Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öflugar loftárásir gerðar á Lviv Kröftugar loftárásir hafa verið gerðar á borgina Lviv í Úkraínu í dag. Sprengjurnar féllu mjög skammt frá borginni. Blaðamaður segir mikinn reykmökk svífa yfir og loftvarnarflautur óma hátt. Íbúar eru beðnir um að halda kyrru heima fyrir. 26.3.2022 16:05
Óttast að borgin verði „næsta Mariupol“ Íbúar borgarinnar Chernihiv í vesturhluta Úkraínu eru hræddir um að árásir á borgina fari að versna til muna. Ástandið er ekki orðið jafn slæmt og í Mariupol en versnar ört. Matur er af skornum skammti og fjölmargir íbúar byrja daginn á því að bíða í röð eftir vatni. 26.3.2022 15:01
Vaktin: Kjarnakljúfur varð fyrir tjóni eftir sprengjuárás Kjarnakljúfur í borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu hefur orðið fyrir tjóni eftir víðtækar sprengju- og stórskotaliðsárásir Rússa á svæðið. Ekki hefur enn verið hægt að meta umfang tjónsins, þar sem árásir Rússa eru nánast linnualausar. 26.3.2022 07:20
Fullyrða að Rússar hafi keyrt yfir herforingja úr eigin röðum á skriðdreka Vestrænir embættismenn telja að uppreisnarsveit rússneskra hermanna hafi keyrt yfir herforingja úr eigin röðum á skriðdreka. Atvikið sé merki um að starfsandi og samstaða innan hers Rússa fari sífellt versnandi. 25.3.2022 21:21
Einlæg og barnsleg gleði þegar einræðisherra skaut upp eldflaug Kim Jong-un einræðisherra Norður- Kóreu og meðreiðarsveinar hans ætluðu hreinlega að rifna úr stolti þegar risastórri eldflaug var skotið upp í landinu í gær. Önnur eins tær gleði er sjaldséð í heimi stjórnmálanna. 25.3.2022 21:01
Uppgjafartónn og ofsóknaræði runnið á rússneska ráðamenn Uppgjafartónn og ofsóknaræði er runnið á æðstu ráðamenn Rússlands sem segja Vesturlönd hafa sameinast um að gereyða Rússlandi. Vestrænir leiðtogar heita því að standa saman þar stríðinu ljúki með sneypuför Putins. Nú er talið að minnsta kosti þrjú hundruð manns hafi fallið í árás Rússa á leikhús í Mariupol. 25.3.2022 19:21
Vaktin: Pútín fangelsar þá sem dreifa „falsfréttum“ Boris Johnson sagði við BBC Newsnight í gærkvöldi að hann væri ekki bjartsýnn á að Vladimir Pútín vildi frið í Úkraínu. Hann teldi frekar að Rússlandsforseti myndi endurtaka leikinn frá Grozny, það er að segja umkringja borgir landsins og eyðileggja þær með sprengjuárásum. 25.3.2022 15:00
Rússar segjast hafa náð markmiðum sínum og einbeita sér að Donbas Rússar segjast að mestu hafa náð markmiðum sínum í Úkraínu og skaða her ríkisins verulega. Nú ætli þeir að einbeita sér að því að „frelsa“ Donbas-hérað að fullu. 25.3.2022 14:42
Rússar segja Vesturlönd hafa lýst allsherjarstríði á hendur Rússlandi að hætti nasista Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst yfir allsherjarstríði við Rússland að hætti nasista með það að markmiði að tortíma landinu. Bandaríkin og Evrópusambandið ætla að vinna saman að því að Putin Rússlandsforseti geti ekki lengur beitt aðgangi Evrópu að rússneskri orku sem vopni í samskiptum við bandalagið. 25.3.2022 11:58
„Við verðum að tryggja að fjölskyldur í Evrópu komist í gegnum þennan vetur og næsta“ Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hafa komist að samkomulagi um að setja á fót starfshóp sem er ætlað að finna leiðir til að draga úr þörf Evrópuríkjanna á að kaupa orku frá Rússlandi. 25.3.2022 11:12
Sammælast um vopnahlé í Tigray-héraði Stjórnvöld í Eþíópíu lýstu í morgun yfir ótímabundið vopnahlé af mannúðarástæðum í Tigray-héraði í norðurhluta landsins þar sem stríð hefur geisað frá árinu 2020. Ástæðan er að gefa íbúum á stríðssvæðunum færi á að taka á móti hjálpargögnum. 25.3.2022 09:44
