Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja niðurskurðinn brjóta í bága við kvikmyndastefnu stjórnvalda Mikil umræða hefur skapast nýverið um ákvörðun stjórnvalda að skera niður fjármagn til kvikmyndasjóðs. Í vikunni voru fjárlögin fyrir komandi ár kynnt og samkvæmt þeim stendur til að skera framlag til kvikmyndasjóðs niður um 33 prósent. Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda segist harma þessa ákvörðun stjórnvalda. 16.9.2022 20:22
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. 16.9.2022 19:21
Sex sóttu um stöðu lögreglustjórans á Vestfjörðum Karl Ingi Vilbergsson fyrrverandi lögreglustjóri á Vestfjörðum lét af störfum í ágúst síðastliðnum. Sex einstaklingar sóttu um stöðu lögreglustjórans sem auglýst var af dómsmálaráðuneytinu. 16.9.2022 18:47
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því að hættustigi hefur verið lýst yfir á landamærunum vegna fordæmalauss fjölda hælisleitenda. Hátt í þrjú þúsund manns hafa sótt um alþjóðlega vernd á það sem af er ári og eru innviðir við það að bresta. 16.9.2022 18:00
Allir farþegar slasaðir eftir harðan árekstur Alvarlegt bílslys varð á Snæfellsvegi á þriðja tímanum í dag. Ásmundur Kr. Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi segir tvo bíla hafa lent saman, framan á hvor annan. Allir farþegar séu slasaðir. 16.9.2022 17:49
Karlmaður sem beit dyravörð undi ekki dómnum eftir allt saman Karlmaður sem í fyrra var dæmdur í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að bíta dyravörð hætti við að una dómnum nokkrum dögum eftir því að dómurinn var birtur honum. Áfrýjun mannsins var vísað frá í Landsrétti. 16.9.2022 16:30
Ómar Ragnarsson verðlaunaður á Degi íslenskrar náttúru Þúsundþjalasmiðurinn Ómar Ragnarsson hlaut í dag Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Þetta er í þrettánda sinn sem náttúruverndarviðurkenningin er afhent á Degi íslenskrar náttúru. 16.9.2022 16:20
Ingvar kemur í stað Teits Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Hann kemur í stað Teits Björn Einarssonar sem er nýorðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. 16.9.2022 15:40
Torkennilegur hlutur reyndist vera rafsígaretta Sprengjusérfræðingar ríkislögreglustjóra voru kallaðar til við Ránargötu í miðbæ Reykjavíkur í dag eftir að tilkynnt var um torkennilegan hlut. Hluturinn reyndist vera rafsígaretta sem einhver hafði skilið eftir. 16.9.2022 15:21
Alvarlegt bílslys á Mýrum Alvarlegt bílslys varð á Snæfellsnesvegi á þriðja tímanum í dag. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út og lokað fyrir umferð á veginum í báðar áttir. Um er að ræða veginn frá Borgarnesi upp á Snæfellsnes. 16.9.2022 15:18
Þau sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs Alls sóttu 25 um stöðu framkvæmdastjóra Loftslagsráðs sem auglýst var laus til umsóknar í júlí síðastliðinn. Í hópi umsækjenda eru meðal annars fyrrverandi þingmaður og sveitarstjórar. 16.9.2022 14:44
Segir mælanlegan árangur af loftslagsaðgerðum engan: „Þyngra en tárum taki“ Þrátt fyrir metnaðarfull áform er mælanlegur árangur af loftslagsaðgerðum stjórnvalda enn sem komið er enginn, að sögn veðurfræðings. Það er staðreynd sem hann segir að við verðum að horfast blákalt í augu við - á degi íslenskrar náttúru. 16.9.2022 14:20
Reyndi að stinga lögreglu af fullur og próflaus Lögreglan á Suðurlandi hefur ákært pólskan ríkisborgara á þrítugsaldri fyrir að aka undir áhrifum áfengis án ökuréttinda en ökumaðurinn sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva akstur. Hann olli árekstri er hann reyndi að flýja lögreglu. Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu. 16.9.2022 14:06
Allir töldu Þröst vanhæfan nema Þröstur sjálfur sem ákallaði drottinn guð sinn Tíu af ellefu sveitarstjórnarmönnum Múlaþings samþykktu tillögu um vanhæfi Þrastar Jónsson, sveitarstjórnarfulltrúa Miðflokksins, sem sneri að því að hann myndi víkja af fundi sveitarstjórnar í umræðum um breytingu á aðalskipulagi varðandi leiðarval Fjarðaheiðarganga. Þröstur segir hart að sér vegið og sakar aðra fulltrúa um pólitískt ofbeldi. 16.9.2022 13:24
Forsætisráðherra segir réttlætismál að greitt sé útsvar af fjármagnstekjum Forsætisráðherra segir réttlætismál að þeir sem einungis hafi fjármagnstekjur greiði útsvar til sveitarfélaga. Á næsta ári verði helsta verkefnið að draga úr verðbólgu og styrkja um leið og verja almannaþjónustuna, almannatryggingakerfið og húsnæðismarkaðinn. 16.9.2022 12:17
