Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa fundið líkamsleifar Everard Bresk lögregluyfirvöld hafa staðfest að líkamsleifar sem fundust í gær eru Sarah Everard, sem sást síðast á göngu 3. mars sl. Lögreglumaður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa rænt og myrt Everard. 12.3.2021 14:41
Navalní sagður fluttur á óþekktan stað Lögmenn Alexei Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, segja að yfirvöld hafi flutt hann úr fangelsi þar sem honum hefur verið haldið undanfarnar vikur á óþekktan stað. Mögulegt er að Navalní hafi verið fluttur í fanganýlendu þar sem hann á að afplána fangelsisdóm sem hann hlaut. 12.3.2021 14:10
Hefja rannsókn til embættismissis á ríkisstjóra New York Dómsmálanefnd ríkisþingsins í New York í Bandaríkjunum rannsakar nú hvort að Andrew Cuomo, ríkisstjóri, hafi gerst sekur um embættisbrot. Sex konur hafa stigið fram og sakað ríkisstjórann um kynferðislega áreitni. 12.3.2021 13:26
Bjargar erfðafræðin dæmdum raðmorðingja?: Fékk 30 ára dóm fyrir að myrða börnin sín en vísindamenn segja hana saklausa Níutíu virtir vísindamenn og læknar hafa skrifað undir áskorun til ríkisstjóra Nýju Suður-Wales og skorað á hann að náða Kathleen Folbigg og láta hana umsvifalaust lausa. 12.3.2021 12:10
Konungur Súlúmanna fallinn frá Goodwill Zwelithini, konungur Súlúmanna í Suður-Afríki, er látinn, 72 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi þar sem hann hafði notið aðhlynningar að undanförnu vegna einkenna sykursýki. 12.3.2021 12:09
1,9 billjóna aðgerðapakki Bidens gerður að lögum Joe Biden Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir lög um eina umfangsmestu efnahagsinnspýtingu í sögu Bandaríkjanna til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins og koma hjólum atvinnulífsins aftur á hreyfingu. 11.3.2021 23:30
Ár síðan WHO lýsti yfir heimsfaraldri Miðvikudaginn 11. mars árið 2020 lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) því yfir að jarðarbúar væru með faraldur á höndunum. Nýja kórónuveiran, sem veldur Covid-19, væri í mikilli dreifingu og þá höfðu um 120 þúsund tilfelli greinst á heimsvísu. 11.3.2021 22:01
Viktoría prinsessa og Daníel prins með Covid-19 Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar hefur greinst með Covid-19 og eiginmaður hennar Daníel Prins sömuleiðis. Þau eru bæði komin í einangrun en sýna enn sem komið er mild einkenni. 11.3.2021 17:24
Heyrðu hljóðið í vindinum og leysitæki á Mars Hljóðupptökur úr leysimælitæki bandaríska könnunarjeppans Perseverance á Mars hafa nú verið birtar opinberlega. Á þeim má heyra gnauðandi vindinn á nágrannareikistjörnunni og hljóðið í leysigeisla sem er skotið á steina. 11.3.2021 16:29
Bæta við ákæru á hendur lögreglumanninum vegna dauða Floyd Dómari í Minneapolis samþykkti að bæta við ákæru á hendur Derek Chauvin, lögreglumanni, sem er sakaður um að hafa orðið George Floyd að bana í fyrra. Chauvin er nú einnig ákærður fyrir manndráp án ásetnings og telja sérfræðingar það auka líkurnar á að hann verði sakfelldur. 11.3.2021 15:41
Framlag Hvítrússa í Júróvisjón vekur reiði mótmælenda Stjórnarandstaðan í Hvíta-Rússlandi andmælir nú harðlega ákvörðun ríkisútvarps landsins um að velja hljómsveit sem hefur hæðst að mótmælum gegn Alexander Lúkasjenka, forseta, sem framlag sitt til söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. 11.3.2021 14:12
