Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vaktin: Sprengingar heyrðust í Kænugarði Rússnesk stjórnvöld segja að Úkraínuher hafi sent þyrlur inn í lofthelgi Rússa. Þar hafi flugmenn skotið sprengjum á byggingar í þorpinu Klimovo í Brjanskfylki. Rússar hafa áður haldið sams konar ásökunum á lofti, en Úkraínumenn neituðu þeim. 14.4.2022 16:20
Lögðu hald á stærstu snekkju heims Lögreglan í Þýskalandi hefur lagt hald á stærstu snekkju heims eftir að umfangsmikil rannsókn leiddi í ljós að hún væri í eigu systur ólígarkans Alisher Usmanov. Snekkjan, sem ber heitið Dilbar, er metin á 600 milljónir dollara. 14.4.2022 15:50
Hefja rannsókn eftir að lögreglumaður skaut svartan mann til bana Lögreglan í Michigan-ríki í Bandaríkjunum rannsakar nú mál hvíts lögreglumanns sem skaut hinn 26 ára Patrick Lyoya, sem var svartur, til bana. Myndbönd sýna átök milli Lyoya og ónefnds lögreglumanns vegna rafbyssu, sem enduðu með því að lögreglumaðurinn skaut Lyoya. Mótmælendur krefjast þess að lögreglumaðurinn verði nafngreindur. 14.4.2022 08:49
Vaktin: Taldir hafa grandað einu helsta flaggskipi rússneska sjóhersins Iryna Vereshchuk, varaforsætisráðherra Úkraínu, segir ekki mögulegt að opna nein mannúðarhlið í dag. Hún sakar Rússa um að brjóta gegn fyrirfram ákveðnum vopnahléum og að hindra för þeirra sem freista þess að komast burtu frá átakasvæðum. 13.4.2022 16:35
Finnar og Svíar færast nær NATO-aðild Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja báðir að öryggislandslag Evrópu hafi tekið grundvallarbreytingum með innrás Rússa í Úkraínu. Það geti leitt til þessa að bæði ríki sæki um aðild að NATO, Atlantshafsbandalaginu. 13.4.2022 15:00
Saka hvort annað um lygar og ofbeldi Lögmenn Johnny Depp sögðu Amber Heard, fyrrverandi eiginkonu hans, vera lygara sem væri heltekin af ímynd sinni. Það gerðu þeir við upphaf réttarhalda í máli þar sem hann hefur sakað hana um að ljúga upp á sig ofbeldi. 13.4.2022 11:19
Stríðsvél Pútín verði ekki stöðvuð nema með því að beita fullu afli „Við höfum lært þrennt það sem af er stríðsins. Í fyrsta lagi að samningaviðræður við Pútín skila engu; hvorki viðræður fyrir né eftir innrásina hafa skilað nokkru. Friðarviðræðurnar eru komnar í öngstræti.“ 13.4.2022 10:47
Árásarmannsins í Brooklyn enn leitað Lögreglan í New York leitar enn manns sem skaut á fólk í neðanjarðarlestarstöð í Brooklyn í gær. 13.4.2022 08:35
Tala látinna hækkar á Filippseyjum Tala látinna á Filippseyjum eftir hitabeltisstorminn Megi heldur áfram að hækka. 13.4.2022 08:30
Minnst tíu skotnir og 29 fluttir á sjúkrahús Minnst 29 voru fluttir á sjúkrahús í dag eftir að maður með gasgrímu henti reyksprengju inn í neðanjarðarlest á háannatíma í Brooklyn í New York og hóf skothríð. 13.4.2022 00:00
Vaktin: Segir sönnunargögn um þjóðarmorð Pútíns hrannast upp Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagðist í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi óttast að Rússar myndu beita efnavopnum en fullyrti ekki að þau hefðu verið notuð. Fyrr í gær var því haldið fram að efnavopnasprengja hefði verið látin falla á Maríupól. 12.4.2022 16:50
Minnst fimm særðust í skotárás í Brooklyn Minnst fimm særðust í skotárás í neðanjarðarlest í Brooklyn í New York í morgun. Lögreglan leitar enn árásarmannsins, sem talinn er klæddur í appelsínugult endurskinsvesti. 12.4.2022 15:50
