Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Squid game búningar bannaðir í grunnskólum í New York Þrír grunnskólar í New York fylki í Bandaríkjunum hafa bannað nemendum að klæðast búningum úr vinsælu sjónvarpsþáttunum Squid Game. Stjórnendur skólanna hræðast að með búningunum sé verið að upphefja ofbeldi. 28.10.2021 15:14
Olíuforkólfar svara fyrir upplýsingafals um loftslagsbreytingar Æðstu stjórnendur Exxon Mobil og annarra olíurisa koma fyrir bandaríska þingnefnd til að svara spurningum um hvernig olíufyrirtækin gerðu lítið úr viðvörunum um loftslagsbreytingar og dreifðu upplýsingafalsi um áratugaskeið. Forstjóri Exxon neitaði því að fyrirtæki hans hefði dreift falsi um loftslagsmál. 28.10.2021 15:07
Grunur um að herinn hafi hylmt yfir morð breskra hermanna Hershöfðinginn Mark Carleton-Smith segist blöskra ásakanir þess efnis að breskir hermann kunni að hafa átt þátt í morðinu á konu í Kenía árið 2012. Segist hann munu vinna með yfirvöldum að því að upplýsa málið. 28.10.2021 10:37
Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær. 28.10.2021 10:29
Telja sig hafa fundið fyrstu reikistjörnuna utan Vetrarbrautarinnar Stjarnvísindamenn telja sig hafa fundið merki um reikistjörnu á braut um stjörnu utan Vetrarbrautarinnar okkar í fyrsta skipti. Allar þær þúsundir fjarreikistjarna sem menn hafa fundið til þessa eru í Vetrarbrautinni. 28.10.2021 09:06
Halls viðurkennir að hafa ekki skoðað byssuna nógu vandlega Dave Halls, aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, hefur sagt við lögreglu að hann hefði átt að tryggja að ekkert skot væri í byssunni sem hann rétti leikaranum Alec Baldwin, rétt áður en skot úr sömu byssu varð tökustjóranum Halynu Hutchins að bana. 28.10.2021 08:02
Bensínstöðvar í Kína farnar að skammta eldsneyti Bensínstöðvar í Kína hafa margar hverjar tekið upp á því að skammta dísilolíu til viðskiptavina sinna í ljósi hækkandi verðs og minnkandi framboðs. Skömmtunin nær jafnt til almennings sem og til atvinnubílstjóra. 28.10.2021 07:06
Stefnir í þingrof í Portúgal Útlit er fyrir þingrof og kosningar í Portúgal eftir að þingið hafnaði fjárlagafrumvarpi sitjandi minnihlutastjórnar fyrir næsta ár. 28.10.2021 00:07
Alþjóðabankinn stöðvar fjárhagsaðstoð til Súdan Alþjóðabankinn og hefur nú stöðvað fjárhagsaðstoð til Súdan eftir að herinn framdi þar valdarán á mánudag og handtók nokkra ráðherra landsins. 27.10.2021 16:39
Dómsmál gegn Macchiarini þingfest í Svíþjóð á morgun Mál sænska ákæruvaldsins gegn ítalska skurðlækninum Paolo Macchiarini verður þingfest í héraðsdómstólnum í Solna á morgun. Macchiarini er ákærður í plastbarkamálinu svokallaða en hann er ákærður fyrir gróft ofbeldi. 27.10.2021 16:13
Rannsóknir samhljóða um ábyrgð manna á hlýnun Yfir 99,9% allra ritrýndra loftslagsvísindarannsókna sem hafa verið birtar frá 2012 telja menn ábyrga fyrir hnattrænni hlýnun sem á sér stað á jörðinni. Það er enn hærra hlutfall en í þekktri rannsókn sem vitnað hefur verið til um vísindalega vissu fyrir orsökum loftslagsbreytinga. 27.10.2021 15:32
Telja hefðbundna kúlu hafa verið í byssunni Fógeti Santa Fe-sýslu í Nýju Mexíkó og héraðssaksóknari sýslunnar héldu í dag blaðamannafund um rannsókn þeirra á dauða Halynu Hutchins, kvikmyndatökustjóra, sem dó við gerð kvikmyndarinnar Rust. Þar kom í ljós að talið er að hefðbundið byssuskot hefði verið í byssunni sem leikarinn Alec Baldwin skaut Hutchins með. 27.10.2021 15:30