Vantraustsyfirlýsing kvenpresta byggð á „hreinum rangfærslum og lygi“ Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segir vantraustsyfirlýsingu Félags prestvígðra kvenna gagnvart honum byggða á lygum. Hún sé ómarktæk. Hann gengst þó við mistökum í viðtali við Útvarp sögu, sem vantraustsyfirlýsingin snýr meðal annars að. 16.9.2022 12:11
Krakkarnir segi hinum fullorðnu hvað þeir vilji lesa Samtal, lýðræði og opin skoðanaskipti verða í aðalhlutverki á Fundi fólksins sem stendur yfir í dag og á morgun. Nú í hádeginu ætla krakkarnir sjálfir að segja hinum fullorðnu hvað þeir vilja lesa og af hverju áhuginn virðist dvína á unglingastigi. 16.9.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ólga meðal presta, ráðning þjóðminjavarðar, fjárlög og loftslagsmálin verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 16.9.2022 11:51
Skoða betur í hverju gagnrýni fyrrverandi starfsmanna felst Menningar- og viðskiptaráðherra segir að ráðuneyti sitt kanni nú í hverju óánægja nokkurra fyrrverandi starfsmanna Listasafns Íslands með stjórnunarstíl Hörpu Þórsdóttur, sem ráðherrann réð án auglýsingar í stöðu þjóðminjavarðar, felst. 16.9.2022 11:40
Krefjast afsagnar formanns Prestafélagsins vegna viðtals við Útvarp sögu Félag prestvígðra kvenna krefst þess að Arnaldur Bárðarson formaður Prestafélags Íslands segi af sér vegna ummæla hans í viðtali við Útvarp sögu á dögunum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félags Prestvígðra kvenna sem gefin er út eftir fund félagsins í Langholtskirkju í gær. 16.9.2022 11:15
Teitur Björn ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Teitur starfaði áður sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. 16.9.2022 11:14
Olíumengun frá togara reyndist vera sprungið hvalshræ Það sem talin var olíumengun úr togaranum Beiti TFES, og nýverið var tilkynnt um til Landhelgisgæslunnar, reyndist koma frá strungnum hvalshræi sem sat fast á perustefni skipsins. 16.9.2022 11:06
Hættustig á landamærum vegna yfirálags Embætti ríkislögreglustjóra hefur hækkað viðbúnaðarstig á landamærunum á hættustig vegna yfirálags til þess að tryggja örugga móttöku á fólki sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi. 16.9.2022 10:53
Flokkarnir hafi verið gerðir að ríkisstofnunum með háum framlögum Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram lagafrumvarp þess efnis að dregið verði úr opinberum fjárstuðningi við stjórnmálaflokka. Þeir segja há framlög til flokkanna undanfarin ár hafa dregið úr stjórnmálastarfi þeirra. Flokkarnir hafi í raun verið gerðir að ríkisstofnunum. 16.9.2022 10:49
Rennibraut verði komin upp í Dalslaug í vor Reiknað er með að vatnsrennibraut verði komin upp í Dalslaug í Úlfarsárdal næsta vor. Borgarfulltrúi segir að með þessu sé verið að svara ákalli íbúa en upphaflegar áætlanir gerðu ekki ráð fyrir að rennibraut yrði í lauginni sem opnaði í desember á síðasta ári. 16.9.2022 10:48
Árásarmaðurinn ekki ungmenni Maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið átján ára pilt í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík í gær er fullorðinn einstaklingur. Hann var í gær handtekinn og úrskurðaður í síbrotagæslu. 16.9.2022 10:44
Bein útsending: Fyrri dagur Fundar fólksins Fundur fólksins hefst í Vatnsmýrinni í dag þar sem fundurinn verðir settur í Norræna húsinu klukkan 11. Dagskrá fer fram víða um Vatnsmýrina en einkum og sér í lagi í Norræna húsinu og Grósku. Hér að neðan má nálgast streymi frá fundinum. 16.9.2022 10:00
Segir að hverfið sitt hafi gleymst Mörghundruð íbúar í Hlíðunum hafa skrifað undir áskorun til borgaryfirvalda að sinna hverfinu þeirra betur. Aðalgatan í hverfinu er sögð þurfa allsherjaryfirhalningu til að standa undir nafni sem borgargata. Íbúarnir vilja hverfastemingu, til dæmis eins og í Vesturbæ eða Laugardal. 16.9.2022 08:01
1.573 lyfjatengd atvik skráð árið 2021 Hérlendis voru 11.474 atvik skráð í heilbrigðisþjónustu á landinu öllu árið 2021. Algengustu skráðu atvikin voru byltur en lyfjatengd atvik voru næst algengust, 1.573 talsins, eða 14 prósent. Með atviki er átt við eitthvað sem má betur fara við greiningu, meðferð eða umönnun sjúklings. 16.9.2022 07:13
Atvikið á Keflavíkurflugvelli flokkað sem alvarlegt flugatvik Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur flokkað flugatvik sem varð á Keflavíkurflugvelli þann 31. ágúst síðast liðinn sem alvarlegt flugatvik. Flugmenn flugvélar Icelandair hættu þá skyndilega við lendingu vegna annarrar flugvélar Icelandair sem var á flugbrautinni. 16.9.2022 07:01
