Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrrverandi Spánarkonungur snýr heim úr útlegð Jóhann Karl, fyrrverandi konungur Spánar, sneri heim úr 2ja ára útlegð um helgina. Þjóð og þing eru klofin í garð konungs, þingmenn vinstri flokkanna kalla hann samviskulausan þjóf, en hægri flokkarnir fagna heimkomu hans. 21.5.2022 14:31
Eiginkona hins dauðadæmda var fræg söngkona Eiginkona danska mannsins sem hlaut dauðadóm í Nígeríu í gær var þekkt söngkona þar í landi. Málið hefur vakið mikla athygli í Nígeríu. 21.5.2022 13:09
Albanese næsti forsætisráðherra Ástralíu Í dag var fóru fram þingkosningar í Ástralíu þar sem kosið var til setu á neðri deild ástralska þingsins. Verkamannaflokkurinn, leiddur af Anthony Albanese, sigraði kosningarnar. 21.5.2022 12:15
Musk hafnar ásökunum og vill koma á fót málsóknarteymi Ríkasti maður heims, Elon Musk, hafnar þeim ásökunum sem á hann eru bornar um kynferðislega áreitni. Greint var frá því á dögunum að flugfreyja sem starfaði fyrir fyrirtæki hans sakaði hann um að hafa berað sig við konuna, káfað á henni og boðið henni greiðslu fyrir kynlíf. 21.5.2022 11:07
Vaktin: Grafa upp lík rússneskra hermanna Síðustu úkraínsku hermennirnir yfirgáfu Azovstal-stálverið í gær og hafa Rússar lýst yfir sigri í borginni Maríupól. 21.5.2022 07:16
Danskur ríkisborgari dæmdur til dauða í Nígeríu Danskur karlmaður var í dag dæmdur til dauða í Nígeríu fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og barn þeirra. Sjö ár eru síðan dauðadómi var framfylgt í landinu. 20.5.2022 23:33
Skorar á heimildarmanninn að lýsa óþekktum örum eða húðflúrum á líkama Musk Auðjöfurinn Elon Musk þvertekur fyrir að hafa berað sig fyrir framan flugfreyju, líkt og haldið var fram í frétt Business Insider í gær Hann skorar á heimildarmann fjölmiðilsins að stíga fram og lýsa örum eða húðflúrum á líkama Musk sem almenningur veit ekki af. 20.5.2022 13:46
Að minnsta kosti þrír særðir eftir stunguárás vestur af Osló Að minnsta kosti þrír eru særðir, þar af einn alvarlega eftir stunguárás í Numedal, um áttatíu kílómetra vestur af norsku höfuðborginni Osló, í morgun. 20.5.2022 08:02
Vaktin: Rússar hafa náð yfirráðum í Azovstal Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur bæst í hóp þeirra sem hafa sakað Rússa um að „vopnavæða“ matvælaöryggi í heiminum en Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands, segir Rússa ekki munu greiða fyrir útflutningi frá Úkraínu nema gegn afléttingu refsiaðgerða. „Þannig virka hlutirnir ekki, við erum ekki fávitar,“ sagði hann í gær. 20.5.2022 06:32
Musk sagður hafa berað sig við flugfreyju Geimferðafyrirtækið SpaceX greiddi flugfreyju kvartmilljón dollara eftir að hún sakaði Elon Musk, eiganda fyrirtækisins, um að hafa berað sig fyrir framan hana og falast eftir kynlífi með henni. Atvikið er sagt hafa átt sér stað árið 2016. 19.5.2022 23:11
Bein útsending: Gera aðra tilraun til að skjóta nýju geimfari til geimstöðvarinnar Bandarískir geimvísindamenn ætla að skjóta Starliner, nýju geimfari Boeing, til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í kvöld. Síðast var reynt að skjóta geimfarinu til geimstöðvarinnar árið 2019 en það misheppnaðist og hafa miklar tafir orðið á annarri tilraun. 19.5.2022 21:00
