Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Við eigum ekki að haga okkur svona“ Starfsendurhæfingarsjóðurinn VIRK hefur ýtt úr vör nýju átaki sem snýr að því að koma í veg fyrir og varpa ljósi á kynferðislegt áreiti á vinnustöðum. Átakið hófst með myndbandi þar sem málefninu er skellt upp með húmor, það mætti segja að orðatiltækið „öllu gríni fylgir einhver alvara“ eigi við hér. 24.9.2022 12:56
Um 300 hross í Laufskálarétt í dag Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld. 24.9.2022 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá því að einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. Við ræðum við verjanda annars þeirra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi. 24.9.2022 11:33
Sérsveit hafði afskipti af einum mannanna þegar hann var tólf ára við leik Einn mannanna sem grunaður er um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi komst í kast við sérsveit ríkislögreglustjóra fyrir þrettán árum. Hann var þá tólf ára gamall og hafði verið að leik þegar sérsveit var kölluð til vegna hans. 24.9.2022 10:33
Kúabændur eru brattir með sig og kýrnar sínar Kúabændur landsins hafa náð að auka meðalframleiðslu á hverja kú um 50% á síðustu 30 árum. Á sama tíma hefur mjólkurkúm fækkað um 20% á meðan framleiðslan hefur aukist um 43%. Færri kýr þarf því til að framleiða meiri mjólk og þannig hefur bæði orðið gríðarleg hagræðing og minni losun kolefnis í greininni. 24.9.2022 09:07
Stefnir í slag um ritaraembættið: „Að óbreyttu heldur fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“ Helgi Áss Grétarsson hefur gefið kost á sér til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins. Að óbreyttu telur hann að fylgi Sjálfstæðisflokksins muni halda áfram að hnigna. Það stefnir í slag um ritaraembættið en Bryndís Haraldsdóttir sækist einnig eftir kjöri. 24.9.2022 09:02
Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. 24.9.2022 07:38
Með auknum heimildum geti lögregla fylgst með fólki sem ekkert hafi af sér gert Þingmaður segir frumvarp dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu þýða það að lögregla geti haft eftirlit með fólki sem ekki hefur brotið af sér. Lögregla hafi þegar mjög rúmar heimildir til rannsóknar og eftirlits með almennum borgurum. 23.9.2022 22:31
Varð fyrir óþægindum vegna nafnbirtingar fjölmiðils Í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í kvöld biður Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra fjölmiðla um að sýna aðgát í fréttaflutningi. 23.9.2022 22:25
Málið óvenjulegt miðað við hryðjuverkamál á Vesturlöndum Prófessor í stjórnmálafræði segir koma sér verulega á óvart að mál hafi komið upp hér á landi þar sem grunur er um að menn hafi verið að undirbúa hryðjuverk. Þá séu allar upplýsingar sem hafi komið fram mjög óvenjulegar og ekki í takt við sambærileg mál á Vesturlöndum. 23.9.2022 21:20
Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. 23.9.2022 21:06
Finnst fáránleg kenning að maðurinn tengist öfgahópum Aðstandendur eins þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að undirbúa hryðjuverk kannast alls ekki við að hann hafi aðhyllst öfgakennda hugmyndafræði eða átt í nokkrum samskiptum við erlenda pólitíska öfgahópa. Mennirnir tveir eru grunaðir um stórfellda framleiðslu á skotvopnum, meðal annars með þrívíddarprentara, og sölu á þeim. 23.9.2022 20:00
Áfram gríðarlegt álag á heilsugæslunni þó sumrinu sé að ljúka Gríðarlegt álag er á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins um þessar mundir. Mönnun er að komast í eðlilegt horf eftir sumarið en nú tekur við uppsöfnuð þörf eftir síðustu tvö ár. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir nokkra bið eftir tímum og býst við að róðurinn verði áfram þungur. 23.9.2022 19:31
Ótrúlegar tilviljanir lituðu sigur Þorláks Það var kraftaverki líkast þegar knattspyrnuliðið Þorlákur vann Boladeildina í knattspyrnu fyrr í vikunni, á afmælisdegi vinar liðsmanna sem féll fyrir eigin hendi - og liðið heitir eftir. Liðið fékk síðar að vita að sigurmarkið í hinum æsispennandi leik hefði verið skorað á nánast sömu mínútu og Þorlákur heitinn kom í heiminn á sínum tíma. 23.9.2022 19:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að lögregla hafði um langt skeið rannsakað mennina sem eru grunaðir um að undirbúa hryðjuverk vegna gruns um framleiðslu og sölu á skotvopnum. Við förum yfir atburðarás málsins en í skilaboðum milli mannanna sem eru í haldi komU fyrir orð eins og fjöldamorð samkvæmt upplýsingum fréttastofu. 23.9.2022 18:00
Réðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgaði Landsréttur hefur staðfest átján mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á heimili konu og nauðgað henni þar sem hún lá sofandi í sofa íbúðarinnar. 23.9.2022 17:01
Óþolandi refhvörf í laxeldinu Fyrirtækjunum Norðanfiski og Fisherman hefur, samkvæmt úrskurði Neytendastofu, verið bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu á vöru sinni þess efnis að um sé að ræða vistvæna framleiðslu. Þau geti ekki sýnt fram á neitt slíkt. 23.9.2022 16:24
Stóralvarlegt ef mikið vopnabúr fylgi öfgafullum skoðunum Það er eitt að hafa skoðanir en það er stóralvarlegt og getur leitt af sér mikinn skaða ef því fylgir að búið sé að safna miklu vopnabúri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, aðspurð um hvort að hún hafi áhyggjur af því að öfgafullar skoðanir og viðhorf hafi hreiðrað um sig hér á landi. 23.9.2022 16:09
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. 23.9.2022 15:33
Þorsteinn metinn hæfastur umsækjenda um stöður héraðsdómara Dómnefnd hefur metið Þorstein Magnússon, lögmann og framkvæmdastjóra óbyggðanefndar, hæfastan umsækjenda um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness annars vegar og Héraðsdóm Reykjavíkur hins vegar. 23.9.2022 14:58
Misvægi atkvæða eftir búsetu gangi ekki árið 2022 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, vill gera vægi atkvæða milli kjördæma eins jafnt og stjórnarskrá heimilar. Það gangi ekki árið 2022 að vægi atkvæðis fari eftir því hvar viðkomandi búi á landinu. 23.9.2022 14:34
Dæmdur fyrir að valda höfuðkúpubroti við skemmtistað Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa veist að og hrint manni fyrir utan skemmtistað í nóvember 2018 með þeim afleiðingum að maðurinn skall með hnakka í götuna og höfuðkúpubrotnaði. 23.9.2022 13:45
Sigurður Ingi braut engar siðareglur að sögn forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi engar siðareglur brotið þegar hann lét umdeild ummæli falla um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. 23.9.2022 13:44
Allt að tveggja ára fangelsi fyrir ölvunarakstur á rafmagnshlaupahjóli Innviðaráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingu á umferðarlögum er varða reiðhjól. Samkvæmt frumvarpinu bætast rafmagnshlaupahjól við lögin. Allt að tveggja ára fangelsi mun liggja við akstri hjólanna undir áhrifum áfengis. 23.9.2022 12:51
Frumvarp Jóns ekki tengt meintri hryðjuverkatilraun Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að til skoðunar sé að auka viðbúnað hjá lögreglu. Bregðast þurfi við aukinni skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi. 23.9.2022 12:24
Segir Unni ekki vita upp á hár hvað fatlað fólk gangi í gegnum Freyja Haraldsdóttir, baráttukona og fyrrverandi varaþingmaður, segir leikstjóra verksins Sem á himni ekki vita upp á hár hvað fatlað fólk gangi í gegnum, þrátt fyrir að eiga fatlað barn. Hún vonast eftir því að aðstandendur sýningarinnar axli ábyrgð á langþreyttri birtingarmynd fötlunar. 23.9.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Hryðjuverkaógnin, viðbrögð ráðherra og öfgahyggja á Íslandi verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 23.9.2022 11:42
Skelfilegt ef ráðast átti á lögreglumenn og maka í frítíma þeirra Formaður Landssambands lögreglumanna segir það vera skelfilegt að hugsa til þess að mennirnir sem grunaðir eru um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverkaárás hafi mögulega ætlað að ráðast á lögreglumenn og maka þeirra í frítíma þeirra. Hann segir skipulagninguna vera árás á þjóðfélagsgerð Íslendinga. 23.9.2022 10:39
Vaktin: Sagðir hafa rætt um að fremja fjöldamorð Rannsókn lögreglu vegna gruns um að einstaklingar sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum í vikunni, hafi verið með hryðjuverk í bígerð heldur áfram. Vísir fylgist með vendingum dagsins í málinu í Vaktinni hér að neðan. 23.9.2022 10:16
