Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Netanjahú missir umboð til stjórnarmyndunar Yair Lapid, leiðtogi ísraelska miðjuflokksins Yesh Atid, hefur fengið umboð til að mynda ríkisstjórn. Forseti Ísraels veitti honum umboðið í dag eftir að Benjamín Netanjahú forsætisráðherra tókst ekki að mynda ríkisstjórn fjórum vikum eftir þingkosningar í landinu. 5.5.2021 20:21
Ósætti innan njósnabandalagsins Ósætti er innan „Five Eyes“, stærsta njósnabandalags heims, eftir að Nýja-Sjáland neitaði að taka þátt í gagnrýni á meint mannréttindabrot Kínverja. 5.5.2021 20:01
Bjóst við sjö börnum en fæddi níu Kona fæddi nýverið níu börn, þó hún hafi bara átt von á sjö. Sónar hafði sýnt fram á að konan væri ólétt af sjö börnum en við fæðingu í gær reyndust þau níu. Fimm stúlkur og fjórir drengir og öllum heilsast víst vel. 5.5.2021 19:04
Börn niður í tólf ára fá bóluefni Pfizer Kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið ákvörðun um að heimila að börn niður í tólf ára verði bólusett með bóluefni Pfizer gegn covid-19. Kanada er þar með fyrsta landið sem leyfir svo ungum börnum að vera bólusett gegn covid-19. 5.5.2021 17:45
Trump áfram í banni á Facebook Eftirlitsnefnd Facebook staðfesti í dag bannið sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var settur í á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. 5.5.2021 15:00
Andstæðingar sóttvarnaaðgerða unnu stórsigur Veruleg hægrisveifla varð í héraðsþingskosningum í sjálfstjórnarhéraðinu Madrid á Spáni í gær. Lýðflokkur sitjandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur sett sig á móti hörðum sóttvarnaaðgerðum vann stórsigur og hægriöfgaflokkurinn Vox bætti einnig við sig. 5.5.2021 13:33
Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum. 5.5.2021 10:53
Fimm látnir eftir sveðjuárás á dagheimili Fimm eru látnir eftir sveðjuárás átján ára karlmanns á dagheimili í suðurhluta Brasilíu í gær. Lögregla segir að þrjú börn, öll yngri en tveggja ára, hafi látist í árásinni, auk tveggja starfsmanna. 5.5.2021 08:14
Fimm handteknir fyrir að selja „endurunna“ sýnatökupinna Lögregluyfirvöld á Indónesíu hafa handtekið nokkra starfsmenn lyfjafyrirtækis, sem eru grunaðir um að hafa þvegið sýnatökupinna og selt. Lögregla telur svikin hafa átt sér stað frá því í desember. 5.5.2021 07:46
Ever Given áfram kyrrsett eftir að áfrýjun eiganda var hafnað Dómstóll í Egyptalandi úrskurðaði í gær að gámaflutningaskipið Ever Given, sem þveraði Súesskurðinn og stöðvaði þar með alla skipaumferð í nokkra daga í mars, skuli áfram kyrrsett. Dómstóllinn hafnaði áfrýjun japanskra eigenda skipsins. 5.5.2021 07:45
Biden vill bólusetja tólf til sautján ára sem allra fyrst Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti í gærkvöldi nýja áætlun sem miðar að því að búið verði að bólusetja 70 prósent allra fullorðinna Bandaríkjamanna fyrir þjóðhátíðardag landsins, fjórða júlí. 5.5.2021 07:01
Lögmaður Chauvins fer fram á ný réttarhöld Lögmaður Dereks Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn sem var nýverið dæmdur fyrir að myrða George Floyd í Minneapolis, hefur farið fram á að ný réttarhöld um málið fari fram. Tvær vikur eru síðan Chauvin var sakfelldur en Eric Nelson, lögmaðurinn, segir þau hafa verið ósanngjörn. 4.5.2021 23:33
Mistókst að mynda ríkisstjórn eftir fjórðu kosningarnar á tveimur árum Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, mistókst að mynda ríkisstjórn og fer stjórnarmyndunarumboðið nú líklega til pólitískra andstæðinga hann eftir að frestur Netanjahús rann út á miðnætti í Ísrael. 4.5.2021 22:37
Trump opnar eigin miðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur opnað eigin fréttaveitu og nokkurs konar samfélagsmiðil, fjórum mánuðum eftir að hann var rekinn af Twitter og Facebook. 4.5.2021 21:22
Bóluefni Sinovac komið í áfangamat hjá EMA Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið áfangamat á bóluefni kínverska líftæknifyrirtækisins Sinovac gegn Covid-19. Er fyrirtækið þar með komið einu skrefi nær því geta sótt um markaðsleyfi í Evrópu. 4.5.2021 15:45
