Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögnin sem fór í sundur er sextíu ára gömul Lögn sem fór í sundur í gærkvöldi með þeim afleiðingum að gríðarlegt magn vatns flæddi í Hvassaleiti er frá árinu 1962. Hún er ein tveggja lagna sem sjá vestari hluta Reykjavíkur fyrir köldu vatni. Því mun fólk ekki finna fyrir því að lögnin hafi verið tekin úr rekstri. 3.9.2022 15:29
Fjöldi tilkynninga um launaþjófnað á Suðurlandi: „Þetta blasir við okkur sem grafalvarleg staða“ Á fjórða tug mála eru á borði Verkalýðsfélags Suðurlands þar sem grunur er um launaþjófnað en fjárhæðirnar sem um ræðir eru allt frá nokkrum tugum þúsunda upp í milljónir. Eftirlitsfulltrúi félagsins segir grafalvarlega stöðu blasa við og kallar eftir því að stjórnvöld komi með alvöru viðurlög. 3.9.2022 14:50
Fatlað fólk fær ekki rafræn skilríki á Íslandi Formaður Þroskahjálpar segir að það sé verið að brjóta mannréttindi á fötluðu fólki á Íslandi, því að bankastofnanir og opinberir aðilar vilja ekki veita fólki með þroskahömlun, einhverfu og skyldar fatlanir rafræn skilríki. Ástæðan er sú að þessi hópur fær ekki rafræn skilríki er sú að það getur oft ekki valið fjögurra stafa PIN númer og lagt það á minnið, án aðstoðar eða leiðbeiningar. 3.9.2022 13:05
Sýknaður af ákæru fyrir að nauðga unglingsstúlku Ungur karlmaður var á dögunum sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins eftir að hafa verið ákærður fyrir að nauðga stúlku á unglingsaldri. Minnisleysi stúlkunnar var helsta ástæða sýknunnar. 3.9.2022 12:27
Aðrar orsakir en mannleg mistök Forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum segir að nóttin hafi farið í hreinsa upp eftir stóran vatnsleka í Hvassaleiti. Nú sé fram undan hefðbundin vinna við að komast að því hvað orsakaði lekann. Engar framkvæmdir séu á svæðinu og því engin augljós orsök. 3.9.2022 10:40
Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna. 3.9.2022 09:31
Vatn flæddi inn í hús og bíla Vatn flæddi um götur í Hvassaleitinu í gærkvöldi eftir að 800 millimetra kaldavatnslögn fór í sundur. Vatnið flæddi inn í nokkur hús á svæðinu, kjallara, bílskúra og bíla. Ljóst er að nokkuð tjón varð. 3.9.2022 07:46
Sameinast um að fægja og lífga upp á falda perlu á Blönduósi Sveitarstjórn Húnabyggðar og fyrirtækið Info Capital hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gamla bæjarkjarnans á Blönduósi. Gömlu götumyndinni er lýst sem einstakri perlu sem ætlunin er að fægja og lífga upp á. 3.9.2022 07:37
Erill vegna mikillar ölvunar Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt og var sérstaklega mikið af ölvunartengdum málum á borði hennar. Í dagbók lögreglu segir að óvenju margar tilkynningar um ofurölvi fólk og vandræði vegna ölvunar hafi borist í nótt. 3.9.2022 07:22
Ólga meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli Gavin Anthony, formaður Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, sem eiga Litla-Sandfell sem til stendur að nýta sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, segir að sér lítist vel á verkefnið. Samkvæmt heimildum Vísis fer því þó fjarri að allir innan safnaðarins séu á eitt sáttir um hvernig að málum er staðið. 3.9.2022 07:00
Efna til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs á Blönduósi Efnt hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs Guðmundssonar sem grunaður er um að hafa orðið konu að bana á Blönduósi og sært eiginmann hennar alvarlega. Brynjar Þór lést í kjölfarið og er atburðarásin til rannsóknar hjá lögreglu. 3.9.2022 00:21
