Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. 11.1.2021 18:47
Árásarmaðurinn í Forbury Gardens hlaut lífstíðardóm Khairi Saadallah, árásarmaðurinn sem stakk þrjá menn til bana í Forbury Gardens í Bretlandi í fyrra, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Þá játaði Saadallah fyrir dómi að hafa reynt að myrða þrjá aðra menn sem voru einnig staddir í garðinum. 11.1.2021 17:55
Lögðu fram frumvarp um aðra kæru gegn Trump Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa lagt formlega fram frumvarp um að kæra Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í annað sinn fyrir embættisbrot. Það felur í sér að kæra hann sérstaklega fyrir að hvetja fólk til uppreisnar og þá fyrir hlutverk hans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. 11.1.2021 17:51
Sporin hræða: Sérfræðingar segja afstöðu Frakka til bólusetninga byggja á slæmri reynslu Kannanir sýna að allt að 60% Frakka hyggjast afþakka bólusetningu gegn Covid-19 en sérfræðingar segja mögulegt að niðurstöðurnar séu villandi. Þeir segja afstöðuna ekki snúast um bóluefnin sjálf, heldur traust til stjórnmálamanna, lækna og fjölmiðla. 11.1.2021 16:04
Burns mun stýra leyniþjónustunni CIA Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, mun tilnefna William Burns sem næsta forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Hinn 64 ára Burns hefur áður starfað sem diplómati í bandarísku utanríkisþjónustunni og gegndi embætti aðstoðarutanríkisráðherra á árunum 2011 til 2014. 11.1.2021 12:30
Freistar þess að koma Kim Kielsen frá völdum Formaður Siumut-flokksins á Grænlandi, Erik Jensen, sem felldi Kim Kielsen úr formannsstólnum á flokksþingi í lok nóvember, freistar þess núna að ná einnig af honum forsætisráðherrastólnum. Grænlenska ríkisútvarpið KNR skýrir frá því að Erik haldi í dag frá heimabæ sínum, Sisimiut, til höfuðstaðarins Nuuk til viðræðna við flokksfélaga sína og samstarfsflokka um að hann taki jafnframt við forsæti landsstjórnar Grænlands. 11.1.2021 12:14
Japarov vann stórsigur í forsetakosningunum Svo virðist sem að Sadyr Japarov hafi unnið stórsigur í forsetakosningum í Mið-Asíuríkinu Kirgistan sem fram fórum um helgina. Þegar búið er að telja nær öll atkvæði virðist sem að Japarov hafa fengið um 80 prósent greiddra atkvæða. 11.1.2021 11:48
Borgaryfirvöld í Seúl til óléttra kvenna: Hugaðu að útlitinu og eldaðu mat fyrir karlinn fyrir fæðinguna Mikil reiði braust út á samfélagsmiðlum í Suður-Kóreu þegar borgaryfirvöld í Seúl gáfu út leiðbeiningar til óléttra kvenna, þar sem þeir var meðal annars ráðlagt að huga að útlitinu og hafa tilbúnar máltíðir og hrein föt fyrir karlinn fyrir fæðingu. 11.1.2021 08:42
Setja aukinn kraft í bólusetningar Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks. 11.1.2021 08:15
Aðeins Íslendingar undanþegnir skimun í Eistlandi Frá og með deginum í dag taka nýjar sóttvarnareglur gildi á landamærum Eistlands. Samkvæmt þeim eru farþegar sem koma frá Íslandi þeir einu sem undanþegnir verða skimun fyrir kórónuveirunni við komuna til landsins. 11.1.2021 07:17
Fulltrúadeildin ætlar að leggja fram ákæru á hendur Trump Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun á næstu dögum ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot. Þetta sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, í bréfi til þingmanna á sunnudag. 11.1.2021 00:50
