Körfubolti
188 189 190 191 192 193 194 195 196 … 216 ›
Hughes fékk óblíðar móttökur Larry Hughes, fyrrum leikmaður Washington Wizards og núverandi leikmaður Cleveland Cavaliers, fékk óblíðar móttökur í gærkvöldi þegar hann lék sinn fyrsta leik með nýja liðinu sínu í MCI Center í Washington. Sport 23.10.2005 15:03
Keflavík yfir gegn Haukum Keflavíkurstúlkur fara á kostum í fyrri hálfleik gegn Haukum í meistarakeppni KKÍ í keflavík, en staðan er 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík. Keflavíkurliðið er til að mynda með jafn marga stolna bolta (19) og Haukarnir stig í fyrri hálfleik. Sport 23.10.2005 15:03
Njarðvík leiðir í hálfleik Njarðvíkingar eru yfir í hálfleik gegn grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ, en leikurinn fer fram í Keflavík og er viðureign Íslands- og bikarmeista síðasta árs. Staðan er 46-42 fyrir Njarðvík í fjörugum leik. Sport 23.10.2005 15:03
Auðveldur sigur Keflavíkurstúlkna Kvennalið Keflavíkur vann auðveldan sigur á Haukum í meistarakeppninni í körfubolta í dag. Eftir að staðan var 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík, unnu þær auðveldan sigur, 76-47. Sport 23.10.2005 15:03
Njarðvík vann meistarakeppnina Njarðvíkingar báru sigurorð af grönnum sínum í Keflavík í meistarakeppni KKÍ í Keflavík í kvöld, 94-79, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 46-42. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 33 stig, en hirti auk þess átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Sport 23.10.2005 15:03
Losuðu sig við Kanana Þó svo að keppni sé ekki hafin í úrvalsdeild karla í körfubolta hafa tvö lið þegar sent sinn bandaríska leikmann heim. Fjölnismenn sendu heim Jason Clark sem hafði til að mynda leikið með liðinu í Reykjavíkurmótinu og þá ákváðu Haukar að segja upp samningi Richard Jeter en hann fór með liðinu í æfingaferð til Serbíu. Sport 23.10.2005 15:03
Curry stóðst læknisskoðun Miðherjinn Eddy Curry gekk formlega í raðir New York Knicks í NBA deildinni í gærkvöldi, þegar hann stóðst umfangsmikla læknisskoðun hjá félaginu. Curry spilaði ekki síðustu leikina með Chicago Bulls í úrslitakeppninni í vor eftir að hann greindist hjartveikur og fór frá liðinu eftir að vera skikkaður í DNA próf gegn því að fá nýjan samning. Sport 23.10.2005 15:03
Haukastúlkur í undanúrslitin Haukastúlkur eru komnar í undanúrslit Hópbílabikars kvenna eftir 24 stiga sigur á nýliðum Breiðabliks, 76-52, á Ásvöllum en Blikar höfðu unnið bikarmeistarana í fyrri leiknum með átta stigum. Sport 23.10.2005 15:02
Meistarakeppnin um helgina Góðgerðaleikir KKÍ fara fram á sunnudaginn en þar mætast Íslands- og bikarmeistarar karla og kvenna í Meistarakeppninni en sú venja hefur skapast að ágóði leikjanna rennur til góðgerðarmála. Að þessu sinni er það Foreldrafélag barna með axlarklemmu sem fær að njóta góðs af leikjunum. Sport 23.10.2005 15:02
Iverson ósáttur við nýjar reglur Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, er einn þeirra sem eru afar óhressir með reglur sem taka gildi í vetur, sem snúa að klæðaburði leikmanna á keppnisferðalögum. David Stern hefur í huga að beita þá leikmenn sektum sem ekki ganga um í snyrtilegum jakkafötum á leið til og frá keppni með liðum sínum. Sport 23.10.2005 15:02
Arnór, Sigfús og Alfreð slógu met Arnór Atlason, Sigfús Sigurðsson og þjálfarinn Alfreð Gíslason í Magdeburg, slógu nýtt met í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með 23ja marka sigri á botnliði Wilhelmshavener HV í fyrrakvöld, 45-22. Sport 23.10.2005 15:02