Stærðarmunur á forsetahjónum vekur furðu Mynd af forsetahjónum Bandaríkjanna með Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, og Rosalynn eiginkonu hans, hefur vakið mikla furðu og kátínu á samfélagsmiðlum. Á henni virðast Biden-hjónin eins og risar við hlið Carter-hjónanna en allt á það sér þó einfaldari skýringar. 4.5.2021 15:01
Marine Le Pen sýknuð af ákæru um hatursorðræðu Dómstóll í Frakklandi hefur sýknað Marine Le Pen, formann hægriöfgaflokksins Þjóðfylkingarinnar og fyrrverandi forsetaframbjóðanda af ákæru um hatursorðræðu. 4.5.2021 14:34
Norsk kona dæmd fyrir að aðild að ISIS Dómstóll í Noregi dæmdi í dag þrítuga, norska konu í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að hryðjuverkasamtökunum ISIS. Taldi dómari að konan hafi breytt „með vitund og vilja“. 4.5.2021 13:58
Sautján látnir eftir mótmæli síðustu daga Sautján manns hið minnsta eru látnir eftir mótmæli síðustu fimm daga á götum kólumbísku höfuðborginnar Bogota og í öðrum stórborgum landsins. Mótmælin hafa beinst að fyrirhuguðum breytingum stjórnvalda á skattalöggjöf landsins. 4.5.2021 13:13
Belgískur bóndi færði landamærin að Frakklandi Landamæri Belgíu og Frakklands sem voru mörkuð á fyrri hluta 19. aldar voru færð um rúmlega tvo metra nýlega. Belgískur bóndi sem var þreyttur á að steinn sem varðaði landamærin flæktist fyrir dráttarvélinni hans færði hann og stækkaði þannig heimaland sitt örlítið á kostnað Frakklands. 4.5.2021 12:52
Hægriöfgaflokkur gæti komist í oddastöðu í Madrid Útlit er fyrir að hægriöfgaflokkurinn Vox verði í oddastöðu eftir héraðsþingskosningar í Madrid á Spáni í dag. Flestar kannanir benda til þess að Lýðflokkur núverandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur amast gegn sóttvarnaraðgerðum landsstjórnarinnar fái flest atkvæði. 4.5.2021 11:13
Pattstaða í stjórnarmyndunarviðræðum Netanjahús Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn en hann hafði frest þar til á miðnætti í gærkvöldi. Þetta gæti þýtt að Likud-flokkur forsætisráðherrans verði í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn í tólf ár. 4.5.2021 09:38
Yfir 20 milljónir greinst og kallað eftir útgöngubanni á landsvísu Fleiri en 20 milljónir manna hafa greinst með Covid-19 á Indlandi. Alls greindust 357.229 smit síðasta sólarhring og 3.449 létust. Hávær köll heyrast nú um útgöngubann á landsvísu. 4.5.2021 08:57
Nýju gólfi ætlað að færa ferðamönnum sjónarhorn skylmingaþrælanna Miklar framkvæmdir eru nú fyrirhugaðar við Colosseum í ítölsku höfuðborginni Róm. Eftir tvö ár er ætlunin að ferðamenn eigi möguleika á því að sjá hringleikahúsið frá sama stað og skylmingaþrælarnir börðust forðum daga. 4.5.2021 08:15
Ber að greiða manni sem hann hélt í þrælkun tvöfaldar bætur Áfrýjunardómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að tvöfalda beri bætur sem manni voru dæmdar, eftir að hann var látinn vinna hundrað klukkustundir á viku í mörg ár án þess að fá greidd laun. 4.5.2021 07:57
Hróarskeldu og fleiri dönskum tónlistarhátíðum aflýst Ekkert verður af Hróarskeldu-hátíðinni í Danmörku í sumar. Forsvarsmenn hátíðarinnar hafa ákveðið að aflýsa hátíðinni vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Engin hátíð var heldur síðasta sumar. 4.5.2021 07:43
Fimmtán létust þegar lestarbrú hrundi í Mexíkóborg Að minnsta kosti fimmtán létust og tugir slösuðust þegar lestarbrú í Mexíkóborg hrundi í þann mund sem lest ók á henni. 4.5.2021 06:42
Hækkar hámark flóttamanna eftir gagnrýni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hækka hámark á fjölda flóttamanna sem Bandaríkin munu taka við á árinu. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn hans tilkynnti að hámarkið yrði það sama og það var í forsetatíð Donalds Trump, forvera hans. 3.5.2021 23:56
Bandaríkjamenn í þann mund að leyfa bólusetningar á börnum Gera má ráð fyrir að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) veiti leyfi fyrir notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech fyrir börn á aldrinum 12-15 ára í þessari viku eða næstu. New York Times hefur þetta eftir heimildarmönnum innan bandaríska stjórnkerfisins. 3.5.2021 23:00
Innanbúðarfólkið sem varð utangarðs Repúblikanarnir og þingmennirnir Liz Cheney og Mitt Romney hafa um árabil verið í innsta hring Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Cheney er til að mynda þriðji æðsti þingmaður flokksins, formlega séð og Romney var eitt sinn forsetaefni hans gegn Barack Obama. 3.5.2021 22:36
