Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dramatískur sigur hjá Glódísi Perlu á meðan lítið gekk upp hjá strákunum Fjöldi Íslendinga var í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildunum í knattspyrnu í dag. Rosengård vann dramatískan sigur á Linköping en karla megin var enginn Íslendingur í sigurliði. 18.4.2021 17:26
Loksins tókst Man Utd að leggja Burnley að velli á Old Trafford Manchester United vann loksins sigur gegn Burnley á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni, lokatölur 3-1 á Old Trafford í dag. Jóhann Berg Guðmundsson lék 88 mínútur í liði Burnley í dag. 18.4.2021 16:55
Atlético Madrid styrkti stöðu sína á toppnum með stórsigri Atlético Madrid jók forskot sitt á toppi La Liga í fjögur stig með 5-0 sigri gegn Eibar í dag. Yannick Carrasco skoraði eitt og Angel Correa og Marcos Llorente tvö hvor. 18.4.2021 16:20
Verður meinaður aðgangur að deildarkeppnum ef þau taka þátt í ofurdeild Evrópu Knattspyrnusamband Evrópu sem og knattspyrnusambönd Englands, Ítalíu og Spánar standa saman gegn stofnun ofurdeildar Evrópu. Þau lið sem ætli sér að taka þátt í slíkri deild fá ekki keppnisleyfi í heimalöndum sínum. 18.4.2021 15:45
Atalanta lyfti sér upp fyrir Juventus Liðsmenn Atalanta eru komnir upp í þriðja sæti Serie A eftir 1-0 sigur gegn Juventus í dag. Nú er nánast ómögulegt fyrir Juventus að verja ítalska deildarmeistaratitilinn, en þeir eru 12 stigum á eftir toppliði Inter. 18.4.2021 15:15
Hóta enn á ný að stofna ofurdeild sem kæmi í stað Meistaradeildar Evrópu Aðeins degi áður en knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlaði að tilkynna breytingar á Meistaradeild Evrópu bárust fregnir þess efnis að mörg stærstu lið álfunnar vilji stofna sína eigin deild. 18.4.2021 15:06
Sjáðu markið: Sveindís Jane skoraði í sínum fyrsta leik Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði sinn fyrsta leik með Kristianstad í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar gegn Eskilstuna í dag. Það tók Sveindísi ekki nema 11 mínútur að stimpla sig inn. Lokatölur 1-1, en Eskilstuna jafnaði rétt fyrir hálfleik. 18.4.2021 15:00
Arsenal bjargaði stigi á seinustu stundu Eddie Nketiah bjargaði stigi fyrir Arsenal á sjöundu mínútu uppbótartíma þegar hann jafnaði metin gegn Fulham. Josh Maja hafði komið Fulham yfir af vítapunktinum fyrr í leiknum, en 1-1 jafntefli gerir lítið fyrir Fulham í fallbaráttunni. 18.4.2021 14:39
Evrópumeistarar Lyon úr leik í Meistaradeildinni Lyon, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Paris Saint-Germain í dag. Lyon vann fyrri leikinn 1-0, en PSG fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. 18.4.2021 13:53
Guðný og Lára Kristín steinlágu gegn AC Milan Guðný Árnadóttir og Lára Kristín Pedersen voru báðar í liði Napoli sem heimsótti AC Milan í ítalska boltanum í dag. Guðný var í byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn, en Lára Kristín kom inn á sem varamaður í hálfleik. AC Milan kláraði leikinn strax í fyrri hálfleik, en lokatölur urðu 4-0. 18.4.2021 12:26
Toppbaráttan á Ítalíu lifir eftir sigur AC Milan AC Milan héldu lífi í toppbaráttunni á Ítalíu með 2-1 sigri gegn Genoa á heimavelli í Serie A í dag. Sigurinn þýðir að Milan minnkar muninn á nágranna sína í Inter niður í átta stig, en Inter spilar gegn Napoli í kvöld. 18.4.2021 12:23
Tap hjá Guðmundi og New York í fyrsta leik MLS deildin í Bandaríkjunum er farin af stað og Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði New York City FC sem heimsótti DC United í nótt. Guðmundur og félagar þurftu að sætta sig við 2-1 tap í fyrsta leik tímabilsins. 18.4.2021 10:01
Chelsea vinnur bikarinn ef marka má söguna Ef marka má þær leiktíðir sem Manchester City hefur verið slegið út úr undanúrslitum enska FA-bikarsins í knattspyrnu til þessa undir Pep Guardiola er ljóst að Chelsea verður bikarmeistari þann 15. maí næstkomandi. 18.4.2021 09:01
