Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kórónuveirutilfellum á heimsvísu aldrei fjölgað meira Tilfellum kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur aldrei fjölgað meira á heimsvísu en síðasta sólarhringinn, samkvæmt upplýsingum frá WHO. 6.7.2020 06:35
Öfgahægrimenn létu glepjast af gabbi á þjóðhátíðardaginn Hópar vopnaðra öfgahægrimanna söfnuðust saman á söguslóðum við Gettysburg í Bandaríkjunum á þjóðhátíðardaginn í gær vegna orðróma um að svonefndir andfasistar ætluðu sér að brenna bandaríska fána þar. Þar gripu þeir þó í tómt því fánabrennan virðist hafa verið samfélagsmiðlagabb. 5.7.2020 23:53
Mögulegt framboð Kanye ætti strax undir högg að sækja Ólíklegt er að tónlistarmanninum Kanye West tækist að komast á kjörseðilinn í Bandaríkjunum í haust jafnvel þó að honum sé alvara með því að bjóða sig fram til forseta. Framboðsfrestur fyrir óháða frambjóðendur er þegar liðinn í nokkrum ríkjum. 5.7.2020 22:45
Töluverðar skemmdir urðu í kjarnorkustöð Írana Írönsk yfirvöld viðurkenna að verulegar skemmdir hafi orðið á kjarnorkustöð þeirra í Natanz þegar eldur braust út þar á fimmtudag. Eldurinn er meðal annars sagður hafa valdið skemmdum á nýrri skilvindu sem var í smíðum þar. 5.7.2020 22:41
Vara við því að kórónuveiran geti borist með lofti Hundruð vísindamanna vara við því að vísbendingar séu um að nýtt afbrigði kórónuveiru geti borist með lofti og smitað fólk í opnu bréfi sem þeir hafa skrifað Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. 5.7.2020 20:45
Mótmælandi sem ekið var á í Seattle látinn Kona á þrítugsaldri sem stóð í hópi mótmælenda þegar ökumaður ók bíl sínum á fólkið í Seattle í Bandaríkjunum er látin af sárum sínum. Annar mótmælandi liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahúss. Ökumaðurinn er í haldi lögreglunnar. 5.7.2020 19:43
Bækur lýðræðissinna fjarlægðar í Hong Kong Kínversk yfirvöld hafa fjarlægt bækur eftir þekkta lýðræðissinna í Hong Kong til að fara yfir hvort að efni þeirra samræmist nýjum og umdeildum öryggislögum sem tóku gildi í síðustu viku. Bækurnar eru ekki lengur aðgengilegar á bókasöfnum borgríkisins. 5.7.2020 18:26
Frekari lokanir á norðanverðum Spáni vegna faraldursins Yfirvöld í Galisíu á Norðvestur-Spáni hafi komið aftur á takmörkunum til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins á svæði þar sem um 70.000 manns búa vegna þess að smitum hefur farið fjölgandi þar. Útgöngubann tók aftur gildi í hluta Katalóníu af sömu ástæðu í gær. 5.7.2020 17:39
„Ölvaðir fylgja ekki fjarlægðarreglum“ „Ölvaðir einstaklingar geta ekki haldið fjarlægðarreglum,“ segir formaður stéttarfélags bresku lögreglunnar eftir að knæpur landsins voru opnaðar að nýju eftir langa lokun vegna heimsfaraldursins. 5.7.2020 16:01
Dýragarðsvörður lést eftir árás tígrisdýrs Dýragarðsvörður í svissnesku borginni Zürich lést í dag eftir að hafa orðið fyrir árás fullvaxta tígrisdýrs. 5.7.2020 14:07
Fyrsta smitið greint í Færeyjum frá því í apríl Kórónuveiran er aftur komin á stjá í Færeyjum eftir langt hlé. Ferðalangur sem kom þangað í gær með flugi greindist með smit eftir að hafa farið í skimun á flugvellinum í Vágum. Gengið er út frá því að um gamalt smit sé að ræða 5.7.2020 11:59
