Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetaframbjóðandi lést úr Covid rétt eftir kosningar Guy-Brice Parfait Kolelas, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar og forsetaframbjóðandi í Vestur-Kongó, lést af völdum Covid-19 aðeins nokkrum klukkustundum eftir að kjörstöðum var lokað í gær. Kolelas var einn af sex mótframbjóðendum Denis Sassou Nguesso, sitjandi forseta. 22.3.2021 11:34
Útgöngubann vegna glundroða á Miami-strönd Borgaryfirvöld á Miami-strönd í Bandaríkjunum lýstu yfir neyðarástandi og komu á útgöngubanni á kvöldin til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirufaraldursins eftir að þúsundir skemmtanaglaðra ferðamanna í vorfríi söfnuðust saman í borginni um helgina. Lögregla notaði piparúða til að dreifa mannfjöldanum. 22.3.2021 10:54
Trump rannsakaður hátt og lágt Donald Trump, sem nýtur ekki lengur friðhelgi foretaembættisins, á nú yfir höfði sér fjölmörg dómsmál, bæði einkamál og sakamál. Sum tengjast gjörðum hans á meðan hann sat enn í embætti en önnur viðskiptagjörningum og óvarlegum umælum, svo eitthvað sé nefnt. 22.3.2021 09:04
Mikil flóð í Nýja Suður-Wales Um átján þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í Ástralíu vegna mikilla flóða í Nýja Suður-Wales en gríðarlegar rigningar hafa verið á svæðinu síðustu daga. 22.3.2021 08:39
Erindrekar í Malasíu reknir heim til Norður-Kóreu Erindrekar Norður-Kóreu hafa yfirgefið sendiráð ríkisins í Malasíu og setja stefnuna heim á leið eftir að ríkin tvö slitu opinberum samskiptum. Það var gert eftir að Malasía framseldi grunaðan glæpamann frá Norður-Kóreu til Bandaríkjanna. 21.3.2021 13:12
Ekki fleiri nýsmitaðir á Indlandi í fjóra mánuði Heilbrigðismálaráðuneyti Indlands segir 43.846 manns hafa greinst smitaða af Covid-19 undanfarin sólarhring. Fjöldi nýsmitaðra hefur ekki verið hærri í fjóra mánuði og hefur aukningin leitt til hertra samkomutakmarkana víða. 21.3.2021 11:00
Þrennt drukknaði við strendur Grænlands Tveir menn og kona drukknuðu eftir sjóslys við strendur Grænlands á fimmtudaginn. Fólkið var á siglingu frá Narsaq til Qaqortoq við suðurstrendur Grænlands en skilaði sér ekki á áfangastað. 21.3.2021 08:28
Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. 20.3.2021 22:52
British Airways horfir til heimavinnunnar og íhugar að selja höfuðstöðvarnar Forsvarsmenn British Airways íhuga nú að selja höfuðstöðvar sínar vegna þess hve margir starfsmenn eru farnir að vinna heima. Höfuðstöðvarnar voru byggðar árið 1998 og kostuðu 200 milljónir punda, eða um 35 milljarða íslenskra króna. 20.3.2021 21:32
Breskir sérfræðingar segja hefðbundið ferðasumar ólíklegt og óráðlegt Einn ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar segir afar ólíklegt að sólarlandaferðir séu í kortunum hjá Bretum í sumar, vegna hættunnar á því að fólk snúi heim með nýtt afbirgði SARS-CoV-2 í farteskinu. 20.3.2021 19:07
Sex ljón afhöfðuð og hrammarnir hirtir Sex ljónshræ hafa fundist í Queen Elizabeth National Park í Úganda. Grunur leikur á um að eitrað hafi verið fyrir dýrunum en búið var að afhöfða þau og fjarlæga hramma þeirra. 20.3.2021 18:35
Börn Úígúra tekin af fjölskyldumeðlimum og flutt í búðir fyrir munaðarleysingja Yfirvöld í Kína hafa flutt börn Úígúra sem flúið hafa frá Xinjianghéraði í opinber munaðarleysingjahæli, jafnvel þó þau hafi búið hjá ættingjum sínum og fjölskyldumeðlimum. 20.3.2021 11:56
