Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árásin í gær vekur spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið Árásin sem gerð var við bandaríska þinghúsið í Washington DC í gær, þar sem einn lögreglumaður lést og annar særðist, hefur vakið nýjar spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið. Aðeins þrír mánuðir eru liðnir síðan æstur múgur gerði atlögu að þinghúsinu en þá létust fimm og enn fleiri særðust. 3.4.2021 11:42
Ítalir skella í lás yfir páska: Um 20 þúsund greinast á degi hverjum Ítalía er eldrauð þegar kemur að kórónuveirufaraldrinum og hefur allt verið sett í lás í þrjá daga til að koma í veg fyrir enn meiri fjölgun tilvika yfir páska. Um 20 þúsund ný tilfelli Covid-19 greinast nú á degi hverjum. 3.4.2021 10:23
Tugþúsundir heilbrigðisstarfsmanna þjást af langvarandi Covid Að minnsta kosti 122 þúsund starfsmenn opinberu heilbrigðisþjónustunnar (NHS) þjást af langvarandi áhrifum Covid-19, samkvæmt hagstofu Bretlands. Stjórnendur NHS eru uggandi vegna áhrifa þessa á mönnun. 3.4.2021 08:58
Bandaríkjamenn og Íranir hefja viðræður um kjarnorkusamning Óformlegar viðræður milli Bandaríkjanna og Íran til þess að endurvekja kjarnorkusamning ríkjanna frá 2015 munu hefjast á þriðjudag í Vín. Yfirvöld í Teheran hafa neitað að setjast formlega við samningsborðið en Bandaríkin segja fundinn marka jákvætt skref. 2.4.2021 23:33
Biden býður Úkraínu „óhagganlegan stuðning“ gegn Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi í dag í fyrsta sinn í Volodymyr Zelenskiy, forseta Úkraínu á embættistíð sinni. Hann nýtti símtalið til að lýsa yfir stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu í deilunum við Rússa. 2.4.2021 21:31
Lögreglumaður drepinn í árásinni á þinghúsið William Evans, lögreglumaður hjá bandaríska þinghúsinu, var drepinn í árás sem gerð var fyrir utan þinghúsið í dag. Hann, ásamt öðrum lögreglumanni, varð fyrir bíl sem ekið var á þá við öryggistálma fyrir utan þinghúsið í dag. 2.4.2021 20:47
Bandarískar hersveitir í Evrópu í viðbragðsstöðu vegna Rússa Rússar hafa varað NATO við því að senda hersveitir til hjálpar Úkraínu en fregnir hafa nú borist af því að hersveitir Rússa safnist nú saman við landamærin að Úkraínu. Talsmaður Kreml sagði í dag að Rússland myndi grípa til frekari ráðstafana sendi NATO hersveitir til þess að mæta Rússum. 2.4.2021 17:54
Þinghúsi Bandaríkjanna lokað vegna árásar Þinghúsi Bandaríkjanna og aðliggjandi svæði í Washington DC hefur verið lokað eftir að bifreið var ekið á tvo lögreglumenn við öryggistálma fyrir utan þinghúsið. Hinn grunaði var skotinn af lögreglumönnum eftir að hann steig út úr bifreiðinni með kuta á lofti. 2.4.2021 17:47
Tugir látnir og um tvö hundruð sitja föst eftir lestarslys Minnst 41 hefur látist og hátt í tvö hundruð eru föst í lestargöngum í Taívan eftir að hraðlest fór út af sporinu þar í gær. Tugir eru slasaðir og björgunarfólk reynir hvað það getur að komast að fólkinu. 2.4.2021 09:10
Floyd var dáinn þegar bráðaliðar komu á staðinn Tveir bráðaliðar, sem fóru á vettvang þegar lögreglumaðurinn Derek Chauvin banaði George Floyd, sögðu í vitnastúku í Minneapolis í dag að hvorki hafi fundist púls né andardráttur hjá Floyd þegar þeir mættu á vettvang. 1.4.2021 23:42
Meira en 40 börn hafa látist í átökunum í Mjanmar Minnst 43 börn hafa verið drepin af mjanmarska hernum frá 1. febrúar síðastliðnum, þegar herinn rændi völdum í landinu. Frá valdaráninu hafa stuðningsmenn lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar landsins og herinn tekist á og hundruð dáið í átökunum. 1.4.2021 17:44
