Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öryggisgæsla hefur verið hert í skólum víða í Bandaríkjunum eftir að ungur maður vopnaður rifflum myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í gær. Fjölmargir kalla eftir hertri skotvopnalöggjöf en árásin er sú mannskæðasta í skóla þar í landi í áratug. 25.5.2022 18:00
Ný göngu- og hjólabrú við Breiðholtsbraut Vonir standa til að ný göngu- og hjólabrú yfir Dimmu og Breiðholtsbraut verði tekin til notkunar sumarið 2023, að því er fram kemur á vef Reykjavíkurborgar. Nýja brúin verður staðsett um 200 metra neðan við núverandi brú og verður lágreist trébrú með aðskildum göngu- og hjólastígum. 25.5.2022 17:14
Biðla til lítið slasaðra og veikra að leita annað en á bráðamóttöku Landspítalinn varar við því að mikið álag sé nú á spítalanum og sérstaklega á bráðamóttökunni í Fossvogi. Forgangsraða þurfi því verkefnum eftir bráðleika og vísa fólki á önnur úrræði ef mögulegt er. 25.5.2022 16:05
Bein útsending: Heilbrigð jörð - heilbrigt líf Viðburðurinn Heilbrigð jörð – heilbrigt líf er hluti af viðburðaröðinni Í liði með náttúrunni sem Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið. Viðburðurinn hefst klukkan 16 og verður í beinu streymi hér að neðan. 25.5.2022 15:50
Prestar eigi að bregðast við þegar valdhafar dæmi jaðarsetta til helvítisvistar Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri segir varhugavert að veita eigi prestum tiltal fyrir að vera harðorðir þegar tilefni sé til. Hann segir þá skjóta skökku við að biskup Íslands hafi gagnrýnt ríkisstjórn landsins fyrir fyrirhugaðar fjöldabrottvísanir en veiti presti tiltal fyrir að gagnrýna það sama. 25.5.2022 15:25
Segir Framsókn hafa svikið loforð um samtal Guðmundur Árni Stefánsson oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segist vonsvikinn að Framsóknarflokkurinn hafi myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki í Hafnarfirði. Hann segir meirihlutann „mix um bæjarstjóradjobb“ og segir Framsókn hafa svikið fyrirheit sín um að ræða við Samfylkingu eftir sveitarstjórnarkosningarnar. 25.5.2022 14:38
Spyr hvort LOGOS hafi verið að meta eigin verk Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um greiðslur ráðuneytisins og Bankasýslunnar til LOGOS lögmannsþjónustu. Lögmannsstofunni var falið að meta hvort sölumeðferð á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka stæðist reglur um jafnræði en LOGOS hafði áður veitt Bankasýslunni ráðgjöf í aðdraganda sölunnar. 25.5.2022 14:01
Vonast til að kynna nýjan meirihluta í Norðurþingi eftir helgi Hjálmar Bogi Hafliðason, oddviti Framsóknar í Norðurþingi, segist vona til að hægt verði að kynna málefnasamning nýs meirihluta í sveitarfélaginu strax eftir helgi. Framsókn og Sjálfstæðismenn hafa síðustu daga átt í viðræðum um myndun nýs meirihluta. 25.5.2022 13:48
Fregnir berist af meirihlutaviðræðum í Reykjanesbæ um og eftir helgi Meirihlutaviðræður Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar og Beinnar leiðar í Reykjanesbæ mjakast og búast má við fregnum af þeim um og eftir helgi. Þetta segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Samfylkingarinnar í samtali við Vísi. 25.5.2022 13:36
„Ég held það komi í ljós síðar í dag hvað gerist á Akureyri“ Staðan er enn galopin á Akureyri eftir að aðrar meirihlutaviðræður sigldu í strand eftir sveitarstjórnarkosningar. Í morgun varð ljóst að meirihluti BDSM væri úr sögunni þegar oddviti Samfylkingarinnar sleit viðræðum vegna ágreinings um málefni. 25.5.2022 13:19
„Ólík sjónarmið“ á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ólík sjónarmið hafa komið fram á ríkisstjórnarfundi í gær um yfirvofandi brottvísanir fólks sem sótt hefur um vernd hér á landi. Hún svarar því ekki beint hvort hún taki undir óánægju félagsmálaráðherra með framgöngu dómsmálaráðherra - en segist taka undir ákveðin sjónarmið þess fyrrnefnda. 25.5.2022 12:08
Björn verður áfram sveitarstjóri í Múlaþingi Björn Ingimarsson mun áfram gegna embætti sveitarstjóra í Múlaþingi á kjörtímabilinu sem framundan er. Oddvitar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi undirrituðu samkomulag um meirihlutasamstarf í Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í gær. 25.5.2022 11:52
„Ummæli Davíðs Þórs dæma sig algjörlega sjálf“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli Davíðs Þórs Jónssonar sóknarprests, sem biskup áminnti hann fyrir, dæma sig sjálf. 25.5.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um hælisleitendur sem til stendur að vísa úr landi og skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar í málinu. 25.5.2022 11:39
