Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neita að ræða við uppreisnarmennina sem felldu forsetann Herráð Tjad mun ekki hefja viðræður við uppreisnarmennina sem felldu Idriss Deby, forseta landsins til þrjátíu ára. Eykur það líkurnar á því að uppreisnarmennirnir láti verða af hótunum sínum og ráðist á höfuðborg landsins, í samráði við aðra hópa sem eru ósáttir við að sonur Deby, Magamat, hafi tekið völdin í Tjad. 26.4.2021 08:42
Þúsundir mótmæltu ákvörðun um að rétta ekki yfir morðingja konu af gyðingaættum Þúsundir hafa mótmælt í París og víðar í Frakklandi þeirri ákvörðun dómstóls að rétta ekki yfir manni sem myrti 65 ára gamla konu. Dómstólar höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að um hatursglæp hefði verið að ræða en fórnarlambið var gyðingur. 26.4.2021 08:09
350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. 26.4.2021 07:30
Forsetinn segir ekki ljóst að Rússar beri ábyrgð á sprengingunni Milos Zeman, forseti Tékklands, sagði í dag að enn sé ekki víst hvort að rússneskir leyniþjónustumenn hafi borið ábyrgð á sprengingu sem varð í vopnageymslu landinu árið 2014. Hann sagði einnig möguleika á því að sprengingin hafi aðeins verið slys og ekki megi skjóta loku fyrir þá kenningu. 25.4.2021 14:02
Kafbáturinn fundinn, brotinn í að minnsta kosti þrjá búta Kafbátur indónesíska sjóhersins sem hvarf á miðvikudag með 53 manna áhöfn innanborðs er fundinn, brotinn í sundur í að minnsta kosti þrjá hluta. Indónesíski herinn greindi frá þessu á blaðamannafundi fyrr í dag en í gær hafði þegar fundist nokkuð brak úr kafbátnum auk persónulegra muna frá áhöfninni. 25.4.2021 13:32
Bernie segir fæðingarorlof á Íslandi aðeins 13 vikur Bernie Sanders, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, birti í gær færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir bandarísk stjórnvöld fyrir að hafa ekki tryggt foreldrum fæðingarorlof. Ber hann þar saman fæðingarorlofsréttindi foreldra í ýmsum löndum, þar á meðal Íslandi, og virðist ekki hafa kynnt sér málið nógu vel. 25.4.2021 11:52
Minnst 82 látin eftir eldsvoða á sjúkrahúsi fyrir Covid-19 sjúklinga Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu. 25.4.2021 10:43
Boða til viðræðna milli stríðandi fylkinga í Mjanmar Leiðtogar Sambands Suðaustur-Asíuríkja, Asean, komust í gær að niðurstöðu um áætlun til að binda endi á ofbeldið sem skekið hefur Mjanmar undanfarna mánuði. Þetta gerðu þeir í samráði við Min Aung Hlaing, æðsta herforingja Mjanmar. 25.4.2021 08:22
Biden viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Joe Biden Bandaríkjaforseti varð í gær fyrsti forseti Bandaríkjanna til þess að formlega lýsa fjöldamorðunum á Armenum árið 1915 sem þjóðarmorði. Morðin áttu sér stað í þá deyjandi Ottómanveldinu þar sem nú er Tyrkland. 25.4.2021 07:47
Stendur ekki við gefin loftslagsloforð Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, samþykkti í dag niðurskurð í fjárveitingum til umhverfismála þrátt fyrir að hafa lofað auknum fjármunum í málefnið á loftslagsráðstefnu í gær. 24.4.2021 15:19
Danir byrja að sparka sýrlenskum flóttamönnum úr landi Ríkisstjórn sósíaldemókrata í Danmörku er byrjuð að svipta suma sýrlenska flóttamenn sem fengu hæli vegna borgarastríðsins í heimalandinu landsvistarleyfi með þeim rökum að öruggt sé fyrir þá að snúa heim. Sérfræðingar vísa því mati danskra stjórnvalda á bug. 24.4.2021 15:01
