Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnst 150 hafa farist í aurskriðum á Indlandi og Nepal Meira en 150 hafa farist undanfarna daga vegna mikilla flóða og aurskriða sem hafa fallið víða í norðurhluta Indlands og Nepal. Hamfarirnar hafa valdið því að vegir og hús hafa horfið undir vatni og aur. 20.10.2021 17:31
Parkland-fjöldamorðinginn játar sekt Nikolas Cruz játaði í dag fyrir dómi að hafa myrt sautján manns og sært jafnmarga í miðskóla í Parkland í Flórída árið 2018. Hann baðst um leið afsökunar á gjörðum sínum. 20.10.2021 16:02
Navalní hlýtur Sakharov-verðlaunin Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum. 20.10.2021 15:21
Rússar íhuga að loka öllu í viku vegna Covid-bylgju Aldrei hafa fleiri Rússar látist af völdum Covid-19 á einum degi heldur en í gær, en samkvæmt opinberum tölum létust 1.028 manns. Alls hafa 226.353 látist af völdum Covid-19 í Rússlandi frá upphafi faraldursins, sem er það langmesta meðal Evrópuríkja og í fimmta sæti á heimsvísu, á eftir Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Mexíkó. 20.10.2021 13:19
Elísabet fer að ráðum lækna og hættir við heimsókn til Norður-Írlands Elísabet Englandsdrottning hefur ákveðið að fara að ráðum lækna og hætta við fyrirhugaða heimsókn til Norður-Írlands. Mun hún nota næstu daga til að hvílast, samkvæmt yfirlýsingu frá Buckingham-höll. 20.10.2021 12:51
Eldgos hafið í Japan Eldgos hófst í Aso-fjalli á japönsku eyjunni Kyushu í morgun. Öskusúla stígur nú upp frá fjallinu og gjall hefur boristhátt í kílómeter frá gígnum. 20.10.2021 11:36
Tilkynnti um fjögurra vikna útgöngubann og bað bólusetta afsökunar Forsætisráðherra Lettlands tilkynnti á mánudag um fjögurra vikna útgöngubann vegna mikillar fjölgunar kórónuveirusmita í landinu síðustu daga. Á sama tíma bað hann bólusetta landsmenn afsökunar á að þurfa að grípa til þessara aðgerða, en bólusetningarhlutfall í Lettlandi er eitt það lægsta í ríkjum ESB. 20.10.2021 10:53
Fyrirhuguð framleiðsluaukning jarðefnaeldsneytis ósamrýmanleg loftslagsmarkmiðum Áætlanir ríkisstjórna heimsins gera ráð fyrir aukningu á framleiðslu jarðefnaeldsneytis næsta áratuginn. Þessi staðreynd er algerlega ósamræmanleg því samkomulagi flestra ríkja að reynt verði að sporna við hlýnun jarðarkringlunnnar. 20.10.2021 10:23
Svínsnýra grætt á fótlegg sjúklings starfar eðlilega og framleiðir þvag Skurðlæknum í New York hefur tekist að græða nýra úr erfðabreyttu svíni á mann. Fylgst var með sjúklingnum í 54 klukkustundir og virtist nýrað starfa eðlilega og framleiddi meðal annars þvag og úrgangsefnið kreatínín. 20.10.2021 08:57
Fyrsti íbúi eyjanna til að greinast með Covid-19 Maður greindist með Covid-19 á sjúkrahúsinu í Longyearbyen á Svalbarða í gær og er um að ræða fyrsta smitaða íbúa eyjanna frá upphafi faraldursins. 20.10.2021 08:47
Leggur til að „Reykingar drepa“ verði prentað á hverja einustu sígarettu Þingmenn í báðum deildum breska þingsins hafa lagt fram tillögur um að sígarettuframleiðendur verði skikkaðir til að prenta „Reykingar drepa“ eða „Reykingar valda krabbameini“ á hverja einustu sígarettu. 20.10.2021 07:32
Þverpólitísk sátt um ávítur á hendur Bannon Nefnd þingmanna úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings sem rannsakar uppþotið og árásina á þinghúsið í Washington í janúar hefur úrskurðað samhljóða að Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður Dondalds Trump fyrrverandi forseta, hafi gerst sekur um að sýna þinginu óvirðingu. 20.10.2021 06:47
Vilja að Bolsonaro verði ákærður fyrir morð Brasilískir öldungadeildarþingmenn segja að ákæra ætti Jair Bolsonaro, forseta landsins, vegna fjölda dauðsfalla sökum Covid-19. Meðal annars ætti að ákæra hann fyrir morð fyrir að ákvarðanir sem leiddu til aukinnar útbreiðslu Covid í Brasilíu. 19.10.2021 23:24