Atvinnuleysi dregist saman milli ára Atvinnuleysi hefur dregist saman um 6,1 prósentustig milli ára, að því er fram kemur í skýrslu Hagstofunnar. 25.5.2022 11:34
Formlegar meirihlutaviðræður hefjast í Reykjavík í dag Oddvitar flokkanna sem reyna að mynda meirihluta í Reykjavík koma saman til fyrsta formlega viðræðufundarins eftir hádegi. Reiknað er með að byrjað verði á að setja saman viðræðuáætlun. Síðasti fundur borgarráðs á kjörtímabilinu sem er að líða fór fram í morgun. 25.5.2022 11:30
Biskup hefur veitt séra Davíð formlegt tiltal fyrir „harkaleg og ósmekkleg skrif“ Biskup Íslands hefur veitt séra Davíði Þór Jónssyni formlegt tiltal fyrir þau „harkalegu og ósmekklegu skrif sem hann viðhafði á Facebook-vettvangi“ sínum í gær. Davíð Þór sagði þar að sérstakur staður væri í helvíti fyrir stjórnarliða Vinstri grænna. 25.5.2022 11:16
Valdimar tekur við af Rósu í ársbyrjun 2025 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Oddvitar flokkanna munu hafa stólaskipti á miðju kjörtímabili. 25.5.2022 10:24
BDSM úr sögunni á Akureyri Samfylkingin hefur slitið meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn og Miðflokkinn á Akureyri. Ástæðan er sögð vera mikill málefnalegur ágreiningur, meðal annars í velferðar- umhverfis- og skipulagsmálum. 25.5.2022 09:45
69 prósent sjúklinga á lífi fimm árum eftir aðgerð Árangur kransæðahjáveituaðgerða hjá einstaklingum með hjartabilun er góður hér á landi og á pari við sérhæfðari og stærri hjartaskurðdeildir í nágrannalöndum. 25.5.2022 09:29
Mjög vongóður um að fá vinnu á Bæjarins bestu í sumar Allir tíundu bekkingar sem Ísland í dag ræddi við voru með vinnu í sumar, eða í þann mund að landa henni. Betra þannig, sögðu þeir, annars er maður dæmdur til að hanga inni í herbergi allt sumar. 25.5.2022 08:00
Hætt við að senda barnshafandi konu úr landi Barnshafandi konu sem var í þeim hópi hælisleitenda sem til stendur að senda úr landi á næstunni hefur nú verið forðað frá brottvísun. 25.5.2022 07:35
Hressar sjósundskonur í Stykkishólmi Þær kalla ekki allt ömmu sína hópur kvenna í Stykkishólmi, sem fer saman í sjósund nokkrum sinnum í viku. Næsta verkefni þeirra er að byggja upp saunabað við aðstöðuna sína. 25.5.2022 07:03
Guðmundur Ingi óánægður með Jón Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segist ekki vera ánægður með hvernig Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur haldið á og rætt um mál þeirra hælisleitenda sem stendur til að vísa úr landi á næstunni eftir langa dvöl hér á landi. Guðmundur Ingi segist hafa gert alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð málsins á ríkisstjórnarfundi í dag. 24.5.2022 22:48
Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein. 24.5.2022 22:40
Forsætisráðherra segir fordæmi fyrir inngripi Forsætisráðherra segir til athugunar að endurskoða það að vísa fólki úr landi til Grikklands. Heldur hefur fækkað í hópi þeirra sem vísa á úr landi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra. 24.5.2022 21:00
Tár féllu á síðasta borgarstjórnarfundi en Vigdís sér ekki eftir neinu Síðasti borgarstjórnarfundur kjörtímabilsins sem er að líða fór fram í dag. Og síðasti fundur í borgarstjórn þýðir auðvitað síðasti dagurinn í vinnunni fyrir þá borgarfulltrúa sem voru ekki kosnir inn í síðustu kosningum. 24.5.2022 20:11
„Ef það verður ekki komið í veg fyrir þessa ósvinnu þá verður Alþingi að grípa í taumana“ Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að dómsmálaráðherra hafi það í hendi sér að koma í veg fyrir „Íslandsmet í fjöldabrottvísunum.“ Hann telur að þingið geti þurft að stíga inn og stöðva fyrirætlanir stjórnvalda um að vísa fjölda fólks frá landinu. 24.5.2022 19:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formlegar meirihlutaviðræður eru hafnar í Reykjavík milli Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar. Flokkarnir hafa viku til að ná saman um stór mál og ákveða hver næsti borgarstjóri verður. Píratar útiloka ekki að gera tilkall til embættisins. 24.5.2022 18:00
Trúleysingjar æfir yfir styrk ráðherra til Þjóðkirkjunnar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, veitti nýverið Þjóðkirkjunni styrk að upphæð 10 milljónir króna til þess að geta boðið aðstandendum fanga upp á þjónustu, stuðning og ráðgjöf. Styrkveitingin féll í grýttan jarðveg hjá samtökum trúleysingja. 24.5.2022 17:04