Ætla sér að reisa geimstöð á tunglinu Rússar og Kínverjar hafa gert samkomulag um að reisa rannsóknarstöð á tunglinu. Stöðina vilja þeir nota bæði til könnunar og nýtingar tunglsins í framtíðinni. 11.3.2021 13:27
Bóluefni Janssen fær grænt ljós hjá Lyfjastofnun Evrópu Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með því að bóluefni Janssen við Covid-19 verði veitt skilyrt markaðsleyfi í Evrópusambandinu til notkunar hjá einstaklingum sem hafa náð átján ára aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni en íslensk stjórnvöld hafa tryggt sér skammta af bóluefninu fyrir 235 þúsund einstaklinga. 11.3.2021 13:27
Kínverjar ætla að herða tökin á kosningum í Hong Kong Kosningakerfi Hong Kong verður umturnað samkvæmt tillögu sem kínverska alþýðuþingið samþykkti í dag. Andstæðingar tillögunnar segja að hún muni í reynd kæfa allt andóf gegn kínverskum stjórnvöldum verði hún að veruleika. 11.3.2021 12:32
Segir konungsfjölskylduna alls ekki rasíska fjölskyldu Vilhjálmur Bretaprins segir að breska konungsfjölskyldan sé „alls ekki rasísk fjölskylda“. Prinsinn tjáði sig í fyrsta sinn í morgun um viðtal Opruh Winfrey við brópur sinn, Harry prins, og Meghan. 11.3.2021 12:07
Herinn sakar Suu Kyi um mútuþægni Herforingjastjórn Búrma sakar Aung San Suu Kyi, sem hún steypti af stóli sem lýðræðislega kjörnum leiðtoga landsins, um að hafa þegið jafnvirði meira en 77 milljóna íslenskra króna og gull í mútur. Engar sannanir hafa þó verið lagðar fram fyrir ásökununum fram að þessu. 11.3.2021 11:55
Fjallgöngumenn fá aftur að klífa Everest Nokkur hundruð fjallgöngumanna munu leggja leið sína að Everest-fjalli í Nepal í næsta mánuði, en fjallinu hefur verið lokað síðasta árið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. 11.3.2021 11:40
Ein stærsta efnahagsinnspýting í sögu Bandaríkjanna samþykkt Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti endanlega eina umfangsmestu efnahagsinnspýtingu í sögu Bandaríkjanna til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins og koma hjólum atvinnulífsins aftur á hreyfingu. Aðgerðapakkinn var eitt stærsta stefnumál Joes Biden forseta og demókrata á Bandaríkjaþingi. 11.3.2021 09:37
Fjöldi starfsmanna Good Morning Britain kvartaði vegna ummæla Morgans Tugir starfsmanna sjónvarpsþáttarins Good Morning Britain, sem er á dagskrá ITV á morgnana, kvörtuðu til stjórnenda sjónvarpsstöðvarinnar vegna ummæla sem Piers Morgan lét falla um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, í þættinum á mánudaginn. 11.3.2021 09:09
Annar forsætisráðherra landsins til að falla frá á innan við ári Hamed Bakayoko, forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar, er látinn, 56 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Þýskalandi í gær eftir baráttu við krabbamein. 11.3.2021 08:29
Öryggisráðið kallar eftir því að her Mjanmar stígi til hliðar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallaði í kvöld eftir því að forsvarsmenn herafla Mjanmar létu af valdaráni sínu og hættu ofbeldi gegn mótmælendum. 10.3.2021 23:58
Rússar hægja á Twitter Yfirvöld í Rússlandi hafa hægt á Twitter þar í landi vegna deilna ríkisstjórnar Vladímírs Pútíns, forseta, við samfélagsmiðlafyrirtæki. Sérstaklega hefur verið hægt á hraða internetsins þegar kemur að því að hlaða inn myndum og myndböndum á Twitter. 10.3.2021 23:29