Sjálfboðaliðar í Úkraínu: Kemst í vígaham þegar hann hugsar um að kýla Tucker Carlson Fyrrverandi hermaður sem tekur þátt í átökunum í Úkraínu segist að hluta til finnast eins og hann sé í „æðislegu og mjög hættulegu fríi“. James Vasquez, starfaði í her Bandaríkjanna og rekur smíðafyrirtæki í Connecticut. 25.3.2022 09:25
Mikil bleiking í Kóralrifinu mikla Loftmyndir af Kóralrifinu mikla undan ströndum Ástralíu sýna að svokölluð bleiking er hafin á 1.200 kílómetra löngu svæði. Slíkir atburðir verða æ algengari en bleikingin veldur dauða kórallana. 25.3.2022 07:56
Úkraínumenn snúa vörn í sókn Vísbendingar eru uppi um að Úkraínumönnum sé að takast að snúa vörn í sókn á sumum svæðum og setja áætlanir Rússa í enn frekara uppnám. Yfirvöld í Úkraínu segja þeim hafa tekist að hrekja Rússa til baka, meðal annars norður af Kænugarði. 25.3.2022 06:31
Leiðtogarnir sýndu samstöðu en tóku engin ný skref Leiðtogar NATO, Evrópusambandsins og G7 ríkjanna funduðu í Brussel í dag um stöðuna milli Úkraínu og Evrópu. Aðildaríki Atlantshafsbandalagsins samþykktu að auka viðbúnað og hernaðaraðstoð til Úkraínu en í heildina að sjá var lítið um breytingar. Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegast að fundurinn verði notaður til að þrýsta á kínversk stjórnvöld. 24.3.2022 23:14
Trump í mál við Clinton og flokksstjórn Demókrata Donald Trump hefur höfðað mál gegn Hillary Clinton, flokksstjórn Demókrataflokksins og tuttugu og sex öðrum einstaklingum vegna ásakana um tengingu hans við Rússland í kosningabaráttunni árið 2016 og fer fram á milljónir dollara í skaðabætur. 24.3.2022 22:46
Byrjað að rýma á Asóreyjum Yfirvöld á Asóreyjum hafa byrjað að flytja fólk á brott sem býr nálægt ströndinni en óttast er að eldgos gæti hafist á eyjunum. Mikil skjálftavirkni hefur verið á eyjunum síðustu daga. 24.3.2022 22:05
Árásarmaðurinn í Malmö vildi verða kennari Árásarmaðurinn sem myrti tvo kennara í Malmö á mánudag vildi sjálfur verða kennari. Starfsfólk skólans hafði margsinnis tilkynnt um einkennilega hegðun hans áður en árásin átti sér stað. 24.3.2022 21:43
Vilhjálmur prins biðst afsökunar á viðbjóðslegu þrælahaldi Breta Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið íbúa Jamaica afsökunar á þrælahaldi Breta á eyjunum undir þrjú hundruð ára stjórn þeirra. Prinsinn og Katrín eiginkona hans eru nú í heimsókn í samveldisríkjum í Karabíska hafinu. 24.3.2022 21:01
Zelenskyy gagnrýnir Vesturlönd fyrir skort á vopnum Úkraínuforseti sakar Rússa um að nota fosfórsprengjur í stríðinu í Úkraínu og gagnrýnir Vesturlönd fyrir að útvega Úkraínumönnum ekki flugvélar og skriðdreka. Innrás Rússa sé aðeins byrjunin á árásum þeirra á Evrópuþjóðir nái þeir sínu fram gagnvart Úkraínu. 24.3.2022 20:01
Rússar uppskera gerbreytt og öflugra NATO með innrásinni Framkvæmdastjóri NATO segir innrás Rússa í Úkraínu hafa breytt stefnu bandalagsins varanlega en leiðtogar þess ákváðu í dag að efla herafla sinn í austur Evrópu verulega. Rússar áskilja sér rétt til notkunar kjarnorkuvopna. 24.3.2022 19:21
Vaktin: Úkraínumenn berjast gegn hersveitum Rússa Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins, sjö helstu iðnríkja heims og Evrópusambandsins funduðu í Brussel í dag en þar var ákveðið að auka viðbúnað NATO herja í bandalagsríkjum í austur Evrópu.Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í allan dag. 24.3.2022 14:25