Samkomutakmarkanir ekki leitt til fleiri fæðinga á Vesturlöndum Nýlegar rannsóknir og bráðabirgðatölfræði í Bandaríkjunum og Evrópu leiða í ljós að ekki hefur orðið sprenging í fæðingum í upphafi þessa árs eins og einhverjir bjuggust ef til vill við þegar samkomutakmarkanir voru settar á víða um heim vegna kórónuveirufaraldursins; fólk hefði lítið annað að gera en að fjölga sér. 20.3.2021 07:01
Finna örplast í snjó í Síberíu Rússneskir vísindamenn hafa fundið örplast í snjósýnum sem þeir tóku á tuttugu stöðum í Síberíu. Plastagnirnar virðist þannig berast með lofti frá mannabyggðum til afskekktustu óbyggða. 19.3.2021 15:06
Rannsaka aðild starfsmannastjóra Trump að þrýstingsherferð í Georgíu Athafnir Marks Meadow, fyrrverandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, í þrýstingsherferð Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, til að breyta kosningaúrslitum í Georgíu eru líklegar til að vekja athygli umdæmissaksóknara sem rannsakar hvort að Trump hafi brotið lög með afskiptum sínum af kosningunum. 19.3.2021 13:37
Fyrsti fundur Biden-liða og Kínverja fór ekki vel af stað Fyrsti fundur háttsettra embættismanna Bandaríkjanna og Kína fór harkalega af stað í Alaska í gærkvöldi. Báðar hliðar fóru hörðum orðum um hina fyrir framan myndavélar á viðburði sem við hefðbundnar aðstæður tekur einungis nokkrar mínútur en tók nú tæpa klukkustund. 19.3.2021 10:47
Lögregla hefur rannsókn á sóttvarnabrotum Solbergs Lögregla í Noregi hefur hafið rannsókn á sóttvarnabrotum norska forsætisráðherrans Ernu Solberg. Greint var frá því í gær að Solberg hafi gerst brotleg við reglur þar sem hún settist til borðs með þrettán öðrum þegar hún hélt upp á sextugsafmæli sitt í lok febrúar. 19.3.2021 09:48
Danir gera eins og Svíar og hætta að tala um „Hvíta-Rússland“ Utanríkisráðuneyti Danmerkur hefur greint frá því að hætt verði að notast við nafnið Hvíta-Rússland, það er Hviderusland, og að framvegis verði notast við nafnið Belarus um landið. Er það gert eftir óskir frá stjórnarandstöðunni í landinu. 19.3.2021 08:44
„Mamma“ Samia fyrsta konan á forsetastóli í Tansaníu Samia Suluhu Hassan varð í dag fyrsta konan til þess að gegna embætti forseta Tansaníu þegar hún sór embættiseið. Hassan var varaforseti Johns Magufuli sem er sagður hafa látist úr hjartaáfalli í vikunni. Hún nýtur virðingar á meðal landsmanna sem kalla hana „Mömmu“ Samiu. 19.3.2021 08:40
Hyggst láta bólusetja sig með AstraZeneca til að fullvissa Breta um öryggi Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hyggst láta bólusetja sig með bóluefni AstraZeneca til að fullvissa Breta um að bóluefnið sé öruggt. Nokkurrar tortryggni hefur gætt í garð bóluefnisins eftir að tilkynningar bárust um alvarlegar aukaverkanir. 19.3.2021 07:43
Erna Solberg braut sóttvarnareglur í ferð með fjölskyldunni Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, braut sóttvarnareglur í febrúar þegar hún borðaði kvöldverð með þrettán öðrum. Þetta kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins NRK en brotið átti sér stað á meðan Solberg var í fríi í skíðabænum Geilo þar sem hún hélt upp á sextugsafmæli sitt. Þar var hún stödd ásamt fjölskyldu, tveimur systrum sínum og fjölskyldum þeirra. 18.3.2021 23:08
