Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heildarlaunagreiðslur dregist saman um 40 prósent á tólf árum Heildarlaunagreiðslur í atvinnugreinum menningar hafa dregist saman um 40% á árunum 2008 til 2020 og 25% samdráttur mælst í fjölda starfandi. 5.10.2021 10:26
Fyrst til að selja netöryggistryggingu á Íslandi Tryggingafélagið TM hefur hafið sölu á netöryggistryggingum, fyrst tryggingafélaga hér á landi. Eru tryggingar hugsaðar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilji lágmarka fjárhagslegt tap, verði þau fyrir netárás. 5.10.2021 09:48
Lúxushótelið við Hörpu opnar loks í næstu viku og býður opnunartilboð Nýjasta viðbótin í flóru íslenskra lúxushótela opnar síðar í þessum mánuði þegar The Reykjavík Edition tekur á móti sínum fyrstu gestum. Ítrekaðar tafir hafa orðið á verklokum en upphaflega stóð til að opna nýja fimm stjörnu hótelið við hlið Hörpu árið 2018. 4.10.2021 15:18
Smálánafyrirtæki hafði betur í máli gegn Neytendasamtökunum Breka Karlssyni, formanni Neytendasamtakanna, var óheimilt að fullyrða að lán smálánafyrirtækisins eCommerce 2020 hafi verið úrskurðuð ólögleg. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi ummæli sem hann lét falla í garð fyrirtækisins dauð og ómerk. 4.10.2021 13:17
Engar tilkynningar um hópuppsagnir í september Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í september. 4.10.2021 12:19
Taka við stimplaframleiðslu Stimplagerðarinnar Prentmet Oddi hefur tekið við framleiðslu á stimplum Stimplagerðarinnar sem verið hefur í rekstri frá árinu 1955. 4.10.2021 12:08
Líklegt að hægi á hækkunum fasteignaverðs eða leiguverð taki við sér Ekkert lát hefur verið á hækkunum íbúðaverðs en staðan er önnur á leigumarkaði þar sem hóflegri verðhækkanir hafa mælst. Þá hefur leiguverð í einhverjum tilfellum lækkað samkvæmt nýjum samningum. 4.10.2021 10:44
Svona vörðu landsmenn ferðagjöfinni í sumar Síðasti dagurinn til að nýta ferðagjöf stjórnvalda var fimmtudagurinn síðastliðinn og liggur nú fyrir að sóttar hafi verið 231.331 ferðagjafir fyrir alls 1.157 milljónum króna. 4.10.2021 08:09
Fall WOW var upphafið að endalokum Hótels Sögu Formaður Bændasamtakanna segir fall WOW flugfélagsins í mars 2019 hafa markað upphafið að endalokum Hótels Sögu en rekstrarfélag þess var tekið til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Alger óvissa ríki um framtíð húsnæðisins. 1.10.2021 19:58
Hlutabréf útgerðarfélaga ruku upp eftir tímamótaloðnuráðgjöf Hlutabréf útgerðarfélaga tóku stökk í dag eftir að Hafrannsóknarstofnun ráðlagði veiðar á allt að 904 þúsund tonnum af loðnu fyrir komandi vertíð. Kvótinn sjöfaldast milli ára og hefur ekki verið meiri síðan 2003. 1.10.2021 19:01
ASÍ segir húsnæðisverð helsta drifkraft verðbólgu Húsnæðisverð er helsti drifkraftur verðbólgu á Íslandi samkvæmt Alþýðusambandi Íslands. Sé horft framhjá áhrifum húsnæðis mælist verðbólga í samræmi við markmið Seðlabankans. 1.10.2021 14:50
Rekstrarafkoma Isavia neikvæð um 5,1 milljarð á fyrri hluta árs Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins var neikvæð um 5,1 milljarð króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 5,3 milljarða króna fyrir sama tímabili á síðasta ári. 1.10.2021 13:38
Gleðipinnar kaupa trampólíngarðinn Rush Veitinga- og afþreyingarrisinn Gleðipinnar hafa keypt trampólíngarðinn Rush á Dalvegi í Kópavogi. 1.10.2021 13:21
Öskurherferðin vann til þrennra Effie-verðlauna Markaðsherferðin Looks Like You Need To Let It Out, Öskurherferðin svokallaða sem unnin var fyrir áfangastaðinn Ísland, hlaut þrenn gullverðlaun alls við afhendingu Effie verðlaunanna í Norður-Ameríku í gær. 1.10.2021 13:00
Áframhaldandi uppsagnir hjá bönkunum Stóru bankarnir þrír sögðu samanlagt upp 39 manns í september. Landsbankinn sagði upp níu starfsmönnum og Arion banki sex í fyrradag. 1.10.2021 11:17
Kemur frá Landsvirkjun og tekur við markaðsmálunum hjá Isavia Jón Cleon hefur verið ráðinn nýr deildarstjóri markaðsmála og upplifunar hjá Isavia. 1.10.2021 10:58