Segir meiðsli De Bruyne ekki líta vel út Kevin De Bruyne fór meiddur af velli í 1-0 tapi Manchester City gegn Chelsea í gærkvöld er liðin mættust í undanúrslitum FA-bikarsins. Pep Guardiola segir meiðslin ekki líta vel út. 18.4.2021 08:01
Erfitt að skora gegn liði með átta leikmenn á aftasta þriðjung Pep Guardiola taldi sína menn í Manchester City spila ágætlega í kvöld er liðið tapaði 1-0 gegn Chelsea í undanúrslitum FA-bikarsins í kvöld. 17.4.2021 22:15
Barcelona bikarmeistari eftir stórsigur á Bilbao Barcelona er sigurvegari spænska konungsbikarsins í knattspyrnu eftir 4-0 sigur á Athletic Bilbao í kvöld. 17.4.2021 21:36
Wolves felldi Sheffield United Fall Sheffield United úr ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur blasað við lengi en var endanlega staðfest í kvöld er liðið tapaði 1-0 fyrir Wolves. 17.4.2021 21:21
Við vildum vera hugrakkir Thomas Tuchel hrósað liði sínu í hástert að loknum 1-0 sigri á Manchester City í undanúrslitum FA-bikarsins í kvöld. 17.4.2021 20:06
Flick staðfestir að hann hætti með Bayern í sumar Hans-Dieter Flick, þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern staðfesti eftir 3-2 sigur liðsins í dag að hann myndi hætta með liðið í sumar. 17.4.2021 19:16
Bayern henti frá sér tveggja marka forystu og tapaði sínum fyrsta leik Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Bayern Munchen er liðið henti frá sér 2-0 forystu og tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í dag. 17.4.2021 19:00
Ziyech hetjan er Chelsea tryggði sér sæti í úrslitum bikarsins Chelsea vann 1-0 sigur á Manchester City í undanúrslitum FA-bikarsins í knattspyrnu þökk sé marki Hakim Ziyech í síðari hálfleik. Draumur Manchester City um að vinna fernuna er þar með úr sögunni. 17.4.2021 18:30
Birkir Bjarnason skoraði í tapi Brescia Birkir Bjarnason og félagar hans heimsóttu topplið Empoli í Serie B á Ítalíu í dag. Birkir minnkaði muninn fyrir gestina í 2-1, en þeir þurftu að sætta sig við 4-2 tap. 17.4.2021 14:01
Norwich komnir í úrvalsdeildina eftir að Brentford og Swansea mistókst að vinna Það er komið á hreint að Norwich mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili, en nú er aðeins eitt lið sem getur náð þeim á toppnum. 17.4.2021 13:38
Meistaradeildarsæti West Ham í hættu eftir tap gegn Newcastle Newcastle krækti sér í þrjú mikilvæg stig með 3-2 sigri gegn West ham. Leikmenn Newcastle nýttu sér slæm mistök West Ham manna í fyrri hálfleik, en tíu leikmenn West Ham náðu að jafna leikinn áður en joe Willock skoraði sigurmarkið eftir rúma mínútu á vellinum. 17.4.2021 13:30
Hallbera og Andrea Mist skiptu stigunum á milli sín í fyrsta leik tímabilsins Växjö tók á móti AIK þegar sænska úrvalsdeildin fór af stað í dag. Hallbera Gísladóttir spilaði allan leikinn fyrir AIK sem gerði 1-1 jafntefli gegn Andreu Mist Pálsdóttur og félögum hennar í Växjö. 17.4.2021 12:50
Óvíst hvort Kane geti spilað úrslitaleikinn Harry Kane er bæði markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili. Það fór því kaldur hrollur um stuðningsmenn Tottenham þegar þessi 27 ára framherji þurfti að fara af velli gegn Everton í gærkvöldi eftir að hafa meiðst á ökkla. 17.4.2021 11:30
Frumraun Sveindísar sem beðið er með mikilli eftirvæntingu í beinni Metfjöldi íslenskra leikmanna leika í sænsku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina. Stöð 2 Sport sýnir beint frá fyrsta leik Sveindísar Jane Jónsdóttur með Kristianstad á morgun. 17.4.2021 10:46
Mögnuð tölfræði Everton og Gylfa Þórs Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik í liði Everton sem tók á móti Tottenham í gær. Gylfi skoraði bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli, og Gylfi hefur nú tryggt 19 stig fyrir þá bláklæddu. 17.4.2021 10:03
