Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tevez leggur skóna á hilluna vegna andláts föður síns Argentínumaðurinn Carlos Tevez leggur skóna á hilluna 38 ára gamall eftir að föður hans lést. Tevez lék á sínum tíma með bæði Manchester United og City. 4.6.2022 22:00
„Held það sé eini staðurinn sem maður getur svarað gagnrýni“ „Ég var alveg klár og undirbúinn í þetta. Þakklátur fyrir traustið sem ég fékk því það er ekki eins og ég hafi verið að koma úr mínu besta tímabili,“ sagði Arnór Sigurðsson aðspurður út í byrjunarliðssæti sitt í leik Íslands og Ísrael í Þjóðadeildinni. 4.6.2022 21:31
Þrír úr Bestu deildinni byrjuðu er Færeyingar steinlágu í Tyrklandi Færeyjar hófu Þjóðadeildina á 4-0 tapi í Tyrklandi. Í byrjunarliði Færeyinga voru þrír leikmenn sem spila í Bestu deild karla hér á landi. 4.6.2022 21:01
Allt jafnt hjá Ítalíu og Þýskalandi Ítalía og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í Þjóðadeildinni í kvöld. 4.6.2022 20:40
Fer aftur til Bologna eftir meiðslahrjáð tímabil í Kaupmannahöfn Miðjumaðurinn Andri Fannar Baldursson stefnir á að berjast fyrir sæti sínu hjá ítalska úrvalsdeildarinliðinu Bologna. 4.6.2022 20:01
HK áfram með fullt hús stiga á meðan Fylkir er án stiga Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag. HK vann 3-0 útisigur á Haukum á meðan Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. vann 2-1 heimasigur á Fylki. 4.6.2022 19:30
Fyrsta tap Englendinga gegn Ungverjum síðan 1962 Fara þarf aftur til ársins 1962 til að finna síðasta sigur Ungverjalands gegn Englandi. Liðin mættust í Þjóðadeildinni í fótbolta í dag og fóru Ungverjar með eins marks sigur af hólmi, lokatölur 1-0. 4.6.2022 18:00
Fylkir pakkaði Vestra saman Fylkir vann Vestra 5-0 í eina leik dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta. Benedikt Daríus Garðarsson skoraði þrennu fyrir heimamenn. 4.6.2022 16:30
Atli kallaður inn í A-landsliðið fyrir Willum Þór Atli Barkarson, leikmaður SönderjyskE í Danmörku, hefur verið kallaður upp í A-landsliðið eftir að Willum Þór Willumsson þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. 4.6.2022 16:01
Robin Olsen til Aston Villa Aston Villa hefur tryggt sér þjónustu sænska landsliðsmarkvarðarins Robin Olson en hann kemur til liðsins frá Roma. Hann var á láni hjá liðinu frá áramótum. 4.6.2022 14:15
Andlit Juventus á förum til Los Angeles Ítalski varnarmaðurinn Giorgio Chiellini er á förum frá Juventus eftir farsælan feril sem spannar ein átján ár og fjölmörg verðlaun. 4.6.2022 12:00
Sjáðu mörkin úr dramatísku jafntefli Vals og ÍBV Topplið Vals varð sér úti um stig í blálokin þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn í Bestu deildinni í fótbolta á fimmtudagskvöld. 4.6.2022 09:15
Samuel Eto‘o verður sóttur til saka Fyrrum knattspyrnumaðurinn Samuel Eto‘o er í vandræðum á Spáni. Eto'o mun í annað sinn verða sóttur til saka eftir að hafa neitað að greiða meðlagsgreiðslur. 4.6.2022 07:02
Selfoss á topp Lengjudeildarinnar Það voru fjórir leikir á dagskrá í 5. umferð Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld og mörk skoruð í öllum leikjum. 3.6.2022 22:00
Austurríki ekki í vandræðum með Króata | Belgar rassskelltir á heimavelli Austurríki leit vel út í fyrsta leik Ralf Rangnick, liðið vann Króata 0-3 á útivelli á meðan Louis Van Gaal sökkti Belgum á þeirra eigin heimavelli, 1-4. 3.6.2022 21:30
Danir sigruðu heimsmeistarana á heimavelli Andreas Cornelius er nýjasta þjóðhetja Danmerkur eftir að hann kom inn af varamannabekknum og skoraði tvö mörk gegn heimsmeisturum frá Frakklandi. Danir höfðu áður lent marki undir en með mörkum Cornelius vann Danmörk 1-2 sigur á Stade de France í París. 3.6.2022 21:00