Myndasyrpa: Allt á floti í Hvassaleiti Um klukkan tíu í kvöld fór kaldavatnslögn í sundur í Hvassaleitinu. Vatnið flæddi um hverfið eins og um straumþunga á væri að ræða. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari fréttastofunnar fór á vettvang, myndir af svæðinu má sjá hér að neðan. 3.9.2022 00:04
Vatnslögn fór í sundur og vatn flæðir um Hvassaleiti og Kringluna Stór kaldavatnslögn fór í sundur upp úr klukkan tíu í Hvassaleitinu og flæðir nú vatn um svæðið líkt og um straumþunga á sé að ræða. Bæði lögreglumenn og fulltrúar slökkviliðs eru mættir á svæðið til að gæta öryggis og reyna að leysa vandann. 2.9.2022 22:37
„Þetta er stórkostlegur staður en þetta getur orðið besti staður á jörðinni“ Hundrað og þrítugasti rampur verkefnisins Römpum upp Íslands var tekinn í notkun í dag við sumarbúðir fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal. Ramparnir sem áður voru við sumarbúðirnar voru komnir til ára sinna og því ljóst að þörf væri á breytingum. Foreldrar stefna á að bæta aðstöðuna enn frekar þar sem ramparnir eru aðeins fyrsta skrefið. 2.9.2022 22:30
„Traust til ráðherra hefur beðið stórkostlega hnekki í faginu“ Formaður BHM segir óeðlilegt að skipa í stöðu þjóðminjavarðar, staðan hefði átt að vera auglýst. Formaður félags fornleifafræðinga telur að traust fólks til menningarmálaráðherra hafi beðið mikinn hnekki vegna málsins. 2.9.2022 21:02
Fátt um svör eftir margra ára töf á uppbyggingu í Vesturbugt Ekkert bólar á uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt á slippsvæðinu í Reykjavík þótt tilkynnt hafi verið með athöfn fyrir fimm árum að framkvæmdir ættu að hefjast innan átján mánaða. Deilur verktaka við borgina virðast tefja verkið en í vor hótaði borgarstjóri að lóðin yrði dregin til baka. 2.9.2022 20:23
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta er“ Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt það er að fjórtán hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítala. Þetta segja tveir hjúkrunarfræðinganna. Uppsögn var að þeirra sögn síðasta úrræðið. 2.9.2022 19:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjúkrunarfræðingar í hópi þeirra fjórtán sem hættu á Landspítalanum í gær segir fólk ekki gera sér grein fyrir hversu alvarleg staða sé komin upp á bráðamóttökunni. Þær segja að uppsögn hafi verið síðasta úrræði sem þær hafi haft. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 2.9.2022 18:00
Á leið út úr dyrunum þegar kviknaði í spjaldtölvu heimilisins Móðir á Akureyri virðist hafa brugðist hárrétt við aðstæðum þegar eldur kviknaði í spjaldtölvu heimilisins. Litlu hefði mátt muna að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar. 2.9.2022 17:44
„Ósanngjarnt að hengja sig í smáatriðum“ Forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna segir ósanngjarnt af veitingastöðunum Flame og Bambus að ætla að fara að hengja sig í smáatriðum í launaþjófnaðarmáli sem höfðað hefur verið gegn þeim. Kjarni málsins sé sá að farið hafi verið illa með fólk - og því borgað of lítið fyrir of mikla vinnu. 2.9.2022 17:36
Þriðjungur kvenna orðið fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnustað Þriðjungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað einhvern tímann á lífsleiðinni samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum vísindamanna Háskóla Íslands. 2.9.2022 16:16
Grunaður um að hafa nauðgað eiginkonu sinni í bíl Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. september fyrir að hafa meðal annars ógnað eiginkonu sinni með hníf og nauðgað henni í bíl sem lagður var á malarsvæði. Maðurinn hefur einnig verið ákærður fyrir eignaspjöll og líkamsárásir. 2.9.2022 14:55