Agnar Freyr ráðinn deildarstjóri netmarkaðsmála hjá Birtingahúsinu Agnar Freyr Gunnarsson hefur verið ráðinn deildarstjóri netmarkaðsmála hjá Birtingahúsinu. Hann kom til starfa snemma árs 2020 og hefur verið að sinna viðskiptaþróun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum ásamt annarri netráðgjöf fyrir viðskiptavini félagsins. Agnar 1.10.2021 10:47
Landsbankinn spáir einnig stýrivaxtahækkun Landsbankinn tekur undir spá Íslandsbankans frá því í gær um að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Bankinn telur þó ekki útilokað að stýrivextir hækki um 0,5 prósentustig. 1.10.2021 10:19
Hafa lokið fjármögnun Boeing 737 MAX flugvéla félagsins Icelandair hefur gert samning við Aviation Capital Group (ACG) um fjármögnun þriggja Boeing 737 MAX flugvéla. 1.10.2021 09:41
Endurgreiðslur vegna Allir vinna nema tæpum sex milljörðum það sem af er ári Endurgreiðslur vegna átaksins Allir vinna nema tæplega 5,9 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Alls hafa verið afgreiddar um 23 þúsund endurgreiðslubeiðnir af þeim 45 þúsund sem borist hafa. 1.10.2021 09:23
Ráðin í teymi eignastýringar Fossa markaða Aníta Rut Hilmarsdóttir og Þorlák Runólfsson hafa verið ráðin í teymi eignastýringar Fossa markaða. 1.10.2021 09:02
Atlanta fjölgar þotum um sjö Flugfélagið Atlanta hyggst taka sjö nýjar flutningaþotur í notkun á næstu mánuðum. Félagið verður þá með sextán þotur til umráða, en fyrir er Atlanta með níu þotur í rekstri. 1.10.2021 07:21
„Fólk er almennt heiðarlegt og við göngum út frá því“ „Svarið við því er já,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, spurður að því hvort fólki sé treystandi. Tilefnið er nýtt greiðslufyrirkomulag hjá Krónunni, þar sem fólki verður treyst til að „skanna og skunda“ en VÍS hefur um nokkurra ára skeið viðhaft svipað fyrirkomulag varðandi tjónatilkynningar. 1.10.2021 07:04
Luku 692 milljóna króna hlutafjárútboði fyrir safnkortaleik Íslenska tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games hefur lokið 5,3 milljóna bandaríkjadala hlutafjárútboði, sem samsvarar ríflega 692 milljónum króna. Ráðist var í hlutafjárútboðið til að styðja við frekari vöxt félagsins og klára þróun tölvuleiksins Kards fyrir iOS og Android snjalltæki. 30.9.2021 23:36
Stefna að miklum fjárfestingum og lækkun skulda Orkuveita Reykjavíkur og dótturfyrirtæki munu fjárfesta fyrir um 106 milljarða króna á næstu sex árum. Það er samkvæmt fjárhagsspá samstæðunnar sem samþykkt var af stjórn OR í dag. 30.9.2021 16:16
Teitur til Eyland Spirits Teitur Þór Ingvarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Eyland Spirits, framleiðanda Ólafsson gins. Teitu er með M.Sc. í fjármálum fyrirtækja en hann starfaði meðal annars áður sem fjármálastjóri lyfjafyrirtækisins Florealis og var í tíu ár í fyrirtækjaráðgjöf og hagdeild Arion banka. 30.9.2021 15:26
Torfi og Gylfi Steinn ráðnir til Vodafone Torfi Bryngeirsson hefur verið ráðinn vörumerkjastjóri Vodafone á Íslandi og Gylfi Steinn Gunnarsson tekur við sem vefstjóri Vodafone og Stöðvar 2. 30.9.2021 15:08
Jón nýr rekstrarstjóri Netveitu Jón Finnbogason hefur verið ráðinn sem rekstrarstjóri Netveitu, sem er á vegum Þjónustulausna Origo. Jón starfaði áður sem vörustjóri hjá Símanum og hann starfaði sem verkefnastjóri hjá Kaupþingi. 30.9.2021 10:41
Íslandsbanki spáir stýrivaxtahækkun í næstu viku Íslandsbanki spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentur á næsta vaxtaákvörðunardegi, sem er á miðvikudaginn í næstu viku, þann 6. október. Gangi spáin eftir verða stýrivextir 1,5 prósent. 30.9.2021 09:51
Seðlabankinn dregur lærdóm af fasteignabólunni fyrir hrun Seðlabankastjóri segir nýjar reglur um hámark greiðslubyrði húsnæðislána hluta af þeim lærdómi sem draga megi af efnahagshruninu. Þær tengi greiðslubyrðina tekjum heimilanna og vinni gegn gylliboðum á lánamarkaði. 29.9.2021 19:20