Greindi frá því í beinni að hann væri með MS John King, einn af helstu fréttaþulum bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN, greindi frá því í dag í miðjum umræðuþætti hans á sjónvarpstöðinni að hann væri með taugasjúkdóminn MS. Hann segist vera þakklátur fyrir það að samstarfsfélagar hans séu bólusettir gegn Covid-19. 19.10.2021 23:19
Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. 19.10.2021 22:36
Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. 19.10.2021 19:12
Reyna að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um björgunaraðgerðir Líbanska þingið samþykkti í dag að boða til þingkosninga 27. mars næstkomandi, sem gefur ríkisstjórn Najib Mikati forsætisráðherra aðeins nokkra mánuði til að koma á samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um fjárhagsaðstoð vegna kreppunnar sem skekur nú landið. 19.10.2021 15:53
Trump sparkar í látinn mann Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fer ófögrum orðum um Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér sólarhring eftir andlát Powell. Sakar hann Powell um fjölda mistaka og að hafa ekki verið raunverulegur repúblikani. 19.10.2021 14:02
Krefjast milljarða í lausnargjald fyrir bandarísku trúboðana Glæpagengi sem rændi sautján bandarískum trúboðum á Haítí um helgina krefst milljónar dollara í lausnargjald fyrir hvern og einn þeirra, samtals jafnvirði tæplega 2,2 milljarða íslenskra króna. 19.10.2021 13:37
Hundruð enn í fangelsi eftir mótmælin á Kúbu í sumar Kommúnistastjórnin á Kúbu heldur enn hátt í fimm hundruð manns í fangelsi af þeim rúmlega þúsund sem voru handteknir á mótmælum gegn stjórnvöldum í sumar. Mannréttindasamtök segja að fangarnir sæti ýmis konar harðræði. 19.10.2021 12:09
Fundu sverð krossfara á hafsbotni við Ísrael Áhugakafari fann sverð sem er talið hafa tilheyrt riddara sem tók þátt í einni krossfaranna fyrir um 900 árum undan ströndum norðanverðs Ísraels um helgina. Sverðið er sagt í nær fullkomnu ástandi þrátt fyrir að það hafið verið hjúpað sjávarlífverum. 19.10.2021 11:19
Fórnarlömb repjuolíueitrunar í setuverkfalli á listasafni og hóta sjálfsvígi Hópur fólks sem lifði af meiriháttar repjuolíueitrun á 9. áratugnum lögðu undir sig sal í El Prado-listasafninu í miðborg Madridar á Spáni í morgun. Fólkið hótar að svipta sig lífi nema stjórnvöld verði við kröfum þess. 19.10.2021 09:57
Á annað hundrað milljóna í hættu vegna þurrka, flóða og hita Allt að 118 milljónir Afríkubúa sem búa við örbirgð verða í hættu vegna þurrka, flóða og öfgahita fyrir lok þessa áratugs verði ekki gripið til mótvægisaðgerða samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) um áhrif loftslagsbreytinga í álfunni. 19.10.2021 09:25
Maður féll hundrað metra af loftbelg og lést Karlmaður féll af loftbelg í um hundrað metra hæð og lést í Ísrael í dag. Lögregla segir að maðurinn hafi hangið utan á körfu loftbelgsins. Hann er sagður hafa starfað við loftbelgjaflugið á jörðu niðri. 19.10.2021 08:52
Spennan milli Póllands og Evrópusambandsins magnast Forsætisráðherra Póllands sagðist hafna miðstýringu Evrópusambandsins og sakaði það um að fara yfir öll valdmörk í ræðu sem hann flutti fyrir Evrópuþinginu í Strassbourg í morgun. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins varaði hann við því að komið geti til aðgerða fallist pólsk stjórnvöld ekki á að fylgja Evrópulögum. 19.10.2021 08:27
Skutu skotflaug á Japanshaf Norðurkóreumenn skutu skotflaug í sjóinn undan ströndum Japans í dag. Talið er að flaugin sem var notuð sé hönnuð til að vera skotið á loft frá kafbáti. 19.10.2021 08:23
Kórónuveiran á siglingu í Bretlandi Þeim sem smitast af kórónuveirunni í Bretlandi hefur fjölgað stöðugt í þessum mánuði og í gær greindust tæplega fimmtíu þúsund manns með Covid 19 í landinu. 19.10.2021 07:57
Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. 18.10.2021 23:31
Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni. 18.10.2021 23:21