Fundu brak úr kafbátnum og persónulega muni áhafnarinnar Kafbáturinn sem hvarf á miðvikudaginn með 53 manna áhöfn innanborðs úti fyrir ströndum Balí er sokkinn að sögn indónesíska sjóhersins. 24.4.2021 13:34
Segja faraldrinum lokið í Bretlandi en staðan aldrei verri á Indlandi Þriðja daginn í röð var slegið vafasamt met í fjölda dauðsfalla af völdum covid-19 á Indlandi. Á sama tíma hafa sérfræðingar lýst því yfir að faraldrinum sé lokið á Bretlandi. 24.4.2021 13:01
Herforinginn í fyrstu opinberu embættisferðinni eftir valdarán Ming Aung Hlaing, yfirherforingi mjanmarska hersins, flaug til Jakarta á Indónesíu í dag til að sækja neyðarleiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja, Asean, í Jakarta á Indónesíu í dag. Þetta er fyrsta opinbera embættisferð Hlaings eftir að herinn framdi valdarán í Mjanmar þann 1. febrúar síðastliðinn. 24.4.2021 09:37
Veik von um að kafbáturinn finnist í tæka tíð Dvínandi líkur eru taldar á því að kafbátur indónesíska sjóhersins, sem hvarf úti fyrir ströndum Balí, finnist í tæka tíð svo unnt sé að bjarga áhöfninni áður en súrefni verður á þrotum. 53 eru í áhöfninni en áætlað er að súrefni verði á þrotum nú að morgni laugardags að staðartíma. 24.4.2021 08:41
Bandarísk sendiráð mega aftur draga regnbogafánann að hún Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur heimilað sendiráðum og -skrifstofum um allan heim að draga regnbogafánann að hún til að styðja samfélag hinsegin fólks. 23.4.2021 23:18
„Algjört kerfishrun“: Kórónuveirufaraldurinn hömlulaus á Indlandi Hæstiréttur Indlands hefur kallað stöðu kórónuveirufaraldursins í landinu „neyðarástand“. En ástandið er verra, segir blaðamaður BBC. „Þetta er algjört kerfishrun,“ hefur hann eftir helsta veirufræðingi Indlands. 23.4.2021 22:43
Ráðgjafar CDC mæla með áframhaldandi notkun bóluefnisins frá Johnson & Johnson Ráðgjafar bandarísku sóttvarnastofnunarinnar í bóluefnamálum mæla með því að notkun Covid-19 bóluefnisins frá Johnson & Johnson verði haldið áfram. Tíu greiddu atkvæði með tillögunni, fjórir á móti og einn sat hjá. 23.4.2021 21:11
Vann súrefni úr marsnesku lofti í fyrsta sinn Tæki um borð í könnunarjeppanum Perseverance á reikistjörnunni Mars vann súrefni úr lofti þar í fyrsta skipti í vikunni. Tilrauninni er ætlað að kanna fýsileika þess að vinna súrefni á staðnum sem er forsenda fyrir því að hægt verði að senda menn til Mars í framtíðinni. 23.4.2021 21:01
Lögreglukona látin eftir stunguárás nærri París Frönsk lögreglukona er látin eftir að árásarmaður vopnaður eggvopni réðst inn á lögreglustöð í bænum Rambouillet, suðvestur af París í dag. Árásarmaðurinn var skotinn og lést á sjúkrahúsi. 23.4.2021 15:03
Navalní hættur í hungurverkfalli að læknaráði Tuttugu og fjögurra daga löngu hungurverkfalli Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, er lokið. Navalní tilkynnti þetta í dag skömmu eftir að læknar vöruðu við því að hann gæti látið lífið héldi hann verkfallinu til streitu. 23.4.2021 14:36
Að minnsta kosti tveir heimiliskettir á Bretlandseyjum hafa smitast af eigendum sínum Rannsakendur á Bretlandseyjum hafa fundið tvö tilvik þar sem eigendur smituðu kettina sína af SARS-CoV-2. Í báðum tilvikum voru eigendurnir með einkenni Covid-19 þegar kettirnir smituðust. Þeir sýndu sömuleiðis einkenni sjúkdómsins. 23.4.2021 13:34
