Leita Íslendinga sem tala katalónsku
Hópur Katalónskra kvikmyndagerðarmanna hefur ferðast víða um land til að hafa upp á Íslendingum sem hafa af einhverjum ástæðum lagt á sig að læra Katalónsku. Þáttastjórnandi segir margt svipa til hjá Katalóníubúum og Íslendingum. Þar sé tungumálið engin undantekning enda hornsteinn í sjálfsmynd beggja þjóða.