Stjórnendur Landspítalans brugðust ekki við vanda bráðamóttökunnar
Stjórnendur Landspítalans brugðust ekki við vanda bráðamóttökunnar, þrátt fyrir að hann hafi verið þeim augljós um langt skeið að mati tveggja sænskra sérfræðinga. Í stað þess að grípa til aðgerða hafi þeir málað spítalann upp sem fórnarlamb, sem hafi beinlínis verið hættulegt að mati sérfræðinganna.