Malaríubóluefnið sem hraðaði þróun efnis AstraZeneca markar tímamót í baráttunni Talið er að nýtt bóluefni gegn malaríu geti markað tímamót í baráttunni við sjúkdóminn eftir að bóluefnið sýndi 77% virkni í fyrstu athugunum. Yfir 400.000 manns deyja af völdum malaríu á ári hverju, stærstur hluti þeirra börn í Afríku sunnan Sahara. 23.4.2021 13:09
Flestir vilja dóttur Duterte sem næsta forseta Dóttir Rodrigo Duterte, forseta Filippseyja, er sú sem flestir landsmenn vilja að taki við af honum samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar í aðdraganda forsetakosninga á næsta ári. Hún heldur því þó fram að hún hafi engan áhuga á að bjóða sig fram. 23.4.2021 12:19
Geimfarar á leið til geimstöðvarinnar með ferju SpaceX Fjórir geimfarar eru um borð í geimferju fyrirtækisins SpaceX sem verður skotið á loft frá Flórída í Bandaríkjunum nú í morgun. Ferðinni er heitið í Alþjóðlegu geimstöðina á braut um jörðu. 23.4.2021 08:24
Börn getin eftir Tsjernóbyl-slysið erfa ekki skaðann sem foreldrarnir urðu fyrir Einstaklingar sem urðu fyrir geislamengun í Tsjernóbyl arfleiða börnin sín ekki að þeim skaða sem þeir kunna sjálfir að hafa orðið fyrir. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar á börnum foreldra sem unnu við hreinsun eftir kjarnorkuslysið. 23.4.2021 08:17
Bandaríkjaher leggur leitinni að kafbátnum lið Flugvélar Bandaríkjahers er nú á leiðinni til að aðstoða við leit að indónesískum kafbáti sem hvarf með 53 manna áhöfn við æfingar norður af Balí á miðvikudag. Aðeins nokkrar klukkustundir eru taldar til stefnu áður en súrefnið í kafbátnum er á þrotum. 23.4.2021 08:00
Hvetja Navalní til að hætta hungurverkfallinu Læknar Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstæðingsins, hvetja hann til að hætta strax hungurverkfalli sínu í fangelsinu þar sem rússnesk yfirvöld halda honum. Þeir óttast að halda hann því áfram dragi það hann til dauða. 23.4.2021 07:43
Þrettán látast í eldsvoða á bráðadeild og metfjöldi greinist með Covid-19 Þrettán létust þegar eldur braust út á bráðadeild Vijay Vallabh-sjúkrahússins í Maharashtra á Indlandi í morgun. Búið er að slökkva eldinn og hafa fjórir verið fluttir á annað sjúkrahús. 23.4.2021 07:17
Krabbameinstilfellum hefur fækkað um 86 prósent vegna bóluefnis Niðurstöður danskrar rannsóknar benda til þess að bóluefni gegn HPV veirunni hafi leitt til fækkunar leghálskrabbameinstilfella um 86 prósent. Þá minnkar bóluefnið líkurnar á frumubreytingum töluvert. Rannsóknaraðilar segja að niðurstöðurnar lofi góðu og séu fyrsta skrefið í að koma í veg fyrir leghálskrabbamein alfarið. 22.4.2021 23:31
Strandaglópur snýr loks heim eftir fjögurra ára einveru Sjómaðurinn Mohammed Aisha hefur undanfarin fjögur ár þurft að dvelja einn í skipinu MV Amman við strendur Egyptalands en hefur nú loks verið frelsaður og er floginn heim til Sýrlands. Hann segist finna fyrir miklum létti enda ekki auðvelt að vera einn í fjögur ár. 22.4.2021 20:39
Bandaríkin vilja leiða baráttuna gegn loftslagsvánni Bandaríkin kynntu í dag nýja lofslagsáætlun en ríkið stefnir á að draga úr mengun gróðurhúsalofttegunda um 50-52 prósent, miðað við losun árið 2005, fyrir 2030. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti áætlunina á loftslagsráðstefnu í dag. 22.4.2021 18:41
Washington DC skrefi nær því að verða ríki Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag tillögu þess efnis að Washington DC verði 51. ríki Bandaríkjanna. Það er annað skiptið á innan við ári sem málið er tekið fyrir í fulltrúadeildinni en verður því nú vísað til öldungadeildar þingsins. 22.4.2021 18:00
