Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Myndafjör: Golfmót FM957 Partý golfmót FM957 var haldið í sjöunda sinn á golfvelli GKG í garðarbæ síðastliðinn föstudag. Áttatíu og fjórir keppendur tóku þátt en upphaf mótsins má rekja aftur til ársins 2015 en keppnisfyrirkomulagið var þannig að tveggja manna lið spiluðu saman í svokölluðum Texas scramble stíl. 12.8.2022 17:30
Edda Hermanns og Ríkharður Daða héldu draumabrúðkaup á Ítalíu Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka, og Ríkharður Daðason, fjárfestir og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu héldu draumabrúðkaup á Ítalíu. Birgitta Haukdal, Ragnhildur Gísladóttir og Andri Guðmundsson sáu um að skemmta gestum í veislunni. 12.8.2022 16:06
Fyrsta stiklan úr íslensku dans- og söngvamyndinni Abbababb Íslenska dans- og söngvamyndin Abbababb hefur gefið út sína fyrstu stiklu en myndin er eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur sem leikstýrði henni einnig og er væntanleg í kvikmyndahús í september. Myndin er byggð á samnefndum söngleik Gunnars Lárusar Hjálmarssonar, betur þekktur sem Dr. Gunni. 12.8.2022 13:30
Myndaveisla: Fréttastofan kvaddi Eddu Fjölmiðladrottningin Edda Guðrún Andrésdóttir á fimmtíu ára feril að baki og hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í þrjátíu ár. Í gærkvöldi las hún fréttirnar í síðasta skipti og mætti fréttastofan að fagna þessum stóru tímamótum í hennar lífi með konfetti og kampavín við hönd. 12.8.2022 12:30
Samstarfslína Ganni og 66°Norður sýnd á tískuvikunni í Kaupmannahöfn Samstarf 66°Norður og GANNI ætlaði að gera allt vitlaust í tískuheiminum í gær þegar þau afhjúpuðu samstarfslínuna á tískvikunni í Kaupmannahöfn. Þetta er í þriðja skiptið sem merkin vinna að samstarfsverkefni og er línan hluti af SS23 sýningu GANNI. 12.8.2022 11:00
Idol leitar að stjörnu á Egilsstöðum í dag Framleiðendur Idolsins eru á leið sinni um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands. Næsta stopp eru Egilsstaðir þar sem prufur fara fram í dag klukkan 13:00 í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, Egilsstaðaskóla. 12.8.2022 10:01
Heche sögð liggja banaleguna Fjölskylda leikonunnar Anne Heche hefur tilkynnt að ekki sé búist við því að hún lifi eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi fyrir viku síðan. 12.8.2022 09:20
Myndaveisla: Brúðkaup Þórhildar Sunnu og Rafaels Orpel Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata giftist Rafael Orpel við fallega athöfn undir stjórn Arnars Snæberg hjá Siðmennt síðastliðinn laugardag. Sunna skartaði bleikum og gylltum brúðarkjól sem hún var í skýjunum með og tengist náið ævagamalli ást hennar á fatnaði og sögum frá 18. öldinni. Blaðamaður tók púlsinn á Sunnu og fékk að heyra nánar frá draumadeginum. 11.8.2022 17:01
Hvernig börnin fengu hlutverkin sín í Stranger Things Netflix þættirnir Stranger Things fóru í loftið árið 2016 en áður en þeir slógu í gegn voru aðalleikarar þáttanna börn sem voru valin úr fjölda umsækjenda í þetta stóra ævintýri. Carmen Cuba er konan á bak við leikaravalið og fer hún yfir ferlið við það að velja tilvonandi stjörnurnar í viðtali hjá Vanity Fair. 11.8.2022 16:02
Tvöfaldur heimsmeistari á landinu í leit að Hafþóri Tyson Fury, einn besti þungavigtarhnefaleikamaður samtímans og tvöfaldur heimsmeistari, er á Íslandi. Hann segist vera kominn hingað til að skora Hafþór Júlíus Björnsson á hólm. 11.8.2022 13:43
