Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vantraustsyfirlýsing kvenpresta byggð á „hreinum rangfærslum og lygi“ Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segir vantraustsyfirlýsingu Félags prestvígðra kvenna gagnvart honum byggða á lygum. Hún sé ómarktæk. Hann gengst þó við mistökum í viðtali við Útvarp sögu, sem vantraustsyfirlýsingin snýr meðal annars að. 16.9.2022 12:11
Krakkarnir segi hinum fullorðnu hvað þeir vilji lesa Samtal, lýðræði og opin skoðanaskipti verða í aðalhlutverki á Fundi fólksins sem stendur yfir í dag og á morgun. Nú í hádeginu ætla krakkarnir sjálfir að segja hinum fullorðnu hvað þeir vilja lesa og af hverju áhuginn virðist dvína á unglingastigi. 16.9.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ólga meðal presta, ráðning þjóðminjavarðar, fjárlög og loftslagsmálin verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 16.9.2022 11:51
Skoða betur í hverju gagnrýni fyrrverandi starfsmanna felst Menningar- og viðskiptaráðherra segir að ráðuneyti sitt kanni nú í hverju óánægja nokkurra fyrrverandi starfsmanna Listasafns Íslands með stjórnunarstíl Hörpu Þórsdóttur, sem ráðherrann réð án auglýsingar í stöðu þjóðminjavarðar, felst. 16.9.2022 11:40
Krefjast afsagnar formanns Prestafélagsins vegna viðtals við Útvarp sögu Félag prestvígðra kvenna krefst þess að Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segi af sér vegna ummæla hans í viðtali við Útvarp sögu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félags Prestvígðra kvenna sem gefin er út eftir fund félagsins í Langholtskirkju í gær. 16.9.2022 11:15
Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Teitur starfaði áður sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. 16.9.2022 11:14
Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ Það sem talin var olíumengun úr togaranum Beiti TFES, og nýverið var tilkynnt um til Landhelgisgæslunnar, reyndist koma frá strungnum hvalshræi sem sat fast á perustefni skipsins. 16.9.2022 11:06
Hættustig á landamærum vegna yfirálags Embætti ríkislögreglustjóra hefur hækkað viðbúnaðarstig á landamærunum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á fólki sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi. 16.9.2022 10:53
Flokkarnir hafi verið gerðir að ríkisstofnunum með háum framlögum Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram lagafrumvarp þess efnis að dregið verði úr opinberum fjárstuðningi við stjórnmálaflokka. Þeir segja há framlög til flokkanna undanfarin ár hafa dregið úr stjórnmálastarfi þeirra. Flokkarnir hafi í raun verið gerðir að ríkisstofnunum. 16.9.2022 10:49
Rennibraut verði komin upp í Dalslaug í vor Reiknað er með að vatnsrennibraut verði komin upp í Dalslaug í Úlfarsárdal næsta vor. Borgarfulltrúi segir að með þessu sé verið að svara ákalli íbúa en upphaflegar áætlanir gerðu ekki ráð fyrir að rennibraut yrði í lauginni sem opnaði í desember á síðasta ári. 16.9.2022 10:48
Árásarmaðurinn ekki ungmenni Maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið átján ára pilt í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík í gær er fullorðinn einstaklingur. Hann var í gær handtekinn og úrskurðaður í síbrotagæslu. 16.9.2022 10:44
Bein útsending: Fyrri dagur Fundar fólksins Fundur fólksins hefst í Vatnsmýrinni í dag þar sem fundurinn verðir settur í Norræna húsinu klukkan 11. Dagskrá fer fram víða um Vatnsmýrina en einkum og sér í lagi í Norræna húsinu og Grósku. Hér að neðan má nálgast streymi frá fundinum. 16.9.2022 10:00
Segir að hverfið sitt hafi gleymst Mörghundruð íbúar í Hlíðunum hafa skrifað undir áskorun til borgaryfirvalda að sinna hverfinu þeirra betur. Aðalgatan í hverfinu er sögð þurfa allsherjaryfirhalningu til að standa undir nafni sem borgargata. Íbúarnir vilja hverfastemingu, til dæmis eins og í Vesturbæ eða Laugardal. 16.9.2022 08:01
1.573 lyfjatengd atvik skráð árið 2021 Hérlendis voru 11.474 atvik skráð í heilbrigðisþjónustu á landinu öllu árið 2021. Algengustu skráðu atvikin voru byltur en lyfjatengd atvik voru næst algengust, 1.573 talsins, eða 14 prósent. Með atviki er átt við eitthvað sem má betur fara við greiningu, meðferð eða umönnun sjúklings. 16.9.2022 07:13
Atvikið á Keflavíkurflugvelli flokkað sem alvarlegt flugatvik Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur flokkað flugatvik sem varð á Keflavíkurflugvelli þann 31. ágúst síðast liðinn sem alvarlegt flugatvik. Flugmenn flugvélar Icelandair hættu þá skyndilega við lendingu vegna annarrar flugvélar Icelandair sem var á flugbrautinni. 16.9.2022 07:01
Telur söluna á Mílu skapa aukna njósnahættu Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir sölu Símans á Mílu til fransks félags skapa njósnahættu. Full ástæða sé til að óttast að erlend njósnastarfsemi muni fylgja sölunni og huga þurfi því betur að öryggismálum. 16.9.2022 06:58
