Stórleikonan Maggie Smith látin
Maggie Smith, ein ástælasta leikkona Breta, lést í dag 89 ára að aldri. Smith vann til fjölmarga verðlauna fyrir túlkun sína á Violet Crawley í þáttunum Downtown Abbey og margir kannast eflaust við hana úr kvikmyndunum um Harry Potter, þar sem hún fór með hlutverk prófessorsins Minervu McGonagall sem gat breytt sér í kött.