Hljómsveitin Wilco á leið til landsins Hljómsveitin Wilco er á leiðinni til landsins og mun koma fram á sínum fyrstu tónleikum hér á landi. Ekki er um staka tónleika að ræða heldur fara þeir fram þrjú kvöld í röð í Hörpu: Sjötta, sjöunda og áttunda apríl á næsta ári og eingöngu er hægt að kaupa passa fyrir alla þrjá tónleikana. 11.8.2022 13:36
„Voðalega vinsælt að fá hrátt egg og sokk hjá mér“ Litla Hverabúðin er minnsta verslun Íslands, svo smá að ekki er þar að finna nokkurn starfsmann, í stað þess er stólað á heiðarleika viðskiptavina. Verðlaunakokkurinn Ólafur Reynisson og eiginkona hans Anna María Eyjólfsdóttir eru miklir frumkvöðlar þegar kemur að matargerð. 11.8.2022 11:31
Idol leitar að stjörnu á Akureyri í dag Framleiðendur Idolsins eru á leið sinni um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands. Annað stopp er Akureyri þar sem prufur fara fram í dag klukkan 13:00 í Hofi. 11.8.2022 10:35
Þrír hönnuðir, eitt eldhús Hönnuðirnir Noz Nozawa, Darren Jett og Joy Moyler fengu það hlutverk frá Architectural Digest að hanna sama eldhúsið, öll á sinn hátt. Allir hönnuðirnir voru sammála um það að fríska þyrfti upp á rýmið en voru þó með ólíkar hugmyndir um hvernig væri best að gera það. 10.8.2022 16:30
VERA mathöll hefur opnað dyrnar Vera mathöll opnaði í Vatnsmýri um helgina en um er að ræða mathöll þar sem átta veitingastaðir verða með rekstur sinn. 10.8.2022 15:01
Myndaveisla: Opnun 66°Norður á Hafnartorgi Fyrirtækið 66°Norður opnaði á dögunum sína elleftu verslun til þessa og er hún staðsett á Hafnartorgi á gamla hafnarsvæðinu. Basalt Arkitektar hönnuðu verslunina og var innblásturinn íslenskt veður og umhverfi. 10.8.2022 13:01
Ástfangin á rauða dreglinum Baltasar Kormákur og listakonan Sunneva Ása Weisshappel voru glæsileg á rauða dreglinum við heimsfrumsýningu nýjustu myndar Baltasars sem ber heitið Beast. Idris Elba lét sig ekki vanta á svæðið en hann fer með aðalhlutverk myndarinnar. 10.8.2022 12:00
„Þetta kostaði bara lásasmið til þess að brjótast inn heima hjá okkur“ Leikarinn Hallgrímur Ólafsson, betur þekktur sem Halli Melló og Matthildur Magnúsdóttir lifa skemmtilegu lífi saman og kynntust eftir örlagaríkt „add“ á Facebook. Hann var ekki lengi að samþykkja vinabeiðnina enda kannaðist hann við Matthildi frá störfum hennar sem þula. 10.8.2022 11:00
Haffi Haff var rændur á fyrsta stefnumóti Gústi B og Páll Orri fengu Hafstein Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, til sín í þáttinn Veisluna og skelltu honum í Hitasætið. „Hvað er vandræðalegasta deit sem þú hefur farið á?“ spurði Gústi og þá stóð ekki á svörum hjá Haffa sem hefur lent í því að vera rændur á fyrsta stefnumóti. 10.8.2022 09:46
Enginn Tvíhöfði í haust Það verða engir Tvíhöfða-þættir í haust en þættirnir hafa verið á dagskrá á Rás 2 síðan árið 2017. Þættirnir hófu göngu sína árið 1994 en ekki er útilokað að Tvíhöfði snúi aftur seinna. 9.8.2022 20:17
Bréf John Lennons til Paul McCartney á uppboði Bréf John Lennons til Paul McCartney sem skrifað var árið 1971 er nú á uppboði. Bréfið er þrjár blaðsíður að lengd og í því stendur meðal annars: „Ég hélt að þú værir búinn að ná því á þessum tímapunkti að ég er JOHNOGYOKO.“ 9.8.2022 14:01
Fyrsta stiklan úr raunveruleikaþáttunum LXS Fyrsta stiklan úr raunveruleikaþáttunum LXS hefur verið birt. Í henni má sjá brot úr ferðalögum áhrifavaldanna þar sem Magnea kemur meðal annars með þá fleygu setningu: „Everything is planned out from A to Ö.“ 9.8.2022 12:10