Logi atkvæðamikill Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson skoraði 22 stig fyrir lið sitt Bayreuth í gærkvöld, þegar liðið lagði Mainfranken Wurzburg auðveldlega, 99-63 í þýsku annari deildinni. Bayreuth hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í deildarkeppninni og hefur Logi farið mjög vel af stað með nýja liðinu sínu. Sport 23.10.2005 15:02
Meistararnir mætast í Keflavík Góðgerðaleikir KKÍ fara fram á sunnudaginn en þar mætast Íslands- og bikarmeistarar karla og kvenna í Meistarakeppninni en sú venja hefur skapast að ágóði leikjanna rennur til góðgerðarmála. Sport 23.10.2005 15:02
Marbury er líka með skrítið hjarta Stephon Marbury, leikstjórnandi New York Knicks, sem í dag gekk frá kaupum á miðherjanum Eddy Curry frá Chicago Bulls, hefur litlar áhyggjur af meintum hjartagalla Curry og segist sjálfur vera með kvilla sem kallast "hjartaóhljóð". Sport 23.10.2005 15:02
Skipti hjá Toronto og Houston Leikstjórnandinn Rafer Alston er farinn frá Toronto Raptors til Houston Rockets í skiptum fyrir Mike James. Alston er hæfileikaríkur leikmaður sem skoraði að meðaltali 14,2 stig og gef 6,4 stoðsendingar á síðasta tímabili hjá Kanadaliðinu, en komst oftar en einu sinni upp á kant við þjálfara og forráðamenn liðsins í fyrra. Sport 23.10.2005 15:02
Stoudemire skrifaði undir í gær Framherjinn Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns skrifaði í gær undir nýjan fimm ára samning við félagið og fær fyrir hann rúmar 70 milljónir dollara. Stoudemire er talinn einnn efnilegasti leikmaður NBA deildarinnar í dag og segja má að hann hafi tryggt sér samninginn með frábærum leik sínum í úrslitakeppninni í vor, þar sem hann fór hreinlega hamförum. Sport 23.10.2005 15:02
Leverkusen sigraði á æfingamóti Bayer Leverkusen Giants, lið Jakobs Sigurðarsonar í Þýskalandi, sigraði á æfingamóti í körfubolta sem haldið var í Hollandi um helgina. Leiktíðin í Þýskalandi fer nú senn að hefjast og forvitnilegt verður að sjá hvernig Jakob tekst til með nýju liði sínu. Sport 23.10.2005 15:02
Eddy Curry til New York Knicks Miðherjinn Eddy Curry, sem leikið hefur með Chicago Bulls síðustu fjögur ár, var í nótt skipt til New York Knicks, eftir að hann hafði neitað að fara í DNA próf hjá Bulls vegna hjartagalla. Antonio Davis fer einnig til Knicks, en í staðin fær Chicago til sín þá Tim Thomas, Michael Sweetney og Jermaine Jackson. Sport 23.10.2005 15:02
Troðsla tryggði sigurinn Njarðvíkingar sigruðu á æfingamóti í Aarhus í Danmörku þegar liðið lagði heimamenn í Bakken Bears að velli í úrslitaleik með 69 stigum gegn 67. Heimamenn voru sjö stigum yfir þegar skammt var til leiksloka en Njarðvíkingum tókst að skora níu síðustu stigin í leiknum og unnu því með tveggja stiga mun. Sport 23.10.2005 15:01
Bandaríkin í efsta sæti hjá FIBA Bandaríkin eru enn í efsta sæti styrkleikalista FIBA í körfubolta, þrátt fyrir að hafa ekki riðið feitum hesti frá stórkeppnum að undanförnu. Evrópumeistarar Grikkja verða að láta sér lynda áttunda sætið á listanum. Sport 23.10.2005 16:58
Logi byrjaði vel Logi Gunnarsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir þýska 2.deildarliðið Bayreuth um helgina. Bayreuth vann Stuttgart með eins stigs mun, 91-90. Logi var stigahæsti leikmaður Bayreuth með 25 stig og þar af komu fimmtán úr þriggjastiga skotum. Sport 23.10.2005 15:01