Eigandinn hafi mætt með leyfi MAST til að flytja hryssuna og folaldið: „Fólk er við það að taka völdin í sínar hendur“ Íbúi í Borgarnesi sem hefur ítrekað kvartað vegna slæmrar meðferðar á hestum í Borgarfirði segir íbúa öskuilla þar sem eigendur hafi fengið leyfi MAST til að flytja illa haldna hryssu og folald sem höfðu verið innilokuð. Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu sé málið til skoðunar og samráðsfundur fari fram síðar í mánuðinum. Tilkynning Ríkisendurskoðunar um úttekt á eftirliti MAST hafi verið áfangasigur. 2.9.2022 14:15
Fyrrverandi starfsmenn lýsa afar ófaglegum vinnubrögðum safnstjórans Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Listasafns Íslands lýsa afar ófaglegum stjórnunarstíl fyrrum safnsstjóra sem hefur nú verið skipuð án auglýsingar sem þjóðminjavörður. Nefndarmaður Pírata í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd Alþingis vill fá menningarmálaráðherra fyrir nefndina vegna ráðningarinnar. 2.9.2022 12:22
Hádegisfréttir Bylgjunnar Deilur í kringum nýskipaðan þjóðminjavörð, ill meðferð á hrossum, launaþjófnaður og kjarnorkumál í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 2.9.2022 11:38
Afla upplýsinga vegna atviksins á Keflavíkurflugvelli Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið upplýsingaöflun vegna flugatviks sem varð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, þegar hætt var við lendingu flugvélar Icelandair á leið frá München í Þýskalandi. 2.9.2022 11:11
Gámur eyðilagðist á Reykjanesbraut Hreinsunarstarf stendur nú yfir á Reykjanesbraut eftir að gámur, sem verið var að flytja á palli vörubíls, hafnaði undir brúnni milli Smiðjuhverfisins og Staldursins í Reykjavík. 2.9.2022 10:39
Segir hryssu og folald enn innilokuð án dagsbirtu Íbúi í Borgarnesi segir hryssu og folald enn innilokuð í hesthúsi í Borgarnesi, þar sem ekki sjáist til sólar. Eigandinn var tilneyddur í gær að færa önnur hross sín, sem voru vannærð og illa haldin, á beit en hryssa með folald er enn innilokuð í hesthúsinu. 2.9.2022 10:29
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. 2.9.2022 10:11
1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. 2.9.2022 08:58
„Aðrir eru rændir möguleika á starfinu og þar liggur vandinn“ Félag fornleifafræðinga hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna ákvörðunar Lilju Alfreðsdóttur, ráðherra menningarmála, að skipa Hörpu Þórsdóttur þjóðminjavörð án þess að auglýsa embættið. 2.9.2022 07:11
Krefjast 13 milljóna í ógreidd laun Hildur Ýr Viðarsdóttir, lögmaður eigenda veitingastaðanna Bambus og Flame, segir rangt af forsvarsmönnum Fagfélaganna að halda því fram að starfsmenn staðanna, hvers stöðu Fagfélögin hafa til skoðunnar, hafi unnið allt að sextán tíma á dag. 2.9.2022 06:47
Sýna geitur í húsdýragarði og selja gestum svo geitaost beint frá býli Bændur á einu stærsta sauðfjárbúi við austanverðan Skagafjörð eru búnir að stofna húsdýragarð og bjóða gestum að kaupa geitaost beint frá býli. Brúnastaðir í Fljótum eru fyrsti og eini bær landsins sem framleiðir eigin geitaosta. 1.9.2022 23:00
Flugvél á flugbraut þegar önnur vél átti að lenda Flugvél á vegum Icelandair þurfti að hætta við lendingu á Keflavíkurflugvelli í gær þar sem önnur vél var á flugbrautinni. Atvikið er til skoðunar hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa. 1.9.2022 22:39
Landverðir taki við af björgunarsveitum Lítil virkni er á Reykjanesskaga og gosórói mælist ekki lengur en samkvæmt almannavörnum hætta björgunarsveitir nú gæslustörfum á svæðinu. 1.9.2022 22:32