Idol leitar að stjörnu á Ísafirði í dag Framleiðendur Idolsins eru á leið sinni um landið í leit að næstu stórstjörnu Íslands. Fyrsta stopp er Ísafjörður þar sem prufur fara fram í dag klukkan 13 í Tónlistarskóla Ísafjarðar. 9.8.2022 11:00
Minnast Oliviu Newton-John: „Þinn Danny, þinn John“ Söng- og leikkonan Olivia Newton-John hefur kvatt þennan heim og minnast vinir og samstarfsmenn hennar með fögrum orðum. Hún var 73 ára að aldri er hún lést eftir þrjátíu ára baráttu við brjóstakrabbamein. 9.8.2022 10:05
Kanye West greindi frá dauða Davidson Rapparinn Kanye West brást við sambandsslitum Kim Kardashian og Pete Davidson með því að birta andlátstilkynningu á Instagram fyrir Skete Davidson. Frá því Davidson byrjaði með Kim hefur Kanye áreitt leikarann á samfélagsmiðlum og uppnefnt hann „Skete.“ 8.8.2022 22:28
Lars von Trier með Parkinson Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier hefur greinst með Parkinson. Leikstjórinn umdeildi hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir sínar en myndir hans hafa sjö sinnum verið valdar besta myndin á dönsku Bodil-verðlaununum. 8.8.2022 20:28
Olivia Newton-John er látin Söng- og leikkonan Olivia Newton-John er látin, 73 ára að aldri. John Easterling, eiginmaður hennar, segir hana hafi látist friðsamlega í morgun umkringd vinum og fjölskyldu. Hún hafði barist við brjóstakrabbamein síðustu þrjátíu ár. 8.8.2022 19:36
Britney Spears sár út í barnsföður sinn Kevin Federline Fyrrum eiginmaður og barnsfaðir Britney Spears, Kevin Federline, segir föður Britney hafa bjargað lífi hennar þegar hann tók af henni sjálfræðið og segir syni þeirra ekki vilja hitta mömmu sína. Hann kennir meðal annars þeim myndum sem Britney kýs að deila á Instagram um þá ákvörðun. 8.8.2022 16:01
Roger E. Mosley látinn eftir bílslys Bandaríski leikarinn Roger E. Mosley er látinn, 83 ára að aldri. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem þyrluflugmaðurinn Theodore „T.C.“ Calvin í þáttaröðinni Magnum P.I. þar sem hann fór með eitt aðalhlutverka við hlið Tom Selleck. 8.8.2022 15:06
Dóttir Jóhönnu Guðrúnar hlaut nafnið Jóhanna Guðrún Dóttir Jóhönnu Guðrúnar og Ólafs Friðriks Ólafssonar hefur nú hlotið nafnið Jóhanna Guðrún líkt og móðir sín en hún kom í heiminn þann 23. apríl síðastliðinn. 8.8.2022 14:36
Sýna villt dýr í skemmtilegu ljósi Forsvarsmenn dýralífsljósmyndakeppninnar Comedy Wildlife Photography Awards birtu nýverið fimmtán uppáhaldsmyndir dómnefndarinnar hingað til. Hinar kostulegu myndir voru teknar víðsvegar um heiminn og sýna villt dýr í skemmtilegu ljósi. 8.8.2022 13:30
Stjörnulífið: Gleðigangan, gosið og grín Gleðigangan fyllti samfélagsmiðla af ást, gleði og fjölbreytileika um helgina. Gosið sýndi sínar bestu hliðar og virtust margir leggja leið sína að því þrátt fyrir orð Víðis um að æða ekki upp á fjall. Grínið var líka áberandi þar sem Ari Eldjárn fór aftur af stað með uppistandið sitt í Edinborg og einnig fjölgaði í grínistum landsins. 8.8.2022 12:31
Rödd Línunnar og Pingu látin Carlo Bonomi, sem hefur í áratugi verið tíður gestur á skjám landsmanna, er látinn 85 ára að aldri. Hann gerði garðinn frægan með túlkun sinni á persónunni Línunni í samnefndum sjónvarpsþáttum. Seinna túlkaði hann mörgæsina Pingu sem glatt hefur börn sem fullorðna um árabil. 8.8.2022 12:19