Stígur fram og sakar Armie Hammer um nauðgun 24 ára gömul kona, sem gengur undir nafninu Effie, hefur stigið fram og sakað leikarann Armie Hammer um andlegt og kynferðislegt ofbeldi í fjögurra ára sambandi þeirra. Samband þeirra stóð yfir með hléum á sama tíma og hann var giftur fyrrverandi eiginkonu sinni Elizabeth Chambers. 18.3.2021 22:31
Óttast þriðju bylgjuna og skella í lás Útgöngubann verður sett á í frönsku höfuðborginni París í ljósi þess að kórónuveirusmitum fer fjölgandi. Síðasta sólarhringinn greindust 35 þúsund í Frakklandi og verður gripið til sambærilegra aðgerða á fimmtán svæðum til viðbótar. 18.3.2021 21:14
The Sun réði einkaspæjara til að fá upplýsingar um Meghan Breska götublaðið The Sun borgaði bandaríska einkaspæjaranum Daniel Hanks fyrir að sækja upplýsingar um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á fyrstu stigum sambands hennar við Harry Bretaprins. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið í kvöld. 18.3.2021 19:58
Bein útsending: Síðasta prófið fyrir fyrsta skotið til tunglsins Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og Boeing munu í kvöld kveikja á fjórum hreyflum fyrstu eldflaugarinnar sem skjóta á á braut um tunglið seinna á árinu. 18.3.2021 19:01
Lyfjastofnun Evrópu gefur AstraZeneca grænt ljós Lyfjastofnun Evrópu (EMA) segir að bóluefni AstraZenica sé öruggt og skilvirkt. Að kostir þess skyggi á áhættu og að notkun þess feli ekki í sér aukna áhættu á blóðtöppum. Frekari rannsókna væri þó þörf. 18.3.2021 16:13
Covid-kreppa Trump Á meðan margir milljarðamæringar hafa hagnast gríðarlega síðustu misseri hefur öðrum ekki farnast jafn vel í heimsfaraldrinum sem nú gengur yfir. 18.3.2021 16:01
Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu. 18.3.2021 15:56
Botnvörpuveiðar taldar losa jafnmikið og flugsamgöngur Allt að milljarður tonna af koltvísýringi losnar út í höf jarðar vegna botnvörpuveiða á ári, meira en losnar frá samgöngum út í loftið. Þetta er á meðal bráðabirgðaniðurstaðna nýrrar rannsóknar á hvernig þjóðir geta barist gegn loftslagsbreytingum og hruni vistkerfa hafsins. 18.3.2021 15:09
Spánn fjórða Evrópuríkið til að lögleiða dánaraðstoð Spænska þingið samþykkti í dag að heimila dánaraðstoð og líknardráp hjá sjúklingum sem glímt hafa við ólæknandi sjúkdóma til að gefa þeim möguleika á að binda enda á þjáningar sínar. Spánn verður þar með sjöunda ríki heims til að lögleiða dánaraðstoð og það fjórða í Evrópu. 18.3.2021 14:04
Ætla ekki að tala við Bandaríkin án ívilnana Yfirvöld í Norður-Kóreu segjast ekki ætla að ræða við Bandaríkjamenn um mögulega afvopnun, fyrr en Bandaríkin hafa látið af „fjandsamlegri“ stefnu sinni gagnvart einræðisríkinu. Meðlimir ríkisstjórnar Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hafa reynt að ná sambandi við kollega sína í Norður-Kóreu frá því í febrúar en án árangurs. 18.3.2021 13:40
Telja blóðtappa heiftarleg ónæmisviðbrögð við bóluefninu Rannsakendur við Háskólasjúkrahúsið í Osló telja að bóluefni AstraZeneca hafi valdið blóðtappa í þremur heilbrigðisstarfsmönnum þar. Efnið hafi valdið sterku ónæmissvari í fólkinu sem hafi orskaða blóðtappa. 18.3.2021 12:30
Pashinyan boðar til kosninga Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, boðaði í morgun til þingkosninga í landinu sem eiga að fara fram 20. júní. Mikil spenna og óvissa hefur verið í armenskum stjórnmálum síðustu mánuði eftir hin vopnuðu átök Armena og Asera um Nagorno-Karabakh. 18.3.2021 12:16