Njarðvík vann mótið í Árósum Njarðvík fór með sigur af hólmi á æfingamótinu Bakken Bears knock out cup í körfubolta sem lauk í Árósum í dag. Þetta er annað árið í röð sem Njarðvíkingar hampa þessum titli en þeir sigruðu Bakken Bears naumlega í úrslitaleik í dag, 69-67. Heimamenn voru yfir 67-60 en Njarðvíkingar áttu glæsilegan endasprett. Sport 23.10.2005 15:01
Njarðvík leikur til úrslita Njarðvíkingar leik til úrslita á æfingamóti í körfubolta karla sem fram fer í Árósum í Danmörku en það tryggðu þeir sér í dag þegar þeir lögðu Skovbakken 72-60. Brenton Birmingham var stigahæstur Njarðvíkinga með 26 stig. Þór Akureyri leikur um 5. sætið á mótinu en norðanmenn unnu Horsens með eins stigs mun í dag, 84-83. Sport 23.10.2005 15:01
NBA á Digital Íslandi í vetur Útsendingar NBA TV hefjast á Digital Íslandi laugardaginn 15. október. Þetta eru góðar fréttir fyrir alla áhugamenn um körfubolta en leikmenn í NBA eru þeir bestu í heimi. NBA TV sýnir hundruð leikja í beinni útsendingu auk ótal þátta um körfubolta. Ráðgert er sýna frá 170 leikjum á komandi keppnistímabili en deildin hefst í byrjun nóvember. Til viðbótar verða sýndir tæplega 100 leikir frá úrslitakeppninni auk leikja í kvennadeildinni, WNBA. Sport 23.10.2005 15:01
KR yfir gegn ÍR KRingar hafa forystu í hálfleik 37-27 gegn ÍR á Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik í Vesturbænum. KRingar geta með sigrinum tryggt sér Reykjavíkurmeistaratitilinn. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 27-14 fyrir KR. Pálmi Sigurgeirsson hefur skorað mest í liði KR, 12 stig og Skarphéðinn Ingason hefur skorað 7 stig og hirt 7 fráköst. Theo Dixon er atkvæðamestur ÍRinga með 11 stig, en liðið hefur hitt afar illa í fyrri hálfleik. Sport 23.10.2005 15:00
Hörkurimmur UMFG og UMFN Njarðvíkingar unnu Reykjanesmótið í körfubolta á dögunum en liðið vann alla sex leiki sína í mótinu. Það gat þó varla munað minna í leikjunum gegn Grindvíkingum en Njarðvík vann þá tvo leiki með samtals þremur stigum, þann fyrri á heimavelli með tveimur stigum í framlengdum leik og þann seinni með einu stigi í Grindavík á miðvikudagskvöldið. Sport 23.10.2005 15:00
Logi heitur með Bayeruth Landsliðsbakvörðurinn Logi Gunnarsson byrjar vel með sínu nýja liði Bayreuth í þýsku 2. deildinni en hann átti mjög góðan leik í æfingaleik gegn TSV Troester Breitenguessbach en þetta var fyrsti leikur hans fyrir félagið. Sport 23.10.2005 15:00
KRingar Reykjavíkurmeistarar KRingar tryggðu sér í kvöld Reykjavíkurmeistaratitilinn í körfubolta þegar þeir lögðu meistarana frá því í fyrra, ÍR, 87-59 í Vesturbænum. KR var yfir í hálfleik, 37-27. Pálmi Sigurgeirsson var stigahæstur í liði KR og skoraði 21 stig og hitti mjög vel. Sport 23.10.2005 15:00
Helga til ÍS Reykjavíkurmeistarar ÍS í kvennakörfunni fengu mikinn liðstyrk í gær þegar landsliðskonan Helga Jónasdóttir ákvað að spila með liðinu í 1. deild kvenna í vetur en með hennar liðsinni er ÍS-liðið orðið allra hávaxnasta lið deildarinnar. Sport 23.10.2005 15:00
Dómaraskortur í körfunni "Það hefur vantað körfuboltadómara undanfarin ár. Dómarar hafa verið yfirhlaðnir verkefnum og hver einasta helgi frá október og fram í apríl hefur verið undirlögð. Við þurfum að manna leiki í meistaraflokkum og yngri flokkum og alls eru þetta 1500 leikir," sagði Hannes Þ. Jónsson, formaður dómaranefndar Körfuboltasambandsins við Fréttablaðið. Sport 23.10.2005 15:00