Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikil vonbrigði hjá bæði Jóhanni Berg og Jóni Daða Jóhann Berg Guðmundsson var í fyrsta sinn í leikmannahópi Burnley, en kom þó ekki við sögu, er liðið gerði vonbrigða jafntefli í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Jón Daði Böðvarsson og félagar í Bolton þurftu að þola tap. 20.8.2022 16:15
Á förum frá Arsenal | Hvert mark kostaði 4,5 milljónir Nicolas Pépé er sagður á leið til Nice í Frakklandi á láni frá Arsenal. Óhætt er að segja að Fílabeinsstrendingurinn hafi ekki slegið í gegn í Lundúnum. 20.8.2022 14:31
250. mark Kane tryggði Tottenham sigur Harry Kane skoraði sitt 250. mark fyrir Tottenham er hann tryggði liðinu 1-0 sigur á Wolverhampton Wanderers í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham-vellinum í Lundúnum. Tottenham mætti áræðið til leiks eftir hlé í kjölfar slaks fyrri hálfleiks. 20.8.2022 13:25
„Hann býr heima hjá mér meðan kærastan er í burtu“ Portúgalinn João Cancelo, leikmaður Manchester City, segir þá Bernardo Silva vera tengda sterkum böndum. Silva er landi hans og liðsfélagi hjá Englandsmeisturunum. 20.8.2022 11:30
Antony skrópaði á æfingu | United undirbýr 100 milljóna tilboð Brasilíski kantmaðurinn Antony, sem leikur með Ajax í Hollandi, vill endurnýja kynnin við Erik ten Hag, þjálfara Manchester United. Hollenskir miðlar segja hann hafa skrópað á æfingu í gær eftir að félagið hafnaði 80 milljón evra boði frá United í kappann. 20.8.2022 10:30
Ferguson varði Giggs í réttarsal | Sagður hafa haldið við átta konur Sir Alex Ferguson, fyrrum þjálfari Manchester United, og lærifaðir Ryans Giggs, sagði frá góðu sambandi sem hann hefði átt við Giggs í gegnum tíðina fyrir rétti í Manchester-borg. Giggs er sakaður um líkamsárás gegn fyrrverandi kærustu sinni, Kate Greville. 20.8.2022 10:01
Klopp ætlaði að hringja inn í útvarpsþátt til að láta fyrrum leikmann heyra það Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool, segist hafa verið nálægt því að hringja inn í útvarpsþátt í vikunni eftir að hann heyrði ummæli Gabriel Agbonlahor um Manchester United. Agbonlahor fór þá ófögrum orðum um erkifjendur Liverpool í Manchester United. 19.8.2022 23:31
Tuchel dæmdur í bann en Conte sleppur með sekt Mikill hiti var í leik Chelsea og Tottenham í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar um seinustu helgi. Eftir að leikurinn var flautaður af lenti þjálfurum liðanna, þeim Thomas Tuchel og Antonio Conte, saman með þeim afleiðingum að báðir fengu að líta rauða spjaldið. 19.8.2022 20:31
United og Real Madrid komast að samkomulagi um Casemiro Manchester United hefur komist að samkomulagi við Real Madrid um kaupverðið á brasilíska miðjumanninum Casemiro. United mun greiða rétt tæplega 60 milljónir punda fyrir leikmanninn. 19.8.2022 18:30
Dagný í tíuna líkt og uppáhaldsleikmaður hennar þegar hún var yngri Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur spilað í treyju númer 32 síðan hún gekk í raðir enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United. Hún hefur ákveðið að breyta til og mun spila í tíunni í vetur en hennar uppáhaldsleikmaður er hún var yngri lék alltaf í treyju númer 10. 19.8.2022 16:31
Klopp: Auðveldari aðstæður fyrir mig en fyrir Ten Hag Jürgen Klopp mætir Erik ten Hag í fyrsta sinn í enska boltanum á mánudaginn þegar Liverpool heimsækir Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. 19.8.2022 13:30
Luis Suárez varar Darwin Nunez við: Þetta á eftir að verða verra Luis Suárez var frábær í búningi Liverpool en það gekk einnig mikið á hjá honum þann tíma sem hann spilaði á Anfield. Nú var landi hans Darwin Nunez fljótur að koma sér í vandræði. 19.8.2022 10:30
Ólíklegt að Man. Utd nái að klára Casemiro fyrir Liverpool leikinn Það virðist fátt ætla að koma í veg fyrr það að brasilíski miðjumaðurinn Casemiro taki tilboði enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United og að Real Madrid sé tilbúið að selja hann. 19.8.2022 08:46
Leicester neitar að selja sína bestu menn þrátt fyrir gylliboð Chelsea og Newcastle Tveir af betri leikmönnum enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City hafa verið orðaðir við Chelsea annars vegar og Newcastle United hins vegar. Leicester neitar hins vegar að selja þó félögin séu tilbúin að greiða morðfjár fyrir leikmennina. 19.8.2022 07:32