Sagði vinkonu stökkva á vagninn vegna annarrar nauðgunarkæru Karlmaður hefur verið sýknaður af nauðgun árið 2009 þar sem dómurinn taldi ákæruvaldið ekki hafa tekist að sanna sekt hans. Fá sönnunargögn lágu fyrir í málinu og byggði málið að miklu leyti á framsögu vitna. 24.5.2022 16:29
Séra Davíð Þór hótar Katrínu og Vinstri grænum helvítisvist Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarnesskirkju, er ómyrkur í máli um þann gjörning að vísa skuli um þrjú hundruð hælisleitendum úr landi á næstunni. 24.5.2022 15:26
Hildur segir Sjálfstæðisflokk ekki stunda þvingunar- eða útilokunarpólitík Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, lætur sér hvergi bregða þó Samfylking, Píratar, Viðreisn og Framsóknarflokkur ræði um útfærslu á meirihluta í Reykjavík. 24.5.2022 14:46
Harðlínugrænir Píratar í viðræður með aukið umboð Píratar hyggjast leggja áherslu á loftslagsmál, lýðræði og gagnsæi í meirihlutaviðræðum sínum við Framsókn, Samfylkinguna og Viðreisn. 24.5.2022 14:42
Viðreisn hafi aðkomu frá hægri í meirihlutaviðræðunum Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Viðreisnar í borginni, líst ágætlega á komandi meirihlutaviðræður bandalagsins og Framsóknar í borginni og áréttar sérstöðu Viðreisnar í meirihlutaviðræðunum enda eigi flokkurinn aðkomu í viðræðurnar frá hægri ás stjórnmálanna. 24.5.2022 14:40
Segir Sjálfstæðisflokk ítrekað hafa reynt samtal við Viðreisn og VG Sjálfstæðisflokkurinn reyndi ítrekað að fá Viðreisn og Vinstri græna til samtals við sig um mögulega meirihlutamyndun. Þetta segir oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann segist ekki ætla að gera kröfu um borgarstjórastólinn áður en meirihlutaviðræður hefjast. 24.5.2022 14:31
Segir reglurnar túlkaðar þröngt og alls ekki af mildi og mannúð Fyrirhuguð fjöldabrottvísun stríðir gegn kristnum gildum að sögn Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands. Til stendur að brottvísa til Grikklands hátt í þrjú hundruð hælisleitendum. Margir þeirra hafa verið hér um langt skeið vegna kórónuveirufaraldursins, fest rætur og myndað tengsl við land og þjóð. 24.5.2022 14:17
Ólöf tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar á Reykjalundi Ólöf Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Reykjalundi. Hún tekur við starfinu af Láru Margréti Sigurðardóttur sem lét nýverið af störfum eftir rúmlega tuttugu ára starf. 24.5.2022 14:05
Lenti á hausnum vegna vindhviðu en fær bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest bótaskyldu veitingarstaðarins Bryggjunnar á Akureyri vegna líkamstjóns sem kona varð fyrir á leið sinni inn á veitingastaðinn í september 2015. 24.5.2022 14:00
Kolbrún sorgmædd vegna meirihlutans sem er í pípunum Kolbrún Baldursdóttir, leiðtogi Flokks fólks í borginni, lýsir yfir sárum vonbrigðum með þann meirihluta sem nú stefnir í. 24.5.2022 13:50
Útilokanir vinstriflokka hafi komið í veg fyrir viðræður til vinstri Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir ekki hafa komið til viðræðna um vinstri meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur vegna útilokana Vinstri grænna og Sósíalista daginn eftir sveitarstjórnarkosningar. Flokkarnir sem nú reyni að mynda meirihluta eigi margt sameiginlegt hvað málefni varðar. 24.5.2022 13:50
Vigdís telur næsta víst að Dagur verði borgarstjóri Vigdís Hauksdóttir, fráfarandi oddviti Miðflokksins, kveður nú borgarstjórn eftir fjögur viðburðarík ár. Reynslunni ríkari. Hún gaf ekki kost á sér í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Vigdís telur víst að Dagur B. Eggertsson verði áfram borgarstjóri Reykvíkinga. 24.5.2022 13:22
Meirihlutaviðræður í Kópavogi á lokametrunum Meirihlutaviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi eru á lokametrunum. Flokkarnir vonast til þess að hægt verði að greina frá hvernig línur liggja í þessari viku. 24.5.2022 13:10
Dagur bað framkvæmdastjóra Grósku afsökunar Framsóknarflokkurinn í Reykjavík boðaði í morgun til blaðamannafundar í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri til að tilkynna upphaf meirihlutaviðræðna flokksins við Samfylkinguna, Pírata og Viðreisn. 24.5.2022 13:09
Tíðinda að vænta á Akranesi á morgun Tíðinda er að vænta af meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar á Akranesi á morgun. Þetta segir Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi, í samtali við fréttastofu. 24.5.2022 12:06