Brúnt vatn og óætur matur: Líkir fangavistinni við pyntingar Það er niðurlægjandi hvernig farið er með Ghislaine Maxwell í fangelsinu í New York, segir bróðir hennar Ian Maxwell. Hann líkir fangavistinni við pyntingar en Maxwell hefur verið sökuð um að hafa útvegað vini sínum Jeffrey Epstein stúlkur undir lögaldri. 10.3.2021 21:56
Hundruð bólusettra barna í Ísrael upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir Um 600 ísraelsk börn á aldrinum 12 til 16 ára sem voru bólusett gegn Covid-19 með bóluefni Pfizer upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir. Ungmenni eru almennt ekki bólusett en yfirvöld í landinu hafa mælt með bólusetningu einstaklinga í áhættuhópum. 10.3.2021 21:08
Fundu lík í leitinni að Söruh Everard Breskir lögregluþjónar hafa fundið lík í leitinni að Söruh Everard. Líkið fannst í skógi í Ashford, suðaustur af Lundúnum. Lögregluþjónn er grunaður um að hafa rænt henni og myrt hana en hún hvarf þann 3. mars þegar hún var á leið heim eftir heimsókn til vinafólks. 10.3.2021 20:58
Lögregluþjónninn í Lundúnum nú grunaður um morð Breskur lögregluþjónn sem handtekinn var í gærkvöldi vegna hvarfs hinnar 33 ára Söruh Everard í Lundúnum er sakaður um morð. Hann var upprunalega handtekinn vegna gruns um mannrán. 10.3.2021 18:27
Dómur yfir kvenréttindabaráttukonu stendur óhaggaður Dómstóll í Sádi-Arabíu hafnaði áfrýjun Loujain al-Hathloul, baráttukonu fyrir réttindum kvenna, á dómi sem hún hlaut fyrir meint hryðjuverkabrot. Hathloul var ein þeirra jafnréttissinna sem stjórnvöld í Sádi-Arabíu tóku höndum árið 2018. 10.3.2021 16:59
Önnur tölvuárás gerð á norska þingið Tölvuþrjótar komust inn í tölvukerfi norska þingsins og stálu þaðan gögnum. Hálft ár er frá því að yfirvöld greindu frá annarri slíkri árás á þingið. 10.3.2021 16:02
Sendi sjálf inn formlega kvörtun vegna ummæla Piers Morgan Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, var sjálf í hópi þeirra sem sendu inn kvörtun vegna ummæla fjölmiðlamannsins Piers Morgan á ITV um geðheilsu hennar. 10.3.2021 14:31
Telja sjúkrahús í Brasilíu komin að þolmörkum Heilbrigðiskerfið flestum stærstu borgum Brasilíu er að hruni komið vegna fjölda sjúklinga með Covid-19, að mati heilbrigðisstofnunar landsins. Heimshlutanum er talin standa ógn af aðgerðaleysi brasilískra stjórnvalda við faraldrinum sem fær að geisa nær hömlulaust. 10.3.2021 14:24
Samkomulag um nýja bráðabirgðastjórn veitir vonarglætu Líbíuþing hefur samþykkt bráðabirgðastjórn sem ætlað er að stjórna hinu stríðshrjáða landi fram að fyrirhuguðum þingkosningum í desember næstkomandi. Litið er á málið sem mikilvægt skref í þá átt að binda endi á áratug af vopnuðum átökum og glundroða í landinu. 10.3.2021 13:27
Taka aftur upp skógarhögg í Bialowieza-frumskóginum Pólverjar hafa ákveðið að hefja skógarhögg á ný í Bialowieza-frumskóginum í austurhluta landsins sem er að finna á Heimsminjaskrá UNESCO. 10.3.2021 12:10
Lýsir yfir neyðarástandi á Hawaii vegna flóða Gríðarlegt úrhelli síðustu daga og flóð hafa valdið talsverðri eyðileggingu á eyjum Hawaii og hefur ríkisstjórinn David Ige nú lýst yfir neyðarástandi. Búist er við að úrhellinu sloti ekki fyrr en á föstudag. 10.3.2021 11:38