Kanna leiðir til að draga úr áhrifum geimferða Fjórum geimförum verður skotið út í geim á sunnudagsmorgun. Þau munu verja næstu mánuðum við störf og rannsóknir í Alþjóðlegu geimstöðinni. Geimförunum verður skotið út í geim um borð í Crew Dragon geimfari SpaceX. 27.10.2021 13:55
Líkti tilraunum Kínverja við geimskot Spútnik á árum áður Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna segir fregnir af tilraunum Kínverja með sérstakar eldflaugar vera mikið áhyggjuefni. Líkti hann tilraununum við það þegar Sovétríkin skutu gervihnettinum Spútnik á loft. 27.10.2021 13:01
Líf Assange í húfi og loforð Bandaríkjastjórnar innantóm Dómstóll í Lundúnum tekur nú fyrir áfrýjunarbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna framsals Julians Assange en framsalsbeiðninni var hafnað í upphafi árs. Ritstjóri WikiLeaks segir heilsu Assange vera í húfi og gefur lítið fyrir fullyrðingar Bandaríkjamanna um að Assange verði í öruggum höndum þar í landi. 27.10.2021 12:30
Hömlulaus glæpagengi krefjast afsagnar forsætisráðherra Haítí Götur Haítí eru nánast tómar þessa dagana og fjölda fyrirtækja hefur verið lokað. Þá er óttast að loka þurfi sjúkrahúsum á næstu dögum en þau eru oftar en ekki knúin af ljósavélum vegna skorts á raforku. 27.10.2021 10:44
Assange gæti afplánað dóm í Ástralíu Bandarísk stjórnvöld segja að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, gæti fengið að afplána mögulegan fangelsisdóm í heimalandi sínu Ástralíu verði hann framseldur til Bandaríkjanna og sakfelldur þar. Áfrýjun vegna framsalskröfunnar er tekin fyrir í Bretlandi í dag. 27.10.2021 10:38
Aðstoðarkona Clinton segir þingmann hafa ráðist á sig Huma Abedin, einn nánasti ráðgjafi Hillary Clinton, lýsir því hvernig öldungadeildarþingmaður réðst á hana kynferðislega í endurminningum sínum. Atvikið hafi átt sér stað þegar Clinton var í öldungadeildinni á fyrsta áratug þessarar aldar. 27.10.2021 09:15
Geimklósettið til vandræða í geimfari SpaceX Allt leit út fyrir að geimskot SpaceX í september, þar sem fjórir geimfarar fóru hringinn í kringum jörðina í Crew Dragon geimfarinu, hafi gengið hnökralaust fyrir sig. Annað kom á daginn þegar heim var komið. Gat hafði komið á pípulagnir geimklósettsins um borð. 27.10.2021 08:58
Stefna áströlskum stjórnvöldum vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum Frumbyggjar á tveimur afskekktum eyjum hafa stefnt áströlsku ríkisstjórninni fyrir að hafa látið hjá liggja að vernda þá fyrir loftslagsbreytingum sem ógna nú heimkynum þeirra. 27.10.2021 08:42
Skotvopnið var „alvöru“ og ákærur ekki útilokaðar Mary Carmack-Altwies, yfirsaksóknari í Santa Fe-sýslu, segir ekki útilokað að ákærur verði gefnar út í tengslum við andlát tökustjórans Halyna Hutchins. Þá segir hún ekki rétt að tala um skotvopnið sem varð Hutchins að bana sem leikmun (e. prop), þar sem um raunverulegt antík skotvopn sé að ræða. 27.10.2021 08:20
Öldungadeildin samþykkir ákærur á hendur Bolsonaro Öldungadeildarþingmenn í Brasilíu hafa samþykkt að ákæra forseta landsins, Jair Bolsonaro, fyrir framgöngu hans í kórónuveirufaraldrinum. Forsetinn verður meðal annars ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni en 600 þúsund hafa látist vegna Covid-19 í landinu. 27.10.2021 07:38
Bandaríkjamenn freista þess enn að fá Assange framseldan Tveggja daga réttarhöld hefjast í Lundúnum í dag, þar sem bandarísk stjórnvöld freista þess að fá ákvörðun dómstóla í Bretlandi varðandi Julian Assange hnekkt. 27.10.2021 07:20