Gates hafi verið ráðlagt að láta af óviðeigandi tölvupóstsamskiptum Yfirmenn hjá Microsoft eru sagðir hafa ráðlagt Bill Gates að hætta kynferðislegum tölvupóstsamskiptum við kvenkyns starfsmann fyrirtækisins árið 2008. 18.10.2021 21:56
Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. 18.10.2021 15:46
Fórnarlömbin í Kongsberg voru myrt með eggvopnum Fimm manns sem létu lífið í árás vopnaðs manns í Kongsberg í Noregi í síðustu viku voru stungnir til bana en ekki skotnir með boga og örvum eins og talið var í fyrstu. Sumir þeirra voru myrtir heima hjá sér en aðrir úti á götu. 18.10.2021 15:10
Herforingjastjórnin ætli að sleppa 5.600 stjórnarandstæðingum lausum Herforingjastjórnin í Mjanmar segist ætla að sleppa 5.600 pólitískum föngum lausum. Þetta var tilkynnt aðeins dögum eftir að yfirherforingjanum var meinað að mæta á leiðtogafund Sambands Suðaustur-Asíuríkja fyrir að takast ekki að koma á friði í landinu. 18.10.2021 13:47
Fyrstu kvikmyndatökunni úti í geim lokið Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur. 18.10.2021 13:21
Colin Powell látinn vegna Covid-19 Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er látinn af völdum fylgikvilla Covid-19. Hann var 84 ára gamall. 18.10.2021 12:17
Var nauðgað í fullri lest á meðan aðrir farþegar sátu hjá Lestarfarþegar í Fíladelfíu sátu hjá og gerðu ekkert á meðan konu var nauðgað í lestarvagninum á miðvikudagskvöld. Ekki einn farþeganna brást við á meðan á árásinni stóð og enginn hringdi í neyðarlínuna að sögn yfirvalda í Fíladelfíu. 18.10.2021 09:23
Stjórnarandstaðan sameinast um frambjóðanda gegn Orban Íhaldssamur bæjarstjóri stóð uppi sem sigurvegari í sameiginlegu forvali ungversku stjórnarandstöðunnar fyrir þingkosningar sem fara fram á næsta ári. Hann fær það hlutverk að leiða sameinaða stjórnarandstöðuna og freista þess að fella Viktor Orban, forsætisráðherra. 18.10.2021 09:04
Græningjar samþykkja að ráðast í formlegar stjórnarmyndunarviðræður Mikill meirihluti þýskra Græningja samþykkti í gær að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Jafnaðarmenn (SPD) og Frjálslynda demókrata (FDP). 18.10.2021 08:23
Forsætisráðherra Spánar heitir því að banna vændi á ný Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, hét því í gær að banna vændi í landinu. Í ræðu sinni undir lok þriggja daga ráðstefnu Sósíalistaflokksins sagði hann vændi gera konur að þrælum en rannsóknir benda til að 30 til 40 spænskra karla hafi greitt fyrir kynlíf. 18.10.2021 07:21
Að minnsta kosti 24 látnir í miklum rigningum á Indlandi Miklar rigningar hafa gengið yfir suðurhluta Indlands síðustu daga og hafa ár víða flætt yfir bakka sína með tilheyrandi tjóni og röskun á samgöngum. 18.10.2021 06:48
Minnst tuttugu eru látin í gríðarlegum flóðum á Indlandi Úrhellisrigning hefur valdið flóðum í Kerala á Indlandi síðustu daga. Minnst tuttugu hafa látisst og tuga er saknað. 17.10.2021 16:34
Innanríkisráðherra íhugar lögregluvernd fyrir þingmenn eftir morðið Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sagst vera að íhuga að bjóða þingmönnum upp á lögregluvernd eftir að þingmaðurinn David Amess var myrtur á föstudaginn. 17.10.2021 12:45
Nafngreina grunaðan morðingja þingmannsins Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt breska þingmanninn Sir David Amess í Essex á föstudag heitir Ali Harbi Ali og er 25 ára Breti af sómölskum uppruna, samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla sem nafngreina hann í dag. 17.10.2021 10:09
Að minnsta kosti sautján Bandaríkjamönnum rænt á Haítí Hópur af trúboðum, ásamt fjölskyldum þeirra, var rænt nálægt höfuðborg Haítí, Port-au-Prince, í gær. 17.10.2021 07:38
Jarðgöngin koma í röðum, þau næstu fyrir áttatíu íbúa Ekkert lát ætlar að verða á jarðgangaborunum Færeyinga. Fyrir tveimur vikum fögnuðu þeir fyrstu sprengingu nýrra Árnafjarðarganga. Samtímis er hafið útboðsferli á göngum til Fámjins, áttatíu manna byggðar á Suðurey. 17.10.2021 06:27