Létu þriggja og fimm ára stúlkubörn falla niður fjögurra metra háan landamæravegg Bandaríska landamæragæslan birti í gær myndband sem sýnir hvar tvö börn eru látin detta yfir rúmlega fjögurra metra háan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Börnin tvö eru systkini frá Ekvador og talið er að smyglarar hafi verið að verki. 1.4.2021 16:24
WHO: Dreifing bóluefna í Evrópu „óásættanlega hæg“ Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýnir harðlega bólusetningar í Evrópu, sem stofnunin segir ganga „óásættanlega hægt.“ Stofnunin hefur áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins í álfunni. 1.4.2021 14:26
Verður sviptur riddaratign vegna barnaníðs Einn þekktasti viðskiptamaður Nýja-Sjálands, Ron Brierley, hefur gengist við því að hafa haft barnaníðsefni í fórum sínum. Myndefnið sýndi börn allt niður í tveggja ára gömul. Vinna er hafin við að svipta Brierley riddaratign vegna málsins. 1.4.2021 09:36
Barn meðal látinna í þriðju fjöldaskotárásinni á innan við mánuði Fjögur létust, þar af eitt barn, í skotárás á skrifstofubyggingu í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. Hinn grunaði særðist í skotbardaga við lögregluna og hefur verið handtekinn. 1.4.2021 08:26
Sýndu nýjar myndir af handtöku Floyds Ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumanninum sem ákærður hefur verið fyrir að hafa banað George Floyd þegar hann kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur, sýndi kviðdómi í gær myndbönd af handtöku og dauða Floyds sem tekin voru á búkmyndavélar lögreglumanna á vettvangi. 1.4.2021 07:59
Klúður í verksmiðju tefur bóluefni Johnson & Johnson Um fimmtán milljónir skammta af bóluefni Johnson & Johnson gegn kórónuveirunni eru sagðir hafa eyðilagst þegar starfsmenn í verksmiðju í Baltimore rugluðu saman innihaldsefnum fyrir nokkrum vikum. Klúðrið er sagt tefja afhendingu á bóluefninu. 31.3.2021 23:50
Frakkar herða aftur á aðgerðum gegn veirunni Skólar í Frakklandi verða lokaðir næstu þrjár vikurnar í það minnsta samkvæmt nýjum og hertum sóttvarnaaðgerðum sem Emmanuel Macron forseti kynnti í dag. Varaði hann við því að yfirvöld gætu misst tökin á kórónuveirufaraldrinum yrði ekki gripið til aðgerða strax. 31.3.2021 19:48
Navalní í hungurverkfall í fangelsinu Alexei Navalní, einn helsti stjórnarandstæðingur Rússlands, hóf hungurverkfall til að þrýsta á fangelsisyfirvöld að sjá honum fyrir læknisaðstoð. Hann er sagður þjást af bráðum verkjum í baki og fótleggjum. 31.3.2021 17:43
Orsakasamband ekki sannað en hugsanlegt Orsakasamband milli bóluefnis AstraZeneca og blóðtappa í þeim sem þegið hafa bóluefnið hefur ekki verið sannað, en það er hugsanlegt. 31.3.2021 14:33
Bóluefni Pfizer með fullkomna virkni hjá tólf til fimmtán ára Forsvarsmen Pfizer segja nýjustu rannsóknir sýna að bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19 sé 100 prósent virkt þegar það er gefið börnum á aldrinum 12 til 15 ára og framkalli öflugt ónæmisviðbragð. 31.3.2021 13:09
Ekki alvarleg nauðgun fyrst þolandinn valdi að verða ölvaður Dómstólar í Minnesota í Bandaríkjunum máttu ekki dæma mann fyrir alvarlega (e. felony) nauðgun, þar sem konan sem hann braut gegn neytti áfengis sjálfviljug áður en árásin átti sér stað. 31.3.2021 11:51