Trump heldur því fram að 99 prósent kórónuveirusmita séu „algjörlega skaðlaus“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram að 99 prósent kórónuveirusmita í Bandaríkjunum væru skaðlaus, í ávarpi þar sem hann fagnaði þjóðhátíðaradegi Bandaríkjanna í gær, 4. júlí. 5.7.2020 09:16
Kanye West segist ætla að bjóða sig fram til forseta Svo virðist sem að bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West hafi í hyggju að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tísti frá West. 5.7.2020 08:05
Rasískir undirtónar Trump skjóta repúblikönum skelk í bringu Frammámenn í Repúblikanaflokknum er sagðir óttast um afdrif flokksins í kosningum í haust vegna þess hversu hart Donald Trump forseti gengur nú fram í að ala á kynþáttaóróa í landinu. 4.7.2020 23:27
Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4.7.2020 21:28
Malaríu- og HIV-lyf drógu ekki úr dánartíðni Covid-sjúklinga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur stöðvað tilraunir með malaríu- og HIV-lyf eftir að þau reyndust ekki bæta lífslíkur Covid-19-sjúklinga á sjúkrahúsum. Nýtt met yfir fjölda nýrra kórónuveirusmita á heimsvísu var sett í dag. 4.7.2020 20:16
Faðir Johnson ver umdeilda Grikklandsför sína Stanley Johnson, faðir forsætisráðherra Bretlands, segist vera í viðskiptaferð í Grikklandi og að myndum sem hann birti af ferðalaginu hafi ekki verið ætlað að gera lítið úr tilmælum breskra stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins. 4.7.2020 18:08
Útgöngubanni komið á í hluta Katalóníu vegna uppgangs veirunnar Yfirvöld hafa hert aftur á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í hluta Katalóníu eftir að nýjum smitum fjölgaði á nýjan leik. Íbúum svæðisins er bannað að yfirgefa það en þurfa ekki að halda sig heima eins og í upphaflega útgöngubanninu. 4.7.2020 17:36
Engin áform um að ræða við Washington Norður-kóresk yfirvöld hafa áréttað að engin áform sé uppi um að hefja viðræður um kjarnorkuvopnamál við yfirvöld í Washington. Ekki nema að Bandaríkjastjórn láti af því sem kallað eru fjandsamlegum stefnum í málefnum Norður-Kóreu. 4.7.2020 15:54
Flóð talin hafa kostað fimmtán lífið í Japan Óttast er að fimmtán séu látnir á japönsku eyjunni Kyushu eftir miklar rigningar og flóð sem valdið hafa aurskriðum og miklu tjóni. 4.7.2020 15:08
Vinkona Maxwell segir að Ghislaine muni ekkert gefa upp um Andrés Andrés Bretaprins þarf engar áhyggjur að hafa af Ghislaine Maxwell hafi vinkona hennar, fjárfestirinn fyrrverandi Laura Goldman, rétt fyrir sér en hún segir að Maxwell myndi aldrei segja yfirvöldum neitt um samband prinsins við Jeffrey Epstein. 4.7.2020 14:15
„Endalaus stórskotahríð haturs“ í „vinalegasta heimabæ Flórída“ Ímynd The Villages, samfélagi eldri borgara norðvestur af Flórída í Bandaríkjunum, sem „vinalegasti heimabær Flórída“ er brátt að hverfa eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, endurtísti tísti þar sem sjá mátti eldri stuðningsmann hans kalla fullum hálsi „hvít vald“ (e. White Power) við heimili eldri borgara í The Villages. 4.7.2020 11:05