Um milljón umsagna á Tripadvisor í fyrra ekkert nema uppspuni Um milljón umsagna sem sendar voru inn á Tripadvisor í fyrra voru uppspuni. Þetta jafngildir 3,6 prósentum allra umsagna en samkvæmt talsmönnum fyrirtækisins náðist að stöðva birtingu 67,1 prósent hinna ósönnu umsagna áður en þær birtust. 27.10.2021 07:06
Týndur göngumaður svaraði ekki björgunarsveitum því hann þekkti ekki númerið Göngumaður nokkur sem týndist í fjallgöngu í Colorado í Bandaríkjunum svaraði ekki ítrekuðum símtölum leitaraðila á meðan hans var leitað. Ástæðan var einföld: Hann kannaðist ekki við númerið sem hringt var úr. 26.10.2021 23:31
Mæla með bólusetningu barna niður í fimm ára Sérfræðingar bandarísku matvæla- og lyfjastofnunarinnar (FDA) mæla með því að börn á aldrinum fimm til ellefu ára verði bólusett við kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. 26.10.2021 22:45
Loka fyrir flugumferð og forsætisráðherrann sagður heill á húfi Flugmálastofnun Súdan hefur lokað fyrir alla umferð um alþjóðaflugvöllinn í höfuðborginni Khartoum þar til á laugardag vegna ástandsins sem ríkir í landinu. Súdönsk lofthelgi er þó enn opin hjáumferð. 26.10.2021 16:36
Týndur göngumaður hunsaði símtöl frá viðbragðsaðilum Göngumaður sem skilaði sér ekki til byggða úr gönguferð í Colorado í Bandaríkjunum á áætlun hunsaði ítrekað símtöl frá viðbragðsaðilum. Hann eða hún vildi ekki svara númeri sem hann kannaðist ekki við svo björgunaraðilar þurftu að hefja leit að göngumanninum sem skilaði sér sjálfur til byggða. 26.10.2021 16:28
Andrés prins þarf að svara spurningum lögmanna Andrés prins þarf að svara spurningum lögmanna vegna einkamáls gegn honum þar sem hann er sakaður um kynferðisbrot gegn táningi. Það verður hann að gera fyrir 14. júlí næstkomandi samkvæmt úrskurði dómara í New York. 26.10.2021 14:40
Nýjar losunarskuldbindingar duga ekki til að ná markmiðum Nýjar og endurskoðaðar skuldbindingar nægja ekki til þess að uppfylla ákvæði Paríssamningsins um loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram kemur í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, skýrslu sem Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir sláandi vakningu. 26.10.2021 14:38
Fyrsta konan til að gegna embætti þingforseta Þýskalands í 23 ár Þýska þingið samþykkti í dag að Jafnaðarmaðurinn Bärbel Bas taki við embætti þingforseta. Hin 53 ára Bas tekur við embættinu af kristilega demókratanum og fjármálaráðherranum fyrrverandi, hinum 79 ára Wolfgang Schäuble. 26.10.2021 14:01
Tíu skotum skotið að rapparanum Einár Tíu skotum var skotið að sænska rapparanum Einár, úr tveimur mismunandi skotvopnum, þegar hann var ráðinn af dögum í suðurhluta Stokkhólms síðastliðinn fimmtudag. Hann var skotinn í bringu og í höfuð. Skotið hafði verið á tvo aðra rappara, sem voru í fylgd með Einár umrætt kvöld, kvöldið áður. 26.10.2021 11:11
Trump yngri selur boli og gerir grín að Baldwin Stjórnmálamenn á hægri væng Bandaríkjanna og bandamenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hafa gagnrýnt og gert grín að leikaranum Alec Baldwin eftir að hann hleypti skoti af byssu á setti og varð þannig kvikmyndatökustjóranum Halynu Hutchins að bana. Donald Trump yngri, elsti sonur forsetans fyrrverandi seldi til að mynda boli þar sem grín var gert að dauða Hutchins. 26.10.2021 10:49
Fjögurra ára neyðarástandi loks aflétt í Egyptalandi Stjórnvöld í Egyptalandi hafa loks aflétt því neyðarástandi sem hefur verið í gildi í landinu í fjögur ár. Neyðarástandi var lýst yfir eftir hryðjuverkaárásir á tvær koptískar kirkjur í landinu árið 2017. 26.10.2021 09:26