Samþykkti ákærur gegn Buffalo-morðingjanum Ákærudómstóll í New York-ríki samþykkti ákærur á hendur átján ára gömlum hvítum karlmanni sem myrti tíu blökkumenn og særði þrjá í verslun í Buffalo um helgina. Hann er ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. 19.5.2022 19:31
Banna þungunarrof eftir frjóvgun Repúblikanar á ríkisþingi Oklahoma í Bandaríkjunum samþykktu frumvarp að ströngustu þungunarrofslögum í landinu í dag. Verði frumvarpið að lögum verður þungunarrof bannað eftir frjóvgun eggs nema í algerum undantekningartilfellum. 19.5.2022 18:47
Tónlistargoðsögnin Vangelis látin Gríska tónskáldið og tónlistarmaðurinn Vangelis er látinn, 79 ára að aldri. Vangelis hlaut Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína við kvikmyndina „Eldvagnana“ (e. Chariots of Fire) en hljóðheimur hans setti einnig sterkan svip á vísindaskáldsöguna Blade Runner. 19.5.2022 18:20
Smyglaði myndefni til AP í túrtappa og hvarf skömmu síðar Úkraínskur bráðatæknir í sjálfboðastarfi í fangaði störf sín í Maríupól á mynd og kom efninu til blaðamanna AP fréttaveitunnar á minniskorti sem hún faldi í túrtappa. Degi síðar var hún handsömuð af Rússum og ranglega sökuð um að tilheyra Azov-herdeildinni. 19.5.2022 14:23
Lýgur því að Rússar hafi aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna María Zakharova, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, hélt því fram í morgun að Rússar hefðu aldrei hótað notkun kjarnorkuvopna í tengslum við innrásina í Úkraínu. Hún skammaðist út í ráðamenn í Bandaríkjunum fyrir að halda því fram og sakaði þá um ábyrgðarleysi. 19.5.2022 11:11
Rússar sagðir hafa áhyggjur af framferði hermanna sinna í Maríupól Rússneskir embættismenn eru sagðir hafa áhyggjur af því að hersveitir Rússa í Maríupól hafi og séu að fara verulega illa með íbúa borgarinnar. Það muni gera Rússum erfiðara að kveða niður mótspyrnu í borginni og koma niður á áróðri þeirra um að Rússar hafi frelsað borgin. 19.5.2022 10:02
Apabóla skýtur upp kollinum í Evrópu og Bandaríkjunum Sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hefur skotið upp kollinum í nokkrum Evrópulöndum og nú síðast í gær í Massachussetts í Bandaríkjunum. 19.5.2022 07:40
Vaktin: „Rússar mega ekki vinna þetta stríð“ Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur varað við því að fæðuskortur vegna átakanna í Úkraínu gæti varað í mörg ár og valdið hungursneyð víða um heim. 19.5.2022 06:47
Jarðskjálftamælir á Mars verður rykinu að bráð Útlit er fyrir að bandaríska geimfarið Insight á Mars syngi sitt síðasta í sumar þegar rafhlöður þess tæmast. Farið missir nú orku vegna ryks sem safnast hefur fyrir á sólarsellum þess. 18.5.2022 23:36
Shkreli látinn laus úr fangelsi Bandarísk yfirvöld slepptu Martin Shkreli, fyrrverandi forstjóra lyfjafyrirtækis, úr fangelsi eftir að hann hafði afplánað hluta sjö ára fangelsisdóms sem hann hlaut árið 2017. Shkreli hefur meðal annars verið nefndur „hataðasti maður internetsins“ vegna gríðarlegrar verðhækkunar á alnæmislyfi. 18.5.2022 22:14
Skammaði sína æðstu embættismenn fyrir „vanþroska“ Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skammaði sína æðstu embættismenn fyrir þroskaleysi og fyrir að bregðast í viðbrögðum við faraldri Covid-19 þar í landi. Þetta segja ríkismiðlar Norður-Kóreu að Kim hafi gert á fundi stjórnmálanefndar Verkamannaflokks Norður-Kóreu (Politburo) á dögunum. 18.5.2022 12:17