„Bless í bili“ Tónlistarmennirnir Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktir sem Króli og JóiPé ætla að gera upp síðustu sex árin á lokatónleikum sínum saman, í bili. Þeir verða þó ekki einir á sviðinu en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ætlar einnig að spila með þeim. 8.8.2022 11:31
Tinnabk og Gói Sportrönd eignuðust dóttur Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson, betur þekkt sem Tinnabk og Gói Sportrönd, eru orðin fimm manna fjölskylda eftir að hafa tekið á móti dóttur sinni. „Þarf alltaf að vera grín?“ gaf út þátt daginn áður en daman mætti í heiminn. 8.8.2022 10:31
Giftu sig degi of snemma Þýsku hjónin Julija og Michael Domaschke voru gefin saman við Skógafoss á þriðjudaginn í síðustu viku. Hjónin trúlofuðu sig einnig hér á landi og fór Michael á skeljarnar við eldgosið í Fagradalsfjalli í júlí á síðasta ári en þau eru bæði mjög áhugasöm um eldgos og eldfjöll. Daginn eftir að þau giftu sig hóf að gjósa í Meradölum. 7.8.2022 23:00
Steindi í vandræðum með avókadóið: Æsispennandi lokaþáttur af Ísskápastríði Æsispennandi lokaþáttur af Ísskápastríði fer fram klukkan 18.50 í kvöld. Til leiks mæta Steindi Jr. og Siggi Gunnars. 7.8.2022 14:54
Khloé Kardashian sögð orðin tveggja barna móðir Khloé Kardashian er sögð vera orðin tveggja barna móðir, en bæði börnin sín á hún með NBA leikmanninum Tristan Thompson. 6.8.2022 22:24
Emmsjé Gauti og Jovana gengin í það heilaga Gauti Þeyr Másson og Jovana Schally giftu sig við hátíðlega athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Parið trúlofaði sig árið 2019. 6.8.2022 17:52
Anne Heche í lífshættu eftir bílslys Leikkonan Anne Heche er lífshættulega slösuð eftir bílslys sem átti sér stað í Los Angeles í gær. Að sögn vitna ók leikkonan bifreið sinni á miklum hraða, þar til að bifreiðin lenti utan vegar og hafnaði á íbúðarhúsi. 6.8.2022 13:02
„Ég gef ekki ráð“ Bjarni Snæbjörnsson er lífskúnstner mikill en hann hefur sem dæmi vakið athygli fyrir söngleik sinn Góðan daginn faggi ásamt því að syngja Pride lagið í ár, Næs. Fyrir Bjarna er sannleikurinn mesti innblásturinn og hann elskar að læra eitthvað nýtt um sjálfan sig. Bjarni á enga hefðbundna daga og elskar hreyfingu, hollan og góðan mat og hugleiðslu. Bjarni Snæbjörnsson er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 6.8.2022 11:31
Kim Kardashian og Pete Davidson hætt saman Fregnir vestanhafs herma að Kim Kardashian og Pete Davidson séu hætt saman og hafi tekið ákvörðun um að vera bara vinir. 5.8.2022 23:50
Hataðasti maðurinn á netinu: „Ég skulda engum neitt“ Netflix gaf nýlega út heimildarþættina „Most Hated Man on the Internet“ eða „Hataðasti Maðurinn á Veraldarvefnum“ þar sem farið er yfir sögu Hunter Moore sem varð frægur á sínum tíma fyrir að stofna vefsíðuna IsAnyoneUp.com sem birti hefndarklám en nú hefur hann tjáð sig um málið. 5.8.2022 21:31
„Þetta hefur verið eitthvað flipp“ Myndband af lögreglumönnum á rafskútum hefur fengið mikla dreifingu á netinu í dag. Margir hefðu kannski haldið að um nýjan fararskjóta lögreglunnar sé að ræða en svo virðist ekki vera. 5.8.2022 16:31
Síðasta ferð sumarsins Um helgina fer Bylgjulestin í sína síðustu ferð þetta sumarið og verður í Þorlákshöfn á hátíðinni Hamingjan við hafið laugardaginn 6.ágúst. Frá því í júní hefur Bylgjulestin komið við í öllum landshlutum Íslands með gleði og tónlist fyrir landsmenn. 5.8.2022 15:01