Tengdadóttir Bandaríkjaforseta smituð af kórónuveirunni Fyrrverandi fjölmiðlakonan Kimberly Guilfoyle hefur greinst smituð af kórónuveirunni en hún er kærasta Donalds Trump yngri, elsta sonar Bandaríkjaforseta. Guilfoyle hefur starfað innan forsetaframboðs Trump fyrir kosningarnar sem haldnar verða í nóvember. 4.7.2020 11:04
Trump kvartaði undan útilokunarmenningunni Donald Trump, forseti Bandaríkjanna varaði Bandaríkjamenn við „öfgakenndun-vinstrifasisma“ í ávarpi í gær sem fjölmiðlar ytra hafa lýst sem myrku. Þá kvartaði hann undan útilokunarmenningu þeirra sem vilja rífa niður styttur og minnismerki. 4.7.2020 08:02
Bolsonaro vildi ekki samþykkja grímuskyldu í verslunum og skólum Forseti Brasilíu, Jair Bolsonaro, sem hefur gefið lítið fyrir sóttvarnir vegna kórónuveirufaraldursins hefur nú samþykkt lög sem gera það að skyldu að klæðast andlitsgrímu. 3.7.2020 23:18
Vél Ryanair þurfti að nauðlenda á Grikklandi Flugvél Ryanair sem var á leiðinni frá Berlín til Aþenu þurfti að nauðlenda á flugvellinum í Thessaloniki í kvöld með 164 manns um borð. 3.7.2020 21:36
Hong Kong gæti orðið eins og hver önnur kínversk borg Ef fram heldur sem horfir er útlit fyrir að Hong Kong verði eins og hver önnur kínversk borg. Vesturlönd og margir íbúar borgarinnar hafa brugðist illa við nýrri öryggislöggjöf sem tryggir frekari yfirráð stjórnvalda í Kína yfir þessu sjálfsstjórnarsvæði. 3.7.2020 20:00
Gekk vopnaður í kringum heimili Trudeau-fjölskyldunnar í þrettán mínútur Kanadíska lögreglan segir að vopnaður maður sem braust inn um hliðið sem liggur að heimili kanadíska forsætisráðherrans hafi valsað vopnaður um svæðið í þrettán mínútur áður en að lögregla kom augum á hann. 3.7.2020 19:30
Pútín segir Rússa hafa greitt atkvæði „með hjartanu“ Stjórnarskrárbreytingar sem gera Vladímír Pútín forseta kleift að sitja á forsetastóli í allt að sextán ár í viðbót taka gildi strax á morgun. 3.7.2020 15:59
Rekja slys í íranskri kjarnorkustöð til mögulegs tölvuinnbrots Írönsk yfirvöld ýja að því að slys sem varð í neðanjarðarstöð þar sem úran er auðgað í gær megi rekja til tölvuinnbrots. Almannavarnir landsins segir að Íran muni ná sér niður á ríkjum sem reyna að brjótast inn í tölvukerfi auðgunarstöðva. 3.7.2020 15:24
Ferðalangar frá Íslandi til Englands þurfa ekki að fara í sóttkví Ísland er meðal þeirra landa sem ferðast má frá til Englands, án þess að þurfa að sæta 14 daga sóttkví, frá og með 10. júlí. Þetta tilkynntu bresk stjórnvöld í dag. 3.7.2020 14:51
Hryðjuverkalögum Duterte sagt beint gegn andstæðingum hans Stjórnarandstæðingar á Filippseyjum segja að ný hryðjuverkalög sem Rodrigo Duterte forseti staðfesti í dag verði notuð sem vopn gegn pólitískum andstæðingum hans og til þess að kæfa tjáningarfrelsi í landinu. Með lögunum geta stjórnvöld skilgreind einstaklinga sem hryðjuverkamenn og haldið þeim í allt að 24 daga án ákæru. 3.7.2020 14:12
Macron skipar borgarstjóra úr Pýreneafjöllum forsætisráðherra Borgarstjóri úr Pýreneafjöllum sem hefur stýrt aðgerðum við afléttingu takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins var skipaður forsætisráðherra Frakklands í morgun. 3.7.2020 13:31
