Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn tapar Trump máli um skattskýrslur sínar Áfrýjunardómstóll í New York kvað upp úr um það í dag að endurskoðendum Donald Trump Bandaríkjaforseta beri að afhenda ríkissaksóknurum þar skattskýrslur hans. Líklegt er talið að deilan um skattskýrslur forsetans rati öðru sinni fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna. 7.10.2020 16:23
Trump stöðvar viðræður um neyðarpakka en skiptir fljótt um skoðun Hlutabréfavísitölur vestanhafs hafa tekið kipp upp á við í dag í kjölfar þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virtist snúast hugur varðandi viðræður um opinbera innspýtingu í hagkerfi Bandaríkjanna, svokallaðan neyðarpakka. 7.10.2020 16:21
Bannar áfengissölu inni á veitingastöðum og knæpum næstu tvær vikurnar Nicola Sturgeon, leiðtogi skosku heimastjórnarinnar, hefur svo gott sem bannað áfengissölu á öldurhúsum Skotlands til að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar. Bannið tekur gildi næsta föstudag og mun gilda til 25. október. Bannið gildir um alla veitingastaði, knæpur og kaffihús. 7.10.2020 15:35
Skutu hljóðfrárri eldflaug á tíu þúsund kílómetra hraða Rússneskir hermenn og vísindamenn gerðu í gær tilraun með hljóðfráa eldflaug af gerðinni Tsirkon. 7.10.2020 13:27
Forsætisráðherrann hættur og ringulreiðin mikil Forsætisráðherra Mið-Asíuríkisins Kirgistans hefur látið af embætti í kjölfar mikilla mótmæla í landinu sem blossuðu upp eftir umdeildar þingkosningar í landinu. 7.10.2020 13:06
Réttað yfir Rússa sem er talinn hafa myrt fyrir rússneska ríkið Réttarhöld yfir rússneskum manni sem er ákærður fyrir að myrða fyrrverandi uppreisnarmann í Téténíu að skipan stjórnvalda í Kreml hófust í Berlín í dag. 7.10.2020 13:05
Delta hefur náð landi í Mexíkó Fellibylurinn Delta hefur náð landi í Mexíkó og þá sem annars stigs fellibylur með um 50 m/meðalvindhraða. 7.10.2020 12:43
Evrópuþingið samþykkti metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Markmið Evrópusambandsins verður að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 60% árið 2030 borið saman við árið 1990 og losunarmarkmið verða lagalega bindnandi samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Evrópuþinginu í gær. 7.10.2020 11:42
Grískur nýnasistaflokkur talinn glæpasamtök Áfrýjunardómstóll í Grikklandi komst að þeirri niðurstöðu að sjö leiðtogar nýnasíska hægriöfgaflokksins Gullinnar dögunar hafi rekið glæpasamtök í dag. Flokkurinn er sá þriðji stærsti á gríska þinginu. 7.10.2020 10:59
Nóbelinn í efnafræði fyrir framfarir í erfðatækni Þær Emmanuelle Charpentier og Jennifer Doudna hluti Nóbelsverðlaun í efnafræði í morgun fyrir að þróa aðferð til þess að breyta erfðamengi sem hefur verið kennd við CRISPR/Cas9. Tæknin er sögð byltingarkennd fyrir lífvísindi. 7.10.2020 10:28
Fyrrverandi yfirmaður CIA sakar yfirmann leyniþjónustustofnana um að ganga erinda Trump John Brennan, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hefur gagnrýnt John Ratcliffe, núverandi yfirmann leyniþjónustustofnanna Bandaríkjanna, harðlega og segir hann hafa opinberað sérstaklega valin skjöl í pólitískum tilgangi. 7.10.2020 09:43
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma. 7.10.2020 09:31
Segir Tyrki halda þjóðarmorðinu áfram Aðgerðir Tyrkja og Asera í deilunni við Armena um héraðið Nagorno-Karabakh eru hryðjuverk og framhald á þjóðarmorði Tyrkja á Armenum. Þetta segir armenski forsætisráðherrann Nikol Pashinyan í samtali við Sky News. 7.10.2020 08:59
Kórónuveiran heldur áfram að breiðast um Hvíta húsið Kórónuveiran virðist halda áfram að breiðast út um Hvíta húsið í Bandaríkjunum og nú hefur Stephen Miller, einn af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, tilkynnt að hann hafi greinst með veiruna í gær. 7.10.2020 07:00