Trump bað kosningaeftirlitsmann í Georgíu að „finna svindlið“ Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hvatti kosningaeftirlitsmann í Georgíu til þess að „finna svindlið“ og sagði að hann yrði þjóðhetja ef það tækist. Þetta er þriðja skiptið sem því er lýst að Trump hafi hringt í háttsetta embættismenn í Georgíu í von um að þeir myndu snúa niðurstöðum kosninganna. 10.1.2021 16:01
Bandaríkin aflétta samskiptabanni við Taívan Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að áratugalöngu samskiptabanni við Taívan verði aflétt. Bannið var kynnt í Bandaríkjunum fyrir mörgum áratugum síðan, til þess að friðþægja yfirvöld á meginlandi Kína. 10.1.2021 12:55
Yfir áttatíu þúsund hafa látist í Bretlandi Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í Bretlandi hafa rúmlega áttatíu þúsund látist af völdum veirunnar. Undanfarnar vikur hafa um þúsund manns látist á hverjum sólarhring, en faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu. 10.1.2021 12:12
Sækja svarta kassann úr flugvélinni sem hrapaði Búið er að staðsetja svarta kassann úr flugvélinni sem hrapaði stuttu eftir flugtak á Jakarta í Indónesíu í gær. Björgunarskip hafa haldið út aðgerðum frá því í gær og kafarar sjóhersins ættu fljótlega að geta sótt kassann, sem er í hafinu. 10.1.2021 12:07
Pence verður viðstaddur embættistöku Biden Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, ætlar að vera viðstaddur þegar Joe Biden og Kamala Harris verða sett í embætti síðar í þessum mánuði. Fjölmiðlar vestanhafs hafa þetta eftir heimildarmanni í Washington, en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sjálfur lýst því yfir að hann muni ekki vera viðstaddur innsetningarathöfnina. 10.1.2021 11:15
Hafa fundið út hvar flugvélin hrapaði Yfirvöld í Indonesíu segjast hafa fundið hvar vél Sriwijaya Air hrapaði. Vélin, flug SJ182, var á leið frá höfuðborginni Jakarta til borgarinnar Pontianak í gær þegar hún hvarf af ratsjám um það bil fjórum mínútum eftir flugtak. 10.1.2021 08:22
Búið að bólusetja Elísabetu og Filippus Elísabet II Bretadrottning og Filippus prins, hertogi af Edinborg voru í dag bólusett við Covid-19. Bættast hjónin þar með í hóp um 1,5 milljón Breta sem hafa allavega fengið fyrri skammtinn af bóluefni. 9.1.2021 23:33
Búið að handtaka áberandi þátttakendur í óeirðunum Alríkissaksóknarar hafa ákært tvo einstaklinga til viðbótar í tengslum við óeirðirnar í bandaríska þinghúsinu sem fram fóru á miðvikudag. Um er að ræða tvo karlmenn sem vakið hafa mikla athygli fyrir þátt sinn í atburðunum en ljósmyndir af þeim á göngum þinghússins komust fljótt í mikla dreifingu um allan heim. 9.1.2021 20:42
„Á þessum tímapunkti hélt ég að ég yrði drepin“ Fjöldi blaðamanna og ljósmyndara var í og við bandaríska þinghúsið á miðvikudag og upplifði þá ótrúlegu atburðarás þegar æstur múgur, stuðningsmenn Donalds Trump fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðst inn í húsið. 9.1.2021 19:31
Þrír látnir vegna snjókomunnar á Spáni Þrír hafa látist í storminum sem ríður nú yfir Spán. Mikill snjór hefur fallið um allt landið og hefur veðrið komið í veg fyrir ferðalög. Þetta er mesta snjókoma sem sést hefur í Madríd í áratugi og viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út til þess að aðstoða ökumenn sem hafa fest bíla sína í snjónum. 9.1.2021 15:23
Vildi „setja kúlu í hausinn á Pelosi“ í beinni Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa greint frá upplýsingum úr rannsókn yfirvalda, sem snýr að árás stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta á þinghúsið síðastliðinn miðvikudag. Frá þessu er greint á vef CNN. 9.1.2021 14:22