„Kannski verður maður með næst“ Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, lætur umræðuna um A-landsliðsvalið ekki trufla sig. Einhverjir hafa kallað eftir því að fá Ísak beint inn í A-landsliðið eftir flotta frammistöðu með Breiðablik í sumar. 3.6.2022 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Ísland 9-0 Liechtenstein | Stórsigur hjá strákunum okkar U-21 landslið Íslands vann stórsigur í kvöld þegar að liðið fékk Liechtenstein í heimsókn í Víkina í kvöld. Ísland gerði hvorki né minna en 9 mörk í leiknum og hélt markinu sínu hreinu. Hremmingar Liechtenstein halda áfram, en þeir hafa nú fengið á sig 54 mörk og skorað 0 í riðlinum. Þetta var jafnframt næststærsta tap Liechtenstein í riðlinum til þessa. 3.6.2022 20:00
UEFA biður Liverpool og Real Madrid afsökunar Tæpri viku eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í París hefur knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, loks beðist afsökunar á þeirri óreiðu sem varð fyrir utan Stade de France leikvanginn. 3.6.2022 19:30
Foden sendur heim úr enska hópnum Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands hefur sent Phil Foden, leikmann Manchester City, heim í einangrun eftir að leikmaðurinn greindist með Covid-19. 3.6.2022 19:01
Guðrún Arnardóttir skoraði mark í uppgjöri toppliðanna í Svíþjóð Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengård sóttu afar öflugan 3-4 sigur á útivelli gegn Linköping í uppgjöri liðanna í 1. og 2. sæti í sænsku úrvalsdeildinni. 3.6.2022 18:00
Juventus, Real Madríd og PSG vilja öll Pogba Paul Pogba er sagður vera íhuga vel og vandlega hvert næsta skref hans verður á ferlinum. Samningur hans við Manchester United rann út á dögunum og hann nýtur nú lífsins í Bandaríkjunum. 3.6.2022 17:31
Meira en tvöfaldaðist í verðmæti á liðnu tímabili Vinícius Júnior átti stórkostlegt tímabil er Real Madríd varð Evrópu- og Spánarmeistari. Tvöfaldaðist þessi ungi Brasilíumaður í verðmæti á leiktíðinni. 3.6.2022 17:00
Stuðningsmenn muni bera kostnaðinn af dýrasta HM sögunnar Stuðningsmenn liða sem taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur sjá fram á gríðarlegan útlagðan kostnað. Samkvæmt úttekt breska miðilsins Telegraph getur kostað stuðningsmenn rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna að fara á mótið. 3.6.2022 16:31
Getur þakkað „bol“ úr lögreglunni fyrir líf sitt Emerson Royal, varnarmaður Tottenham Hotspur á Englandi, slapp ómeiddur eftir misheppnaða ránstilraun í Brasilíu í nótt. Vopnaðir menn reyndu að ræna Emerson en fótboltamaðurinn var heppinn að hafa lögreglumann sér við hlið. 3.6.2022 16:00
Segir síðustu tíu daga hafa verið þá erfiðustu á ferlinum Andrew Robertson átti frábært tímabil með Liverpool í vetur en síðustu tíu dagar hafa verið erfiðir. Fyrst tapaði Liverpool fyrir Real Madríd í úrslitum Meistaradeildar Evrópu og svo tapaði Skotland fyrir Úkraínu í umspili um sæti á HM í Katar. 3.6.2022 15:00
Real Madrid stendur með Liverpool og krefst svara frá UEFA Meistaradeildarmeistarar Real Madrid hafa farið fram á svör frá Evrópska knattspyrnusambandinu vegna „raða óheppilegra atburða“ þegar úrslit Meistaradeildarinnar milli liðsins og Liverpool fór fram í París síðasta laugardag. 3.6.2022 13:32
Segir að Sara Björk myndi henta leikstíl Chelsea, Man City eða Bayern Reikna má með að landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir verði eftirsótt í sumar en samningur hennar við Evrópumeistara Lyon er við það að renna út. Hún segir sjálf að deildirnar í Englandi, Spáni og Þýskalandi heilli mest. 3.6.2022 13:01
„Vonast til að geta fengið fyrsta leikinn fyrir Ísland“ Þorleifur Úlfarsson, leikmaður Houston Dynamo í MLS-deildinni í Bandaríkjunum er í leikmannahópi U-21 árs landsliðs Íslands sem spilar þrjá leiki á næstu dögum. Hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir Houston á dögunum og vonast til að fá að tækifærið til að sýna hvað hann getur með U-21. 3.6.2022 12:01
Þorsteinn framlengir um fjögur ár við KSÍ Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnusamband Íslands um fjögur ár. Hann skrifaði undir samning til ársins 2026, með möguleika á frekari framlengingu. 3.6.2022 11:25
Ronaldo trúir að Man Utd geti rétt úr kútnum Framtíð Cristiano Ronaldo hefur verið til umræðu að undanförnu. Talið var að leiðir hins 37 ára gamla Portúgala og Manchester United gætu skilið. Svo virðist ekki vera ef marka má ummæli hans í viðtali við vef Man United. 3.6.2022 10:30
