Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagði lýðræðið þurfa að sanna sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði línurnar í nótt að umfangsmiklum breytum á velferðarkerfi Bandaríkjanna og umsvifum alríkisins á hagkerfið. Þetta sagði hann í fyrsta ávarpi sínu fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í nótt. 29.4.2021 08:59
Framkvæmdastjóri NRA harðlega gagnrýndur fyrir misheppnaða tilraun til að drepa fíl Myndbandsupptökur sem sýna framkvæmdastjóra hagsmunasamtaka bandarískra skotvopnaeigenda (NRA) skjóta fíl ítrekað án þess að takast að drepa skepnuna hafa verið harðlega gagnrýndar. 29.4.2021 07:37
Ákærðir fyrir hatursglæp vegna morðsins á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið ákærðir fyrir hatursglæp og tilraun til frelsissviptingar í tengslum við morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í fyrra. Feðgar sem eltu Arbery eru ákærðir fyrir að hafa myrt hann. 28.4.2021 23:52
Biden boðar von um betri tíð eftir faraldur og kreppu Efnahagsbati eftir kórónuveirufaraldurinn verður efst á baugi í fyrsta ávarpi Joes Biden Bandaríkjaforseta fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í kvöld. Í ávarpinu ætlar forsetinn að lýsa því hvernig Bandaríkin eru „komin aftur af stað“ og hvernig hann sér fyrir sér að alríkisstjórnin geti bætt líf landsmanna. 28.4.2021 23:31
Læstist inni í matvöruverslun eftir lokun Kona nokkur í norska bænum Lillestrøm, skammt austur af höfuðborginni Osló, kallaði eftir aðstoð lögreglu í kvöld eftir að hafa læsts inni í matvöruverslun eftir lokun. Konan hafði verið að versla í búðinni en svo virðist sem starfsfólk hafi ekki verið meðvitað um veru konunnar í versluninni þegar henni var skellt í lás. 28.4.2021 23:09
Brasilía hafnar rússneska bóluefninu Lyfjayfirvöld í Brasilíu synjuðu nokkrum þarlendum ríkjum um heimild til þess að flytja inn rússneska bóluefnið Spútnik V gegn kórónuveirunni. Þau telja trúverðug gögn um virkni bóluefnisins skorta og vísa til galla á tilraunum með það. Rússar segja pólitík búa að baki synjuninni. 28.4.2021 21:54
Bretar panta aukaskammta af bóluefni og hyggjast gefa þriðju sprautuna Bresk yfirvöld hafa pantað sextíu milljón aukaskammta af bóluefni Pfizer-BioNTech gegn covid-19 sem ætlunin er að nota til að bólusetja fólk með þriðju sprautunni af bóluefninu í haust. Þetta þýðir að Bretar hafa í heildina pantað hundrað milljónir skammta af bóluefni Pfizer. 28.4.2021 20:48
Leiðtogi norðurírsku heimastjórnarinnar segir af sér Arlene Foster, oddviti heimastjórnar Norður-Írlands, sagði af sér vegna innanflokksátaka í Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hún ætlar jafnframt að stíga til hliðar sem leiðtogi flokksins. 28.4.2021 19:37
Húsleit gerð á heimili Rudys Giuliani Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili og skrifstofu Rudys Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York og persónulegs lögmanns Donalds Trump fyrrverandi forseta, á Manhattan í dag. Leitin er sögð liður í rannsókn á því hvort að Giuliani hafi starfað fyrir erlend ríki á laun. 28.4.2021 18:32
Þriðji Apollo 11-geimfarinn látinn Michael Collins, flugmaður stjórnhylkisins Columbia sem flaug með þeim Neil Armstrong og Buzz Aldrin til tunglsins árið 1969, er látinn, níræður að aldri. Ólíkt félögum sínum tveimur steig Collins aldrei fæti á tunglið. 28.4.2021 17:48
