Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnst sautján látin eftir að hótel hrundi í Kína Sautján eru látnir hið minnsta eftir að hótel hrundi til grunna í kínversku borginni Suzhou í austurhluta landsins. Hótelið hrundi í fyrradag og eftir þrjátíu og sex tíma starf hefur björgunarsveitum tekist að finna tuttugu og þrjár manneskjur í rústunum og voru sex þeirra á lífi. 14.7.2021 07:55
Kínverskir feðgar sameinaðir 24 árum eftir að syninum var rænt Guo Gangtang hefur fundið son sinn Guo Xinzhen eftir 24 ára leit. Syninum var rænt fyrir utan fjölskylduheimilið árið 1997 þegar hann var aðeins tveggja ára gamall. 13.7.2021 23:45
Á fimmta tug látinna í óeirðum í Suður-Afríku Minnst 45 hafa látist í óeirðum í Suður-Afríku. Óeirðirnar hófust eftir að fyrrum forseti landsins, Jakob Zuma, var fangelsaður. 13.7.2021 22:44
„Ótrúlega gaman“ að heyra íslenskuna niðri í bæ Íbúi á Amerísku ströndinni á Tenerife kveðst finna lítið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Íslendingum hafi fjölgað mjög á svæðinu undanfarið. 13.7.2021 19:30
Talibanar skutu 22 hermenn sem gáfust upp Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. 13.7.2021 16:49
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. 13.7.2021 15:41
Skortir mat og lyf og verðbólga komin í 500 prósent Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu. 13.7.2021 13:34
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. 13.7.2021 11:38
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. 13.7.2021 08:53
Herða takmarkanir í Frakklandi en bara fyrir óbólusetta Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kynnt hertar aðgerðir í landinu til að koma í veg fyrir aðra bylgju faraldursins. Þær munu einungis ná til þeirra sem ekki eru bólusettir. Hann ætlar einnig að skylda alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu til að fara í bólusetningu. 13.7.2021 08:30
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. 13.7.2021 07:43
Banna hraða tónlist til að draga úr útbreiðslu veirunnar Líkamsræktarstöðvum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og nágrenni hefur verið bannað að spila hraða tónlist í húsakynnum sínum, til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. 13.7.2021 07:38
Eldur á Covid-deild varð tugum að bana Fleiri en fimmtíu eru látin eftir að eldur blossaði upp inni á einangrunardeild fyrir Covid-sjúklinga á spítala í íröksku borginni Naririya. 13.7.2021 06:57
Forseti Kúbu segir Bandaríkin ábyrg fyrir mótmælum Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun og sagði mótmælin sem hófust um helgina vera skipulagða aðför að kúbverskum stjórnvöldum. Þá sagði hann mótmælin studd af bandarískum yfirvöldum og keyrð áfram á samfélagsmiðlum. 12.7.2021 23:31
Biðst afsökunar á afléttingum Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur beðið þjóð sína afsökunar á dómgreindarbresti af sinni hálfu. Sá fólst í að aflétta sóttvarnatakmörkunum vegna Covid-19 of snemma. 12.7.2021 22:45
Þrengja verulega að útgerð rafskúta í Osló Osló er sú borg í Evrópu hvar flestar rafskútur eru á hvern íbúa. Nú stendur til að fækka þeim verulega. 12.7.2021 22:16
Vara við taugasjúkdómi sem aukaverkun af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar. 12.7.2021 18:52
Auglýsing fyrir bólusetningu vekur hörð viðbrögð Áströlsk auglýsing sem ætlað var að hvetja fólk til þess að skrá sig í bólusetningu hefur vakið hörð viðbrögð í áströlsku samfélagi. Mörgum hefur þótt auglýsingin vera sett fram sem hræðsluáróður og þá hefur tímasetning hennar verið gagnrýnd, með tilliti til framgangs bólusetningarátaksins í landinu, sem gengur hægt. 12.7.2021 13:00
Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir. 12.7.2021 12:32
Elding banaði ellefu á þekktum túristastað Ellefu hið minnsta létu lífið þegar eldingu laust niður í gamlan virkisturn á Indlandi í gær. Atvikið átti sér stað í Jaipur héraði í norðurhluta landsins en virkið er vinsæll áfangastaður túrista og turn þess þykir sérlega vel fallinn til að taka svokallaðar sjálfumyndir á símann sinn. 12.7.2021 08:10
Fjölmenn mótmæli á Kúbu Þúsundir þustu út á götur helstu borga og bæja á Kúbu um helgina til að mótmæla ríkisstjórn landsins og er talað um fjölmennustu mótmæli í kommúnistaríkinu í áraraðir. Fólkið hrópaði „niður með einræðisstjórnina“ og lögregla mætti mótmælendum með táragasi og kylfum. 12.7.2021 07:59
Kókaín fyrir hundruð milljóna á floti við Englandsstrendur Talsvert magn kókaíns fannst í pokum við strendur Austur-Sussex í Englandi. Talið er að söluandvirði efnisins sé rúmlega 340 milljónir íslenskra króna. 12.7.2021 07:42
Fólk yfirgefur heimili sín vegna skógareldanna Miklir skógareldar brenna nú í vesturhluta Bandaríkjanna þar sem enn ein hitabylgjan slær nú met á fjölmörgum svæðum. 12.7.2021 06:51
Segja lækni hafa staðið að baki morðinu á forsetanum Lögregluyfirvöld á Haítí segjast hafa handtekið einn af höfuðpaurum árásarinnar á forseta landsins sem skotinn var til bana í síðustu viku. 12.7.2021 06:43
Þungvopnuð á hóteli skömmu fyrir stjörnuleikinn Lögregluþjónar í Denver í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn fjóra á hóteli í borginni og lögðu hald á fjölda skotvopna og hundruð byssukúlna. Stjörnuleikur hafnaboltadeildar Bandaríkjanna fer fram í Denver á þriðjudaginn og er talið mögulegt að fólkið hafi ætlað að fremja fjöldamorð. 11.7.2021 23:09
Vörðust stórri sókn Talibana Stjórnarher Afganistans varðist áhlaupi vígamanna Talibana á Taluqan, höfuðborg héraðsins Takhar, sem liggur að landamærum Afganistans og Tadsíkistan. Talibanar hafa lagt undir sig mikið landsvæði í Afganistan að undanförnu en stjórnarherinn segir þá hafa orðið fyrir miklu mannfalli í þessari árás. 11.7.2021 20:04
Segjast hafa ætlað að handtaka forsetann Glæpagengi á Haítí og ofbeldi vegna baráttu þeirra um yfirráðasvæði hefur valdið miklum usla undanfarið. Þúsundir hafa þurft af flýja heimili sín vegna átaka og glæpamenn fara ránshendi um heimili og fyrirtæki. 11.7.2021 18:19
Reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn Allt að hundrað manns ruddu sér leið í gegnum vegatálma við Wembley-leikvanginum og reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn sjálfan. Úrslitaleikur Evrópumótsins milli Englands og Ítalíu fer fram á vellinum í kvöld en fólkið mun hafa reynt að ryðja sér leið inn eftir klukkan fimm í dag. 11.7.2021 18:01
Draumur Branson rættist: „Sautján ár af vinnu komu okkur hingað“ Breski kaupsýslumaðurinn, Richard Branson, náði komst rétt í þessu upp að jaðri lofthjúpsins í geimferju sinni Virgin Galactic. Hann lagði af stað í ævintýraförina klukkan 14:30 í dag frá Nýju-Mexíkó en ferðin tók einungis fimmtán mínútur. 11.7.2021 16:56
Branson skotið á loft í beinni: „Mig hefur langað út í geim síðan ég var lítill strákur“ Ævidraumur Richards Branson, bresks kaupsýslumanns, rætist innan skamms þegar geimferjan Virgin Galactic skýst á loft klukkan 14:30 með honum innanborðs. 11.7.2021 13:27
Lést eftir smit af tveimur afbrigðum veirunnar á sama tíma Níræð kona frá Belgíu, sem lést af völdum Covid-19, var smituð af bæði alpha- og beta-afbrigðum veirunnar á sama tíma. 11.7.2021 12:36
