þaki í íbúðarhúsi á Framnesvegi í Vesturbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en slökkvilið er enn á staðnum. 19.1.2022 14:40
Starfsmaður eggjabús fær engar skaðabætur eftir hálkuslys Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað TM Tryggingar og eggjabúið Nesbúegg af körfu starfsmanns eggjabúsins um skaðabótaskyldu þeirra vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í hálkuslysi á lóð eggjabúsins í janúar 2020. 19.1.2022 14:32
Þriðjungur vinnandi fólks á erfitt með að ná endum saman Tæplega þriðjungur vinnandi fólks glímir við erfiða fjárhagsstöðu og á erfitt með að ná endum saman. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar Vörðu - Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, en hún sýnir að staðan hafi versnað mikið síðasta árið. 19.1.2022 13:58
Líf telur oddvitaframboð Elínar Oddnýjar ekki beinast gegn sér Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi Vinstri grænna sem sækist eftir að taka við forystusætinu af Líf Magneudóttur í borgarstjórn vill leggja aukna áherslu á velferðarmálin og stöðu jaðarsettra hópa í borginni. Líf lítur ekki á framboð Elínar Oddnýjar sem sérstakt mótframboð gegn henni. 19.1.2022 13:27
Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi ASÍ og BSRB standa fyrir veffundi í dag þar sem kynntar verða niðurstöður spurningakönnunar Vörðu um stöðu launafólks. Fundurinn hefst klukkan 13 og verður hægt að fylgjast með honum í spilaranum að neðan. 19.1.2022 12:31
Urðu að reyna að hlífa kennurum við álaginu sem fylgdi tvöfaldri kennslu Framboð á fjarkennslu í framhaldsskólum hefur minnkað eftir að Félag framhaldsskólakennara lagðist gegn því að kennarar þyrftu að halda henni úti, sökum álags. Formaður félagsins segist skilja áhyggjur af því að þetta geti hamlað aðgengi nemenda að námi en kennarar verði einnig að geta stundað góða kennsluhætti. 19.1.2022 11:56
Hefur ekki í hyggju að leggja fram nýtt minnisblað eins og sakir standa Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist að óbreyttu ekki munu skila inn tillögum um nýjar sóttvarnaaðgerðir fyrr en hyllir undir að núgildandi reglugerð falli úr gildi, sem gerist 2. febrúar næstkomandi. 19.1.2022 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður farið yfir það helsta sem fram kom á upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar sem fram fór fyrir hádegið. 19.1.2022 11:35
Met slegið í umsögnum um blóðmerafrumvarpið Inga Sæland formaður Flokks fólksins segir Íslendinga ekki vilja sjá slíkt dýraníð og hún telur óhjákvæmilegan fylgikvilla blóðmerahaldi. Umsagnir um frumvarp hennar hrönnuðust upp. 19.1.2022 11:02
1.488 greindust innanlands í gær 1.488 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 93 á landamærum. 19.1.2022 10:30
Guðrún Ágústa og Ólafur nýir aðstoðarmenn Guðmundar Inga Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, hefur ráðið Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur og Ólaf Elínarson sem aðstoðarmenn sína. 19.1.2022 10:29
Lögregla rannsakar mann sem gekk berserksgang á Reykjanesbrautinni Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar atvik, sem kom upp á Reykjanesbrautinni síðdegis í gær, þar sem karlmaður steig út úr bíl sínum, gekk upp að bílnum fyrir aftan og sparkaði í bílstjórarúðuna með miklu offorsi. 19.1.2022 10:28
Enn fækkar inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 33 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 19.1.2022 09:57
Björg býður sig fram í 2. sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ þann 5. mars. 19.1.2022 08:06
Elín Oddný skorar Líf á hólm Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosninga. 19.1.2022 08:01
