Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Luku 692 milljóna króna hlutafjárútboði fyrir safnkortaleik Íslenska tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games hefur lokið 5,3 milljóna bandaríkjadala hlutafjárútboði, sem samsvarar ríflega 692 milljónum króna. Ráðist var í hlutafjárútboðið til að styðja við frekari vöxt félagsins og klára þróun tölvuleiksins Kards fyrir iOS og Android snjalltæki. 30.9.2021 23:36
Stefna að miklum fjárfestingum og lækkun skulda Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtæki munu fjárfesta fyrir um 106 milljarða króna á næstu sex árum. Það er samkvæmt fjárhagsspá samstæðunnar sem samþykkt var af stjórn OR í dag. 30.9.2021 16:16
Teitur til Eyland Spirits Teitur Þór Ingvarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Eyland Spirits, framleiðanda Ólafsson gins. Teitu er með M.Sc. í fjármálum fyrirtækja en hann starfaði meðal annars áður sem fjármálastjóri lyfjafyrirtækisins Florealis og var í tíu ár í fyrirtækjaráðgjöf og hagdeild Arion banka. 30.9.2021 15:26
Torfi og Gylfi Steinn ráðnir til Vodafone Torfi Bryngeirsson hefur verið ráðinn vörumerkjastjóri Vodafone á Íslandi og Gylfi Steinn Gunnarsson tekur við sem vefstjóri Vodafone og Stöðvar 2. 30.9.2021 15:08
Jón nýr rekstrarstjóri Netveitu Jón Finnbogason hefur verið ráðinn sem rekstrarstjóri Netveitu, sem er á vegum Þjónustulausna Origo. Jón starfaði áður sem vörustjóri hjá Símanum og hann starfaði sem verkefnastjóri hjá Kaupþingi. 30.9.2021 10:41
Íslandsbanki spáir stýrivaxtahækkun í næstu viku Íslandsbanki spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi, sem er á miðvikudaginn í næstu viku, þann 6. október. Gangi spáin eftir verða stýrivextir 1,5 prósent. 30.9.2021 09:51
Seðlabankinn dregur lærdóm af fasteignabólunni fyrir hrun Seðlabankastjóri segir nýjar reglur um hámark greiðslubyrði húsnæðislána hluta af þeim lærdómi sem draga megi af efnahagshruninu. Þær tengi greiðslubyrðina tekjum heimilanna og vinni gegn gylliboðum á lánamarkaði. 29.9.2021 19:20
Nýja hámarkið hefur aðallega áhrif á tekjuhærri Nýtt hámark reglna Seðlabanka Íslands kemur í veg fyrir að fólk geti tekið jafnhá lán og áður. Reglurnar hafa almennt meiri áhrif á tekjuhærri og gera það að verkum að greiðslubyrði fasteignalána skuli almennt ekki fara yfir 35 prósent af ráðstöfunartekjum, en 40 prósent hjá fyrstu kaupendum. 29.9.2021 18:29
Ekki færri íbúðir í byggingu síðan 2017 Áframhaldandi samdráttur er í byggingu nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI). Ekki hafa verið færri íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu síðan í mars 2017. 29.9.2021 12:29
Bein útsending: Kynningarfundur um yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna og gera grein fyrir yfirlýsingu sinni á fundi sem hefst í bankanum klukkan 9:30. 29.9.2021 09:07
Setja reglur um hámark greiðslubyrðar húsnæðislána Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið setja reglur um hámark greiðslubyrðar húsnæðislána til að vinna á móti aukinni skuldsetningu heimila að undanförnu vegna fasteignakaupa. 29.9.2021 08:44
Auglýsa eftir hundrað flugliðum og fimmtíu flugmönnum Flugfélagið PLAY leitar nú að um hundrað flugliðum til starfa fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Jafnframt stendur til að auglýsa eftir um fimmtíu flugmönnum í næstu viku. 29.9.2021 08:07
Ráðnar til 1xInternet á Íslandi Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir og Ísabella Jasonardóttir hafa verið ráðnar til hugbúnaðarfyrirtækisins 1xInternet á Íslandi. Fanney Þorbjörg tekur við stöðu fjármálastjóra og Ísabella verkefnastjóra. 29.9.2021 07:16
Starfsmenn Play mættu ekki til að gefa skýrslur vegna flugrekstrarhandbóka WOW Eini tilgangurinn með málshöfðun USAerospace Partners Inc. vegna flugrekstrarbóka WOW var að „halda áfram þeim leikþætti sem sóknaraðili og fyrirsvarsmenn hans hafa haldið uppi með reglubundnum hætti“ frá stofnun flugfélagsins Play. 29.9.2021 06:50
Sleppa við afgreiðslukassann Viðskiptavinir Krónunnar geta nú í fyrsta sinn hér á landi notað símann til að afgreiða sig sjálfa sem gerir þeim kleift að kaupa inn án þess að koma nálægt afgreiðslukassa. 28.9.2021 21:01