Lýsti því hvernig Floyd grátbað um að lífi hans yrði þyrmt Darnella Frazier, unglingsstúlkan sem tók myndband af George Floyd á meðan lögregluþjónninn Derek Chauvin þrýsti hné sínu að hálsi hans með þeim afleiðingum að Floyd lést, segir að hann hafi grátbeðið um að lífi sínu yrði þyrmt. 31.3.2021 08:55
Helmingur Breta nú með mótefni Helmingur allra Breta er nú kominn með mótefni gegn kórónuveirunni, annaðhvort eftir að hafa smitast af veirunni, eða eftir að hafa fengið bóluefni gegn hanni. 31.3.2021 08:22
Höfuðpaurinn í Watergate-innbrotinu er látinn G. Gordon Liddy, sem hefur verið nefndur höfuðpaurinn þegar kom að innbrotinu á skrifstofur Demókrataflokksins á Watergate-hótelinu í Washington árið 1972, er látinn. Hann varð níutíu ára. Watergate-hneykslið átti eftir að leiða til afsagnar Richards Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseta árið 1974. 31.3.2021 08:16
Hundur Bidens beit starfsmann Hvíta hússins Major, annar hunda Joe Biden Bandaríkjaforseta og Jill Biden konu hans, beit starfsmann Hvíta hússins á mánudaginn var. Þetta er í annað sinn sem Major, sem er þýskur fjárhundur, bítur frá sér eftir komuna í Hvíta húsið. 31.3.2021 07:10
Bandamaður Trump rannsakaður vegna mansals Bandarískur fulltrúadeildarþingmaður og náinn bandamaður Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, er sagður til rannsóknar vegna mansals. Hann er sagður grunaður um að greitt undir sautján ára gamla stúlku sem hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við. 30.3.2021 23:14
Hætta notkun bóluefnis AstraZeneca fyrir yngra fólk Þýsk yfirvöld hafa ákveðið að gefa fólki yngra en sextugu ekki bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vegna einstakra tilfella blóðtappa sem tilkynnt hefur verið um í fólki sem hefur fengið efnið. Lyfjastofnanir Evrópu og Bretlands hafa báðar mælt með áframhaldandi notkun bóluefnisins. 30.3.2021 22:43
Segir lækni hafa stækkað brjóst hennar án samþykkis Bandaríska leikkonan Sharon Stone segir að skurðlæknir hafi sett í hana stærri brjóstapúða en hún hafði samþykkt, í aðgerð sem hún gekkst undir árið 2001, í kjölfar þess að góðkynja æxli voru fjarlægð úr brjóstum hennar. 30.3.2021 21:27
Forsætisráðherra Slóvakíu segir af sér Igor Matovic, forsærisráðherra Slóvakíu, sagði af sér embætti í dag. Afsögnin kemur í kjölfar deilna milli samstarfsflokka í ríkisstjórninni um pöntun á bóluefni. 30.3.2021 15:02
45 tróðust undir í minningarathöfn Magufulis Lögregla í Tansaníu segir að 45 manns hafi látið lífið um liðna helgi eftir að hafa troðist undir í stærstu borg landsins, Dar es Salaam, þar sem verið var að heiðra John Pombe Magufuli, forseta Tansaníu, sem lést á dögunum. 30.3.2021 08:53
Segja þörf á alþjóðlegum sáttmála um heimsfaraldra Þörf er á alþjóðlegum sáttmála sem leggur línurnar fyrir það hvernig þjóðir heimsins taka á heimsfaraldri á borð við þann sem nú gengur yfir vegna Covid-19. 30.3.2021 08:09
Skiptir út sex ráðherrum í ríkisstjórninni Jair Bolsonaro Brasilíuforseti hefur skipt út sex ráðherrum í ríkisstjórn sinni en forsetinn sætir nú miklum þrýstingi vegna nýrrar bylgju í faraldrinum þar í landi. 30.3.2021 07:57
„Derek Chauvin sveik skjöld sinn“ Saksóknarar og verjendur í máli bandaríska fyrrum lögreglumannsins Dereks Chauvin, sem er ákærður fyrir morðið á George Floyd, fluttu upphafsræður sínar fyrir kviðdómi í Minneapolis í dag. Réttarhöldin yfir Chauvin eru hafin, tíu mánuðum eftir að Floyd lést þegar Chauvin kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur. 29.3.2021 23:23