Skotárás í lestarstöð í New York Lögreglan í New York leitar manns sem sagður er hafa skotið fjölda fólks í lestarstöð í borginni á háannatíma í dag. Fregnir hafa einnig borist af sprengingu og að því að ósprungnar sprengjur hafi fundist á vettvangi. 12.4.2022 13:37
Johnson og Sunak verða sektaðir vegna veisluhaldanna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, verða sektaðir vegna veisluhalda í Downingstræti á meðan Covid faraldrinum stóð en þetta staðfestir talsmaður ríkisstjórnarinnar við breska fjölmiðla. Stjórnarandstæðingar krefjast afsagnar þeirra. 12.4.2022 13:18
„Slátrarinn í Sýrlandi“ tekur við stjórn hersins í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað nýjan herforingja til að taka yfir stjórn innrásarinnar í Úkraínu. Sá heitir Aleksandr Dvornikov en er gjarnan kallaður „Slátrarinn í Sýrlandi“. Herforinginn tók við stjórn innrásarinnar um helgina en hingað til hefur enginn einn herforingi haldið utan um hernaðaraðgerðir Rússa. 12.4.2022 10:50
Slakað á í Sjanghæ: 4,8 milljónum hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur Yfirvöld í Kína hafa slakað lítillega á sóttvörnum í Sjanghæ og stórum hluta þeirra 25 milljóna sem þar búa var hleypt út í fyrsta sinn í tvær vikur. Fjölmiðlar ytra segja fólk hafa hlaupið í verslanir til að kaupa matvæli eftir mikla inniveru. 12.4.2022 09:48
25 látnir á Filippseyjum vegna hitabeltisstormsins Megi Að minnsta kosti 25 eru látnir á Filippseyjum eftir að hitabeltisstormurinn Megi gekk yfir landið. Mesta tjónið hefur orðið í flóðum og aurskriðum og eru björgunarsveitir enn að störfum við að bjarga fólki sem hefur orðið innlyksa á austur- og suðurströndum eyjaklasans. 12.4.2022 07:33
Segja Rússa beita efnavopnum í Maríupol Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússaher um að notast við efnavopn við Maríupol, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna fylgist með málinu en hefur ekki viljað staðfesta fregnir af árásinni. 11.4.2022 22:55
Mótmæla tveggja vikna útgöngubanni í Sjanghæ með því að öskra út um gluggann Aldrei hafa fleiri tilfelli kórónuveirunnar greinst í Sjanghæ í Kína. Útböngubann hefur verið í borginni í tvær vikur þrátt fyrir að flestir hinna smituðu séu einkennalausir. Íbúar segja hættu á að fólk deyi úr hungri. 11.4.2022 21:01
Vaktin: Úkraínskar hersveitir búa sig undir síðasta bardagann í Maríupól Breska varnamálaráðuneytið varar við því að Rússar muni mögulega nota fosfór-vopn í Maríupól, líkt og þeir hafa áður gert í Donetsk. Þeir segja notkun Rússa á ónákvæmum sprengjum stórauka hættuna á dauða almennra borgara. 11.4.2022 15:30
Rýnt í stöðuna: Vopnakapphlaup í austri Rússar vinna enn hörðum höndum að því að koma liðsauka til hersveita í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra er að ná fullum tökum á og halda Donbas-héraði en miklar efasemdir eru uppi um það hvort Rússar geti það yfir höfuð. 11.4.2022 15:01
Sakfelldur vegna morðsins á þingmanninum Sir David Amess Dómstóll í Bretlandi hefur fundið íslamska ofstækismanninn Ali Harbi Ali sekan af ákæru um morðið á þingmanninum Sir David Amess í október 2021. 11.4.2022 14:57
Bróðir fyrrverandi forsætisráðherra nýr forsætisráðherra Pakistanska þingið skipaði í dag Shehbaz Sharif sem nýjan forsætisráðherra landsins. Hann tekur við embættinu af Imran Kahn sem var bolað úr embættinu þegar þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum um helgina. 11.4.2022 13:28