Boris í bobba: Rannsaka hvort kosningasjóðir hafi verið notaðir ólöglega Yfirkjörstjórn Bretlands tilkynnti í dag að hefja ætti formlega rannsókn sem snýr að Boris Johnson, forsætisráðherra. Rannsóknin snýr að því hvort Johnson hafi notað kosningasjóði til að gera endurbætur á íbúð sinni við Downing-stræti. 28.4.2021 15:54
Selunum sigað á Kína og Rússland Yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að gera töluverðar breytingar á einhverjum frægust herdeildum sérsveitarmanna í heiminum. Með breytingunum eiga svokallaðir Selir að leggja minni áherslu á stríðið gegn hryðjuverkum og meiri áherslu á átök milli ríkja. 28.4.2021 15:07
Fögnuðu sigri gegn Covid en vöknuðu upp við vondan draum Tvö hundruð þúsund hafa nú látist af völdum kórónuveirunnar á Indlandi. Fleiri hafa einungis látist í Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó en ástandið hefur versnað hratt á Indlandi síðustu vikur. 28.4.2021 14:45
Britney mun ávarpa dómara í júní Söngkonan víðfræga Britney Spears mun ávarpa dómara sjálf í júní, vegna viðleitni hennar til að öðlast aukið sjálfræði og frelsi frá föður sínum. Ekki liggur þó fyrir hvað hún stefnir á að segja fyrir dómi. 28.4.2021 13:59
Skuldaði hinni látnu um 176 milljónir króna eftir dómsmál Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt konu á götu úti í Frogner-hverfi í norsku höfuðborginni Osló í morgun, skuldaði hinni látnu 11,8 milljónir norskra króna. Maðurinn hafði nýverið verið dæmdur til greiðslu bóta í dómsmáli sem staðið hafði í mörg ár. 28.4.2021 13:01
Finnsku stjórnarflokkarnir náðu samkomulagi Finnsku stjórnarflokkunum fimm hefur tekist að ná samkomulagi um fjárlagaramma til næstu þriggja ára. Hefur þannig tekist að koma í veg fyrir að stjórnin riði til falls líkt og sumir óttuðust eftir að viðræður drógust á langinn og leiðtogar eins stjórnarflokksins sögðust efast um framhald samstarfsins. 28.4.2021 11:38
Stefna að því að skjóta fyrsta hluta nýrrar geimstöðvar á loft á morgun Starfsmenn Geimvísindastofnunar Kína stefna að því að skjóta fyrsta hluta nýrrar geimstöðvar þeirra á loft á morgun. Þetta verður fyrsta af ellefu geimskotum sem tengjast byggingu geimstöðvarinnar, sem taka á í gagnið undir lok næsta árs. 28.4.2021 11:38
Annað ímyndað hneyksli gerir íhaldsmenn reiða Blaðamaður götublaðsins New York Post hefur hætt starfi sínu og segir að sér hafi verið skipað að skrifa kolranga frétt. Sú frétt var um að ríkisstjórn Joes Biden væri að útbýta barnabókum Kamölu Harris, varaforseta, og til ólöglegra innflytjenda á barnsaldri. 28.4.2021 09:29
Átta látnir eftir eldsvoða í Ríga Átta manns hið minnsta eru látnir og níu slasaðir eftir að mikill eldur kom upp í húsnæði sem hefur verið lýst sem ólöglegu farfuglaheimili í lettnesku höfuðborginni Ríga í morgun. 28.4.2021 09:02
Mikill meirihluti þingmanna samþykkir fríverslunarsamninginn við Breta Evrópuþingið hefur staðfest nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Bretlands í kjölfar Brexit. Samningurinn hefur verið í gildi frá því í janúar en var samþykktur í morgun með 660 atkvæðum. 28.4.2021 09:01
Kona skotin til bana á götu úti í Osló Kona var skotin til bana á götu úti í Frogner-hverfi í vesturhluta norsku höfuðborgarinnar Osló í morgun. Lögregla hefur handtekið mann sem grunaður er um verknaðinn. 28.4.2021 08:13