„Við erum staðráðin í að gera allt sem við getum til að styðja Úkraínu“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir leiðtoga bandalagsins hafa ákveðið að auka viðbúnað þess á öllum sviðum. Á láði, leiði og í lofti. Þeir hafi sömuleiðis samþykkt aukna aðstoð við Úkraínumenn til að hjálpa þeim að verjast innrás Rússa. 24.3.2022 14:05
Stoltenberg mun ekki taka við sem seðlabankastjóri Noregs Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO og fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, mun ekki taka við stöðu seðlabankastjóra Noregs í október líkt og til stóð. 24.3.2022 13:35
Bein útsending: Stoltenberg greinir frá hertum refsiaðgerðum NATO gegn Rússlandi Sögulegur sameiginlegur neyðarfundur leiðtoga Atlantshafsbandalagsríkjanna, sjö helstu iðnríkja (G-7) og Evrópusambandsins hófst í Brussel klukkan átta í morgun. 24.3.2022 11:45
Leiðtogar Vesturlanda herða á skrúfunni á Rússum Framkvæmdastjóri NATO gefur sterklega til kynna að ef Rússar beiti efnavopnum í Úkraínu gæti það verið túlkað sem árás á NATO-ríki og viðbrögðin yrðu eftir því. Forseti Úkraínu ávarpar sérstakan neyðarfund leiðtoga heims í dag og skorar á almenning alls staðar að fara út á götur í dag og mótmæla innrás Rússa í heimaland hans. 24.3.2022 11:43
Taldir ætla að króa fjórðung úkraínska hersins af í Donbas Þó hægt hafi á sóknum Rússa á mörgum vígstöðvum Úkraínu, og þeir hafi jafnvel þurft að hörfa undan gagnárásum Úkraínumanna í grennd við Kænugarð og Mykolaiv, hafa Rússar sótt fram í Donbas-héraði. Sú sókn hefur gengið hægt og rólega en hún hefur gengið. 24.3.2022 11:26
Segja Stoltenberg verða ár lengur í embætti Jens Stoltenberg mun framlengja tíð sína sem framkvæmdastjóri NATO um eitt ár en til stóð að hann myndi láta af embætti næsta haust. Ástæðan er ástandið vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem hófst fyrir sléttum mánuði. 24.3.2022 10:47
Stærstu eldflaug Norður-Kóreu skotið á loft Ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skaut í morgun stærstu eldflaug sem verkfræðingar einræðisríkisins hafa hingað til framleitt á loft. Eldflaugin flaug í þúsunda kílómetra hæð og lenti í sjónum undan ströndum Japans, innan lögsögu ríkisins. 24.3.2022 10:04
„Tígris-teymið“ skoðar viðbrögð vegna efna- og kjarnorkuvopnaárása Hvíta húsið hefur kallað saman teymi sérfræðinga á sviði þjóðaröryggismála til að skoða möguleg viðbrögð við því ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti grípur til þess að nota efna, lífefna eða kjarnorkuvopn í Úkraínu. 24.3.2022 06:51
Óttast eldgos á Asóreyjum Mikil skjálftavirkni hefur mælst á Asóreyjum síðustu daga og yfirvöld óttast að virknin kunni að leiða til eldgoss. Grannt er fylgst með stöðunni og ferðamenn eru hvattir til að hætta sér ekki á eyjarnar. 23.3.2022 23:32
Stálheppinn Norðmaður vann 800 milljónir Ljónheppinn Norðmaður vann fyrsta vinning í Víkingalottó þessa vikuna og fær rúmlega 808 milljónir króna í sinn hlut. Samlandi hans var með annan vinning og fær rúmar 57 milljónir fyrir. 23.3.2022 23:21
Selenskí ávarpar heimsbyggðina og boðar mótmæli: „Heimurinn verður að stöðva Rússland“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur kallað eftir því að fólk um allan heim safnist saman á morgun, fimmtudaginn 24. mars, til að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Hann segir aðgerðir Rússa aðeins byrjunina á stríðinu gegn frelsi í Evrópu. 23.3.2022 22:55
Neita að endurskoða lífstíðardóm framhaldsskólastarfsmanns Pamela Smart, sem situr inni fyrir að hafa látið framhaldsskólanema myrða eiginmann sinn, fær ekki endurskoðun á lífstíðardómnum er hún hlaut fyrir rúmum þrjátíu árum síðan. 23.3.2022 22:50