Mike Dean viðurkennir mistök í stórleik Chelsea og Tottenham Myndbandsdómarinn Mike Dean viðurkennir að hann hafi gert stór mistök í aðdraganda seinna jöfnunarmarks Tottenham gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi þegar Cristian Romero reif Marc Cucurella niður á hárinu. 19.8.2022 07:01
Real Madrid opnar á möguleikann að Casemiro fari til United Spænska stórveldið Real Madrid virðist vera opið fyrir því að leyfa brasilíska miðjumanninum Casemiro að fara til Manchester United ef félagið er tilbúið að greiða yfir 60 milljónir punda fyrir leikmanninn. 18.8.2022 23:31
Nottingham Forest gæti borgað 7,4 milljarða fyrir 22 ára leikmann Úlfanna Nýliðar Nottingham Forest hafa samþykkt að borga 44,5 milljónir punda fyrir Morgan Gibbs-White, miðjumaður Wolves. 18.8.2022 16:30
Arsenal fær sænska landsliðskonu frá Juventus Lina Hurtig verður ekki samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Juventus í vetur þar sem hún hefur ákveðið að söðla um og semja við Arsenal. 18.8.2022 15:30
Útskýrir áhuga landeiganda á Íslandi á því að eignast Manchester United Manchester United þarf á nýjum eigendum að halda. Því eru flestir sammála um nema kannski núverandi bandarískir eigendur. Nýjustu fréttir af hugsanlegum kaupanda ættu að gleðja stuðningsmenn félagsins en einn af aðalfréttamönnum Sky Sports útskýrði áhuga ríkasta manns Bretlandseyja að félaginu. 18.8.2022 09:31
Atlético neitaði rúmlega átján milljarða tilboði Man United í Félix Atlético Madríd afþakkaði pent tilboð Manchester United í Portúgalann João Félix. Tilboðið hljóðaði upp á 130 milljónir evra eða rúmlega 18 milljarða íslenskra króna. Atlético keypti leikmanninn af Benfica árið 2019 á 113 milljónir evra. 18.8.2022 08:01
West Ham kaupir þýskan landsliðsmann af PSG West Ham staðfesti í dag félagaskipti Thilo Kehrer frá franska félaginu PSG. Leikmaðurinn kemur til London fyrir rúmar 10 milljón punda. 17.8.2022 22:00
Ríkasti maður Bretlands vill kaupa Manchester United Sir Jim Ratcliffe hefur lýst yfir áhuga á því að kaupa Manchester United og losa félagið undir krísunni sem það er í undir Glazer fjölskyldunni. 17.8.2022 20:00
Stuðningsmenn Man Utd ætla að mótmæla fyrir leikinn gegn Liverpool Boðað hefur verið til mótmæla á meðal stuðningsmanna Manchester United fyrir stórleikinn næsta mánudag gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Mótmælin munu fara fram fyrir utan leikvang liðsins, Old Trafford. 17.8.2022 19:31
Glazer-fjölskyldan til í að selja hlut í Man. Utd Eigendur Manchester United, hin bandaríska Glazer-fjölskylda, hafa rætt um það að fá inn nýjan hluthafa en vilja þó ekki missa meirihlutastöðu sína. 17.8.2022 14:57
Man United íhugar að fá Pulisic á láni Forráðamenn Manchester United halda áfram að draga nöfn upp úr hatti og íhuga hvort félagið ætti að reyna sækja þann leikmann sem kemur upp hverju sinni. 17.8.2022 13:00
Liverpool hefur lent átta sinnum 0-1 undir í síðustu tíu leikjum Liverpool er þegar fjórum stigum á eftir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni og samt eru aðeins tvær umferðir búnar. 17.8.2022 12:01
Ronaldo segir sannleikann koma í ljós eftir tvær vikur: Fær að heyra það frá Neville Gary Neville, sparkspekingur á Sky Sports og fyrrum samherji Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er allt annað en sáttur með ummæli Ronaldo á Instagram. Þar sagði Portúgalinn að eftir tvær vikur kæmi í ljós að fjölmiðlar hefðu verið að ljúga. 17.8.2022 11:01
Musk grínaðist með að kaupa Manchester United Elon Musk, eigandi Tesla og SpaceX, sagði á Twitter-síðu sinni að hann væri við það að festa kaup á enska knattspyrnufélaginu Manchester United. Skömmu síðar dró hann grínið hins vegar til baka. 17.8.2022 07:30
United nær ekki að semja við Rabiot og íhugar nú miðjumann Real Madrid Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United virðist ekki ætla að ná að semja við franska miðjumanninn Adrien Rabiot og liðið skoðar nú aðra möguleika til að styrkja miðsvæðið. 17.8.2022 07:00
Núnez biðst afsökunar á skallanum: „Kemur ekki fyrir aftur“ Darwin Nunez, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, hefur beðist afsökunar á því að hafa skallað danska miðvörðinn Joachim Andersen í leik Liverpool og Crystal Palace í gær. 16.8.2022 23:30
Jón Daði lagði upp í sigri Bolton Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson lagði upp eina mark Bolton er liðið vann 1-0 sigur gegn Morecambe í ensku C-deildinni í knattspyrnu í kvöld. 16.8.2022 20:41