Bill og Melinda Gates skilja Auðkýfingurinn Bill Gates og eiginkona hans Melinda eru að skilja eftir 27 ára hjónaband. 3.5.2021 20:42
Bjarndýr banaði konu í göngutúr Svartbjörn banaði 39 ára gamalli konu í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Er það í fjórða sinn sem björn banar manneskju í ríkinu frá 1960, þegar byrjað var að halda utan um slíkar upplýsingar. 3.5.2021 19:22
Prófum læknanema frestað vegna faraldursins Prófum læknanema á Indlandi hefur verið frestað svo þeir geti tekið þátt í baráttunni við Covid-19 þar í landi. Heilbrigðiskerfi Indlands ræður ekki við faraldurinn en er mikill skortur á sjúkrarúmum og súrefni. 3.5.2021 18:09
Instagram sætir gagnrýni vegna auglýsinga á þyngingarlyfjum Heilbrigðisstofnun Englands hefur biðlað til samfélagsmiðilsins Instagram að loka fyrir aðganga sem auglýsa og selja ólöglegt og „hættulegt“ lyf sem sérstaklega er auglýst ungum konum og stelpum. 3.5.2021 16:37
Fluttu kúbanskan andófsmann nauðugan á sjúkrahús Yfirvöld á Kúbu létu færa þekktan andófsmann sem hefur verið í hungurverkfalli nauðugan á sjúkrahús. Vinir hans og vandamenn óttast um heilsu hans en segjast ekki hafa fengið að hafa samskipti við hann. 3.5.2021 15:41
Fyrstu skammtar Novavax verða afhentir Evrópusambandinu fyrir árslok Lyfjaframleiðandinn Novavax hefur tilkynnt Evrópusambandinu að fyrstu skammtar covid-19 bóluefnis framleiðandans verði afhentir sambandinu fyrir lok þessa árs. Þetta gæti orðið til þess að Evrópusambandið geri formlega samning við fyrirtækið um kaup á bóluefni, jafnvel í þessari viku. 3.5.2021 15:00
Októberhátíðinni í München aftur slaufað Yfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi hafa ákveðið að aflýsa Oktoberfest í München, Októberhátíðinni, vegna faraldurs kórónuveirunnar, annað árið í röð. 3.5.2021 14:11
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. 3.5.2021 13:29
Danir hætta notkun á bóluefni Janssen Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta notkun á bóluefni Johnson & Johnson, Janssen, gegn kórónuveirunni. 3.5.2021 13:26
Repúblikanar í Utah bauluðu á Romney Fulltrúar á þingi Repúblikanaflokksins í Utah bauluðu á Mitt Romney, öldungadeildarþingmann flokksins í ríkinu, um helgina. Tillaga um að ávíta Romney fyrir að hafa greitt atkvæði með því að sakfella Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir embættisbrot var felld með naumum meirihluta. 3.5.2021 12:21
Segja ebólufaraldri lokið í Austur-Kongó Austur-Kongó lýsti því yfir í dag að ebólufaraldri, sem herjað hefur á landið undanfarin misseri, sé lokið. Tólf smituðust af veirunni í norður Kivu héraðinu í austurhluta landsins og sex létust. 3.5.2021 11:16
Fjórir handteknir í tengslum við rannsókn á risastórum barnaníðshring Þrír hafa verið handteknir í Þýskalandi og einn í Paragvæ í tengslum við rannsókn lögrelgu á einum stærsta barnaníðshring sem starfræktur hefur verið á netinu. Um er að ræða samfélag á djúpvefnum (e. dark net) sem ber heitið Boystown. 3.5.2021 11:09
Modi tapaði lykilríki þrátt fyrir umdeilda kosningabaráttu Flokkur Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, tapaði ríkisþingskosningum í Vestur-Bengal þrátt fyrir að hann hefði lagt ofurkapp á það í kosningabaráttunni. Modi var jafnvel sakaður um að láta kosningarnar sig meiru varða en kórónuveirufaraldurinn sem geisar nú stjórnlaust víða um landið. 3.5.2021 10:57
Þrír fórust þegar smyglbát hvolfdi við strendur San Diego Þrír fórust og tugir slösuðust þegar bátur hvolfdi og strandaði við strendur San Diego í Bandaríkjunum í morgun. Talið er að báturinn hafi verið notaður til að smygla farþegum til Bandaríkjanna. 3.5.2021 10:43
Eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi fyrir að snúa heim frá Indlandi Yfirvöld í Ástralíu hafa boðað algert bann við ferðum frá Indlandi til Ástralíu frá og með deginum í dag. Allir Ástralar sem hyggjast ferðast heim frá Indlandi geta átt yfir höfði sér háar fjársektir og allt að fimm ár í fangelsi. Gagnrýnendur segja ferðabannið rasískt og mannréttindabrot. 3.5.2021 09:59