Madeleine Albright látin Madeleine Albright, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú fallin frá, 84 ára að aldri, en fjölskylda hennar greinir frá þessu í yfirlýsingu. Hún lést af völdum krabbameins. 23.3.2022 19:29
Neyðarfundur helstu leiðtoga heims hefst á morgun Hugmyndir Pólverja um að NATO-ríki taki að sér friðargæslu í Úkraínu fá dræmar undirtektir fyrir sérstakan leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins í Brussel á morgun. Hundrað þúsund manns eru enn í Mariupol undir stöðugum loftárásum. Kanslari Þýskalands segir Þjóðverja ekki geta hætt skyndilega að kaupa olíu af Rússum. 23.3.2022 19:20
Saka Rússa formlega um stríðsglæpi: „Að ráðast vísvitandi á óbreytta borgara er stríðsglæpur“ Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir bandarísk stjórnvöld hafa formlega lýst því yfir að rússneskar hersveitir hafi framið stríðsglæpi í Úkraínu með því að ráðast á óbreytta borgara. Hann segir skýr sönnunargögn um að árásir Rússa hafi valdið dauða og eyðileggingu um alla Úkraínu. 23.3.2022 19:00
Vaktin: Kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim á morgun Sérstakur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins fer fram í Brussel á morgun en forseti Úkraínu kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim. Þetta sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í daglegu ávarpi sínu í nótt. 23.3.2022 15:10
Varðist ásökunum um linkind í garð barnaníðinga Ketanji Brown Jackson hefur varið undanförnum tveimur dögum í að svara fjölmörgum spurningum bandarískra öldungadeildarþingmanna. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt hana til Hæstaréttar og ef hún kemst í gegnum staðfestingaferli öldungadeildarinnar verður hún fyrsta þeldökka konan í Hæstarétti Bandaríkjanna. 23.3.2022 10:09
Annar flugrita kínversku vélarinnar fundinn Leitarlið hefur fundið annan af flugritum farþegavélarinnar sem hrapaði í suðurhluta Kína á mánudaginn. Ekki er liggur fyrir hvort um sé að ræða ferðritann eða hljóðritann en hann er mikið skemmdur að því er segir í frétt AP. 23.3.2022 09:48
Aftur til fortíðar? Skortur og raðir í Rússlandi Refsiaðgerðir bandamanna gegn Rússum eru farnar að bitna á almennum borgurum, sem þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir innfluttan varning en áður, ekki síst vegna gengislækkunar rúblunnar. 23.3.2022 08:58
Taka þökin af turnum Dómkirkjunnar í Lundi Þak nyrðri turns Dómkirkjunnar í Lundi var fjarlægt með stórum krana í gær en framundan eru endurbætur á kirkjunni sem nú er klædd er stillönskum. Mikill fjöldi fólks kom saman til að fylgjast með framkvæmdinni. 23.3.2022 08:57
Einn látinn eftir að hvirfilbylur gekk yfir úthverfi New Orleans Að minnsta kosti einn er látinn eftir að stór hvirfilbylur gekk yfir bandarísku stórborgina New Orleans í gær og í nótt. Óveðrið þeytti upp bílum og svipti þökum af húsum í Arabi-hverfinu auk þess sem rafmagn fór af stórum hluta borgarinnar. 23.3.2022 07:16
Bandaríkjamenn gagnrýna „hættulegt“ tal Rússa um notkun kjarnorkuvopna John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, fordæmdi ummæli talsmanns stjórnvalda í Moskvu á CNN í gær, þar sem hann sagði að kjarnorkuvopnum yrði mögulega beitt ef „tilvistaleg ógn“ steðjaði að Rússum. 23.3.2022 06:19
Viðtal við konu frá Maríupól: Sátu á gólfinu og báðu bænir í sprengjuregni Kona sem flúði Maríupól í Úkraínu, þar sem fólk býr við hryllilegar aðstæður eftir linnulausar árásir Rússa, segir skelfilegt að horfa upp á heimaborg sína sprengda í loft upp. Hún þurfti að sjá um alla matseld við opinn eld undir berum himni eftir að rafmagnslaust varð í borginni. 22.3.2022 20:00