Fréttamaður

Vésteinn Örn Pétursson

Vésteinn er fréttamaður á fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Það rýmdi enginn Reykja­hlíð á sínum tíma“

Prófessor í eldfjallafræði segir það góða ákvörðun að leyfa Grindvíkingum að gista í bænum, nú þegar gosvirkni virðist hafa færst annað. Hann segir líkur á gosi fara vaxandi með auknu landrisi og telur tvær vikur í að það nái sömu hæð og það náði fyrir síðasta gos.

Telja kopar í tonna­tali vera þýfi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um „nokkur tonn af kopar“ í Árbæ í dag. Talið er að líklega sé um þýfi að ræða.

Hætta við að stefna ríkinu í Grinda­víkur­­máli

Grindvíkingar sem hugðust stefna íslenska ríkinu vegna lokana í Grindavík eru hættir við. Lögmaðurinn sem þeir höfðu leitað til vegna málsins kveðst ekki vita ástæðuna að baki ákvörðun þeirra.

Myndi treysta sér til að gista sjálfur í Grinda­vík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segist sjálfur myndu treysta sér til að gista í Grindavík, en hann hefur heimilað íbúum bæjarins að dvelja þar allan sólarhringinn frá og með morgundeginum. Hann segist skilja mætavel áhyggjur björgunarsveita, sem óskuðu eftir því að vera leystar undan daglegri viðveru í og við bæinn í dag.

Yngsti drengurinn hafi ekki hitt bræður sína í tvær vikur

Lögmaður barnsföður Eddu Bjarkar Arnardóttur segir drengina þrjá sem fluttir voru til Noregs í gær ekki hafa verið alla saman síðustu tvær vikur. Kæra hafi verið lögð fram á hendur þeim sem hafi aðstoðað við að fela drengina þegar leitað var að þeim.

Kvöld­fréttir Stöðvar 2

Grindvíkingar mega vera heima yfir jólin þrátt fyrir að enn sé talin töluverð hætta. Björgunarsveitir verða ekki í bænum og fólk sem ákveður að dvelja þar verður á eigin ábyrgð.

Undir­búa máls­höfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grinda­vík

Fyrrverandi hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tekið að sér mál nokkurra Grindvíkinga sem hyggja á málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík. Jón telur stjórnvöldum ekki heimilt að banna Grindvíkingum að fara til sinna heima, en þeir hafa búið við strangar takmarkanir um hvort og hvenær þeir mega vera í bænum frá því snemma í nóvember.

Sjá meira