Kim Jong Un segir Bandaríkin stærsta óvin ríkisins Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur kallað eftir því að kjarnorkuvopn ríkisins verði þróuð betur. Þá segir hann Bandaríkin stærsta óvin ríkisins. Frá þessu var greint á ríkismiðli Norður-Kóreu í dag. 9.1.2021 14:02
Nýkjörinn þingmaður biðst afsökunar á að hafa vitnað í Hitler Mary Miller, nýkjörinn þingmaður Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild þingsins, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hún lét falla á stuðningsmannafundi á fimmtudag. Þar vísaði hún til ummæla Adolf Hitler um unga fólkið í samfélaginu. 9.1.2021 12:47
Boeing 737 vél með sextíu farþega horfin: Telja sig hafa fundið brak úr vélinni Flugvél indónesíska flugfélagsins Sriwijaya Air, flug SJ182, hvarf af radar stuttu eftir flugtak frá Jakarta í morgun. Um er að ræða Boeing 737-500 vél en hún hafði lækkað flugið um tíu þúsund fet á tæpri mínútu áður en hún hvarf af radar. Flugvélin hvarf aðeins fjórum mínútum eftir að hún hófst á loft. 9.1.2021 11:28
Tíu nýfædd börn fórust í eldsvoða í nótt Tíu nýfædd börn fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi á Indlandi í morgun. Sjö ungbörnum var bjargað af starfsmönnum sjúkrahússins. Eldurinn kom upp í Bhandara héraðssjúkrahúsinu í vesturhluta Indlands. 9.1.2021 09:36
Demókratar undirbúa ákæru fyrir embættisbrot Demókratar á bandaríska þinginu hyggjast gefa út ákæru á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir hans þátt í óeirðunum sem urðu í og við þinghúsið á miðvikudag ef forsetinn segir ekki tafarlaust af sér. 9.1.2021 08:01
Hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi Pia Kjærsgaard, þingmaður Danska þjóðarflokksins, Dansk Folkeparti, hefur boðað tillögu á danska þjóðþinginu þess efnis að aflögð flotastöð danska hersins í afskekktum firði á Suðvestur-Grænlandi verði tekin undir brottvikna hælisleitendur. 9.1.2021 07:14
Twitter reikningi Trump lokað til frambúðar Twitter hefur lokað reikningi Donalds Trump til frambúðar. 8.1.2021 23:38
Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi handtekinn Maðurinn sem kom sér fyrir í stól Pelosi þegar múgur réðst inn í þinghúsið hefur verið handekinn og ákærður fyrir brot á alríkislögum. 8.1.2021 19:38
Trump verður ekki viðstaddur innsetningu Bidens Donald Trump fráfarandi Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta á vígsluathöfn Joes Biden þann 20. janúar. Frá þessu greinir Trump á Twitter en nefnir ekki ástæðu þess að hann ætlar ekki að mæta. 8.1.2021 16:03
Neyðarástandi lýst yfir í London Ráðamenn í London hafa lýst yfir neyðarástandi af ótta við að sjúkrahús í borginni ráði ekki við þá fjölgun sjúklinga sem tengd er við nýtt afbrigði nýju kórónuveirunnar. Á rúmri viku hefur sjúklingum í London sem þurft hafa í öndunarvél fjölgað úr 640 í 908 eða um 42 prósent. 8.1.2021 15:55
Gerði samkomulag við Pfizer um að bólusetja alla fyrir páska Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segist hafa gert samkomulag við Pfizer sem tryggi öllum Ísraelum, eldri en sextán ára, bólusetningu fyrir lok marsmánaðar. Forsætisráðherrann segir að fyrirtækið hafi samþykkt að senda milljónir aukaskammta af bóluefni og þeir fyrstu muni berast á sunnudaginn. 8.1.2021 14:53
Bóluefni Astra Zenica mögulega samþykkt fyrir lok janúar Bóluefni AstraZenica verður mögulega veitt markaðsleyfi í Evrópu fyrir lok janúar. Frá þessu greinir Lyfjastofnun Evrópu (EMA) á Twitter nú í hádeginu. 8.1.2021 12:27
