Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vitnaleiðslur um meint mannréttindabrot í Kína hefjast í Lundúnum á morgun Á morgun hefjast vitnaleiðslur í Lundúnum þar sem markmiðið er að safna gögnum um það hvort meint mannréttindabrot kínverskra yfirvalda í Xinjang héraði séu þjóðarmorð. 3.6.2021 23:31
Níu og fjögurra ára keyrðu af stað til Kaliforníu til að synda með höfrungunum Tvær barnungar stúlkur í Utah í Bandaríkjunum tóku sig til og óku af stað til Kaliforníu, á bíl foreldra sinna, til þess að synda með höfrungunum. 3.6.2021 22:25
Eldræða dúx um þungunarrof í Texas vakti gífurlega athygli Paxton Smith, dúx Lake Highlands skólans í Texas, hætti við að halda þá ræðu sem skólastjórnendur höfðu samþykkt og hélt þess í stað ræðu um lög um þungunarrof í ríkinu íhaldssama. Eldræða hennar, þar sem hún talaði um „stríð gegn líkömum og réttindum“ hennar og annarra stúlkna og kvenna, hefur náð gífurlegri dreifingu á netinu. 3.6.2021 22:16
Lögðu ekki nóg á sig við að ná í sprengjumanninn í Nashville Lögreglan í Nashville í Bandaríkjunum hefði átt að gera meira til að ná sambandi við Anthony Q. Warner eftir að tilkynning barst árið 2019 um að hann væri að smíða sprengjur. Warner sprengdi sig og húsbíl sinn í loft upp í Nashville í desember í fyrra. 3.6.2021 21:50
Fyrsta skemmtiferðaskipið frá upphafi faraldursins leggur að bryggju í Feneyjum Fyrsta skemmtiferðaskipið hefur lagt að bryggju í Feneyjum frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á, þrátt fyrir að slík skip megi ekki koma nálægt miðborg Feneyja. 3.6.2021 21:38
Svíþjóð orðin grá á Covid-kortinu Ísland er enn flokkað grænt á uppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu, sem segir til um stöðuna í hverju ríki vegna kórónuveirufaraldursins. Stór hluti Finnlands er nú einnig flokkaður sem grænt svæði. 3.6.2021 18:58
Bandaríkin ætla að gefa 80 milljónir skammta í júní Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að til stæði að gefa 80 milljónir skammta bóluefna til annarra ríkja í júní. Mest allt af því mun fara til COVAX-áætlunar Sameinuðu þjóðanna en hingað til hafa ríki þar sem þörfin er mikil fengið 76 milljónir skammta í gegnum áætlunina. 3.6.2021 18:05
Minnst hundrað hafa yfirgefið heimili sín vegna gróðurbruna í Noregi Minnst hundrað hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Kårtveit í Øygarden í Noregi. Eitt hús hefur orðið eldinum að bráð og nokkur hús eru í hættu á að brenna. Slökkviliðið er nú að vinna í því að koma fjögur hundruð íbúum í Kårtveit af heimilum sínum og í öruggt skjól. 3.6.2021 17:50
Átta greindust í Færeyjum í gær Átta kórónuveirusmit greindust í Færeyjum í gær. Landlæknir Færeyja segir veiruna leika lausum hala í samfélaginu. 3.6.2021 16:50
Sænsk þingnefnd segir ríkisstjórnina hafa brugðist Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur brugðist þegar kemur að viðbrögðum við heimsfaraldri kórónuveirunnar. Þetta er niðurstaða rannsóknar stjórnarskránefndar sænska þingsins sem kynnt var í dag. 3.6.2021 12:34
Helmingur alvarlegra tilvika felur í sér aðgerðir á röngum sjúkling eða líkamspart Kona gekkst undir leghálsspeglun á spítala, þegar hún var í raun og veru mætt til að láta kanna hvort hún væri hepplegur kandídat til að gangast undir ákveðna frjósemismeðferð. 3.6.2021 12:32
