Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Norsku konungshjónin heimsækja Ask á morgun Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning munu sækja bæinn Ask heim á morgun og ræða við fólk sem missti allt sitt í hamförunum. 2.1.2021 16:32
Sænskur rappari handtekinn vegna mannráns Lögregla í Svíþjóð handtók á gamlársdag sænska rapparann Yasin Abdullahi Mahamoud, betur þekktur sem Yasin, vegna gruns um að tengjast ráni á öðrum tónlistarmanni í Svíþjóð. 2.1.2021 15:35
Hvergi fleiri verið bólusettir en í Ísrael Hlutfallslega hafa hvergi verið eins margir bólusettir gegn covid-19 en í Ísrael þar sem um 12% þjóðarinnar hefur þegar fengið fyrsta skammt bóluefnis. Rúmlega milljón íbúar hafa þegar verið bólusettir eða sem jafngildir 11,55 íbúum af hverjum hundrað. Það er sem stendur hæsta hlutfall bólusettra íbúa á heimsvísu samkvæmt frétt BBC. 2.1.2021 14:16
Leitarhundar fundu einn látinn til viðbótar Leitarhundar hafa fundið lík einnar manneskju til viðbótar eftir leirskriðurnar í Ask í Noregi. Roy Alkvist, sem stjórnar leitinni fyrir hönd lögreglu, segir að svo stöddu ekki hægt að veita upplýsingar um aldur eða kyn hins látna. 2.1.2021 13:33
Bólusetti kærastann og fékk bónorð í leiðinni Robby Vargas-Cortes, sem starfar sem yfirmaður sjúkraflutninga, kom kærasta sínum, hjúkrunarfræðinginum Eric Vanderlee, heldur betur á óvart þegar hann mætti til hans til að fá bóluefni gegn covid-19. Vargas-Cortes mætti í bólusetningu á Þorláksmessu til Vanderlee, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur í Canton í Suður-Dakóta í Bandaríkjunum. 2.1.2021 13:04
Nokkur hundruð lögreglumenn þurfti til að binda enda á partýið Vösk sveit nokkur hundruð lögreglumanna batt í dag enda á gríðarlega fjölmennt partý sem haldið var í yfirgefinni vöruskemmu í grennd við Rennes í Frakklandi. 2.1.2021 12:51
Bóluefni Moderna verði samþykkt í Evrópu á mánudaginn Richard Bergström, bóluefnastjóri Svíþjóðar, segir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins muni veita samþykki fyrir bóluefni Moderna gegn covid-19 á mánudaginn og að fyrstu skammtarnir verði komnir til Svíþjóðar innan tveggja vikna að því er SVT greinir frá. Ísland hefur gert samning um kaup á 128 þúsund skömmtum af bóluefni frá Moderna, í gegnum Svíþjóð, en það ætti að duga til að bólusetja 64 þúsund manns á Íslandi. 2.1.2021 11:56
Lögsókn sem átti að heimila Pence að hafna kjörmönnum hent út Alríkisdómari í Texas hefur hafnað lögsókn fulltrúadeildarþingmanns Repúblikana og samflokksmanna hans í Arizona sem miðaði að því að heimila varaforseta Bandaríkjanna að hafna atkvæðum ákveðinna kjörmanna í forsetakosningunum ytra. 2.1.2021 10:37
Stækka leitarsvæðið og vonast enn til að finna fólk á lífi Björgunaraðilar í Noregi munu stækka leitarsvæðið í sárinu sem leirskriðan við bæinn Ask í Noregi skildi eftir sig í síðustu viku. 2.1.2021 08:58
Geta ekki stöðvað ólöglegt partý þar sem þúsundir hafa komið saman Lögreglunni í Frakklandi hefur reynst erfitt að stöðva fjölmennt en ólöglegt partý í grennd við borgina Rennes í Frakklandi, sem staðið hefur yfir frá því á fimmtudag. 2.1.2021 08:08
Segir skilið við flokkinn og gerist óháður þingmaður Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formaður Venstre, stærsta hægriflokks landsins, hefur ákveðið að skrá sig úr flokknum. Rasmussen situr enn á þingi og verður því að óbreyttu óháður þingmaður út kjörtímabilið. 2.1.2021 07:57