„Þreytt og þreklaus“ eftir Covid Elísabet Bretadrottning segist þreytt og þreklaus eftir að hún smitaðist af Covid-19 í febrúar. Drottningin, sem verður 96 ára gömul í þessum mánuði, sýndi væg einkenni og hafði þeim verið líkt við flensu. 11.4.2022 10:08
Boðar til kosninga í maí Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 21. maí næstkomandi. Ríkisstjórnarflokkarnir eru nú samtals með 76 þingmenn sem er lágmarksfjöldi þingmanna til að verja ríkisstjórn falli. 11.4.2022 08:46
Frakkar kjósa milli Macrons og Le Pen Emmanuel Macron, sitjandi forseti, vann fyrri umferð forsetakosninganna í Frakklandi. Marine Le Pen er í öðru sæti en þau komust bæði áfram í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna árið 2017. Kosið verður milli þeirra tveggja þann 24. apríl næstkomandi. 10.4.2022 23:20
Vaktin: „Sannleikurinn mun sigra“ Ríkissaksóknari Úkraínu segir að rúmlega tólf hundruð lík hafi fundist í nágrenni við Kænugarð eftir að Rússar drógu herlið sitt til baka. Þá eru Rússar grunaðir um að hafa framið rúmlega 5.600 stríðsglæpi í Úkraínu frá því að innrásin hófst. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í dag og í kvöld. 10.4.2022 22:34
Fyrrum ráðgjafi Pútíns segir að „alvöru viðskiptabann“ myndi binda enda á stríðið „Raunverulegt innflutningsbann“ á orku frá Rússlandi gæti orðið til þess fallið að binda enda á stríðið í Úkraínu, að mati fyrrverandi efnahagsráðgjafa Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. 10.4.2022 16:32
Hreinsuðu 190 tonn af rusli upp úr sjónum Spænskir sjómenn hreinsuðu 190 tonn af rusli upp úr sjónum í veiðiferðum sínum á síðasta ári. Spænsk ferðaþjónusta virðist ætla að rétta mjög hratt úr kútnum eftir Covid19-farsóttina. 10.4.2022 14:00
Frakkar færast nær því að velja sér forseta Fyrri umferð frönsku forsetakosninganna fer fram í dag. Búist er við því að Emmanuel Macron, sitjandi forseti, og Marine Le Pen, verði efstu tveir frambjóðendurnir og mætist því í seinni umferð kosninganna, líkt og þau gerðu árið 2017. 10.4.2022 11:43
Forsætisráðherra Pakistan steypt af stóli Imran Khan, fyrrum krikketstjarna og forsætisráðherra Pakistan, hefur verið steypt af stóli eftir að vantrauststillaga, sem stjórnarandstaðan lagði fram í síðustu viku, var staðfest nú í Hæstarétti. 9.4.2022 20:17
Vaktin: Óbreyttir borgarar myrtir í Donetsk Frá því að innrás Rússa inn í Úkraínu hófst fyrir 44 dögum hefur rússneskum hersveitum orðið lítið ágengt. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins munu á næstu dögum beita sér fyrir því að Alþjóðaglæpadómstóllinn taki fyrir mögulega stríðsglæpi Rússa. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. 9.4.2022 19:25
Segir af sér eftir að upp komst um samband við mun yngri konu Varnarmálaráðherra Noregs, Odd Roger Enoksen, hefur sagt af sér ráðherraembætti eftir að í ljós kom að hann átti í sambandi við sér mun yngri konu frá árinu 2005. Enoksen var þá fimmtugur en konan aðeins átján ára. 9.4.2022 15:41
Matvælaframleiðendur plata neytendur þegar verðbólga eykst Verðbólgudraugurinn er kominn á stjá á meginlandi Evrópu. Verðbólgan á Spáni mældist 9,8% í síðasta mánuði og hefur ekki verið meiri í tæp 37 ár. Mörg fyrirtæki grípa í æ meira mæli til þess að minnka pakkningar og magn í stað þess að hækka vöruverð. 9.4.2022 14:28