Bætist í hóp eigenda Advel Bjarni Þór Bjarnason, lögmaður, hefur gengið til liðs til ADVEL lögmenn og verður hann jafnframt einn eigenda félagsins. 28.9.2021 18:00
Rekstrarfélag Hótel Sögu gjaldþrota Félagið Hótel Saga ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. 27.9.2021 23:36
Markaðurinn sér stöðugleika í niðurstöðum kosninganna Kauphöllin er græn á fyrsta virka degi eftir Alþingiskosningar. Komið hefur fram að sitjandi ríkisstjórn á nú í viðræðum um að halda áfram samstarfinu og aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir viðbúið að markaðir bregðist vel við slíkum stöðugleika. 27.9.2021 12:40
Allt grænt í Kauphöllinni eftir kosningar Fjárfestar virðast vera ánægðir með niðurstöðuna í Alþingiskosningunum um helgina ef marka má græna litinn sem er alls ráðandi í Kauphöllinni eftir opnun markaða. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,5% það sem af er degi. 27.9.2021 10:39
4,6 milljarða verkefni um að draga úr losun koltvísýrings í Kína Kínverski efnaframleiðandinn Jiangsu Sailboat Petrochemicals hefur gert samning við íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International um að byggja verksmiðju. Sú verksmiðja á að framleiða metanól með endurvinnslu koltvísýrings en heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 4,6 milljarða króna. 27.9.2021 10:02
Tekur við sem forstöðumaður stofnstýringar Friðrik Bragason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður innan stofnstýringar hjá Verði. 27.9.2021 09:22
Hagnaður Rekstrarvara nær fimmfaldaðist í heimsfaraldri Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á hag Rekstrarvara ehf. á seinasta ári en fyrirtækið er flytur meðal annars inn hreinlætisvörur og selur áfram til fyrirtækja og einstaklinga. 24.9.2021 14:35
Blóð, sviti og tár farið í Skógarböðin sem eru að taka á sig mynd Framkvæmdir við Skógarböðin við Akureyri er í fullum gangi. Heita vatnið úr Vaðlaheiðargöngunum verður nýtt í laugarnar, sem forsvarsmenn baðstaðarins vona að muni bæta afþreyingarmöguleikana á svæðinu. 24.9.2021 11:48
Arnarlax freistar þess að fá blágrænan lit skráðan sem vörumerki Hugverkastofu hefur borist ein umsókn um skráningu litamerkis en umsækjandinn er fiskeldisfyrirtækið Arnarlax hf. Ný lög sem tóku gildi í fyrra opna á að á Íslandi sé hægt að skrá ýmis konar óhefðbundin vörumerki, á borð við liti, hljóð og umbúðir. 24.9.2021 11:38
Ráðin nýir framkvæmdastjórar hjá Landsbankanum Bergsteinn Ó. Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Áhættustýringar hjá Landsbankanum og Sara Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samfélags, sem er nýtt svið hjá bankanum, en undir það heyra mannauðsmál, markaðsmál, fræðsla, samskipti, samfélagsábyrgð og Hagfræðideild. 24.9.2021 10:16
Rótgrónir heildsölurisar fá að sameinast ÍSAM, Ó. Johnson & Kaaber og Sælkeradreifing hafa fengið heimild frá Samkeppniseftirlitinu til sameiningar á heildsölurekstri. Samkeppniseftirlitið birti í dag ákvörðun þess efnis en sameiningunni fylgja skilyrði þar sem fyrirtækin skuldbinda sig til að „eyða þeirri samkeppnisröskun sem samruninn hefði að öðrum kosti leitt til“. 23.9.2021 18:01
Play nælir í sölusérfræðing frá Icelandair Tatiana Shirokova hefur verið ráðin forstöðumaður sölusviðs Play og mun hún bera ábyrgð á sölu- og dreifingarmálum félagsins. Sölusvið er hluti af sölu- og markaðssviði og tekur Tatiana til starfa þann 1. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play. 23.9.2021 16:50
Munu leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða Axel Gunnlaugsson og Atli Björgvinsson ráðnir til Kynnisferða til að leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða. 23.9.2021 09:15
Play bætir við sig nýjum áfangastað í vetraráætluninni Flugfélagið PLAY hefur bætt Amsterdam í Hollandi við vetraráætlun sína. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá og með 3. desember. 23.9.2021 09:07