Maxwell ákærð fyrir mansal í fyrsta sinn Ghislaine Maxwell, samverkakona og fyrrverandi kærasta auðkýfingsins Jeffrey Epstein, var í dag ákærð fyrir að hafa selt ólögráða barn í mansal. Hún er sökuð um að hafa fengið fjórtán ára stúlku til þess að taka þátt í kynferðislegum athöfnum með Epstein og að hafa síðan greitt stúlkunni fyrir. 29.3.2021 21:58
Von á bóluefni Janssen til Evrópu þann 19. apríl Bóluefni Janssen gegn Covid-19 fer í dreifingu í Evrópu þann 19. apríl næstkomandi að sögn Johnson & Johnson, móðurfyrirtækis Janssen. Bóluefnið hefur þá sérstöðu að ekki þarf tvo skammta af efninu svo það gefi fulla vörn. 29.3.2021 18:45
Óþefurinn frá vinnslustöðvunum aðeins peningalykt Kínverskar fiskimjölsvinnslur í Gambíu og ólöglegar veiðar stefna fiskistofnum þessa minnsta lands Afríku í stórhættu. Þetta sýnir rannsókn samtakanna Outlaw Ocean Project. 29.3.2021 18:45
Virkni bóluefna Moderna og Pfizer sögð 90% Rannsókn á framlínustarfsfólki í Bandaríkjunum bendir til þess að bóluefni Moderna og Pfizer hafi 90% virkni í að koma í veg fyrir kórónuveirusmit. Niðurstöður Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eru sagðar í samræmi við þær rannsóknir sem lyfjafyrirtækin gerðu með bóluefnin. 29.3.2021 15:54
Súesskurðurinn aftur opinn fyrir umferð Siglingar um Súesskurðinn í Egyptalandi hófust aftur með hefðbundnum hætti eftir að risavöxnu flutningaskipi sem hafði lokað skurðinum í hátt í viku var komið á flot í dag. Á fjórða hundrað skipa beið eftir að komast um skurðinn. 29.3.2021 15:11
Slakað á sóttvarnaaðgerðum utandyra í Bretlandi Allt að sex manns geta nú komið saman utandyra og íþróttir sem eru spilaðar úti eru aftur leyfðar eftir að slakað var verulega á sóttvarnaaðgerðum sem hafa gilt frá ársbyrjun í Bretlandi í dag. Nýjum kórónuveirusmitum hefur fækkað verulega með ströngum aðgerðum undanfarinna mánaða. 29.3.2021 13:29
Telja líklegast að veiran hafi borist úr dýrum Líklegast er að nýtt afbrigði kórónuveirunnar hafi borist úr leðurblökum í menn í gegnum aðra dýrategund samkvæmt niðurstöðum sameiginlegrar rannsóknar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og kínverskra stjórnvalda. „Afar ólíklegt“ er talið að veiran hafi sloppið út af tilraunastofu eins og samsæriskenningar hafa verið um. 29.3.2021 09:08
Hyggst segja af sér í apríl Nikol Pashinyan tilkynnti í gær að hann muni segja af sér embætti forsætisráðherra Armeníu í næsta mánuði til að draga úr þeirri spennu sem verið hefur í armenskum stjórnmálum síðustu vikur og mánuði. 29.3.2021 08:02
Dauðsföllin í Mexíkó sextíu prósent fleiri en áður var haldið fram Stjórnvöld í Mexíkó hafa gefið út nýjar tölur varðandi faraldur kórónuveirunnar þar í landi sem leiða í ljós að þar hefur ástandið verið mun verra en hingað til hefur verið haldið fram. 29.3.2021 07:50
„Er þetta nógu þjóðhollt?“ Undanfarin misseri hefur hatursglæpum gegn Bandaríkjamönnum af asískum uppruna fjölgað gríðarlega. Upptök þessarar bylgju hatursglæpa rekja margir til rasisma í kjölfar kórónuveirufaraldursins í garð asískra Bandaríkjamanna. 28.3.2021 20:24
Fordæma ofbeldið í kjölfar blóðugasta dags mótmælanna Morð stjórnvalda í Mjanmar á fjölda mótmælenda hafa vakið hörð viðbrögð annarra þjóða, en utanríkisráðherrar tólf þjóða hafa fordæmt athæfi herforingjastjórnarinnar í landinu, sem beitir mótmælendur hörðu ofbeldi í kjölfar valdaránsins sem framið var í landinu í upphafi febrúar. 28.3.2021 13:25