„Við viljum fá að vita hvers vegna ljúfi sonur minn er skotinn og drepinn“ Lögregla í Minneapolis í Bandaríkjunum hefur birt upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem skutu Dolal Idd, svartan mann á þrítugsaldri, til bana á miðvikudag. Þetta er í fyrsta sinn sem lögregla í Minneapolis drepur mann frá því að George Floyd lést í maí. 1.1.2021 23:26
Íranir færa út kvíarnar í úranauðgun Íranir hyggjast hefja framleiðslu á 20 prósenta auðguðu úrani sem brýtur í bága við alþjóðlegan kjarnorkusamning sem undirritaður var af ríkinu árið 2015. 1.1.2021 22:20
BioNTech í kapphlaupi til að fylla upp í ESB-gatið Stjórnendur þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech gagnrýna Evrópusambandið fyrir seinagang í pöntunum á bóluefni fyrirtækisins og Pfizer. Þeir segja fyrirtækin nú leggja allt kapp á að auka framleiðsluna til að brúa bilið sem seinagangurinn, og of mikið traust ESB til annarra framleiðenda, hafi búið til. 1.1.2021 21:06
Bandaríkjaþing virðir neitun Trumps að vettugi Bandaríska þingið hefur ákveðið að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til varnarmála þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi beitt neitunarvaldi sínu og neitað að skrifa undir lögin. 1.1.2021 20:21
Birta nöfn allra sem saknað er í Ask Norska lögreglan birti í dag nöfn þeirra sem saknað er eftir að leirskriður féllu á bæinn Ask aðfaranótt miðvikudags. Á meðal þeirra sem saknað er eru tvö börn, tveggja og þrettán ára, auk mæðgina á sextugs- og þrítugsaldri. 1.1.2021 19:35
Bretar formlega gengnir úr Evrópusambandinu Bretland hefur formlega segið skilið við Evrópusambandið en Bretar yfirgáfu innri markað sambandsins og tollabandalagið klukkan ellefu í gærkvöldi. Þetta markar nýtt tímabil í sögu Bretlands en það hefur verið aðili að Evrópusambandinu, og þar áður Evrópubandalaginu, frá 1. janúar 1973. 1.1.2021 15:21
Handtekinn grunaður um að spilla bóluefni viljandi Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir að eyðileggja hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, með því að geyma þá við stofuhita í tvær nætur. 1.1.2021 10:40
Tíu enn saknað eftir leit í nótt Tíu er enn saknað í norska bænum Ask, þar sem gríðarlegar leirskriður féllu í fyrrinótt. Leitarhundur ásamt þjálfara, voru látnir síga niður úr þyrlu á hamfarasvæðinu í nótt til að meta aðstæður og leita að fólki. Enginn fannst í aðgerðinni. 31.12.2020 09:34
Einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna látinn Samuel Little, einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Little játaði á sig yfir níutíu morð víðsvegar um Bandaríkin og var dæmdur í margfalt lífstíðarfangelsi. 31.12.2020 08:50
Grænland lokað næstu tvær vikur Grænlenska landsstjórnin hefur bannað allt farþegaflug til Grænlands næstu tvær vikur, til 12. janúar. Aðeins verður leyft farþegaflug á vegum stjórnvalda og neyðarflug. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Kim Kielsen forsætisráðherra og Henrik L. Hansen, landlæknir Grænlands, héldu í Nuuk í gær. 31.12.2020 06:12
Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum. 30.12.2020 23:39
Þingmenn munu neyðast til að taka afstöðu með eða á móti Trump Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley greindi frá því í dag að hann hygðist mótmæla þegar Bandaríkjaþing „telur“ kjörmannaatkvæðin eftir forsetakosningarnar 6. janúar næstkomandi. 30.12.2020 23:04