Lögregluaðgerðin í kastljósi erlendra fjölmiðla Erlendir fjölmiðlar á borð við CNN og The Guardian hafa fjallað um aðgerðir lögreglu hér á landi í vikunni þar sem fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft í hyggju að fremja hryðjuverk hér á landi. 23.9.2022 09:59
Bæði mest notuðu fíkniefni á Íslandi og gífurlega hjálpleg lyf Haraldur Erlendsson geðlæknir sem hefur fengist við ADHD-greiningar í á þriðja áratug segir að ADHD sé sennilega dýrasti sjúkdómur mannkynsins. Hann telur að hátt í 15% þjóðarinnar séu haldin sjúkdómnum, þótt aðeins 5% séu með greiningu. Lyf geti skipt sköpum þótt það þekkist að þau séu misnotuð. 23.9.2022 09:02
Tveir handteknir vegna líkamsárásar á veitingahúsi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo menn vegna líkamsárásar á veitingahúsi í hverfi 108 í Reykjavík. 23.9.2022 07:41
Eru sagðir hafa sýnt árshátíð lögreglumanna sérstakan áhuga Árásir sem lögregla telur sig hafa komið í veg fyrir þegar fjórir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum á þriðjudag, voru taldar yfirvofandi á næstu dögum. 23.9.2022 06:45
Fjölga þurfi dómurum Skrifstofustjóri Landsréttar segir að fjölga þurfi dómurum til að stytta bið fólks í að mál þeirra komi á dagskrá. Biðtíminn er rúmt ár. Dómsmálaráðherra er með málið til skoðunar. 23.9.2022 06:33
Norðurvígi segist ekki tengjast handtökunum Nýnasistasamtökin Norðurvígi sem einnig eru þekkt sem Norræna mótstöðuhreyfingin hefur neitað því að tengjast öfgahópum og það sé ekki fólk innan samtakanna sem ætli sér að fremja hryðjuverk. 22.9.2022 23:44
Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar. 22.9.2022 22:22
„Við höfum meira og minna verið laus við þessar hreyfingar“ Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur segist brugðið eftir fréttir af því að lögreglan hafi lagt hald á mikið magn vopna og byssuskota í gær og mögulega komið í veg fyrir hryðjuverkaárás. Enn sé þó tiltölulega lítið vitað um málið og best sé að halda ró sinni. 22.9.2022 22:01
Rölt um „ómanneskjulega hönnun“ nýja Orkuhússins „Hönnunarslys“, jafnvel „ómanneskjuleg hönnun“ segja bíllausir um nýja Orkuhúsið í Urðarhvarfi. Þeir kvarta yfir hörmulegu aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. 22.9.2022 21:00
Íslenskar konur mæta einna verst allra á Norðurlöndum í brjóstakrabbameinsskimun Konur hér á landi standa sig einna verst allra kvenna á Norðurlöndunum í að mæta í skimun fyrir brjóstakrabbameini. Yfirlæknir segir mikilvægt að skoða hvort traust kvenna sé horfið eftir að alvarleg mistök urðu við greiningu leghálssýna. 22.9.2022 20:00
Krefst þess ekki að „allir hafi upplifað allt sem þeir segja á sviðinu“ Sviðshöfundur með fötlun telur að sleppa hefði átt umdeildri persónu í nýjasta stórsöngleik Þjóðleikhússins. Þá sé leikaravalið ekki stóra málið, heldur hvernig fatlað fólk sé ítrekað smættað niður í staðalímyndir. 22.9.2022 20:00
„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“ Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan. 22.9.2022 19:34
Lögreglumenn slegnir: „Við viljum öll komast lifandi heim úr vinnunni“ Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að lögreglumenn væru slegnir yfir fregnum síðustu daga. Þeir væru slegnir yfir því að þurfa að óttast um líf sín í vinnunni. 22.9.2022 19:32
Ætla ekki að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að ekki standi til að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar í tengslum við handtökurnar í gær. Aðgerðir sérsveitar ríkislögreglustjóra hafi verið vel heppnaðar og að gripið hafi verið inn í, áður en eitthvað gerðist. 22.9.2022 19:04
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö verður nánar sagt frá því að fjórir menn á þrítugsaldri eru nú grunaðir um að hafa verið að undirbúa hryðjuverk hér á landi gagnvart almennum borgurum, Alþingi og fleiri stofnunum. Tveir þeirra hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. 22.9.2022 18:08
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. 22.9.2022 18:01