Morgan stendur við orð sín um Meghan og bætir í Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan, sem hætti í gær sem þáttastjórnandi í Good Morning Britain á ITV-sjónvarpsstöðinni vegna ummæla sinna um Meghan Markle, segist standa við það sem hann sagði. 10.3.2021 10:54
Draga til baka rannsókn á skammtatölvum vegna „mistaka“ Hópur sérfræðinga á vegum tæknirisans Microsoft hefur dregið til baka umdeilda rannsókn á svonefndum skammtatölvum sem birtist árið 2018. Mistök hafi verið gerð við rannsóknina og biðjast höfundarnir afsökunar á að hafa ekki stundað nægilega vísindaleg vinnubrögð. 10.3.2021 10:39
Fimm dæmdir vegna morðsins á Andrei Karlov Dómstóll í Tyrklandi hefur dæmt fimm menn í lífstíðarfangelsi vegna aðildar sinnar að morðinu á Andrei Karlov, sendiherra Rússlands í Tyrklandi, í Ankara árið 2016. 10.3.2021 10:09
Lögreglumaður í London handtekinn vegna hvarfs Söruh Everard Lögreglumaður í London hefur verið handtekinn í Kent í tengslum við rannsókn á hvarfi hinnar 33 ára Söruh Everard. Ekkert hefur spurst til Everard í heila viku en síðast sást til hennar þegar hún yfirgaf heimili vinar síns í Clapham í suðurhluta bresku höfuðborgarinnar að kvöldi miðvikudagsins 3. mars. 10.3.2021 08:41
39 látnir eftir að bátar sukku undan ströndum Túnis Að minnsta kosti 39 eru látnir eftir að tveir bátar hlaðnir farandfólki sukku undan ströndum Túnis í gær. Fólkið var að freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið til ítölsku eyjunnar Lampedusa, að sögn varnarmálaráðuneytis Túnis. 10.3.2021 07:47
Heilbrigðiskerfi Brasilíu að sligast Heilbrigðiskerfi stærstu borga Brasilíu er komið að fótum fram vegna útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Fiocruz stofnuninni. 10.3.2021 07:32
Biden í basli á landamærunum Þrátt fyrir að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hafi skrifað undir forsetatilskipanir og gripið til annarra aðgerða á fyrsta degi í embætti, hefur það litlum árangri skilað á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Í ljósi þess öngþveitis sem ríkir þar. 9.3.2021 23:01
Nær tvöfalt fleiri munu eiga rétt á skimun fyrir lungnakrabba Skimunarráð Bandaríkjanna hefur uppfært tillögur sínar varðandi skimun fyrir lungnakrabbameinum, sem mun gera það að verkum að nær tvöfalt fleirum er ráðlagt að gangast undir árlega tölvusneiðmyndarannsókn en áður var. 9.3.2021 21:25
Tveggja alda gömul tré í spíru Notre Dame felld Franskir skógarhöggsmenn byrjuðu í gær að fella forn eikartré sem valin hafa verið vegna endurbyggingar spíru dómkirkjunnar Notre Dame í París. Fyrstu trén voru felld í í Berceskógi og var það fyrsta um 230 ára gamalt. 9.3.2021 21:01
Enginn Morgan á morgnana í kjölfar ummæla um Meghan Sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan hefur ákveðið að hætta sem einn þáttastjórnenda Good Morning Britain, eftir uppákomu í þættingum í gærmorgun þegar viðtal hertogahjónanna Harry og Meghan við Oprah Winfrey bar á góma. 9.3.2021 19:03
Drottningin döpur yfir erfiðleikum Meghan og Harrys Elísabet Englandsdrottning segir alla konungsfjölskylduna dapra eftir að hafa komist að því til fulls í viðtali Opruh Winfrey við Harry og Meghan hversu erfið síðustu ár hafi reynst þeim. Almenningsálitið í Bretlandi virðist vera á sveif Meghan. 9.3.2021 18:25
Drottningin tjáir sig um viðtalið Elísabet Bretadrottning segir alla bresku konungsfjölskylduna sorgmædda yfir því hvað síðustu ár hafi verið erfið fyrir Meghan Markle og Harry Bretaprins. 9.3.2021 17:46