Baráttunni „engan veginn lokið“ í Bretlandi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur biðlað til landsmanna að halda sig heima um áramótin og sýna þolinmæði. Baráttunni væri „engan veginn lokið“ þar sem veiran væri í mikilli útbreiðslu, þá sérstaklega vegna nýja afbrigðisins sem hefur hingað til verið kennt við Bretland. 30.12.2020 21:06
Stjórnvöld hunsa ráðleggingar sérfræðinga um sykur- og alkóhólneyslu Bandarísk stjórnvöld hunsuðu ráðleggingar vísindamanna þegar ný viðmið um ráðlagða dagskammta voru gefin úr. Ráðgjafanefnd hafði mælt með því að ráðlögð neysla sykurs og alkóhóls yrðu minnkuð en ekki var farið að tillögum nefndarinnar. 30.12.2020 20:41
Yfirvöld í Essex lýsa yfir neyðarástandi: Óska eftir aðstoð frá hernum Neyðarástand er að skapast í Essex vegna Covid-19 faraldursins og hafa yfirvöld á svæðinu biðlað til breska hersins um aðstoð. Essex er á efsta viðbúnaðarstigi en ástandið er hvergi verra á Englandi heldur en í suðurhluta sýslunnar. 30.12.2020 18:38
Fimmtán enn saknað í Ask Fimmtán er enn saknað eftir að stærðarinnar leirskriður féllu í nótt í bænum Ask í Noregi. 30.12.2020 17:16
Mæla með frekari grímunotkun í ljósi metfjölda dauðsfalla Yfirvöld í Svíþjóð lögðu til í dag að farþegar almenningsamganga notuðust við grímur á háannatíma. Það yrði væri gert til að sporna gegn mikilli dreifingu nýju kórónuveirunnar. Svíar tilkynntu í dag að 8.846 hefðu greinst smitaðir nýverið og voru 243 ný dauðsföll tilkynnt. 30.12.2020 16:09
Skriða féll hundrað metrum frá heimili Hafdísar Íslensk kona sem búsett er í norska bænum Ask þar sem aurskriður féllu í nótt lýsir því að skriða hafi fallið um hundrað metrum frá heimili hennar í bænum. Uggur sé í bæjarbúum en þeir standi saman í hamförunum. 30.12.2020 15:27
Breska þingið samþykkir viðskiptasamning við ESB Breska þingið samþykkti nú rétt í þessu viðskiptasamning breskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. 521 þingmaður greiddi atkvæði með samningnum en 73 gegn honum. 30.12.2020 15:02
Meint fjársvik Navalní til rannsóknar í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi opnuðu í gær rannsókn sem snýr að meintum fjársvikum stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní. Hann er sagður grunaður um að hafa notað persónulega um 600 milljónir króna sem hann safnaði meðal annars til and-spillingar stofnunar sinnar. 30.12.2020 14:39
Deilurnar um ávísanirnar halda áfram Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, kom sér undan því í gær að halda atkvæðagreiðslu um það að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun. Frumvarpið hefur áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, þar sem Demókratar eru í meirihluta. Þar að auki hafði Donald Trump, fráfarandi forseti, krafist þess að frumvarp þar að lútandi yrði samþykkt. 30.12.2020 13:45
Mannfall eftir sprengjuárás á flugvelli í Jemen Fimm manns hið minnsta eru látnir og fjöldi særður eftir sprengjuárás á flugvelli í jemensku hafnarborginni Aden í morgun. Sprengingar heyrðust og skotið var úr byssum á flugvellinum skömmu eftir að flugvél með nýrri ríkisstjórn landsins lenti á flugvellinum eftir að hafa komið frá Sádi-Arabíu. 30.12.2020 13:30
Bent á sprengjugerð Warner fyrir rúmu ári Lögreglan í Nashville fékk í fyrra tilkynningu um að maðurinn sem sprengdi húsbíl sinn í loft upp þar í borg um jólin, hefði verið að setja saman sprengjur. Tveir lögregluþjónar fóru heim til hans en fundu hann ekki og sáu ekki inn í húsbíl hans, þar sem hann átti að vera að stunda sprengjugerðina. 30.12.2020 12:18