Segir árásina á lestarstöðina enn eitt dæmið um stríðsglæpi Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás rússneskra hersveita á lestarstöð í Kramatorsk vera enn eitt dæmið um þá stríðsglæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu og kallar hann eftir réttarhöldum. Rússar neita sök en utanríkisráðherra Úkraínu segir að um slátrun hafi verið að ræða og varnamálaráðuneyti Bretlands telur ljóst að rússneskar hersveitir hafi ráðist vísvitandi á almenna borgara. 9.4.2022 08:15
Kallar forsætisráðherra Póllands „öfga-hægri gyðingahatara“ Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, sé „öfga-hægri gyðingahatari sem bannar hinsegin fólk.“ Þessar ásakanir setti forsetinn fram eftir að Morawiecki gagnrýndi ítrekuð samtöl Macrons við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. 8.4.2022 23:30
Ursula segir hryllingin í Bucha skekja allt mannkynið Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heimsótti Bucha í dag og segir grimmd Rússa þar skekja allt mannkynið. Hún afhenti Úkraínuforseta spurningalista í dag sem er fyrsta formlega skrefið í aðildarumsókn landsins að Evrópusambandinu. Talið er að fimmtíu óbreyttir borgarar hafi fallið og yfir þrú hundruð særst í eldflaugaárás Rússa á lestarstöð í borginni Kramatorsk í suðausturhluta Úkraínu í morgun. 8.4.2022 19:43
Bein útsending: Ferðamönnum skotið til geimstöðvarinnar Fyrsta mannaða geimferð Axiom Space verður farin í dag. Þremur ferðamönnum og einum geimfara verður skotið til geimstöðvarinnar með eldflaug og í geimfari SpaceX. 8.4.2022 14:01
Finnar sparka líka rússneskum embættismönnum úr landi Stjórnvöld í Finnlandi hafa ákveðið að sparka tveimur rússneskum embættismönnum úr landi vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Ísland er þar með eina ríkið á Norðurlöndum sem ekki hefur vísað rússneskum embættismönnum úr landi. 8.4.2022 13:36
39 látnir í Kramatorsk en Rússar segjast alsaklausir Að minnsta kosti 39 eru látnir og um 90 slasaðir eftir að árás var gerð á lestarstöðina í Kramatorsk, þar sem talið er að um 4.000 manns almennir borgara hafi beðið eftir að komast burtu frá Donbas. 8.4.2022 12:46
Formannsskipti hjá Frjálslynda flokknum í Svíþjóð Nyamko Sabuni, formaður Frjálslynda flokksins í Svíþjóð, hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að láta af embætti formanns. Þingkosningar fara fram í Svíþjóð næsta haust og hafa skoðanakannanir síðustu misserin allar bent til að mikil hætta sé á að flokkurinn muni detta út af þingi. 8.4.2022 12:03
Vaktin: Evrópusambandið bætir í refsiaðgerðir Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa nú gera árásir á Odesa frá Svartahafi. Innviðir hafi orðið fyrir skemmdum. Breska varnarmálaráðuneytið segir að svo virðist sem Rússar hafi nú alfarið yfirgefið norðurhluta landsins. 8.4.2022 06:49
Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. 7.4.2022 23:40
Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi. 7.4.2022 22:50
Hóf skothríð á gesti skemmtistaðar í Tel Aviv Minnst tveir eru látnir og tíu særðir eftir að byssumaður hóf skothríð á veitingastað í Tel Aviv í kvöld. Talið er að um hryðjuverkaárás sé að ræða en árásarmaðurinn er talinn hafa komist undan. 7.4.2022 22:14