Telur söluna á Mílu skapa aukna njósnahættu Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir sölu Símans á Mílu til fransks félags skapa njósnahættu. Full ástæða sé til að óttast að erlend njósnastarfsemi muni fylgja sölunni og huga þurfi því betur að öryggismálum. 16.9.2022 06:58
Mikilvægt að stuðla að því að allir geti eignast vistvæna bifreið Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir ekki standa til að hætta að styðja við kaup á rafbílum. Markmiðin um orkuskipti til að ná markmiðum í loftslagsmálum séu afar mikilvæg. 16.9.2022 06:34
Vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna í miðbænum Karlmaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna. Maðurinn var auk þess í mjög annarlegu ástandi og taldi lögregla réttast að láta manninn gista þar til rofar til. 16.9.2022 06:33
Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra er látinn Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra er látinn 84 ára að aldri. Ragnar var formaður Alþýðubandalagsins í tæpan áratug og var Alþingismaður í tæpa þrjá áratugi. 16.9.2022 06:24
Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina, viðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn og gott fordæmi. Fyrirtækið hefur þróað náttúrulega filmu úr þörungahrati sem ætluð er fyrir grænmeti og ávexti. 15.9.2022 23:42
Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. 15.9.2022 23:22
Stíflan sem sökkti heilum dal og eyddi sjö bæjum telst afturkræf Heilum dal var sökkt og sjö sveitabæir fóru í eyði með Skeiðsfossvirkjun sem reist var til að rafvæða Siglufjörð. Stöðvarstjórinn, sem brátt lætur af störfum eftir yfir fjörutíu ára starf við virkjunina, segir að svona yrði örugglega ekki gert í dag. 15.9.2022 22:30
Átján ára stunginn á leiðinni á íþróttaæfingu Átján ára piltur var stunginn þrívegis í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík seinnipartinn í gær. Pilturinn er með þroskaskerðingu en hann var á leið á íþróttaæfingu þegar ráðist var á hann. Árásarmaðurinn reyndi að hafa af honum hjól áður en hann réðst til atlögu. 15.9.2022 22:20
Myndband sýnir Hollywood-lega tilburði innbrotsþjófsins sem seig niður um gat í loftinu Innbrotsþjófur sem lagði töluvert á sig til þess að brjótast inn í verslunina Prinsinn í Árbænum í vikunni fór tómhentur út. Eigandi verslunarinnar veltir því fyrir sér hvort að viðkomandi sé að undirbúa sig undir eitthvað stærra. 15.9.2022 21:00
Rafbílavæðing mögulega farin að skila árangri Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um þrjú prósent á milli áranna 2020 og 2021. Vegasamgöngur, fiskiskip og iðragerjun eru stærstu losunarþættirnir. Umhverfisstofnun segir að rafbílavæðingin hafi mögulega skilað árangri og bráðabirgðaniðurstöður gefi góða mynd af losun Íslands. 15.9.2022 20:20
„Leit á það sem plús í sinum kladda að velja leglausa konu til að starfa með“ Prestar í Hjallakirkju lýsa stöðugri niðurlægingu og kynbundinni áreitni af hálfu starfsbróður síns, sem áminntur verður fyrir hegðun sína. Andrúmsloftið á vinnustaðnum hafi verið óbærilegt. Framtíð prestsins innan þjóðirkjunnar er óráðin. 15.9.2022 20:00
Ríkisstjórnin bregst við mikilli þenslu með aðhaldi Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði álíka miklar og öll útgjöld ríkisins á næsta ári. Fjármálaráðherra segir fjárlög næsta árs miða að því að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins og vinna bug á verðbólgunni. 15.9.2022 19:31
Eldur kviknaði í vinnuvél í álverinu í Straumsvík Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað til fyrr í kvöld vegna elds í vinnuvél innandyra í álverinu í Straumsvík. 15.9.2022 19:17
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Prestar í Hjallakirkju lýsa stöðugri niðurlægingu og kynbundinni áreitni af hálfu starfsbróður síns, sem áminntur verður fyrir hegðun sína. Andrúmsloftið á vinnustaðnum er sagt hafa verið óbærilegt en framtíð prestsins innan þjóðkirkjunnar er enn óráðin. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 15.9.2022 18:01
Sendiherrann vakinn um miðja nótt Sendiherra Íslands í Lundúnum var vakinn við hljóðfæraleik og trommuslátt í vikunni þegar verið var að æfa fyrir útför Elísabetar II, sem fram fer á mánudaginn næstkomandi. Þúsundir manna hafa streymt til borgarinnar síðustu daga og öryggisgæsla hefur aldrei verið meiri. 15.9.2022 17:56