Ígildi íslensku þjóðarinnar liggur í valnum Alls hafa 365.346 dáið vegna Covid-19 í Bandaríkjunum, samkvæmt samantekt Johns Hopkins háskólans, þar sem haldið er utan um opinberar tölur. Það þýðir að fleiri hafa dáið þar en Íslendingar voru í upphafi síðasta árs. 8.1.2021 12:24
Trump sagður íhuga að náða sjálfan sig Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt til við ráðgjafa sína að hann hafi áhuga á að veita sjálfum sér forsetanáðun á lokadögum forsetatíðar sinnar. Forsetinn mun vera sannfærður um að óvinir sínir muni beita dómskerfinu gegn sér eftir að hann fer úr Hvíta húsinu. 8.1.2021 11:40
Sænska þingið samþykkti sérstök heimsfaraldurslög Sænska þingið samþykkti í dag sérstök neyðarlög – svokölluð heimsfaraldurslög – sem veitir ríkisstjórn og opinberum stofnunum auknar heimildir til að takmarka ýmsa starfsemi í samfélaginu til að hefta megi útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi. 8.1.2021 11:34
Kim heitir bættum samskiptum við umheiminn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir nauðsynlegt að bæta samband ríkisins við umheiminn og heitir því að gera það. Þetta sagði einræðisherrann á flokksþingi Verkamannaflokks Norður-Kóreu í gær en fjórði dagur þingsins er í dag. 8.1.2021 10:26
Lögreglan hafnaði boðum um aðstoð Nokkrum dögum fyrir óeirðirnar í þinghúsi Bandaríkjanna höfðu embættismenn í varnarmálaráðuneytinu samband við lögreglu þingsins og buðu þeim aðstoð þjóðvarðliðs Washington DC við að halda aftur af mótmælendum. Þegar þúsundir stuðningsmanna Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, umkringdu húsið á miðvikudaginn bauð dómsmálaráðuneytið aðstoð Alríkislögreglu Bandaríkjanna. 8.1.2021 08:54
Annar ráðherra í ríkisstjórn Trumps segir af sér Betsy DeVos, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skilað inn afsögn sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þrettán dögum fyrir embættistöku nýs forseta. DeVos segir að aðkoma Trumps hafi skipt sköpum varðandi það að æstur múgur hafi ráðist inn í bandaríska þinghúsið á miðvikudag. 8.1.2021 08:20
Pfizer segir bóluefnið virka vel á breska afbrigðið Bóluefni Pfizer og BioNtech virkar vel á breska afbrigði kórónuveirunnar sem hefur breiðst hratt út víða um heim síðustu vikurnar. 8.1.2021 07:20
Lögreglumaður lést af sárum sínum eftir árásina á þinghúsið Lögreglumaður sem starfaði í þinghúsi Bandaríkjanna, Capitol Hill, er látinn. Hann lést af sárum sem hann hlaut þegar æstur múgur réðst inn í þinghúsið síðastliðinn miðvikudag og truflaði þingfund þar sem átti að staðfesta kjör Joes Biden í embætti forseta Bandaríkjanna. 8.1.2021 06:45
Trump kominn aftur á Twitter og fordæmir árásina í myndbandi Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er kominn aftur með aðgang að Twitter-reikningi sínum eftir að lokað var á hann í gærkvöldi. Hann birti nú skömmu eftir miðnætti myndband, þar sem hann fordæmir árásina á þinghúsið. 8.1.2021 00:15
Útiloka ekki að Trump verði ákærður Saksóknarinn Michael Sherwin segir rannsóknina á þeirri árás sem var gerð á þinghúsið í gær fyrst og fremst snúa að því að rannsaka hverjir stuðluðu að ofbeldi og óeirðum innan veggja hússins. Á þessu stigi sé það forgangsmál, þó ekki sé útilokað að fleiri verði ákærðir fyrir sinn þátt. 7.1.2021 23:34
Evrópuþjóðir verði að grípa til harðari aðgerða vegna afbrigðisins Hans Kluge, yfirmaður Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, segir nýtt afbrigði kórónuveirunnar geta leitt til frekara álags á heilbrigðiskerfi víða um álfuna sem nú þegar eru undir miklu álagi. Því þurfi lönd að grípa til harðari aðgerða til að sporna við frekari útbreiðslu. 7.1.2021 22:01