Harðlínumaður settur yfir öryggismál í Hong Kong Kínversk stjórnvöld hafa skipað harðlínumann yfir nýja öryggisstofnun fyrir Hong Kong á grundvelli umdeildra öryggislaga. Hann átti meðal annars þátt í að bæla niður mótmæli gegn spillingu í Guangdong-héraði árið 2011. 3.7.2020 11:04
Samverkamaður Epstein flutti boðskap sinn í Hörpu Meðal ræðumanna á Hringborði Norðurslóða í Hörpu árið 2013 var Ghislaine Maxwell, sem var ákærð í gær vegna gruns um aðild að mansali. 3.7.2020 10:45
Hefja réttarhöld vegna morðsins á Khashoggi í Tyrklandi Tuttugu Sádar eru ákærðir í réttarhöldum vegna morðsins á Jamal Khashoggi sem hófst í Tyrklandi í dag. Tveir nánir aðstoðarmenn Mohammeds bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, eru á meðal sakborninganna en enginn þeirra er viðstaddur réttarhöldin. 3.7.2020 10:24
Farþegar frá yfir 50 löndum sleppa við sóttkví í Bretlandi Farþegar sem ferðast til Bretlands frá yfir fimmtíu löndum, þar með talin Frakkland, Spánn, Þýskaland og Ítalía, munu ekki þurfa að sæta sóttkví við komuna til landsins frá og með 10. júlí. 3.7.2020 09:07
Ríkisstjórn Frakklands hættir Franska forsetahöllin greindi frá því í morgun að Edouard Philippe, forsætisráðherra landsins, hefði sagt starfi sínu lausu - rétt eins og aðrir ráðherrar landsins. 3.7.2020 08:17
Átta hundruð handtekin í háleynilegri lögreglurannsókn í Evrópu Á meðal þeirra átta hundruð sem handtekin voru í aðgerðinni voru nokkrir höfuðpaurar og leiðtogar glæpagengja sem lögreglan hafði um langt skeið reynt að góma. Þá voru tveir lögreglufulltrúar á meðal hinna handteknu. Flest hinna handteknu höfðu aðsetur í Bretlandi. 3.7.2020 07:46
Japanskir næturgöltrarar sýkjast í tugavís Annan daginn í röð greindust á annað hundrað kórónuveirusmit í Tókýó, höfuðborg Japans, sem er sagt valda þarlendum heilbrigðisyfirvöldum áhyggjum. 3.7.2020 06:17
Á hreyfingu í 51 mínútu og fjögur ósvöruð símtöl Farsími Anne-Elisabeth Hagen mældist á hreyfingu í 51 mínútu eftir að hún sleit símtali við son sinn að morgni 31. október 2018. 2.7.2020 23:30
Smit á uppleið í 37 ríkjum Bandaríkjanna Nýjum kórónuveirusmitum fer fjölgandi í 37 af 50 ríkjum Bandaríkjanna síðustu tvær vikurnar, miðað við fjórtán daga tímabil snemma í júní, að því er greining Reuters leiðir í ljós. 2.7.2020 22:50
Maxwell ákærð fyrir aðild sína að mansalshring Epstein Ghislaine Maxwell, sem sökuð hefur verið um að vera samverkakona auðkýfingsins Jeffrey Epstein hefur verið ákærð fyrir að hafa aðstoðað Epstein í því að misnota ungar stúlkur undir lögaldri. 2.7.2020 21:02
Síðasti breski ríkisstjóri Hong Kong líkir stöðunni við 1984 Kínverjar sögðust í dag afar ósáttir við gagnrýni annarra ríkja á ný öryggislög í Hong Kong. Bandaríska þingið samþykkti viðskiptaþvinganir og Bretar ætla að bjóða milljónum íbúa Hong Kong dvalarleyfi. 2.7.2020 19:00
Ræða möguleikann á útlagaþingi Hong Kong Lýðræðissinnar í Hong Kong eru sagðir íhuga að koma á fót óopinberu útlagaþingi utan borgarinnar til þess að tala máli lýðræðis og senda kínverskum stjórnvöldum skilaboðum eftir að umdeild öryggislög voru samþykkt. 2.7.2020 15:39