Rússar draga hersveitir sínar til baka Fjöldi rússneskra hersveita var í dag skipað að yfirgefa landamærin að Úkraínu og snúa aftur í herstöðvar sínar. Mikil spenna hefur verið milli ríkjanna undanfarnar vikur og hafa miklar áhyggjur ríkt um yfirvofandi borgarastríð í austurhluta Úkraínu með aðild Rússa. 22.4.2021 17:28
Varð ófrísk að öðru barni á meðan hún var þegar ólétt af því fyrsta Kona nokkur í Bretlandi, hin 39 ára Rebecca Roberts, varð ófrísk að öðru barni á meðan hún gekk með annað. Hún og eiginmaður hennar, Rhys Weaver sem er fjórum árum eldri, höfðu reynt árangurslaust í rúmt ár að eignast barn þegar það loksins tókst og rúmlega það. Getnaður varð ekki einu sinni heldur tvisvar með þriggja vikna millibili. 22.4.2021 14:39
Metfjöldi tilfella á heimsvísu og skortur á súrefni á Indlandi Hátt í 315 þúsund greindust með covid-19 á Indlandi síðasta sólarhringinn, sem er metfjöldi á einum degi, ekki aðeins á Indlandi heldur í heiminum öllum. Þá létust 2.104 úr covid-19 á Indlandi í gær sem er einnig met í fjölda dauðsfalla á einum degi í landinu. 22.4.2021 08:55
Mannskæð sprengjuárás á lúxushóteli Að minnsta kosti fjórir fórust og ellefu slösuðust í sprengjuárás á lúxushóteli í pakistönsku borginni Quetta í kvöld. 21.4.2021 23:30
Þurfa að brjóta upp rótgróið kerfi mismununar Derek Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn, var sakfelldur fyrir morðið á Bandaríkjamanninum George Floyd í gærkvöldi. Kviðdómurinn ákvað að sakfella Chauvin fyrir alla ákæruliði en hámarksrefsing fyrir brotin er fjörutíu ára fangelsi. 21.4.2021 23:30
Fjöldi mótmælenda handtekinn í Rússlandi Rússneska lögreglan hefur handtekið hátt í tvö hundruð manns sem tóku þátt í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, í dag. Mótmælendur kröfðust þess að Navalní fengi viðunandi læknisþjónustu í fangelsi en læknar hans segjast óttast um líf hans. 21.4.2021 16:40
Stórtækustu böðlarnir utan Kína í Miðausturlöndum Fjögur af þeim fimm ríkjum sem tóku flesta af lífi í fyrra eru Miðausturlönd. Saman stóðu Íran, Egyptaland, Írak og Sádi-Arabía fyrir nærri því níu af hverjum tíu aftökum sem vitað er um með vissu í heiminum samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. 21.4.2021 13:43
Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. 21.4.2021 12:55
Elísabet þakkar árnaðaróskir vegna afmælis síns og samhug vegna fráfalls Filippusar Starfsmenn Buckingham-hallar hafa birt skilaboð frá Elísabetu drottningu á Twitter, þar sem hún þakkar stuðning og góðvild í kjölfar andláts eiginmans síns, Filippusar prins. Elísabet er 95 ára í dag. 21.4.2021 12:44
Leita horfins kafbáts við Balí Indónesíski sjóherinn leitar nú að kafbáti með á sjötta tug manna um borð sem hvarf við æfingar norður af eyjunni Balí. Óskað hefur verið eftir aðstoð yfirvalda í Ástralíu og Singapúr við leitina. 21.4.2021 11:04
ESB stefnir á kolefnishlutleysi með nýju loftslagsmarkmiði Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu. 21.4.2021 10:46
Viðbrögð við sakfellingu Chauvin: „Í dag grátum við gleðitárum“ „Í dag grátum við gleðitárum,“ sagði Christ Stewart, lögmaður Floyd-fjölskyldunnar, þegar lögreglumaðurinn Derek Chauvin var fundinn sekur um að hafa orðið George Floyd að bana. 21.4.2021 10:30