Ráðamenn sagðir takmarka flæði upplýsinga um uppruna Covid-19 Ráðamenn í Kína eru sagðir hafa takmarkað verulega flæði upplýsinga og rannsóknir um mögulegan uppruna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, sem greindist fyrst í mönnum í Kína. Vísindamenn sem hafa reynt að rannsaka uppruna sjúkdómsins í Kína hafi orðið fyrir miklum hindrunum frá hinu opinbera. 30.12.2020 11:31
Ekki vitað um afdrif 21 sem er til heimilis á hamfarasvæðinu Ekki er vitað um afdrif 21 sem er skráður til heimilis í húsum á hamfarasvæðinu í norska bænum Ask þar sem aurskriður féllu í nótt. Þetta sagði norska lögreglan um klukkan tólf, en um klukkan ellefu var rætt um 26 og hefur nú verið gert grein fyrir fimm af þeim. 30.12.2020 11:31
Herða sóttvarnir í Sydney fyrir áramótin Yfirvöld í Ástralíu hafa hert samkomutakmarkanir og sóttvarnir í Sydney, stærstu borg landsins, fyrir áramótin. Það var gert eftir að nýr klasi smitaðra greindist þar. Í heimahúsum mega fimm að hámarki koma saman og þrjátíu á almannafæri. Þá mega gestir ekki heimsækja íbúa dvalarheimila. 30.12.2020 11:19
Að minnsta kosti níu slasaðir og mikil eyðilegging Að minnsta kosti níu eru slasaðir eftir jarðvegsskriðurnar sem féllu í norska bænum Ask, norðaustur af Osló, í nótt. Myndir frá vettvangi sýna fram á mikla eyðileggingu á staðnum. 30.12.2020 09:28
Argentínska þingið heimilar þungunarrof Meirihluti öldungadeildar argentínska þingsins hefur samþykkt að konum verði heimilt að gangast undir þungunarrof fram í fjórtándu viku meðgöngu. Spennustigið á götum höfuðborgarinnar Buenos Aires hefur verið hátt síðustu vikurnar vegna málsins þar sem stuðningsmenn og andstæðingar lagabreytingarinnar hafa safnast saman. 30.12.2020 08:00
Nýkjörinn þingmaður látinn af völdum Covid-19 Repúblikaninn Luke Letlow, sem kjörinn var á fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Louisiana í kosningunum í nóvember, er látinn af völdum Covid-19. Hinn 41 árs gamli Letlow er fyrsti bandaríski þingmaðurinn til að láta lífið af völdum sjúkdómsins. 30.12.2020 07:40
Bóluefni AstraZeneca fær markaðsleyfi í Bretlandi Bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla gegn Covid-19 hefur fengið markaðsleyfi í Bretlandi. Þar af leiðandi er hægt að hefja bólusetningar með efninu í landinu. 30.12.2020 07:18
Miklar aurskriður skullu á íbúðahús í norska bænum Ask Margir eru sagðir hafa slasast eftir að aurskriður skullu á fjölda húsa í bænum norska bænum Ask í nótt. Um tvö hundruð manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín vegna skriðuhættu. 30.12.2020 07:08
Nýja afbrigði kórónuveirunnar komið til Bandaríkjanna Hið nýja afbrigði kórónuveirunnar sem gert hefur usla á Bretlandseyjum hefur nú fundist í fyrsta sinn í Bandaríkjunum. 30.12.2020 07:06
Copy/Paste í Brexit-díl: Nýr samningur, úreltur texti Grunur leikur á að kaflar í nýjum samningi Bretlands og Evrópusambandsins hafi verið teknir í heilu lagi úr gömlum lögum eða samningum, þar sem í þeim má finna tilvísanir í úrelta tækni á borð við Netscape Communicator og 1024-bita RSA dulkóðun. 30.12.2020 07:01
Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu þurft að velja hverjir lifa og hverjir deyja Breskir heilbrigðisstarfsmenn gætu á næstu dögum og vikum staðið frammi fyrir því að þurfa að velja hverjir lifa og hverjir deyja. Þetta segja sérfræðingar innan opinbera heilbrigðiskerfisins, sem sjá fram á mesta álag í sögu NHS vegna Covid-19 faraldursins. 29.12.2020 23:19