Nunes verður dýrasti leikmaður Úlfanna frá upphafi Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves hefur náð samkomulagi við portúgalska liðið Sporting CP um kaupverðið á miðjumanninum Matheus Nunes. 16.8.2022 19:15
Man. City sækir bakvörð sem var í unglingaliði Barcelona Manchester City hefur fest kaup á hinum Spánverjanum Sergio Gómez. Hann leikur iðulega í stöðu vinstri bakvarðar og lék síðast með Anderlecht í Belgíu. Gómez skrifar undir fjögurra ára samning við Englandsmeistarana. 16.8.2022 16:30
Birti ógeðsleg skilaboð frá íslenskum strák Danski miðvörðurinn Joachim Andersen fékk hundruð hatursfullra skilaboða frá stuðningsmönnum Liverpool eftir viðskipti sín við Darwin Núnez í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld. Hann birti nokkur skilaboð, þar á meðal ein frá íslenskum táningi. 16.8.2022 14:31
Giggs sakaður um að skalla systurina og hóta að skalla kærustu sína líka Réttarhöldin yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi yfir þriggja ára skeið. Í dag bar Emma Greville, systir Kate, vitni. 16.8.2022 13:30
Segja Ronaldo vera til sölu | Aubameyang gæti leyst hann af hólmi Breska ríkisútvarpið heldur því fram að Cristiano Ronaldo gæti yfirgefið Manchester United áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 1. september næstkomandi. Útvarpsstöðin TalkSport tekur í sama streng og segir leikmanninn vera til sölu. Þá greinir Sky Sports frá því að Man United gæti sótt Pierre-Emerick Aubameyang til að leysa hann af hólmi. 16.8.2022 11:00
Segir kaldhæðnislegt að leikmenn Man Utd vilji sjá félagið sækja fleiri leikmenn Manchester United hefur farið skelfilega af stað í ensku úrvalsdeildinni. Liðið hefur tapað báðum sínum leikjum til þessa, fengið á sig sex mörk og aðeins skorað eitt. Það er þó kaldhæðnislegt að leikmenn félagsins vilji sjá forráðamenn þess festa kaup á nýjum, og betri, leikmönnum. 16.8.2022 09:01
Neville segir að um augnabliks brjálæði hafi verið að ræða hjá Núñez Liverpool og Crystal Palace gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik annarrar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Darwin Núñez, framherji Liverpool, fékk rautt spjald í leiknum fyrir að skalla leikmann Palace. 16.8.2022 07:31
„Þetta er hræðileg byrjun hjá Liverpool“ Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur hjá Sky Sports í Bretlandi, fer ekki í grafgötur með það að félagið er í erfiðri stöðu í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City, sem hefur keppt við félagið um titilinn síðustu ár, er strax komið með fjögurra stiga forskot á þá rauðklæddu. 15.8.2022 23:16
Fyrstur frá Joe Cole til að sjá rautt í frumraun á Anfield Úrúgvæinn Darwin Núñez fékk að líta beint rautt spjald í frumraun sinni með Liverpool á Anfield í kvöld, þar sem liðið gerði 1-1 jafntefli við Crystal Palace. Hann er aðeins annar Liverpool-maðurinn í sögunni sem fær rautt í fyrsta leik á Anfield. 15.8.2022 21:31
Díaz bjargaði stigi eftir rautt spjald Núñez Liverpool og Crystal Palace skildu jöfn, 1-1, í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Liverpool spilaði síðasta hálftíma leiksins manni færri eftir að nýji maðurinn Darwin Núñez fékk beint rautt spjald. 15.8.2022 20:55
Rúnar Alex aftur að láni frá Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið lánaður frá enska knattspyrnufélaginu Arsenal, líkt og á síðustu leiktíð. Að þessu sinni fer hann til tyrkneska félagsins Alanyaspor. 15.8.2022 16:40
Sakaður um að nauðga konum í læstum neyðarrýmum Saksóknari lýsti því fyrir rétti í Englandi í dag hvernig knattspyrnumaðurinn Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City, hefði ásamt félaga sínum gert sér að leik að nauðga ungum konum í afgirtri glæsivillu sinni í Cheshire-sýslu. 15.8.2022 16:31
Segja Ronaldo sitja einan í kaffiteríunni og að hann sé ekki hrifinn af aðferðafræði Ten Hag Það er aldrei lognmolla í kringum Manchester United og þá sérstaklega ekki þegar liðinu gengur jafn illa og raun ber vitni. Nú hefur The Athletic heimildir fyrir því að Cristiano Ronaldo sitji einn og yfirgefinn í matsal félagsins og hagi sér reglulega eins og prímadonna sé eitthvað sem honum líkar ekki við á æfingum. 15.8.2022 16:00
Klopp: Voru of fljótir að gagnrýna Darwin Nunez Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hrósaði nýja framherja liðsins á blaðamannafundi fyrir leik á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 15.8.2022 15:01