Ekki enn náð sér á strik eftir að Costco notaði klósettpappírinn sem beitu Koma Costco til Íslands hefur haft veigamikil áhrif á eina framleiðanda salernispappírs á Íslandi. Nú rúmum fjórum árum eftir að tólf þúsund fermetra vöruhúsið opnaði í Kauptúni hefur pappírssala Papco ekki enn náð sér á strik og velta alls dregist saman um 45 prósent. 23.9.2021 08:00
Rándýrt að auglýsa í Reykjavík Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa keypt auglýsingar á Facebook fyrir rúmlega 24 milljónir króna undanfarið ár. Auglýsingar á samfélagsmiðlum eru þó aðeins brotabrot af útgjöldum flokkanna til markaðssetningar. 22.9.2021 21:00
Íslenskur bar á alþjóðlegum topplista Íslenski hanastélsbarinn Jungle hefur verið valinn af 50 Best Discovery á lista yfir fimmtíu veitingastaði og bari í heiminum sem ferðalangar ættu að heimsækja. Þetta er fyrsta skiptið sem íslenskur bar kemst á þennan lista. 22.9.2021 19:44
Íslandsbanki segir kórónukreppunni lokið Kórónuveirukreppunni er lokið að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Þrátt fyrir að skellurinn hafi verið harðari hér en víða annars staðar sé viðsnúningurinn hraðari. 22.9.2021 18:30
Síminn kaupir hlut í nýrri íslenskri streymisveitu Síminn hefur keypt hlut í nýrri íslenskri streymisveitu sem nefnist Uppkast. Streymisveitan mun taka við efni frá almenningi og gera fólki kleift að miðla þekkingu sinni eða hæfileikum til áskrifenda og hafa af því tekjur í samræmi við spilun. 22.9.2021 16:04
Hagkerfið að snúa við blaðinu: Spá frekari hækkunum á húsnæði og óvissu með fjölda ferðamanna Greining Íslandsbanka spáir því að 4,2% hagvöxtur mælist á þessu ári og 3,6% á því næsta. Talið er að um 600 þúsund ferðamenn komi til landsins í ár og verði um þriðjungur af fjöldanum árið 2019. 22.9.2021 11:45
Flutti frá Los Angeles til Íslands til að markaðssetja sultur Good Good hefur ráðið Belindu Navi í starf markaðsstjóra með aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. Belinda Navi fluttist búferlum frá Los Angeles til Reykjavíkur til að starfa fyrir Good Good og hefur þegar hafið störf. 22.9.2021 10:26
Róbert setur hótelið og aðrar eignir tengdar ferðaþjónustu á Sigló á sölu Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, hefur ákveðið að setja allar eignir sínar tengdar ferðaþjónustunni í bænum á sölu. 22.9.2021 07:49
Óvæntar sendingar frá Salómonseyjum eru frá Ali Express Neytendur þurfa ekki að óttast þótt þeim berist tilkynning um óvæntar pakkasendingar frá Salómonseyjum. Þarna er ekkert vafasamt á ferðinni, heldur sendingar Ali Express frá Kína sem sendir eru gegnum Salómónseyjar. 21.9.2021 18:34
Google taldi mikla eftirspurn eftir íslensku appi vera netárás og lokaði Íslenska appið Lightsnap hefur gert gott mót í Svíþjóð en þjónustan gerir notendum kleift að taka ljósmyndir sem þeir fá ekki að sjá fyrr en prentuð eintök eru send heim að dyrum. 21.9.2021 11:53
Ráðinn til Sjóvár Andri Már Rúnarsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í eignastýringu og fjárfestatengill hjá Sjóvá. 21.9.2021 11:22
Hafa samið um leigu á fjórum vélum til viðbótar Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann GECAS um leigu á þremur A320neo flugvélum og einni A321NX flugvél. 21.9.2021 08:59
Jens hættir hjá Icelandair Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. 20.9.2021 16:28
Sakar Viðskiptablaðið og Morgunblaðið um samantekin ráð gegn sér Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð til að gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum hennar. Fjölmiðlarnir tveir hafa fjallað um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka. 20.9.2021 14:55
Skoðanakannanir fyrir kosningar valdi fjárfestum áhyggjum Íslenski hlutabréfamarkaðurinn virðist sveiflast í takt við skoðanakannanir í aðdraganda alþingiskosninga. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárfesta hafa áhyggjur, hvort sem þær séu réttmætar eða ekki, af stjórnvöldum sem hyggi á þrálátri skuldasöfnun ríkissjóðs sem leiði til hækkunar stýrivaxta. 20.9.2021 11:52
Simmi Vill skammar Matartips-ara fyrir óvægna gagnrýni Veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson segir að umræða á Matartips geti farið út í óuppbyggilegar upphrópanir með ófyrirséðum afleiðingum, þeim að veitingastaðir geti hreinlega farið á hausinn. 20.9.2021 10:20