Smokkfiskar verða geimfarar Næsta geimskot NASA verður farþegaflug en 128 smokkfiskar verða þá geimfarar. 3.6.2021 10:55
Danir samþykkja að geta útvistað hælisleitendakerfinu til þriðja ríkis Meirihluti danska þingsins samþykkti í morgun umdeilt frumvarp ríkisstjórnarinnar sem heimilar dönskum yfirvöldum að útvista hælisleitendakerfi landsins til þriðja ríkis. Yfirlýst markmið danskra stjórnvalda er að engir sæki um hæli í landinu. 3.6.2021 09:54
Vísbendingar um tengsl milli bóluefnis Pfizer og hjartavöðvabólgu Heilbrigðisráðuneyti Ísraels hefur greint frá því að vísindamenn þar í landi hafi séð nokkur tilfelli hjartavöðvabólgu meðal ungra karlmanna sem hafa fengið bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni og að tengsl kunni að vera þar á milli. 3.6.2021 08:04
Krefst þrjátíu ára fangelsisdóms yfir Chauvin Saksóknari í Bandaríkjunum hefur krafist þess að Derek Chauvin, lögreglumaðurinn fyrrverandi sem sakfelldur var fyrir að hafa orðið hinum 46 ára George Floyd að bana í Minneapolis í maí á síðasta ári, verði dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. 3.6.2021 07:35
Starfsmenn vöruhúsa Amazon slasast oftar og alvarlegar en aðrir Starfsmenn vöruhúsa netsölurisans Amazon meiðast oftar og alvarlegar en starfsmenn vöruhúsa annarra fyrirtækja. Alls slasast 5,9 starfsmenn af hundrað alvarlega hjá Amazon, nærri 80 prósent fleiri en hjá öðrum fyrirtækjum. 3.6.2021 07:02
Ætla að senda tvö geimför til Venusar á næstu árum Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, ætlar að senda tvö geimför til Venusar á næstu árum. Með því vilja vísindamenn öðlast þekkingu um það hvernig reikistjarnan varð að þeim bakaraofni sem hún er, ef svo má að orði komast, þrátt fyrir að hún líkist á margan hátt jörðinni og var mögulega fyrsta lífvænlega reikistjarna sólkerfisins. 2.6.2021 23:38
Nýmóðins geimkapphlaup: Keppast um að taka upp kvikmynd í geimnum Nýmóðins og óhefðbundið geimkapphlaup virðist vera hafið milli Rússlands og Bandaríkjanna. Á árum áður kepptu Rússar og Bandaríkjamenn um það að verða fyrstir til að senda gervihnött á braut um jörðu, menn á braut um jörðu og jafnvel menn til tunglsins. Að þessu sinni er hins vegar keppt um að taka upp kvikmynd í geimnum. 2.6.2021 22:31
Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Ísrael Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Ísrael og markar það endalok tveggja ára stjórnarkreppu. Það markar jafnframt endalok 12 ára valdatíðar Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. 2.6.2021 21:21
Trump reiður yfir litlum vinsældum og lokar bloggsíðunni Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lokað bloggsíðu sinni sem hann opnaði í síðasta mánuði. Hann er sagður hafa verið fúll yfir litlum vinsældum bloggsíðunnar sem bar nafnið „From the desk of Donald J. Trump“, eða „frá skrifborði Donald J. Trump“. 2.6.2021 20:54
Drottningin meinaði þeldökku fólki að vinna skrifstofustörf í höllinni Breska dagblaðið Guardian hefur komist yfir skjöl sem leiða í ljós að Elísabet Englandsdrottning meinaði útlendingum og innflytjendum úr minnihlutahópum að starfa við skrifstofustörf í Buckingham höll. 2.6.2021 18:23