Dæmdur fyrir að níða og taka myndskeið af deyjandi lögreglumönnum Ástralskur maður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa myndað og talað niður til lögreglumanna þar sem þeir lágu fyrir dauðanum. Hinn 42 ára Richard Pusey hefur setið um 300 daga í gæsluvarðhaldi og verður líklega sleppt á næstu dögum. 28.4.2021 07:43
Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28.4.2021 06:47
Maxwell neitað um lausn gegn tryggingu enn eina ferðina Bandarískur áfrýjunardómstóll hefur hafnað beiðni Ghislaine Maxwell, sem ákærð er fyrir mansal og hlutdeild í kynferðisglæpum barnaníðingsins Jeffrey Epstein, um að geta losnað úr varðhaldi gegn tryggingu. 27.4.2021 23:48
Covid-pakki ESB í óvissu vegna erja á finnska stjórnarheimilinu Deilur innan finnsku ríkisstjórnarinnar tefla nú efnahagsaðgerðapakka Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins í tvísýnu. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja pakkann en finnska stjórnin er sögð ramba á barmi falls. 27.4.2021 23:40
Meina bólusettum kennurum að hitta nemendur Stjórn skóla nokkurs í Miami í Bandaríkjunum hefur hvatt starfsfólk sitt til að láta ekki bólusetja sig gegn Covid-19 og bannar bólusettum kennurum að vera í samskiptum við nemendur. 27.4.2021 22:58
Rannsaka viðbrögð Bolsonaro við faraldrinum Brasilíska þingið rannsakar nú viðbrögð ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro forseta við kórónuveirufaraldrinum sem hefur orðið að minnsta kosti 391.000 manns að bana í landinu. Bolsonaro segist engar áhyggjur hafa af rannsókninni jafnvel þó að hún gæti leitt til þess að hann yrði sviptur embætti. 27.4.2021 22:21
Bólusettir geti verið grímulausir utandyra Þeir sem hafa þegar verið fullbólusettir gegn kórónuveirunni þurfa ekki að nota grímur utandyra nema þeir séu í stórum hópi ókunnungs fólks samkvæmt nýjum leiðbeiningum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Óbólusettir geta líka sleppt grímum utandyra við ákveðnar aðstæður. 27.4.2021 20:57
Indverskar bálstofur ráða ekki við álagið Indverskar bálstofur anna ekki eftirspurn vegna versnandi kórónuveirufaraldurs. Tæplega 2.800 létust af völdum veirunnar í landinu í gær. 27.4.2021 20:01
Kreml vængstífir samtök Navalní Samtökum Alexeis Navalní gegn spillingu var bannað að koma upplýsingum á framfæri á netinu eða í gegnum fjölmiðla, skipuleggja viðburði, taka þátt í kosningum eða nota bankareikninga með úrskurði dómstóls í Moskvu í dag. Yfir samtökunum vofir einnig að vera lýst öfgasamtök. 27.4.2021 18:57
Grískur Evrópuþingmaður sviptur friðhelgi og handtekinn Belgíska lögreglan handtók Ioannis Lagos, grískan Evrópuþingmann, sem var sakfelldur fyrir aðild að hægriöfgaflokknum Gullinni dögun í heimalandi sínu í dag. Lagos á yfir höfði sér þrettán ára fangelsisvist. 27.4.2021 17:44
Handsprengjan reyndist hjálpartæki ástarlífsins Þegar ung kona á skokki í skógi nærri borginni Passau í Þýskalandi kíkti í grunsamlegan poka brá henni heldur í brún. Þar sá hún handsprengju sem hún taldi úr seinni heimsstyrjöldinni og dreif hún sig til að hringja í lögregluna. 27.4.2021 15:53
Lögreglukonan sem fór íbúðarvillt vill losna úr fangelsi fyrir að skjóta nágranna sinn Lögmaður lögreglukonunnar fyrrverandi Amber Guyger munu í dag færa rök fyrir því að snúa eigi við sakfellingu hennar fyrir morð. Hún skaut nágranna sinn í Dallas í Texas til bana árið 2018 eftir að hún fór fyrir mistök inn í íbúð hans en ekki sína. 27.4.2021 14:26