Keypti skál á garðsölu fyrir 35 dali en seldi hana fyrir 722 þúsund dali á uppboði Postulínsskál sem áhugamaður um fornminjar keypti fyrir 35 dali í garðsölu í New Haven í Connecticut í Bandaríkjunum í fyrra hefur verið seld á uppboði fyrir 722 þúsund dali. Það samsvarar rúmlega 90 milljónum króna. 18.3.2021 11:50
WHO ráðleggur Evrópuríkjum að nota bóluefni AstraZeneca Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) hvatti Evrópuríkja til þess að halda áfram að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni þrátt fyrir nokkrar tilkynningar um blóðtappa. Bóluefnið bjargi mannslífum og ábati af því vegi mun þyngra en áhættan. 18.3.2021 11:50
Ákærður fyrir átta morð eftir „mjög slæman dag“ Maður sem skaut átta til bana, þar af sex konur af asískum uppruna, í árásum á þrjár mismunandi nuddstofum í Atlanta í Bandaríkjunum í vikunni hefur verið ákærður fyrir átta morð. Hinn 21 árs gamli árásarmaður segist ekki vera rasisti. 18.3.2021 10:24
Rússar kalla sendiherra sinn heim vegna ummæla Biden um Pútín Stjórnvöld í Kreml hafa kalla rússneska sendiherrann í Bandaríkjunum heim til skrafs og ráðagerða vegna ummæla Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, um að Vladímír Pútín, rússneski starfsbróðir hans, sé „morðingi“ sem muni súpa seyðið af því að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar vestanhafs í haust. 18.3.2021 09:07
Grænlenskur togari sokkinn eftir tveggja daga eldsvoða Grænlenski togarinn Polar Aassik er nú sokkinn undan ströndum Qasigiannguit á vesturströnd landsins, en eldur hafði logað í skipinu í um tvo sólarhringa. 18.3.2021 08:22
Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. 18.3.2021 08:02
Forseti Tansaníu látinn 61 árs að aldri John Magufuli, forseti Tansaníu, lést í gær 61 árs að aldri. Varaforseti landsins greindi frá þessu í sjónvarpsávarpi í dag og sagði Magufuli hafa dáið á spítala í Dar es Salaam, stærstu borg landsins, eftir glímu við bráð hjartavandamál. 17.3.2021 22:55
James Levine látinn James Levine, fyrrverandi tónlistarstjóri Metropolitan-óperunnar í New York, er látinn 77 ára að aldri. Hann lést þann 9. mars síðastliðinn en New York Times greinir frá. 17.3.2021 18:08
ESB íhugar að banna útflutning á bóluefni til Bretlands Evrópusambandið hótaði því að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands til að tryggja sem flesta skammta fyrir sína eigin þegna. Sambandið er ósátt við hversu fáir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem samið var um hafa verið afhentir til þessa. 17.3.2021 16:03
Ráðherrar á flakki um Asíu gagnrýna Kínverja harðlega Yfirvöld í Bandaríkjunum opinberuðu í gær viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir gegn 24 embættismönnum í Kína og Hong Kong vegna andlýðræðislegra aðgerða Kínverja í Hong Kong. 17.3.2021 15:27
Tveir látnir eftir stærðarinnar flugeldasprengingu á heimili Tveir menn eru látnir eftir stórar flugeldasprengingar á heimili í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær. Þrír særðust lítillega og einn hundur drapst í sprengingunni sem skóku hverfi í borginni Ontario, nærri Los Angeles. 17.3.2021 14:05
Banna föngun fugla í límgildrur Evrópudómstóllinn hefur ákveðið að banna alfarið föngun fugla með því að bera lím á trjágreinar, jafnvel þótt um sé að ræða gamla veiðihefð. Stjórnvöld í Frakklandi bönnuðu aðferðina í fyrra en ákvörðuninni var harðlega mótmælt af veiðimönnum. 17.3.2021 13:52