Ætlar að brúa bilið gegn þjálfaranum sem heillaði hann svo mikið Þó að tuttugu stig skilji Manchester City og Chelsea að má búast við spennandi leik þegar liðin mætast í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley í dag. 17.4.2021 08:00
Spennandi Arnór gæti fært New England nær óvæntum titli MLS-deildin í knattspyrnu hófst í nótt með leik Houston Dynamo og San Jose en Íslendingar eiga nú tvo leikmenn í deildinni; þá Guðmund Þórarinsson og Arnór Ingva Traustason. 17.4.2021 07:00
„Skil ekki Manchester United“ Vladimir Coufal, hægri bakvörður West Ham, skilur ekkert í því að Manchester United hafi látið Jesse Lingard fara frá félaginu. 16.4.2021 23:00
Rodgers segir að brotamennirnir hafi beðist afsökunar Brendan Rodgers, stjóri Leicester, segir að þeir James Maddison, Ayoze Perez og Hamza Choudhury hafi beðist afsökunar á brotum sínum um síðustu helgi. 16.4.2021 22:01
Tvö mörk Gylfa dugðu ekki til sigurs gegn gömlu félögunum Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Everton er liðið gerði 2-2 jafntefli við á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði lið standa því í stað í baráttunni um Evrópusæti. 16.4.2021 20:54
Segir Moyes stjóra ársins sama hvað gerist Steve Bruce, stjóri Newcastle, segir að David Moyes, stjóri West Ham, sé stjóri ársins í enska boltanum, sama hvað gerist á lokasprettinum. 16.4.2021 19:46
Hefur sex sinnum sagt nei við Chelsea Samkvæmt The Athletic hefur Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hafnað Chelsea sex sinnum en þetta kemur fram á enska fjölmiðlinum í dag. 16.4.2021 19:00
Fengu skell í toppslagnum Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Esbjerg fengu skell í toppslagnum gegn Viborg í dönsku B-deildinni. 16.4.2021 18:18
Sannfærður um að Messi framlengi við Barcelona Joan Laporta, forseti Barcelona, er viss um að Lionel Messi verði áfram hjá félaginu og muni framlengja samning sinn við Katalóníurisann. 16.4.2021 17:31
Gaf mánaðarlaun sín til góðgerðamála Króatíski framherjinn Mario Mandzukic gat ekkert spilað með AC Milan í síðasta mánuði. Hann ákvað að þiggja ekki laun fyrir mars og gaf þau til góðgerðarmála. 16.4.2021 17:00
Fyrsta umferðin öll á gervigrasi Helmingur liðanna tólf í Pepsi Max-deild karla í fótbolta leikur heimaleiki sína á gervigrasi og eiga þau öll heimaleik í fyrstu umferð deildarinnar sem leikin verður um komandi mánaðamót. 16.4.2021 16:31
Talin einn besti leikmaðurinn í Svíþjóð þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik Þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik í sænsku úrvalsdeildinni er Sveindís Jane Jónsdóttir á lista Fotbollskanelan yfir bestu leikmenn deildarinnar. 16.4.2021 14:32
Byssumenn brutust inn til Smallings í nótt og ógnuðu fjölskyldu hans Þrír menn, vopnaðir byssum, brutust inn til Chris Smalling, leikmanns Roma, í nótt. Hann var heima líkt og eiginkona hans og tveggja ára sonur þeirra. 16.4.2021 12:30
Pogba segir Mourinho til syndanna: „Lætur leikmönnum líða eins og þeir séu ekki til“ Paul Pogba lætur José Mourinho heyra það í viðtali við Sky Sports og sakar hann um að hunsa leikmenn og láta þeim líða eins og þeir séu ekki til. 16.4.2021 12:02
Blikar unnið tíu leiki í röð í Lengjubikar karla en engan titil Annað árið í röð verður keppni ekki kláruð í Lengjubikarnum í fótbolta. Stjórn KSÍ samþykkti á fundi í gær að stöðva keppnina og að Meistarakeppni KSÍ færi ekki fram í ár. 16.4.2021 11:30
Pepsi Max-deild karla hefst eftir tvær vikur Pepsi Max-deild karla hefst með leik Íslandsmeistara Vals og ÍA föstudagskvöldið 30. apríl. 16.4.2021 10:31
Launakröfur Haaland gætu fælt Real Madrid og Barcelona frá Erling Braut Haaland er verður einn heitasti bitinn á markaðnum þegar leikmannaglugginn opnar í sumar. Launakröfur Norðmannsins eru þó sagðar það háar að meira að segja spænsku risarnir Real Madrid og Barcelona hafi ekki efni á því að fá hann í sínar raðir. 16.4.2021 07:02