Fólkið færist til suðurs og vesturs og þingsætin fylgja Nýjasta manntal Bandaríkjanna sýnir að Bandaríkjamönnum fjölgaði um einungis 7,4 prósent milli 2010 og 2020 og teljast þeir nú 331 milljón. Það sýnir einnig að sú þróun að íbúar færist til suðurs og vesturs heldur áfram. 27.4.2021 12:30
Bretar gera sig breiða og sigla flota um höf Asíu Bretar munu í næsta mánuði senda herflota á siglingu um Asíu og Kyrrahaf. Um stærsta flota Bretlands í áraraðir er að ræða og verður nýja flugmóðurskipið HMS Queen Elizabeth í flotanum. Það er annað flugmóðurskip Bretlands og stærsta herskip sem ríkið hefur sett á flot. 27.4.2021 10:18
Englendingar 42 ára og eldri geta nú skráð sig í bólusetningu Frá og með gærdeginum gátu Englendingar 44 ára og eldri skráð sig í bólusetningu vegna Covid-19 en nú hefur aldurinn verið lækkaður og skráning stendur opin öllum 42 ára og eldri. 27.4.2021 09:35
Lífseigu samstarfi í geimnum að ljúka og keppt til tunglsins Í rúma tvo áratugi hafa geimvísindamenn og geimfarar Rússlands og Bandaríkjanna unnið náið saman, samhliða því að samskipti ríkjanna tveggja hafa beðið verulega hnekki. Þó viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi verið beitt á báða bóga hefur geimurinn verið sér á báti. Sá tími er nú liðinn. 27.4.2021 09:15
Æfir yfir ímynduðum takmörkunum Bidens á kjötneyslu Repúblikanar hafa lýst yfir miklum áhyggjum undanfarna daga af því að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætli að banna fólki að borða hamborgara. Hann ætli að skera neyslu kjöts niður um 90 prósent fyrir árið 2030. 27.4.2021 09:06
Sænskir hægsjónvarpsáhorfendur fylgdust með fyrstu elgunum þvera fljótið Sænskir sjónvarpsáhorfendur fengu loks að sjá fyrstu elgina synda yfir Ångermanfljót í norðurhluta landsins í gær. Sænska ríkisútvarpið hefur síðustu ár verið með sjónvarpsútsendingu, svokallað hægsjónvarp, á vorin frá þeim stað þar sem elgirnir þvera alla jafna fljótið á leið sinni norður á bóginn. 27.4.2021 07:57
„Leyfið líkunum að hrannast upp í þúsundatali!“ Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sætir nú auknum þrýstingi eftir að breskir miðlar greindu frá því í gær að hann hefði sagt að hann vildi frekar sjá þúsundir líka hrannast upp en að grípa aftur til harðra sóttvarnaðgerða. 27.4.2021 07:37
Nálgast það að 200 þúsund manns hafi látist vegna Covid-19 Indverjar nálgast nú hraðbyri þann sorglega áfanga að þar hafi 200 þúsund manns látið lífið af völdum kórónuveirunnar, svo staðfest sé. 27.4.2021 07:09
Ætla að gefa 60 milljónir skammta af bóluefni AstraZeneca Bandarísk stjórnvöld hyggjast deila 60 milljón skömmtum af bóluefni AstraZeneca með öðrum ríkjum á næstu mánuðum. Bóluefninu verður dreift til annarra landa um leið og nægar byrgðir eru til af því að sögn Hvíta hússins. 26.4.2021 21:27
Koma Indverjum til aðstoðar Fjöldi ríkja kemur nú Indverjum til aðstoðar en kórónuveirufaraldurinn er í hæstu hæðum í þessu næstfjölmennasta landi heims. 26.4.2021 20:01
Nepomniachtchi og Carlsen tefla um heimsmeistaratitilinn í nóvember Rússneski stórmeistarinn Ian Nepomniachtchi sigraði í dag skákmót Alþjóðaskáksambandsins Candidate tournament og mun því mæta Norðmanninum og heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen í Dubai í nóvember næskomandi. 26.4.2021 18:52
Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu. 26.4.2021 15:45