Biden vex ásmegin í könnunum Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, hefur vaxið ásmegin í skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið í kjölfar kappræðna hans og Donalds Trump, forseta. 6.10.2020 22:31
Stefnir í metkjörsókn vestanhafs Fleiri en fjórar milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í forseta- og þingkosningum sem fara fram eftir fjórar vikur. Aldrei áður hafa svo margir verið búnir að greiða atkvæði á þessum tímapunkti fyrir kosningar og stefnir nú í mögulega metkjörsókn. 6.10.2020 16:58
Efnavopnastofnunin staðfestir að Navalní var byrlað taugaeitur Eitrað var fyrir Alexei Navalní, rússneskum stjórnarandstæðingi, með taugaeitrinu novichok samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Alþjóðaefnavopnastofnunarinnar (OPCW). Stofnunin staðfestir niðurstöður þýskra og annarra vestrænna stjórnvalda. 6.10.2020 16:26
Orban braut lög þegar hann úthýsti háskóla Soros Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórn Viktors Orban í Ungverjalandi hefði brotið evrópsk lög þegar hún breytti reglum um æðri menntun í landinu sem leiddi til þess að alþjóðlegur háskóli sem milljarðamæringurinn George Soros stofnaði neyddist til þess að flytja nær alla starfsemi sína úr landi. 6.10.2020 14:42
Segir að eitrað hafi verið fyrir sér vegna þingkosninga Stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní telur að leyniþjónusta Rússlands hafi eitrað fyrir honum, því yfirvöld í Kreml hafi talið hann vera ógn fyrir þingkosningarnar á næsta ári. 6.10.2020 14:30
Hægt verði að meina dæmdum ofbeldismönnum að stunda næturlífið Ríkisstjórn Danmerkur kynnti í dag tillögur sem ætlað er fækka glæpum í landinu. 6.10.2020 14:15
Delta mun valda usla í Mexíkó og stefna svo á Bandaríkin Fellibylurinn Delta stefnir nú hraðbyri að ströndum Mexíkó og mun ná landi í Bandaríkjunum seinna í vikunni. 6.10.2020 13:33
Ummæli Trump um veiruna hrella lækna Lýðheilsu- og faraldsfræðingar eru forviða eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði þjóð sinni að „óttast ekki“ kórónuveiruna og tók af sér grímu þrátt fyrir að vera sjálfur smitaður í gær. Orð og æði forsetans ganga þvert á tilmæli ríkisstjórnar hans vegna faraldursins sem hefur orðið meira en 210.000 manns að bana í landinu. 6.10.2020 12:09
Bítlar ISIS á leið til Bandaríkjanna Þeir Alexanda Kotey og El Shafee Elsheikh, tveir síðustu meðlimir alræmds hóps vígamanna Íslamska ríkisins sem gengu undir nafninu Bítlarnir, eru í haldi bandarískra hermanna í Írak. 6.10.2020 11:55
Evrópuþingið greiðir atkvæði um metnaðarfyllri loftslagsmarkmið Óljóst er um afdrif frumvarps um að gera loftslagsmarkmið Evrópusambandsins lagalega bindandi í atkvæðagreiðslu sem verður haldin í Evrópuþinginu í kvöld. 6.10.2020 11:18
Djöflarnir snúa aftur til Ástralíu Tasmaníudjöflar eru snúnir aftur til Ástralíu eftir að þeir urðu útdauðir þar fyrir um þrjú þúsund árum. 6.10.2020 10:56
Deila Nóbelnum í eðlisfræði fyrir uppgötvanir á svartholum Þrír vísindamenn deila Nóbelsverðlaunum í eðlisfræði í ár fyrir uppgötvanir þeirra á svartholum. Nóbelsnefndin greindist frá verðlaunahöfunum nú í morgun. 6.10.2020 10:17
McAfee handtekinn í Barcelona Tæknifrumkvöðullinn John McAfee hefur verið handtekinn í Barcelona á Spáni. McAfee, stofnandi vírusvarnarforrits sem kennt er við hann, er sakaður um umfangsmikið skattsvik í Bandaríkjunum og fyrir fjársvik í tengslum við rafmyntir. 6.10.2020 09:46
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:45 að íslenskum tíma. 6.10.2020 09:20
Samræmt kerfi til að auðvelda ferðalög til skoðunar Evrópusambandið hefur nú til skoðunar að koma á fót samræmdu kerfi til að auðvelda megi ferðalög innan evrópska efnahagssvæðisins á tímum heimsfaraldursins. 6.10.2020 08:01