Erdogan vill fá „hryðjuverkamenn“ afhenta gegn samþykki fyrir aðild Reuters greinir nú frá því að Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hafi gefið út hvað hann vill fá gegn því að samþykkja aðild Finna og Svía að Atlantshafsbandalaginu. 18.5.2022 11:37
Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot. 18.5.2022 10:48
„Rísandi stjarna“ Repúblikana tapaði í forvali Þingmaðurinn Madison Cawthorn tapaði í forvali Repúblikanaflokksins í gær og mun því ekki sitja á þingi annað kjörtímabil. Chuck Edwards, sem situr í öldungadeild ríkisþings Norður-Karólínu bar sigur úr bítum en Cawthorn hefur verið plagaður af hverju hneykslinu á fætur öðru í aðdraganda forvalsins og hafði reitt félaga sína í Repúblikanaflokknum til reiði með ummælum sínum og hegðun. 18.5.2022 10:05
Svíar og Finnar hafa formlega sótt um aðild Svíar og Finnar hafa formlega skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu. 18.5.2022 07:48
Stórfellt svindl með ávexti og grænmeti Fleiri tonnum af ávöxtum og grænmeti er smyglað ár hvert til Spánar frá ríkjum Norður-Afríku og þau síðan seld sem spænskar afurðir. Ríkisstjórnin ætlar að skera upp herör gegn þessu umfangsmikla svindli. 18.5.2022 07:00
Vaktin: Borubrattir Rússar segja fall Maríupól marka þáttaskil Svíar og Finnar hafa skilað inn umsóknum sínum um aðild að Atlantshafsbandalaginu.„Finnland og Svíþjóð hafa komist að samkomulagi að fara í ferlið hönd í hönd og á morgun skilum við umsóknunum inn saman,“ sagði Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á fundi með forseta Finnlands í gær. 18.5.2022 06:43
Rekja eitt af hverjum sex dauðsföllum í heiminum til mengunar Léleg loftgæði, mengað vatn og eituefnamengun drepur fleiri jarðarbúa árlega en stríð, hryðjuverk, bílslys, malaría, fíkniefni og áfengi. Í nýrri rannsókn eru eitt af hverjum sex dauðsföllum í heiminum rakin til mengunar. 18.5.2022 06:00
Lögmenn Depps saumuðu að Heard í vitnastúkunni Réttarhöld í meiðyrðamáli bandaríska leikarans Johnny Depp á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Amber Heard, héldu áfram í dag. Þar var Heard borin þungum sökum af lögmannateymi Depps, meðal annars um að hafa barið hann og breytt ljósmyndum til að sýna fram á ofbeldi hans gegn henni. 17.5.2022 23:33
Biden lýsir hvítri þjóðernishyggju sem eitri Hvít þjóðernishyggja er eitur í bandarískum stjórnmálum. Þetta sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann heimsótti borgina Buffalo þar sem ungur hvítur maður skaut tíu blökkumenn til bana um helgina. 17.5.2022 22:09
Handtóku þingmann sem er grunaður um nauðgun Breskan lögreglan handtók þingmann Íhaldsflokksins sem er grunaður um nauðgun og kynferðisofbeldi á fyrsta áratug þessarar aldar. Þingmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur. 17.5.2022 20:42
Óttast ný afbrigði í Norður-Kóreu Faraldur kórónuveirunnar á meðal óbólusetts fólks eins og nú geisar í Norður-Kóreu eykur hættuna á að ný afbrigði verði til, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Stjórnvöld í Norður-Kóreu viðurkenndu í fyrsta skipti að veiran hefði stungið sér niður í landinu á dögunum. 17.5.2022 19:10
Yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með NATO-aðild Yfirgnæfandi meirihluti á finnska þinginu greiddi í hádeginu atkvæði með tillögu um að landið sæki um aðild að NATO. 17.5.2022 13:12