Telur kynferðisbrot einu skýringuna á andlegu erfiðleikunum Sálfræðingur sem Ragnhildur Eik Árnadóttir, brotaþoli í nauðgunarmáli á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni, leitaði til sagði við meðferð málsins að Ragnhildur hefði sýnt mörg einkenni sem algeng væru í kjölfar kynferðisbrota. Ragnhildur leitaði til hennar árið 2018, en meint brot Jóhannesar áttu sér stað í byrjun árs 2012. 19.1.2022 07:01
Fangaverðir með beinbrot og höfuðáverka eftir alvarlega líkamsárás Tveir fangaverðir í fangelsinu á Hólmsheiði urðu fyrir alvarlegri líkamsárás um síðustu helgi þegar fangi réðst að þeim. 19.1.2022 06:52
Nýtt lyf gegn arfgengu heilblæðingunni gæti einnig nýst Alzheimer-sjúklingum Til stendur að rannsaka hvort nýtt lyf sem er í þróun í tengslum við arfgengu íslensku heilablæðinguna gagnist einnig þeim sem þjást af Alzheimer-sjúkdómnum. 19.1.2022 06:42
Svona var 195. upplýsingafundurinn vegna Covid-19 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar um stöðu Covid-faraldursins hér á landi, klukkan 11 í dag. Fundinum verður streymt beint hér á Vísi og á Stöð 2 Vísi. 19.1.2022 06:00
Jóni Má vikið úr Une misère vegna ásakana Jóni Má Ásbjörnssyni, söngvara Une misère, hefur verið vikið úr hljómsveitinni í ljósi ásakana á hendur honum. 18.1.2022 23:38
Hætt við að börn sem sæta ítrekað sóttkví dragist aftur úr í námi Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af því að börn kunni að dragast aftur úr í námi, þurfi þau ítrekað að sæta sóttkví eða einangrun. Þá séu dæmi þess að foreldrar haldi börnum sínum heima í verndarsóttkví, þar sem þau sjálf eða heimilismenn séu í áhættuhópi. 18.1.2022 23:31
Þórdís Kolbrún segir umdeilt tíst ekki varða sóttvarnir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hafnar því að umdeilt tíst sem hún birti í gær tengist afstöðu hennar til sóttvarnaaðgerða. Í umræddri færslu á Twitter birti ráðherrann tilvitnun í bandaríska mannréttindafrömuðinn Martin Luther King Jr. og sagði að viska hans eigi einkum við á tímum þar sem atlaga hafi verið gerð að mörgum grunnréttindum fólks. 18.1.2022 22:20
Ein Janssen-sprauta bráðum ekki nóg til ferðalaga í Evrópu Næstu mánaðamót verður útgáfu bólusetningarvottorða til þeirra sem aðeins hafa fengið einn skammt af bóluefni Janssen hætt á Íslandi. Ástæðan er sú að ein sprauta af bóluefninu er talin ófullnægjandi til að draga verulega úr smithættu eða alvarlegum veikindum vegna delta- og ómíkronafbrigða kórónuveirunnar. 18.1.2022 21:03
Algjörlega óraunhæft að komast niður í 500 smit Tveir læknar Landspítalans eru sammála um að það sé heldur óraunhæft markmið að ná daglegum fjölda smitaðra niður í 500 manns eins og sóttvarnalæknir sagði að markmiðið væri á fundi velferðarnefndar Alþingis síðasta þriðjudag. 18.1.2022 20:31
Veitingamenn geta fengið allt að 600 þúsund krónur á starfsmann Veitingastaðir sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda geta fengið allt að sex hundruð þúsund krónur upp í laun starfsmanns samkvæmt aðgerðum sem stjórnvöld kynntu í morgun. Hámarks styrkur getur orðið allt að tólf milljónir króna. 18.1.2022 20:31
Hefur mestar áhyggjur af tíundu bekkingum Um helmingur þeirra sem greinist með Covid-19 eru börn á grunn- og leikskólaaldri og ríflega fimm þúsund börn í Reykjavík voru fjarverandi úr skóla í gær. Skólastjóri hefur áhyggjur af tíundu bekkingum og hvaða áhrif skert skólahald mun hafa á þá. 18.1.2022 20:15
Kristján Þór hættir sem sveitarstjóri Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, ætlar ekki að sækjast eftir stöðunni eftir næstu kosningar eða bjóða sig fram til setu í sveitarstjórn. 18.1.2022 20:14