Aldrei fleiri greinst á einum degi í Færeyjum Kórónuveirufaraldurinn er í uppsveiflu í Færeyjum um þessar mundir og í fyrradag smituðust 99 í eyjunum, sem er metfjöldi hingað til. Daginn áður greindust 78. 26.10.2021 07:52
Giftist almúgamanni og missti um leið konunglega tign sína Mako Japansprinsessa giftist í dag æskuástinni sinni, Kei Komuro, og missti þá um leið konunglega tign sína. Samkvæmt japönskum lögum afsala konur úr keisarafjölskyldu landsins konunglegri tign, ákveði þær að giftast „almúgamanni“. Hið sama á þó ekki við um karlkyns meðlimi japönsku keisarafjölskyldunnar. 26.10.2021 07:40
Stærstu samtök lögreglumanna í New York mótmæla bólusetningarkvöðinni Stærstu samtök lögreglumanna í New York hafa lagt fram kæru þar sem þeir krefjast þess að dómstólar heimili lögreglumönnum að halda vinnunni þótt þeir kjósi að afþakka bólusetningu gegn Covid-19. 26.10.2021 07:40
Bandaríkin fordæma valdaránið og krefjast þess að ráðherrum sé sleppt Bandaríkjamenn hafa fordæmt valdaránið í Súdan en í gær tóku yfirmenn hersins völdin í landinu af bráðabirgðastjórn sem komið var á eftir fall einræðisherrans Omars al-Bashir árið 2019. 26.10.2021 07:07
Hafði áður verið rekinn úr tökuliði vegna byssuskots á setti Aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, sem leikarinn Alec Baldwin vann að þegar hann hleypti skoti af byssu á setti og varð þannig kvikmyndatökustjóranum Halynu Hutchins að bana, var rekinn úr verkefni árið 2019 eftir sambærilegt atvik. Þar slasaðist meðlimur í tökuliðinu þegar skot hljóp úr byssu á setti. 25.10.2021 23:45
Kennsl borin á eitt fórnarlamba eins þekktasta raðmorðingja Bandaríkjanna Yfirvöld í Illinois í Bandaríkjunum greindu frá því í dag að þau hefðu borið kennsl á eitt fórnarlamba raðmorðingjans Johns Wayne Gacy, sem var dæmdur fyrir 33 morð árið 1980. 25.10.2021 23:31
Vill borga óbólusettum löggum fyrir að flytja til Flórída Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, ætlar að greiða óbólusettum lögregluþjónum fimm þúsund dali fyrir að flytja til ríkisins og starfa þar. Hann segir vöntun á lögreglunum og segir að betur verði komið fram við þá en annars staðar þar sem lögregluþjónum er gert að fara í bólusetningu við Covid-19. 25.10.2021 16:49
Eini eftirlifandi kláfslyssins verði sendur aftur til ættingja sinna á Ítalíu Ísraelskir dómstólar hafa úrskurðað að sex ára gamall drengur, sem er eini eftirlifandi kláfferjuslyss sem varð á Ítalíu í maí, verði sendur aftur til ættingja sinna á Ítalíu eftir að afi hans tók hann með sér til Ísrael. 25.10.2021 16:40
Minnst þrír hafi fallið í valdaráni súdanska hersins Súdanski herinn hefur tekið völd í landinu og handtekið ráðherra. Mikil átök hafa verið milli hersins og mótmælenda og talið að minnst þrír hafi fallið í óeirðum í dag. Minnst áttatíu eru særðir eftir átök dagsins. 25.10.2021 16:16
Lést við að sinna hættulegasta starfi Hollywood Tökustjórinn Halyna Hutchins lést er hún var að sinna hættulegasta starfi Hollywood þegar skot hljóp úr byssu leikarans Alec Baldwin, við tökur á kvikmyndinni Rust. Úttekt Deadline sýnir að kvikmyndatökumenn virðast í mestri hættu við störf sín í kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðslu. 25.10.2021 16:00
Frestar útgáfu Kennedy-skjalanna aftur Hvíta húsið tilkynnti á föstudaginn að skjöl sem snúa að morði John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, verði ekki opinberuð strax. Opinberuninni verði frestað vegna Covid-19 þar sem sérfræðingar þurfi meiri tíma til að fara yfir skjölin og tryggja að þau innihaldi engin leyndarmál. 25.10.2021 14:52