Bein útsending: Leyniþjónustumálanefnd fundar um fljúgandi furðuhluti Undirnefnd Leyniþjónustumálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings heldur í dag fund um fljúgandi furðuhluti. Háttsettir embættismenn í leyniþjónustum og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna muni sitja fyrir svörum en hluti fundarins verður í beinni útsendingu. 17.5.2022 12:01
Tveimur árum eftir að geimskotið misheppnaðist á að reyna aftur Geimvísindamenn NASA og Boeing stefna á að skjóta Starliner-geimfari til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á fimmtudaginn. Þróun geimfarsins hefur tafist nokkuð en síðasta geimskot Starliner, árið 2019, misheppnaðist. 17.5.2022 10:43
Vaktin: Senda sitt stærsta teymi til að rannsaka stríðsglæpi í Úkraínu Búið er að flytja 260 úkraínska hermenn frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól, þar af marga alvarlega særða. Ekki er ljóst hversu margir eru eftir en áætla má að þeir séu um 350. Rússar virðast nú hafa náð Maríupól alfarið á sitt vald. 17.5.2022 06:53
Baráttunni um Maríupól er lokið: Hermönnum bjargað frá Azovstal Fleiri en 260 úkraínskir hermenn, margir þeirra slasaðir, hafa verið fluttir á brott frá Azovstal-stálverksmiðjunni í Maríupól eftir margra vikna harða bardaga. Óvíst er hversu margir eru enn í verksmiðjunni. 17.5.2022 06:28
Byssumaðurinn sagður knúinn áfram af hatri á Taívönum Tæplega sjötugur karlmaður sem skaut einn til bana og særði fimm til viðbótar í kirkju í sunnaverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær er kínverskur innflytjandi og var knúinn áfram af hatri á Taívönum. Árásina gerði hann í taívanskri öldungakirkju en kínversk stjórnvöld gera tilkall til Taívans. 16.5.2022 23:22
Heil beinagrind risaeðlu seld á uppboði Beinagrind klóeðlu var seld á uppboði í Christie‘s uppboðshúsinu í vikunni. Beinagrindin seldist á 12 milljónir dollara, rúmlega 1,6 milljarði íslenskra króna. 16.5.2022 09:50
Hafði áður hótað því að myrða og fremja sjálfsvíg „Þessi einstaklingur kom hingað í þeim eina tilgangi að taka eins mörg svört líf og hann gæti,“ sagði Byron Brown, borgarstjóri Buffalo, í gær eftir að 18 ára hvítur maður skaut tíu manns til bana og særði þrjá í árás í versluninni Tops í austurhluta borgarinnar. 16.5.2022 07:43
Vaktin: Svíar freista þess að ná sátt við Tyrki til að greiða fyrir aðild að Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu ekki hafa gengið eins og áætlað var og að Úkraínumenn gætu unnið stríðið. 16.5.2022 06:17
Einn látinn og fimm særðir eftir skotárás í kirkju Einn lést og fjórir særðust lífshættulega eftir skotárás í kirkju í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Einn hlaut minni háttar áverka. Síðast í gær létust tíu manns í annarri skotárás þar í landi. 15.5.2022 22:58
Vaktin: Bjóða upp verðlaunagripinn til styrktar Úkraínu Úkraínumenn eru sigurreifir eftir að framlag landsins í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fór með sigur af hólmi í gærkvöldi. Volodýmýr Zelenskí, forseti Úkraínu, heitir því að keppnin verði haldin í Maríupol, sem Rússar hafa nú á sínu valdi, einn daginn. 15.5.2022 19:00
Keyrði í þrjá tíma til að myrða svart fólk Payton S. Gendron, sem er átján ára gamall, keyrði í rúma þrjá tíma í gær til Buffalo í New York. Þegar hann var kominn á leiðarenda, um 320 kílómetrum frá heimili sínu, skaut hann tíu manns til bana og særði þrjá. Lögreglan segir árásina vera hatursglæp en Gendron fór sérstaklega til Buffalo til að myrða svart fólk. 15.5.2022 14:46