Mikilvægt að stuðla að því að allir geti eignast vistvæna bifreið Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekki standa til að hætta að styðja við kaup á rafbílum. Markmiðin um orkuskipti til að ná markmiðum í loftslagsmálum séu afar mikilvæg. 16.9.2022 06:34
Vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna í miðbænum Karlmaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna. Maðurinn var auk þess í mjög annarlegu ástandi og taldi lögregla réttast að láta manninn gista þar til rofar til. 16.9.2022 06:33
Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra er látinn Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra er látinn 84 ára að aldri. Ragnar var formaður Alþýðubandalagsins í tæpan áratug og var Alþingismaður í tæpa þrjá áratugi. 16.9.2022 06:24
Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina, viðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn og gott fordæmi. Fyrirtækið hefur þróað náttúrulega filmu úr þörungahrati sem ætluð er fyrir grænmeti og ávexti. 15.9.2022 23:42
Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. 15.9.2022 23:22
Stíflan sem sökkti heilum dal og eyddi sjö bæjum telst afturkræf Heilum dal var sökkt og sjö sveitabæir fóru í eyði með Skeiðsfossvirkjun sem reist var til að rafvæða Siglufjörð. Stöðvarstjórinn, sem brátt lætur af störfum eftir yfir fjörutíu ára starf við virkjunina, segir að svona yrði örugglega ekki gert í dag. 15.9.2022 22:30
Átján ára stunginn á leiðinni á íþróttaæfingu Átján ára piltur var stunginn þrívegis í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík seinnipartinn í gær. Pilturinn er með þroskaskerðingu en hann var á leið á íþróttaæfingu þegar ráðist var á hann. Árásarmaðurinn reyndi að hafa af honum hjól áður en hann réðst til atlögu. 15.9.2022 22:20
Myndband sýnir Hollywood-lega tilburði innbrotsþjófsins sem seig niður um gat í loftinu Innbrotsþjófur sem lagði töluvert á sig til þess að brjótast inn í verslunina Prinsinn í Árbænum í vikunni fór tómhentur út. Eigandi verslunarinnar veltir því fyrir sér hvort að viðkomandi sé að undirbúa sig undir eitthvað stærra. 15.9.2022 21:00
Rafbílavæðing mögulega farin að skila árangri Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um þrjú prósent á milli áranna 2020 og 2021. Vegasamgöngur, fiskiskip og iðragerjun eru stærstu losunarþættirnir. Umhverfisstofnun segir að rafbílavæðingin hafi mögulega skilað árangri og bráðabirgðaniðurstöður gefi góða mynd af losun Íslands. 15.9.2022 20:20
„Leit á það sem plús í sinum kladda að velja leglausa konu til að starfa með“ Prestar í Hjallakirkju lýsa stöðugri niðurlægingu og kynbundinni áreitni af hálfu starfsbróður síns, sem áminntur verður fyrir hegðun sína. Andrúmsloftið á vinnustaðnum hafi verið óbærilegt. Framtíð prestsins innan þjóðirkjunnar er óráðin. 15.9.2022 20:00
Ríkisstjórnin bregst við mikilli þenslu með aðhaldi Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði álíka miklar og öll útgjöld ríkisins á næsta ári. Fjármálaráðherra segir fjárlög næsta árs miða að því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins og vinna bug á verðbólgunni. 15.9.2022 19:31
Eldur kviknaði í vinnuvél í álverinu í Straumsvík Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað til fyrr í kvöld vegna elds í vinnuvél innandyra í álverinu í Straumsvík. 15.9.2022 19:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Prestar í Hjallakirkju lýsa stöðugri niðurlægingu og kynbundinni áreitni af hálfu starfsbróður síns, sem áminntur verður fyrir hegðun sína. Andrúmsloftið á vinnustaðnum er sagt hafa verið óbærilegt en framtíð prestsins innan þjóðkirkjunnar er enn óráðin. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 15.9.2022 18:01
Sendiherrann vakinn um miðja nótt Sendiherra Íslands í Lundúnum var vakinn við hljóðfæraleik og trommuslátt í vikunni þegar verið var að æfa fyrir útför Elísabetar II, sem fram fer á mánudaginn næstkomandi. Þúsundir manna hafa streymt til borgarinnar síðustu daga og öryggisgæsla hefur aldrei verið meiri. 15.9.2022 17:56
Riddaraskjöldur Guðna afhjúpaður Riddaraskjöldur Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, var afhjúpaður við hátíðalega athöfn í Riddarakapellu Friðriksborgarhallar í Kaupmannahöfn síðastliðinn mánudag. Guðni var sæmdur riddaraorðu fílareglunnar árið 2017. 15.9.2022 16:46
Jón Steinar opnar sig um vinslit sín og Davíðs Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, segist ekki vita hvers vegna Davíð Oddsson, nú ritstjóra Morgunblaðsins áður forsætisráðherra með meiru, hafi farið í fýlu við sig. Sennilega vegna einhverra skoðana sinna en honum sé sama, hann er bundinn sannfæringu sinni og öðru ekki. 15.9.2022 16:05
Ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að þríhöfuðkúpubrjóta vinnufélaga sinn Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps 17. júní síðastliðinn, með því að hafa slegið tvo vinnufélaga sína með hamri. Annar þeirra þríhöfuðkúpubrotnaði. 15.9.2022 15:47
Sérsveitin varar við sprengjufikti: „Það hafa orðið banaslys“ Sérsveitarmaður sem var á vettvangi á Selfossi í morgun ítrekar varnaðarorð lögreglu um alvarleika þess að meðhöndla sprengiefni. „Það hafa orðið banaslys á Íslandi við sprengjufikt, útlimamissir einnig og fólk hefur misst sjón. Þannig þetta er alveg stranglega bannað,“ segir sérsveitarmaður sem var kallaður á vettvang þegar tilkynnt var um torkennilegan hlut nærri Fjölbrautarskóla Suðurlands og Vallaskóla. 15.9.2022 15:14
Upplýsingum af lokuðum fundi lekið í opinn hóp á Facebook Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi lagði fram fyrirspurn á fundi bæjarráðs Kópavogs um heimildir nefndarmanna til þess að fara með upplýsingar sem fram koma á lokuðum fundum nefnda og ráða. Hún segir orð hennar hafa orðið að umfjöllunarefni á Facebook og að þau hafi verið algjörlega slitin úr samhengi. 15.9.2022 14:56
Mikil vonbrigði í Mosó með áframhaldandi urðun í bakgarðinum Ljóst er að ekki verður hægt að loka urðunarstað Sorpu í Álfsnesi fyrir lok árs 2023 líkt og samið var um fyrir tveimur árum. Viðræður Sorpu við sveitarfélög um framtíðarurðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið hefur enn engan árangur borið. 15.9.2022 14:23
Vilja afnema bann við klámi Tveir þingmenn Pírata hafa lagt fram frumvarp um breytingu laga er varða bann við klámi á Íslandi. Þingmennirnir vilja að refsiheimild vegna birtingar þess, innflutnings, sölu útbýtingar eða annars konar dreifingar verði felld út. 15.9.2022 14:05
Fagnar staðfestingu á því að kynferðislegt áreiti átti sér stað Prestur í Digranes- og Hjallaprestakalli, ein sex kvenna innan prestakallsins sem sökuðu sóknarprest um ósæmilega hegðun, lítur á niðurstöðu í máli hans sem sigur. Yfirlýsing biskups um að þjóðkirkjan standi með þolendum sýni hugrekki. 15.9.2022 14:04
618 börn bíða eftir sálfræðiþjónustu hjá HH Þessa stundina bíða 618 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Umboðsmaður barna hefur ráðist í um bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu. Ráðist var í sams konar samantekt í árslok 2021 og síðan voru nýjustu upplýsingar birtar í gær frá sömu aðilum en auk þeirra voru birtar upplýsingar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóla barnaspítalans og þjónustu talmeinafræðinga. 15.9.2022 13:27
Bjarni segir markmið fjárlaga að styðja heimilin og vinna gegn verðbólgu Fjármálaráðherra segir markmið fjárlagafrumvarps næsta árs að styðja við heimilin í landinu, vinna gegn verðbólgu og byggja upp styrk ríkissjóðs. Fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd segir aukna flata skattheimtu fyrst og fremst bitna á þeim tekjulægstu og halda aftur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu. 15.9.2022 11:58
Vill gera það sama í ASÍ og hefur verið gert í VR Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hyggst bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands á þingi sambandsins í október. Hann hefur trú á að hægt sé að sameina hreyfinguna en segir ástandið eins og það hefur verið óásættanlegt. 15.9.2022 11:55
Hádegisfréttir Bylgjunnar Salan á Mílu, forsetaframboð formanns VR, fjárlög ársins 2023 og kynferðisleg áreitni innan kirkjunnar verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 15.9.2022 11:43
Vilja tafarlaust grípa til aðgerða: Ungum dreng ítrekað sagt að drepa sig vegna kynhneigðar Mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð hefur miklar áhyggjur af stöðu hinsegin barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi en umræddur hópur verður oft fyrir aðkasti innan og utan veggja skólans. 15.9.2022 11:20
Sérsveitin kölluð út vegna „torkennilegs hlutar“ á Selfossi Lögregla á Suðurlandi er með mikinn viðbúnað nærri Fjölbrautaskóla Suðurlands og Vallaskóla á Selfossi eftir að tilkynnt var um „torkennilegan hlut“ á götu við skólann. Að sögn lögreglu er um að ræða ósprungna sprengju sem svipaði til þeirra sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2 í gær. 15.9.2022 11:03
Ekkert bendir til gosóróa við Grímsey Hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands segir ekkert benda til að eldsumbrota sé að vænta við Grímsey. Mikil skjálftavirkni hefur verið á svæðinu undanfarna viku en að sögn hópstjórans er erfitt að fylgjast með gosóróa á svæðinu vegna takmarkana tækninnar. 15.9.2022 10:45