Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leggja ekki niður vopn enn Yfirvöld í Aserbaídsjan og Armeníu hafa ekki orðið við ákalli Rússlands, Frakklands og Bandaríkjanna um vopnahlé í átökum þeirra á milli. 1.10.2020 15:20
Slökkviliðsmenn sýna gífurlega erfiðar aðstæður Slökkvilið Alamedasýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum birti í gær myndband af aðstæðunum sem slökkviliðsmenn vinna nú við í ríkinu. 1.10.2020 13:52
Segir Pútín hafa staðið að eiturárásinni Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstæðingurinn, sakar Vladímír Pútín, forseta Rússlands, um að hafa staðið að baki því að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu novichok í ágúst. 1.10.2020 12:39
Trump-liðar ósáttir við áætlaðar breytingar á kappræðum Í kappræðunum gekk Trump fram af mikilli hörku og hunsaði margar þeirra reglna sem hann hafði samþykkt að fara eftir. Þær snúa meðal annars að framíköllum og tímalengd ummæla. 1.10.2020 12:39
Hafa áhyggjur af sýrlenskum málaliðum í nágrannaerjum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur áhyggjur af því að tyrknesk stjórnvöld sendi nú sýrlenska málaliða til að leggja Aserum lið í átökum þeirra við nágranna sína Armena um fjallahéraðið Nagorno-Karabakh. Tyrkir styðja Asera í átökunum en neita því að hafa sent erlenda málaliða þangað. 1.10.2020 11:59
ESB í hart við Breta Forsvarsmenn Evrópusambandsins hófu í morgun ákveðið lagaferli gegn Bretlandi eftir að ríkisstjórn Boris Johnson neitaði að láta af áætlunum sem fara gegn úrgöngusamkomulagi ESB og Bretlands. 1.10.2020 10:25
Deilur milli ríkis og höfuðborgar á Spáni Höfuðborgin Madríd og níu aðliggjandi borgir og bæir hafa fengið fyrirskipun um að grípa til harðra aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar en hún er í mikilli útbreiðslu á þessu svæði um þessar mundir. 1.10.2020 09:09
Bandaríkin: Fyrstu kappræðurnar vöktu mikla athygli Fyrstu kappræður forsetakosninga Bandaríkjanna fóru fram aðfaranótt miðvikudagsins. Þar mættust þeir Donald Trump, forseti, og Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, á sviði í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að úrkoman hafi verið sérstök. 1.10.2020 09:07
Japanski „Twitter-morðinginn“ játar að hafa myrt níu manns Takahiro Shiraishi var handtekinn árið 2017 eftir að líkamshlutar fundust í íbúð hans í borginni Zama, ekki langt frá Tókýó. Hefur hann í japönskum fjölmiðlum verið kallaður „Twitter-morðinginn“. 1.10.2020 08:19
Telja að gen frá neanderdalsmanninum auki líkurnar á að veikjast alvarlega af Covid-19 Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að gen sem nútímamaðurinn erfði frá neanderdalsmanninum geti þrefaldað líkurnar á því að fólk veikist alvarlega af sjúkdómnum Covid-19. 1.10.2020 08:04
Hafna beiðni Pompeo að fá áheyrn hjá páfa Páfagarður í Róm hefur hafnað beiðni frá Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess efnis að hann fái áheyrn hjá páfa. 1.10.2020 07:12
Bjóðast til að miðla málum í deilum Asera og Armena Rússar hafa boðist til að miðla málum í mögulegum friðarviðræðum Armena og Asera um héraðið Nagorno-Karabakh. 1.10.2020 07:06
Skipuleggjendurnir lofa minni óreiðu næst Skipuleggjendur kappræðnanna fyrir bandarísku forsetakosningarnar hafa heitið því að breyta skipulagi þeirra svo koma megi í veg fyrir stöðug frammígrip, líkt og gerðist ótt og títt í fyrstu kappræðum kosningabaráttunnar í nótt. 30.9.2020 23:00
Nýr emír sór embættiseið í Kúveit Búið er að lýsa yfir fjörutíu daga þjóðarsorg í Kúveit vegna fráfalls emírsins. 30.9.2020 13:54
Ná saman um nýja stjórn um 500 dögum eftir kosningar Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar sjö flokka stjórnar í Belgíu, nærri fimm hundruð dögum eða sextán mánuðum eftir að þingkosningar fóru fram í landinu. 30.9.2020 10:37