Mótmælendur í Kirgistan ruddust inn í þinghús landsins Mótmælendur í höfuðborg Kirgistans, Bishkek, réðust í morgun inn í þinghús landsins. Fólkið var að mótmæla nýyfirstöðnum þingkosningum í landinu og krefjast þess að þær yrðu lýstar ógildar en margir hafa sakað ráðandi öfl í landinu um kosningasvindl. 6.10.2020 07:29
„Ekki láta veiruna stjórna ykkur, ekki vera hrædd við hana“ Donald Trump Bandaríkjaforseti er mættur aftur í Hvíta húsið eftir að hafa verið á Walter Reed-spítalanum í þrjár nætur. 6.10.2020 07:28
Bar grímu og gaf myndavélum þumal á leiðinni út af sjúkrahúsinu Forsetinn var fluttur með þyrlu frá sjúkrahúsinu og til baka í Hvíta húsið fyrr í kvöld en hann greindi sjálfur frá því á Twitter í dag að hann hygðist yfirgefa spítalann í kvöld. 5.10.2020 23:31
Trump útskrifast af sjúkrahúsi í kvöld Frá þessu greinir forsetinn í færslu á Twitter nú í kvöld þar sem hann segist vera góður til heilsunnar. Hann hvetur fólk einnig til þess að vera ekki hrætt við covid-19 og það skuli ekki leyfa veirunni að stjórna lífi sínu. 5.10.2020 19:41
Blaðafulltrúi Hvíta hússins bætist í hóp smitaðra Kayleigh McEnany, blaðafulltrúi Hvíta hússins, er smituð af kórónuveirunni og bætist í stækkandi hóp starfsmanna Hvíta hússins sem er nú í sóttkví. 5.10.2020 16:02
Misstu af þúsundum smita vegna klúðurs í Excel Bresk yfirvöld vantöldu um 16.000 manns sem greindust smitaðir af kórónuveirunni vegna mistaka í Excel-skjali þar sem haldið var utan um tölurnar. Þeir smituðu voru upplýstir um greiningu sína en mistökin eru talin þýða að fólk sem var útsett fyrir smiti hafi ekki verið látið vita. 5.10.2020 15:40
Koma á hæsta viðbúnaðarstigi í París Barir verða lokaðir en veitingastaðir mega vera opnir ef haldið er utan um hvernig er hægt að ná í viðskiptavini þeirra. 5.10.2020 13:38
Leyniþjónustan ósátt við að Trump stefndi heilsu lífvarða í hættu Ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að láta tvo lífverði frá leyniþjónustunni aka með sig fyrir utan sjúkrahúsið þar sem hann dvelur til að hann gæti heilsað stuðningsmönnum sínum þrátt fyrir að hann sé smitaður af kórónuveirunni hefur vakið furðu og fordæmingu leyniþjónustunnar og lækna. 5.10.2020 12:52
Aflétta takmörkunum í stærstu borg Nýja-Sjálands Íbúar Auckland, stærstu borgar Nýja-Sjálands, þurfa ekki lengur að huga að fjarlægðarreglum á börum og veitingastöðum þegar slakað verður á sóttvarnaraðgerðum þar í vikunni. 5.10.2020 10:24
Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir um lifrarbólgu C Bandaríkjamennirnir Harvey J. Alter, Michael Houghton og Charles M. Rice fá Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar um lifrarbólgu C veiruna. 5.10.2020 09:50
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. 5.10.2020 09:26
Aldrei stærra svæði orðið eldi að bráð í Kaliforníu Met sem fáum hugnast var slegið í Kalifornía í gær þegar yfirvöld gáfu það út að nú hafi fjórar milljónir ekra, um 16 þúsund ferkílómetrar, brunnið í yfirstandandi skógar- og kjarreldum í ríkinu. 5.10.2020 08:03
Trump gagnrýndur fyrir bíltúr fyrir utan sjúkrahúsið Donald Trump Bandaríkjaforseti fór í bíltúr í gærkvöldi til að heilsa upp á stuðningsmenn sína sem hafa komið saman fyrir utan Walter Reed spítalann í Maryland, norður af höfuðborginni Washington DC. 5.10.2020 07:34
Bjartsýnir á bata Trump Ástand Donald Trump Bandaríkjaforseta batnar með degi hverjum að sögn lækna hans. 4.10.2020 22:30
Kenzo látinn af völdum Covid-19 Japanski fatahönnuðurinn Kenzo Takada er látinn, 81 árs að aldri. 4.10.2020 19:52
Nýsmitaðir fleiri en tíu þúsund í Rússlandi Rúmlega tíu þúsund manns greindust með Covid-19 í Rússlandi í gær og hefur fjöldi nýsmitaðra ekki verið hærri frá því í maí. 4.10.2020 14:01