Flugstöðin gæti fært einkaaðilum tugi milljarða í tekjur
Ólíklegt er að til einkavæðingar flugstöðvar Leifs Eiríkssonar komi á þessu kjörtímabili þrátt fyrir áhuga Sjálfstæðismanna vegna andstöðu innan hinna stjórnarflokkanna. Tekjur flugstöðvarinnar hafa rúmlega þrefaldast á síðustu sjö árum og myndu færa nýjum eigendum tugi milljarða í árstekjur í framtíðinni.