„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér. 30.9.2020 09:25
Sýknaðir vegna eyðileggingar Babri-moskunnar í Ayodhya Dómstóll í Indlandi hefur sýknað leiðtoga úr röðum stjórnarflokksins BJP af ákæru um að hafa átt þátt í eyðileggingu Babri-moskunnar í bænum Ayodhya árið 1992. Um tvö þúsund manns dóu í átökum í kjölfar eyðileggingarinnar. 30.9.2020 08:39
Tíu þúsund nú látnir af völdum Covid-19 í Belgíu Dauðsföllum hefur farið fjölgandi í landinu síðasta mánuðinn en fólk á öldrunarheimilum landsins hefur farið sérstaklega illa út úr faraldrinum. 30.9.2020 08:12
Framíköll, óreiða og deilur einkenndu kappræðurnar Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum. 30.9.2020 07:30
Fyrstu kappræður Trumps og Bidens Í nótt fara fram fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. 29.9.2020 23:31
Telur að dómurinn geti ekki horft fram hjá vitnisburði um galla byssunnar Bjørn Andre Gulstad, verjandi Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, telur að rannsókn vopnasérfræðinga norsku rannsóknarlögreglunnar á skotvopninu sem varð Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður Gunnars, að bana í Mehamn í Noregi í apríl í fyrra, verði til þess að Gunnar verði sýknaður af ýtrustu kröfu ákæruvaldsins í málinu. 29.9.2020 22:01
Vildi skoða hvort fýsilegt væri að senda hælisleitendur fimm þúsund kílómetra í burtu Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, lét embættismenn sína skoða möguleikann á því að láta byggja móttökustöð fyrir hælisleitendur og farendur á tveimur eyjum í Suður-Atlantshafi, um fimm þúsund kílómetrum frá Bretlandi. 29.9.2020 21:14
Ólíklegt að kappræðurnar í nótt skipti verulegu máli Mikill meirihluti kjósenda í Bandaríkjunum segist ætla að horfa en sérfræðingar og greinendur eru sammála um að kappræðurnar muni í raun litlu breyta. Nema Trump eða Biden misstígi sig verulega. 29.9.2020 21:01
Héraðsforsetinn settur af og Spánverjar sakaðir um mannréttindabrot Utanríkismálastjóri Katalóníuhéraðs segir yfirvöld á Spáni brjóta gegn tjáningarfrelsinu. Forseti héraðsstjórnar Katalóníu var settur af með dómi hæstaréttar landsins í gær. 29.9.2020 18:30
Unglæknar krefjast endurbóta Unglæknar í Barcelona fjölmenntu á götum borgarinnar í dag. Þar mótmæltu hundruð lækna vinnuaðstöðu þeirra, álagi og kjörum á meðan þau berjast við aðra bylgju nýju kórónuveirunnar sem herjar nú á Spánverja. 29.9.2020 16:12
Boða frelsun höfrunganna og loka minkabúum Á innan við fimm árum verður búið að innleiða víðtæktbann sem gerir sædýragörðum óheimilt að halda höfrunga og háhyrninga, minkabú verða ólögleg og þá verður óheimilt að hafa villt dýr með í för fjölleikahópa. 29.9.2020 15:37
Emírinn í Kúveit er látinn Emírinn í Kúveit, Sheikh Sabah al-Ahmad al-Sabah, er látinn, 91 árs að aldri. 29.9.2020 14:25
Dómaraefni Trump tilheyrir trúarhópi sem er sagður kúga konur Amy Coney Barrett, áfrýjunardómari sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilnefndi til hæstaréttar um helgina, er sögð tilheyra kristnum trúarhópi sem fyrrverandi félagar fullyrða að kenni að konur verði að vera undirgefnar eiginmönnum sínum. 29.9.2020 11:38
Krefst þess að Gunnar verði dæmdur í þrettán ára fangelsi Málflutningi lauk í héraðsdómi Austur-Finnmerkur í morgun 29.9.2020 11:24
Dómsdagsspár vegna Afríku og Covid-19 rættust ekki Vísindamenn velta nú vöngum yfir því af hverju Afríka virðist hafa sloppið svo vel frá heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. 29.9.2020 09:59
