Innlent

Í lífshættu eftir líkamsárás

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árásarmaðurinn er í haldi lögreglunnar. Mynd/ Pjetur.
Árásarmaðurinn er í haldi lögreglunnar. Mynd/ Pjetur.
Karlmaður um þrítugt er í lífshættu á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann varð fyrir líkamsárás á Laugavegi, nálægt veitingastaðnum Monte Carlo, um hálfþrjúleytið í nótt. Hann virðist hafa verið sleginn fyrirvaralaust hnefahöggi í höfuðið með fyrrgreindum afleiðingum. Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu og verður yfirheyrður síðar í dag vegna málsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×