Óttast að skipsbruni hafi alvarlegar afleiðingar fyrir umhverfið Skipið X-Press Pearl stóð í ljósum logum í tæpar tvær vikur undir ströndum Srí Lanka áður en tókst að slökkva eldinn. Óttast er að skipsbruninn muni hafa skelfilegar umhverfislegar afleiðingar. 2.6.2021 17:15
Stjórnarandstöðuleiðtogar í kapphlaupi við tímann Stjórnarandstöðuleiðtogar í Ísrael hafa nú aðeins fjóra klukkutíma til stefnu til þess að mynda nýja ríkisstjórn áður en fresturinn rennur út. Takist þeim að ná markmiðinu markar það endalok 12 ára valdatíðar Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra landsins. 2.6.2021 17:15
Biden stendur þétt við bakið á hinsegin fólki í upphafi Pride-mánaðarins „Við sjáum ykkur, við styðjum ykkur og við drögum innblástur af hugrekki ykkar til að sætta ykkur ekki við neitt annað en fullt jafnrétti,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti í yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu og samfélagsmiðlum Hvíta hússins í gær. 2.6.2021 14:39
Pfizer gefur í og eykur bóluefnaframboð í Evrópu Gert er ráð fyrir að framboð á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn Covid-19 muni aukast verulega á EES-svæðinu með tilkomu framleiðsluaukningar í Belgíu. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) gaf út í gær að hún hafi mælt með samþykkt nýrra framleiðslulína í bænum Puurs þar sem ein stærsta verksmiðja Pfizer er starfrækt. 2.6.2021 13:50
Sérfræðingar uggandi yfir andlegri heilsu flugáhafna Sérfræðingar segja hættu á því að flugfélög horfi ekki til andlegrar heilsu og velferðar flugmanna og annara áhafnameðlima nú þegar allt kapp er lagt á að koma vélum aftur í loftið. 2.6.2021 13:18
Isaac Herzog er nýr forseti Ísraels Isaac Herzog var kjörinn forseti Ísraels í dag og verður ellefti forseti landsins. Hann tekur við af Reuven Rivlin. Atkvæðagreiðsla var haldin á meðal 120 meðlima þingsins og hafði Herzog betur en fyrirlesarinn Miriam Peretz. 2.6.2021 13:11
Fimm táningar í Belgíu handteknir fyrir hópnauðgun Fimm táningar hafa verið handteknir í Belgíu í tengslum við meinta hópnauðgun 14 ára stúlku sem lést minna en viku eftir árásina. Samkvæmt belgískum miðlum var myndum af árásinni deilt á netinu og stúlkan framdi sjálfsvíg fjórum dögum seinna. 2.6.2021 12:04
Gerir ráð fyrir að vera orðinn forseti aftur í ágúst Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur sagt nokkrum fjölda fólks að hann geri ráð fyrir að verða settur aftur í embætti forseta fyrir ágúst á þessu ári. Trump tapaði forsetakosningunum í nóvember á síðasta ári fyrir Joe Biden, sem var kjörinn til fjögurra ára. 2.6.2021 09:25
Maður greinist með sjaldgæft afbrigði fuglaflensu Fertugur kínverskur karlmaður hefur greinst með sjaldgæft afbrigði fuglaflensunnar svokölluðu, fyrstur manna. Engar upplýsingar liggja fyrir um það hvernig maðurinn smitaðist en afbrigðið, H10N3, er ekki talið smitast auðveldlega milli manna. 2.6.2021 08:12
Sérfræðingar hafa áhyggjur af vanþekkingu Breta á píkunni Meirihluti Breta veit ekki hvað allir hlutar píkunnar heita og þá vita nærri 40 prósent ekki hvar snípurinn er. Þetta eru niðurstöður könnunar sem gerð var meðal einstaklinga á biðstofum heilbrigðisstofnana. 2.6.2021 07:42