Kári gagnrýndi varnarleik Harðar Björgvins og áræðni Alberts Kári Árnason, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, er nú meðal þeirra sem stýra skútunni í umfjöllun Viaplay. Hann lét tvo fyrrum samherja sína hjá landsliðinu heyra það eftir leik Íslands og Ísraels í Þjóðadeildinni. 3.6.2022 09:31
„Á þeim tíma vildum við meina að við værum undirbúnar en svo lærir maður ýmislegt eftir á“ Glódís Perla Viggósdóttir segir að ef til vill hafi leikmenn kvennalandsliðsins í fótbolta ekki alveg verið tilbúnir fyrir alla athyglina og pressuna á síðasta Evrópumóti. 3.6.2022 09:00
De Bruyne spenntur fyrir komu norska markahróksins Það virðist sem Kevin De Bruyne sé nokkuð sáttur með að Manchester City hafi loks fest kaup á alvöru framherja. 3.6.2022 08:31
„Í dag er hugur minn bara við þetta starf“ „Ég held það sé rosalega auðvelt að standa hérna og segja nei þegar manni hefur ekki verið boðið eitt né neitt,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks um orðróma þess efnis að hann væri að taka við danska úrvalsdeildarliðinu AGF. 3.6.2022 08:00
„Byrjum bara á einum leik í einu eins mikil klisja og það er“ Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Liechtenstein í kvöld. Þetta er fyrsti leikur liðsins af þrem á næstu átta dögum og Davíð Snorri Jónasson, þjálfari liðsins, segist vilja fara út úr þessum glugga með góða tilfinningu. 3.6.2022 07:00
Ribéry mun spila til fertugs Franck Ribéry, fyrrverandi landsliðsmaður Frakklands og leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern München, er enn í fulli fjöri þó hann nálgist fimmtugsaldurinn. Ribéry leikur í dag með Salernitana á Ítalíu og var að framlengja samning sinn við félagið. 2.6.2022 23:31
Salah myndi fórna verðlaunum tímabilsins til að fá að endurtaka úrslitaleikinn Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, segir að hann myndi fórna öllum þeim verðlaunum sem hann vann á nýliðnu tímabili til að fá að endurtaka úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Real Madrid. 2.6.2022 22:45
Tindastóll vann endurkomusigur í Víkinni | FH og Grindavík unnu stórt Þrír leikir voru á dagskrá í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. Tindastóll vann 1-2 sigur gegn Víkingum eftir að hafa lent undir snemma leiks, Grindavík vann 0-3 sigur gegn Fjölni og FH vann afar öruggan 0-5 sigur gegn Augnabliki. 2.6.2022 22:00
Arnar Þór: Verðum að virða stigið sem við fengum Arnar Þór Viðarsson sá glasið frekar hálffullt en tómt þegar hann ræddi við Viaplay eftir jafntefli Íslands og Ísraels í B-deild Þjóðadeildarinnar í Haifa í kvöld. 2.6.2022 21:35
Rúnar Alex: Finnst umræðan hafa verið ósanngjörn Rúnar Alex Rúnarsson varði tvisvar sinnum afar vel og stóð sig heilt yfir vel þegar Íslands gerði 2-2 jafntefli í leik sínum við Ísrael í B-deild Þjóðadeildarinnar í Haifa í kvöld. 2.6.2022 21:25
Hörður Björgvin: Tek jöfnunarmarkið alfarið á mig Hörður Björgvin Magnússon lagði upp seinna mark íslenska liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Ísrael í B-deild Þjóðardeildarinnar í fótbotla karla í Haifa í kvöld. Hörður Björgvin var bæði sáttur og svekktur í leikslok. 2.6.2022 21:17
Haaland tryggði Norðmönnum sigur | Svíar unnu gegn Slóvenum Erling Braut Haaland skoraði eina mark leiksins er Norðmenn unnu 0-1 útisigur gegn Serbum í fjórða riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Á sama tíma unnu Svíar 0-2 sigur gegn Slóvenum í sama riðli. 2.6.2022 20:45
Umfjöllun: Ísrael - Ísland 2-2 | Fín byrjun íslenska liðsins í Þjóðadeildinni Íslenska karlalandsliðið í fótbolta náði í eitt stig þegar liðið sótti Ísrael heim til Haifa í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. 2.6.2022 20:41
Spánn og Portúgal skiptu stigunum á milli sín í stórleiknum Varamaðurinn Ricardo Horta reyndist hetja Portúgala er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli gegn Spánverjum í stórleik kvöldsins í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta. 2.6.2022 20:38