Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Fyrsti vinningur í happdrætti Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, rafbíll af gerðinni Hupmobile, er ekki enn til. Einu ummerkin um Hupmobile á veraldarvefnum eru vefsíða framleiðandans, sem skráð er á Islandus group, fyrirtæki Ástþórs. Ástþór segir það enga tilviljun, hann eigi merkið. 13.5.2024 14:29
Freyr ráðinn til Eflingar Freyr Rögnvaldsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags. Hann er stjórnmálafræðingur með mikla reynslu af fjölmiðlun. 13.5.2024 13:56
Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Land rís í Svartsengi með sama hraða og áður. Frá 16. mars, þegar síðasta eldgos hófst, hefur land risið um tæplega tuttugu sentimetra. Kvikusöfnun heldur því áfram og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi. Gossprungur gætu opnast með mjög litlum fyrirvara, jafnvel engum. 13.5.2024 11:54
Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Karlmaður, sem starfað hefur sem læknir á Vestfjörðum og Húsavík, var sýknaður af ákæru um brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot á föstudag. Landsréttur leit svo á að hann hefði ekki brotið á dætrum sínum með því að slá á fingur þeirra og læsa þær inni í uppeldisskyni. 13.5.2024 10:59
Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Meginorsök banaslyss á Þrengslavegi í júlí í fyrra var skert athygli við akstur. Við rannsókn slyssins kom í ljós að ökumaður, átján ára karlmaður, notaði farsíma talsvert skömmu fyrir slys til þess að taka upp myndband, taka ljósmyndir og senda skilaboð á meðan hann ók bifreiðinni. 13.5.2024 09:29
Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Skúli Helgason, karlmaður á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps, með því að stinga mann ítrekað. Í héraði hlaut hann aðeins þriggja og hálfs árs refsingu. 10.5.2024 16:51
Rafmagnslaust í Vesturbænum Rafmagnslaust var um stund í dag vegna háspennubilunar í Vesturbænum í Reykjavík. 10.5.2024 15:36
Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Einn var fluttur á sjúkrahús með verk í baki eftir þriggja bíla árekstur á Ásbraut í Hafnarfirði um klukkan 13. 10.5.2024 13:27
Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Karlmaður sem handtekinn var í tengslum við þjófnað í Hamraborg losnar úr gæsluvarðhaldi í dag. Lögregla telur ekki ástæðu til að halda honum lengur en hann er enn grunaður um aðild að málinu. 10.5.2024 10:26
Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Þau sem létust í umferðarslysi á Eyjafjarðarbraut eystri skammt norðan við Laugaland í lok apríl hétu Einar Viggó Viggósson og Eva Björg Halldórsdóttir. 10.5.2024 09:58