Mun meira fjármagn fór í að styðja við framleiðslu jarðefnaeldsneytis en græna orku Þjóðirnar sem skipa G7 hópinn, stærstu vestrænu iðnríkin, settu í kórónuveirufaraldrinum mun hærri upphæðir í stuðning við framleiðslu jarðefnaeldsneytis en þær settu á sama tíma í hreina orkugjafa, þrátt fyrir loforð um aukna áherslu á græna orku. 2.6.2021 07:07
Skaut á tvo áhrifamikla Demókrata í öldungadeildinni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, virtist gagnrýna tvö öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins í kvöld, þegar hann sagði af hverju hann hefði ekki komið metnaðarfullum kosningaloforðum sínum og málefnum í verk. 1.6.2021 23:51
Enskur táningur dæmdur fyrir að hafa ráðist á íslenska ferðamenn Enskur táningur var dæmdur á föstudag í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á tvo íslenska karlmenn í Brighton á Englandi. Dómari í málinu sagði að árásin væri þess eðlis að hann ætti að sitja í fangelsi en erfið fortíð piltsins hafi haft áhrif á ákvörðun hans um refsingu. 1.6.2021 23:22
Geimstöðin varð fyrir geimrusli Alþjóðlega geimstöðin varð fyrir geimrusli í síðasta mánuði sem olli skemmdum á kanadíska vélarminum svokallaða. Armurinn virkar þó enn og virðist sem að ruslið hafi eingöngu valdið skemmdum á hitaskildi hans. 1.6.2021 22:53
Enginn dó á Bretlandi í fyrsta sinn frá mars í fyrra Enginn dó Bretlandi vegna Covid-19 í gær, samkvæmt opinberum tölum dagsins. Það er í fyrsta sinn frá 7. mars í fyrra, áður en gripið var til fyrsta samkomubannsins á Bretlandi. Heilbrigðisráðherra Bretlands varar íbúa þó við því að baráttunni sé ekki lokið enn. 1.6.2021 20:00
Andófsmaður reyndi að stinga sig á háls í dómsal Karlmaður sem var handtekinn á mótmælum gegn stjórn Alexanders Lúkasjenka í Hvíta-Rússlandi í fyrra reyndi að stinga sig á háls í dómsal í Minsk þegar honum var sagt að fjölskylda hans og nágrannar gætu verið sóttir til sakar ef hann játaði sig ekki sekan. 1.6.2021 16:58
Annað kínverskt bóluefni fær neyðarskráningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur skráð bóluefni kínverska fyrirtækisins Sinovac gegn kórónuveirunni til neyðarnotkunar fyrir fólk eldra en átján ára. Það er annað kínverska bóluefnið sem fær slíka heimild. 1.6.2021 15:45
Þrengt var að hálsi Söruh Everard Dánarorsök hinnar bresku Söruh Everard var að þrengt var að hálsi hennar. Þetta er niðurstaða réttarkrufningar, en lögregla kynnti niðurstöðurnar fyrr í dag. 1.6.2021 14:44
Banna prestum að misnota fullorðna Kynferðisbrot presta gegn fullorðnum verða nú sérstaklega bönnuð með breytingum sem Frans páfi hefur fyrirskipað á lögum kaþólsku kirkjunnar. Þá verður einnig hægt að refsa leikmönnum sem starfa fyrir kirkjuna fyrir kynferðisbrot. 1.6.2021 13:08
Enn einn stjórnarandstæðingurinn handtekinn í Rússlandi Rússnesk yfirvöld handtóku fyrrverandi forsvarsmann stjórnarandstöðuhóps sem olíufurstinn Mikhail Khodorkovsky stofnaði. Samtökin sögðust ætla að hætta starfsemi til þess að forða félögum frá því að vera handteknir í síðustu viku. 1.6.2021 10:21
Takmörkunum aflétt á Grænlandi Ekki hafa komið upp nein ný tilfelli kórónuveirusmita í grænlensku höfuðborginni Nuuk og hefur landsstjórnin því ákveðið að aflétta þeim takmörkunum sem komið var á fyrir helgi. 1.6.2021 07:42
Dauðsföll af völdum Covid-19 tvöfalt fleiri en áður var talið Dauðsföll í Perú af völdum kórónuveirunnar eru meira en tvöfalt fleiri en áður var talið. 1.6.2021 06:45