Nýja hámarkið hefur aðallega áhrif á tekjuhærri Nýtt hámark reglna Seðlabanka Íslands kemur í veg fyrir að fólk geti tekið jafnhá lán og áður. Reglurnar hafa almennt meiri áhrif á tekjuhærri og gera það að verkum að greiðslubyrði fasteignalána skuli almennt ekki fara yfir 35 prósent af ráðstöfunartekjum, en 40 prósent hjá fyrstu kaupendum. 29.9.2021 18:29
Ekki færri íbúðir í byggingu síðan 2017 Áframhaldandi samdráttur er í byggingu nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins (SI). Ekki hafa verið færri íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu síðan í mars 2017. 29.9.2021 12:29
Bein útsending: Kynningarfundur um yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna og gera grein fyrir yfirlýsingu sinni á fundi sem hefst í bankanum klukkan 9:30. 29.9.2021 09:07
Setja reglur um hámark greiðslubyrðar húsnæðislána Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið setja reglur um hámark greiðslubyrðar húsnæðislána til að vinna á móti aukinni skuldsetningu heimila að undanförnu vegna fasteignakaupa. 29.9.2021 08:44
Auglýsa eftir hundrað flugliðum og fimmtíu flugmönnum Flugfélagið PLAY leitar nú að um hundrað flugliðum til starfa fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Jafnframt stendur til að auglýsa eftir um fimmtíu flugmönnum í næstu viku. 29.9.2021 08:07
Ráðnar til 1xInternet á Íslandi Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir og Ísabella Jasonardóttir hafa verið ráðnar til hugbúnaðarfyrirtækisins 1xInternet á Íslandi. Fanney Þorbjörg tekur við stöðu fjármálastjóra og Ísabella verkefnastjóra. 29.9.2021 07:16
Starfsmenn Play mættu ekki til að gefa skýrslur vegna flugrekstrarhandbóka WOW Eini tilgangurinn með málshöfðun USAerospace Partners Inc. vegna flugrekstrarbóka WOW var að „halda áfram þeim leikþætti sem sóknaraðili og fyrirsvarsmenn hans hafa haldið uppi með reglubundnum hætti“ frá stofnun flugfélagsins Play. 29.9.2021 06:50
Sleppa við afgreiðslukassann Viðskiptavinir Krónunnar geta nú í fyrsta sinn hér á landi notað símann til að afgreiða sig sjálfa sem gerir þeim kleift að kaupa inn án þess að koma nálægt afgreiðslukassa. 28.9.2021 21:01
Bætist í hóp eigenda Advel Bjarni Þór Bjarnason, lögmaður, hefur gengið til liðs til ADVEL lögmenn og verður hann jafnframt einn eigenda félagsins. 28.9.2021 18:00
Rekstrarfélag Hótel Sögu gjaldþrota Félagið Hótel Saga ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. 27.9.2021 23:36
Markaðurinn sér stöðugleika í niðurstöðum kosninganna Kauphöllin er græn á fyrsta virka degi eftir Alþingiskosningar. Komið hefur fram að sitjandi ríkisstjórn á nú í viðræðum um að halda áfram samstarfinu og aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir viðbúið að markaðir bregðist vel við slíkum stöðugleika. 27.9.2021 12:40
Allt grænt í Kauphöllinni eftir kosningar Fjárfestar virðast vera ánægðir með niðurstöðuna í Alþingiskosningunum um helgina ef marka má græna litinn sem er alls ráðandi í Kauphöllinni eftir opnun markaða. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,5% það sem af er degi. 27.9.2021 10:39
4,6 milljarða verkefni um að draga úr losun koltvísýrings í Kína Kínverski efnaframleiðandinn Jiangsu Sailboat Petrochemicals hefur gert samning við íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling International um að byggja verksmiðju. Sú verksmiðja á að framleiða metanól með endurvinnslu koltvísýrings en heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um 4,6 milljarða króna. 27.9.2021 10:02
Tekur við sem forstöðumaður stofnstýringar Friðrik Bragason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður innan stofnstýringar hjá Verði. 27.9.2021 09:22
Hagnaður Rekstrarvara nær fimmfaldaðist í heimsfaraldri Heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á hag Rekstrarvara ehf. á seinasta ári en fyrirtækið er flytur meðal annars inn hreinlætisvörur og selur áfram til fyrirtækja og einstaklinga. 24.9.2021 14:35