Ekkja forsetans lýsir atburðarásinni í fyrsta sinn Martine Moise, ekkja Jovenel Moise forseta Haítí, segir vígamenn hafa látið byssukúlum rigna yfir mann sinn á miðvikudagsmorgun og hann legið sundurskotinn í valnum. 11.7.2021 12:26
Gróðureldar magnast í Kaliforníu sökum hitabylgju Gróðureldar hafa stórmagnast í nokkrum af Vesturríkjum Bandaríkjanna sökum hitabylgju sem þar gengur nú yfir. Hitamet hafa verið slegin og búist er við áframhaldandi veðursveiflum. 11.7.2021 11:58
Umdeild stytta í Charlottesville fjarlægð Stytta af hershöfðingjanum Robert E. Lee sem stóð í Frelsisgarðinum í Charlottesville í Bandaríkjunum hefur nú verið fjarlægð eftir nokkurra ára deilur. Styttunni hefur verið mótmælt harðlega af þeim sem berjast gegn kynþáttahatri. 11.7.2021 10:20
Xi og Kim heita nánari samvinnu Xi Jinping og Kim Jong Un, ráðendur Kína og Norður-Kóreu, hafa heitið því að auka samvinnu ríkjanna. Það gerðu þeir í skilaboðum sem þeir sendu hvorum öðrum á dögunum. Í skilaboðum til Xi sagði Kim að náið samband Norður-Kóreu og Kína væri nauðsynlegt í ljósi óvinveittra erlendra afla. 10.7.2021 23:14
Hitinn í Dauðadalnum til jafns við níutíu ára gamalt en ótrúverðugt met Hitinn í Dauðadalnum svokallaða í Kaliforníu í Bandaríkjunum mældist í gær 54,4 gráður. Verði sú mæling staðfest er það álíka hátt 90 ára gömlu hitameti. 10.7.2021 18:48
Bandaríkin og SÞ verða ekki við beiðni Haítí um hermenn Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur hafnað beiðni ráðandi fylkinga á Haítí um að senda hermenn til ríkisins. Starfandi ríkisstjórn Haítí hefur einnig beðið Sameinuðu þjóðirnar um að senda þeim hermenn til aðstoðar eftir að Jovenel Moise, forseti landsins, var skotinn til bana á heimili sínu í vikunni af hópi málaliða frá Kólumbíu. 10.7.2021 18:04
Hófu skothríð á palestínska mótmælendur Hundruð palestínskra mótmælenda særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á þá í gær. Mótmælendurnir höfðu safnast saman við ólöglega útvarðarstöð Ísraelsmanna á Vesturbakkanum til að mótmæla henni. 10.7.2021 08:58
Biden hótar Pútín aðgerðum vegna rússneskra hakkara Hvíta húsið tilkynnti í dag að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefði varað kollega sinn Vladimír Pútín við því að Bandaríkin myndu „verja þegna sína“ gegn rússneskum tölvuárásum. 9.7.2021 23:47
Minnst 52 látin eftir eldsvoða í Bangladess Eldur kviknaði í matvælaverksmiðju í Bangladess í gær. Talið er að hluti fórnarlambanna hafi verið læstur inni í verksmiðjunni. 9.7.2021 23:04
Talibanar ráða flugmenn markvisst af dögum Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum. 9.7.2021 15:48
Engin bilun varð í vélarbúnaði flugvélarinnar sem hrapaði Níu fórust í flugslysi í Örebro í Svíþjóð í gær. Umfangsmikil rannsókn um orsakir og aðdraganda slyssins stendur nú yfir en samkvæmt gögnum sem sænska ríkisútvarpið hefur undir höndum er ekkert sem bendir til þess að bilun í vélinni hafi valdið því að hún hrapaði. 9.7.2021 14:54
Couzens játar að hafa myrt Everard Breski lögreglumaðurinn Wayne Couzens hefur játað að hafa myrt Söruh Everard í mars síðastliðnum Couzens rændi Everard, þegar hún var að ganga heim frá vini sínum í Clapham þann 3. mars, áður en hann keyrði með hana í burt á bíl sem hann hafði tekið á leigu. 9.7.2021 13:01
Grábjörn dró konu úr tjaldi og drap hana Grábjörn dró konu út úr tjaldi hennar í bænum Ovando í Montana og banaði henni í vikunni. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki tekist að finna og fella björninn. Konan hét Leah Davis Lokan og var 65 ára gömul. Hún var í hópi hjólreiðamanna sem var á ferð um svæðið. 9.7.2021 12:46