Fyrrverandi ráðherra hafnar kafbátskenningu Fyrrverandi varnarmálaráðherra Svíþjóðar hefur hafnað þeirri kenningu eistnesks saksóknara og rannsakanda að orsök þess að ferjan Estonia hafi sokkið, óveðursnóttina 1994, hafi verið árekstur við sænskan kafbát. 29.9.2020 08:01
Koma saman til að ræða deilu Asera og Armena Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman í dag til að ræða deilu Asera og Armena en átök hafa blossað upp enn á ný í héraðinu Nagorno Karabakh og liggja tugir eða hundruð í valnum. 29.9.2020 07:06
Skráð dauðsföll vegna Covid-19 komin yfir eina milljón Tala látinna í kórónuveirufaraldrinum sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu mánuði er nú komin yfir eina milljón. 29.9.2020 06:37
„Við gerum okkar besta, en veiran stendur sig betur“ Hollendingar búa sig nú undir hertari aðgerðir vegna útbreiðslu veirunnar þar í landi. Íbúar í þremur stærstu borgum landsins þurfa frá og með deginum í dag að bera grímur í verslunum svo dæmi séu tekin. 28.9.2020 23:36
Skattamál Trump þjóðaröryggismál að mati Pelosi Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og æðsti kjörni fulltrúi Demókrata á landsvísu segir að skattamál Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, varði þjóðaröryggi Bandaríkjanna. 28.9.2020 22:25
Vann stórsigur í kosningum tveimur vikum eftir andlát sitt Ion Aliman hlaut 64% atkvæða í bæjarstjórnarkosningum í Deveselu í Rúmeníu, tveimur vikum eftir að hann lést. 28.9.2020 21:11
Sakar Svía um lygar og telur líklegt að Estonia hafi sokkið eftir árekstur við kafbát Magnus Kurm, fyrrverandi saksóknari í Eistlandi og maðurinn sem leiddi seinni rannsókn eisneskra yfirvalda á Estonia-sjóslysinu sakar Svía um að hafa logið að Eistum við rannsóknina á því hvað orsakaði sjóslysið mannskæða. Hann telur líklegt að árekstur við kafbát hafi orsakað það að Estonia sökk í óveðri aðfaranótt 28. september árið 1994. 28.9.2020 21:01
Framkvæmdastjórn ESB hvetur til vopnahlés Armena og Asera Tugir hafa farist í átökum Armena og Asera í Nagorno-Karabakk í dag og í gær. Evrópusambandið segir brýnt að koma í veg fyrir að stríð brjótist út. 28.9.2020 20:08
Skjótvirkari og ódýrari veirupróf fara senn í dreifingu Nýtt og háþróað kórónuveirupróf sem gefur niðurstöðu á innan við þrjátíu mínútum mun senn komast í dreifingu um heiminn. 28.9.2020 17:21
Halda aftur flotaæfingar í Suður-Kínahafi og víðar Yfirvöld Kína halda nú fimm mismunandi flotaæfingar á hafsvæðum í Austur-Asíu. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem herinn heldur svo umfangsmiklar æfingar og á sama tíma er spenna að aukast mikið á svæðinu. 28.9.2020 16:41
Vilja fá tönn sem Attenborough gaf prinsinum aftur Yfirvöld á Möltu munu mögulega krefjast þess að beingervingi hákarlatannar verði skilað til landsins. Hinn víðfrægi David Attenborough gaf Georg prinsi tönnina en hann fann hana í fríi á Möltu fyrir rúmum fimmtíu árum. 28.9.2020 15:01
„Mógúllinn“ sem tapar og tapar Það að forsetinn hafi einungis greitt 750 dali í alríkistekjuskatt árið sem hann bauð sig fram til forseta, 2016, og hann hafi engan skatt greitt tíu af síðustu fimmtán árum gæti komið niður á stöðu hans meðal verkafólks í Bandaríkjunum. 28.9.2020 12:57
Fyrrverandi kosningastjóri Trump hótaði að skaða sig Brad Parscale, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, var lagður inn á sjúkrahús í gær eftir að hann hótaði því að skaða sjálfan sig. 28.9.2020 11:01
Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. 28.9.2020 10:21
Segja nýuppgötvað gat á síðu skrokks Estonia varpa nýju ljósi á harmleikinn Sænskir heimildargerðarmenn hafa fundið fjögurra metra langt gat í síðu ferjunnar Estonia sem hvílir nú á hafsbotni í Eystrasalti eftir að hafa sokkið í óveðri aðfaranótt 28. september árið 1994. Alls fórust 852 manns þegar skipið sökk. 28.9.2020 08:42