Læknar harma áhugaleysi stjórnvalda Læknafélag Reykjavíkur harmar áhugaleysi stjórnvalda á sjúkratryggðum íbúum landsins. Síðasti samningur ríkisins og sjálfstætt starfandi lækna var gerður árið 2013 og rann út í lok árs 2018. 1.9.2022 22:17
Áfall þegar hún sá myndir af hryssunum sínum í fjölmiðlum Fyrrverandi eigandi þriggja hrossa úr stóði, sem sagt er hafa sætt illri meðferð núverandi eigenda, segir það hafa verið gríðarlegt áfall að sjá myndir af hrossunum í fjölmiðlum í gær. Hún leitar nú leiða til að fá hrossin aftur til sín. 1.9.2022 21:00
Skrifar sögu landhelgismálsins til þess að slaka á Fimmtíu ár eru liðin síðan landhelgin var færð út í fimmtíu mílur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sem er jafnframt sagnfræðingur hefur nú skrifað bók um sögu landhelgismálsins sem spannar árin 1961 til 1971. 1.9.2022 21:00
„Af hverju er ekki búið að gera eitthvað?“ Móðir stúlku sem varð fyrir bíl á rafmagnshlaupahjóli kallar eftir hjálmum á Hopp-hlaupahjól og bættu umferðaröryggi á hættulegustu gatnamótum landsins. Stúlkan mjaðmabrotnaði en hún kveðst þakklát fyrir að ekki hafi farið verr. 1.9.2022 19:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dýraverndarsamtök telja eftirlitskerfið hafa brugðist dýrum í neyð og gagnrýna Matvælastofnun. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni útsendingu frá Borgarfirði þar sem hross og fleiri dýr eru sögð hafa sætt illri meðferð á bóndabæ. Við ræðum við fyrrverandi eiganda hrossa úr stóðinu sem segir áfall að sjá myndir af þeim og leitar nú leiða til þess að fá þau aftur. 1.9.2022 18:00
Skoða hvernig MAST stendur sig í eftirliti með velferð dýra Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Tilefni ákvörðunarinnar er ekki tiltekin en hún kemur í beinu framhaldi af háværri gagnrýni á eftirlit MAST með dýravelferð í Borgarbyggð. 1.9.2022 16:28
„Fjárskorturinn er slíkur að hann bitnar á þeim sem dvelja þarna“ Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að hér á landi þurfi nýja hugsun og nýja nálgun á geðheilbrigðismálin. Algert forgangsmál sé að bæta aðbúnað á geðdeildum og setja umtalsvert meira fjármagn í geðheilbrigðismálin. Í ársskýrslu umboðsmanns Alþingis er fjallað um eftirlitsferð umboðsmanns á bráðageðdeild Landspítala. 1.9.2022 16:12
Telja lítils að vænta frá stjórnvöldum vegna komandi kjarasamninga Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ræddu komandi kjaraviðræður í Pallborði Vísis og Stöðvar 2 nú síðdegis. 1.9.2022 15:25
Reksturinn í járnum í Reykjavík Borgarráð samþykkti í dag árshlutareikning Reykjavíkurborgar. Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta nærri 10 milljörðum betri en áætlað var. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fyrstu sex mánuði ársins sýnir um 4 milljarða verri rekstrarniðurstöðu A-hluta en gert var ráð fyrir. Samþykktar voru tillögur til að draga úr rekstrarhalla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 1.9.2022 15:11
Kallar eftir því að ríkið stigi inn í og taki við keflinu af sveitarfélögunum Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar kallar eftir því að ríkið taki við þjónustu við fólk á flótta og fólk í leit að alþjóðlegri vernd, í stað þess að sveitarfélögin veiti hana. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ályktaði í gær um að bærinn gæti ekki veitt þá þjónustu sem ætlast væri til af honum. Bæjarstjórinn segir lausnina ekki felast í því að fleiri sveitarfélög taki á móti fólki. 1.9.2022 15:01